Morgunblaðið - 16.10.1957, Blaðsíða 14
14
Moncinsnj 4»1Ð
Miðvíkudagur 16. okt. 1957
Kvennadeild Salarrann-
sóknafélags * Islands
Fundur að Garðastræti 8 nk. fimmtudag
17. október kl. 8,30. Stjórnin.
Skandinavisk Boldklub
Badminton træningen bliver i vinter pá
onsdage mellem kl. 21,20 og 22,10
söndage mellem kl. 18,00 og 18,50
i K. R. húsið. Gamle og nye medlemmer bedes möde
i aíten for tilmeldelse. Adgang til træning er áben for
islændinge. Badminton afdelingen.
BíSaviðgerðarmaÖur
helzt mefstari,
óskast á verkstæði sem fyrst.
Húsnæði fylgir, ef þarf.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „Bílaviðgerðir —3016“.
Lögtok
Samkvæmt kröfu borgarstjórans í Reykjavík f. h. bæj-
arsjóðs og að undangengnum úrskurði, verða lögtök látin
fara fram fyrir ógoldnum útsvörum til bæjarsjóðs fyrir
árið 1957, er lögð voru á við aðalniðurjöfnun og fallin
eru í eindaga, svo og fyrir dráttarvöxtum og kostnaði,
að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar,
verði gjöld þessi eigi greidd að fullu innan þess tíma.
Borgarfógetinn í Reykjavík, 16. október 1957.
Kr. Kristjánsson.
Bergsteinn í Bergsteinsson
fiskmafsstjóri fimmtugur
I DAG er Bergsteinn A. Berg-
steinsson fiskmatsstjóri fimmtug
ur. Hann er fæddur 16. október
1907 að Tjörnum undir Eyjafjöll-
um. Foreldrar hans voru Berg-
steinn bóndi á Tjörnum Berg-
steinssonar bónda Fitjarmýri Ein
arssonar, hreppstjóra á Selja-
landi, ísleifssonar merkisbónda,
er bjó á Seljalandi í nærfellt 40
ár og var annar gildasti bóndi
undir Eyjafjöllum á sinni tíð. Var
hann hinn mesti sæmdarmaður
sem langfeðgar hans Dalverjar og
Höfðabrekkumenn. Kona Berg-
steins bónda á Tjörnum og móðir
Bergsteins fiskmatