Morgunblaðið - 11.10.1957, Blaðsíða 20
Alþingi var sett í gær
Emil Jónsson kosinn torseti Sam. þings
ALÞINGI var sett í gær. Það
var slydduveður í Reykjavík
kl. 1.30, er þingheimur gekic
úr Alþingishúsinu og til
kirkju, en þar var hlýtt
messu hjá séra Guðmundi
Sveinssyni, skólastjóra. Síðan
settist Sameinað þing á rök-
stóla. Tók Hermann Jónasson,
forsætisráðherra, fyrst til
máls, og setti Alþingi í um-
boði handhafa valds forseta
íslands. Þing það, er nú var
sett, er 92. þing frá endurreisn
Alþingis og 77. löggjafarþing-
ið. í lok ræðu sinnar minntist
forsætisráðherra forseta Is-
lands og fósturjarðarinnar, en
þingmenn tóku undir með
ferföldu húrrahrópi.
Aldursforseti, Jóhann Þ.
Jósefsson, þingmaður Vestmanna
eyinga, tók síðan við fundar-
stjórn. Hann minntist í upphafi
Barða Guðmundssonar þjóð-
skjalavarðar og fyrrverandi þing
Bjarni Benediklsson
hlaut verðlaun
Hóðurmálssjóðs
BLAÐINU barst I gær eftirfar-
andi fréttatilkynning frá stjórn
Minningarsjóðs Björns Jónsson-
ar, Móðurmálssjóðsins:
Stjórn Minningarsjóðs Björns
Jónssonar, Móðurmálssjóðsins,
ákvað á fundi, sem haldinn var
8. október síðastliðinn, á fæðing-
ardegi Björns Jónssonar, að veita
að þessu sinni Bjarna Benedikts-
syni, aðalritstjóra Morgunblaðs-
u:s, verðlaun.
í skipulagsskrá fyrir sjóðnum
segir, að tilgangur hans sé að
verðlauna mann, sem hefur aðal
starf sitt við blað eða tímarit,
fyrir vandað mál og góðan stíl.
Stjórn sjóðsins skipa: Dr. Einar
Ól. Sveinsson, prófessor í ís-
lenzkum bókmenntum við Há-
skóla íslands; er hann formaður
stjórnarinnar; dr. Halldór Hall-
dórsson, prófessor í íslenzku nú-
tíðarmáli við Háskóla íslands;
Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi,
skipaður af menntamálaráð-
herra; Karl ísfeld, blaðamaður,
kjörinn af Blaðamannafélagi ís-
lands, og Pétur Ólafsson, hag-
fræðingur, fulltrúi niðja Björns
Jónssonar.
manns, sem lézt 11. ágúst sl.
Rakti aldursforseti æviatriði hans
og störf, en þingmenn risu úr
sætum og vottuðu með því minn-
ingu hins látna virðingu sína.
Jóhann Þ. Jósefsson tilkynnti
síðan, að þar sem ekki hefðu
komið fram óskir um annað, yrði
þegar gengið til forsetakjörs i
sameinuðu Alþingi, eins og þing-
sköp gera ráð fyrir.
Um forsetakjörið urðu nokkur
orðaskipti milli Ólafs Thors, for-
manns Sjálfstæðisflokksins og
Hermanns Jónassonar forsætis-
ráðherra. Ólafur lýsti því yfir, að
ráðherrann hefði tjáð sér degi
áður, að forsetakjör myndi ekki
fara fram fyrr en síðar. Her-
mann Jónasson sagði, að senni-
legt hefði verið talið, að kjöri
yrði frestað og yrði það gert,
ef eftir því væri óskað og það
talið skipta máli. Ólafur Thors
svaraði því til, að hið eina, sem
hér skipti máli, væri að það
stæði, sem forsætisráðherra ís-
lands léti sér um munn fara.
Óskaði enginn eftir frestun, og
var gengið til atkvæða. Emil
Jónsson var kosinn forseti Sam.
þings með 28 atkv. Jón Pálmason
hlaut 17 atkv. og Einar Olgeirs-
son 1. .
Hinn nýkjörni forseti frestaði
eftir þetta fundi þar til í dag, án
þess að kosnir væru varaforsetar,
og er það óvenjuleg ráðstöfun.
Við þingsetninguna í gær voru
uandhafar valds forseta íslands:
Emil Jónsson, Hermann Jónasson
og Jónatan Hallvarðsson, einnig
fulltrúar erlendra ríkja og
nokkrir embættismenn.
Einu þingskjali var útbýtt í
gær: frumvarpi til fjárlaga fyrir
árið 1958.
Þingflokkur Sjálfstæðismanna hélt fund eftir að Alþingi hafði verið sett í gær. Var þessi mynd
tekin við það tækifæri. Á hana vantar tvo þingmenn, sem ekki voru komnir til þings, þá Pétur
Ottesen og Kjartan J. Jóhannsson. Bjarni Benediktsson var endurkjörinn formaður þingflokksins.
Fundur Sjálfslæðis-
félaganna í kvöld
HAFNARFIRÐI. — Fundur Sjálf
stæðisfélaganna er í Sjálfstæðis-
húsinu í kvöld og hefst kl. 8,30.
Verður þar rætt um bæjarmálin
og flytja framsöguræður þeir
Stefán Jónsson, Jón Gíslason,
Helgi S. Guðmundsson og Eggert
Isaksson, en að því búnu verða
frjálsar umræður.
Gefst Sjálfstæðisfólki þarna
gott tækifæri til að kynnast þeim
málum, sem nú eru efst á baugi
hér í bænum, en þessi fundur er
jafnframt sá fyrsti, sem félögin
efna til á vetrinum. — G. E.
Alvarlegur skortor ú þokjórni
Vöntun á íóðurbæti kemur sér einnig illa
þunga eftir á þegar tillit er tek-
ið til þess hve mikið af ánum
var tvílembt. Má því hiklaust
segja að útkoman sé góð þegar
MYKJUNESI, 9. okt. — Nú er
komin haustveðrátta, stormur og
stórrigningar. Eru það mikil við-
brigði eftir hina mildu tíð sum-
arsins. Er nú jörð öll orðin mjög I á allt er litið. — M. G,
blaut og algjör andstæða við það,
sem hefur verið í sumar. Haust-
verkin standa nú yfir og margs
er að gæta fyrir veturinn.
Mjög kemur það sér illa að nú
er fóðurbætislaust hér. Má segja
að það komi fyrir á versta tíma,
þar sem nú er verið að binda inn
kýrnar. Annars er og fer að
verða skortur hér á ýmsu. Al-
varlegastur er þó skorturinn á
þakjárni. Þess eru dæmi að menn
eru með opnar heyhlöður og
vantar járn á fjölda bygginga,
stórra og smárra. Er í þeim efn-
um hreinn voði fyrir dyrum, ef
ekki rætist úr bráðlega.
Slátrun að ljúka
Slátrun er nú að Ijúka hér í
sýslu, hjá Sláturfélagi Suður-
lands. í sláturhúsinu á Hellu er
í haust slátrað 13—14 þús. fjár.
Munu lömbin yfirleitt hafa reynzt
misjafnari en í fyrra og líkast til
heldur léttari að meðaltali. —
Flestir munu þó hafa meiri kjöt-
Cagsbrúnarkanp hefði ekki
hrokkið til onstar í Vík
sagði Benjamín Sigvaldason, þungur á brún
EINN af tíðindamönnum Mbl.
hitti í gærdag austur í ölfusi,
Benjamín Sigvaldsson, fræði-
mann og kjötmatsmann. Hann
var þungur á brún. Hann var að
koma frá kjötmatsstörfum austur
í Vík í Mýrdal og sagði sínar
farir ekki sléttar. Sagðist hann
sjaldan hafa orðið eins vondur
á ævi sinni, sjaldan fyllzt eins
réttlátri reiði og í skiptum sín-
um við Kaupfélag Skaftfellinga.
Benjamín kvaðst vera búinn
að vera þar eystra við kjötmat
hjá Kaupfélagi Skaftfellinga og
hjá Verzlunarfélagi V-Skaftfell-
inga. Hefði nann dvalizt eystra
um 3 vikna skeið. Ég bjó í hótel-
inu sem Kaupfél. Skaftfellinga
rekur. Hefði eg farið austur á
venjulegu Dagsbrúnarmanna-
kaupi, hefði það ekki einu sinni
hrokkið fyrir fæði, og húsnæði
— og ég e.t.v. verið fluttur
hreppaflutningi til Reykjavíkur,
sagði Benjamín. — Þegar ég
gerði upp við kaupfélagsstjórann
fyrir gistinguna, fylltist ég svo
mikilli og réttlátri reiði að
eg_ svaf lítið sem ekkert 1 nótt.
— Fyrir gistingu og mat á þessu
þriggja vikna tímabili var mér
gert að greiða rúmar 2900 krón-
ur. Hefði eg haft Dagsbrúnar-
kaup þar eystra, hefðu tekjurnar,
miðað við 8 stunda vinnudag,
orðið um 2700 krónur, sagði
Benjamín, sem ekki átti nægi-
lega sterk orð til þess að lýsa
reiði sinni. Hann sagðist hafa
sagt kaupfélagsstjóranum það
rétt eins og það var. Eg gat
greitt þennan háa reikning, því
sem kjötmatsmaður hafði eg
nokkru hærra kaup en hið al-
menna Dagsbrúnarkaup, sagði
Benjamín, sem var á leið til
Reykjavíku"
Dýrbítur heima
við fúii
VALDASTÖÐUM, 9. okt.: Fyrir
aðeins fáum dögum fann bónd-
inn á Fossá, Björgvin Guðbrands
son, veturgamla kind frá sér
heima við túngirðingu mjög illa
útlítandi eftir dýrbít. Hafði dýrið
veitt henni allmikinn áverka á
annan bóginn og einnig var hún
illa bitin að framan.
Þrjú undanfarin haust, segir
Björgvin, að fundizt hafi kind-
ur, sem greinilega hafi drepizt
af völdum dýrbíts. Á sl. vori
fannst greni ekki alllangt frá
þessum slóðum er hér um getur,
og vannst það að fullu.
Nokkru áður en Björgvin fann
þessa kind heima við tún, ók
bílstjóri héðan úr sveitinni fram
á hlaupadýr, ekki alllangt frá
Fossá. Grunur leikur á að þarna
geti verið um sama dýrið að
ræða, sem þessum ófögnuði hef-
ur valdið heima við tún. Sjáan-
lega verður enn að herða sóknina
gegn þessum vágesti, til þess að
firra bændur því tjóni er af hon-
um kann að hljótast frekar en
orðið er, og koma í veg fyrir þann
kvalarfulla dauða, sem skepnurn
ar verða að líða. — St. G.
Bókauppboð
Sigurðar 1 dag
í DAG kl. 5 heldur Sigurður
Benediktsson fyrsta bókauppboð
sitt á þessu hausti í Sjálfstæðis-
húsinu. Á þessu uppboði eru alls
95 bækur þar á meðal margt ævi-
og útfaraminninga. Nokkuð er
þar sjaldgæfra bóka, og má nefna
Eintal sálarinnar eftir Arngrím
lærða 4. útg. Hólar 1746, „Vasa-
qver fyrir Bændur og Einfalldn-
inga“ Höfn 1728, „Leirgerður"
Messu-saungs og Sálma-bók,
Leirá 1801, íslenzk fornrit, alls 14
bindi, frumútgáfa sem nú er ó-
fáanleg, og mjög sjaldgæf bók
eftir Hagalín, Nokkur orð um
sagnaskáldskap, Seyðisfirði 1923.
Kona meiðist
í bílslysi
SLYS varð á Suðurlandsbrautinni
í gærdag er jeppabíll ók inn und-
ir vörupall á bíl. Kona sem sat
í jeppanum meiddist og allmiklar
skemmdir urðu á jeppabílnum.
Þetta gerðist með þeim hætti að
vörubíllinn sem á undan jeppan-
um ók nam staðar vegna um-
ferðartafa rann þá jeppinn inn-
undir pall bílsins, með fyrrgreind
um afleiðingum. Konan sem heit
ir Ríkey Búadóttir, til heimilis
suður við Fífuhvammsveg, skarst
nokkuð.
10 ára afmælishóf
Heimis
Á MORGUN minnist Heimir, fé-
lag ungra Sjálfstæðismanna í
Keflavík 10 ára afmæli síns með
hófi í Ungmennafélagshúsinu.
Heimir var stofnaður 5. október
1947. Voru stofnendur hans 62
að tölu. Nú eru í félaginu 318
manns. Félagsstarfið hefir jafn-
an verið öflugt og gott.
Afmælishófið hefst kl. 9 meS
borðhaldi. Ólafur Thors formaður
Sjálfstæðisflokksins flytur ávarp.
Ennfremur Eyjólfur K. Jónsson,
Guðmundur Jónsson óperusöngv-
ari syngur og Karl Guðmunds-
son leikari skemmtir. Þá verður
stiginn dans. Allt Sjálfstæðisfólk
er hvatt til að koma til hátíðar-
innar.
Hæslu vinningarnir
komu á fjórðungs-
miða
DREGIÐ var í 10. flokki Happ-
drættis Háskólans í gær um 838
vinninga að upphæð 1.050.000,00.
100 þús. kr. kom á 24053, fjórð-
ungsmiða selda á Akranesi, Vík
og Patreksfirði Kr. 50,000,00 kom
á 12965, fjórðungsmiða, selda hjá
Jóni Arnórssyni og Guðrúnu Ól-
afsdóttur í Bankastræti 11. 10
þús. kom á 1096 hálfmiða selda
hjá Frímanni í Hafnarhúsinu,
3795, fjórðungsmiða selda hjá
Frímanni, 18590, fjórðungsmiða
einnig hjá Frímanni, 32678, heil-
miða hjá Jóni Arnórssyni og Guð
lúnu Ólafsdóttur.
5000 kr. vinning hlutu 6850,
9932, 14599, 19163, 38334.
(Birt án ábyrgðar).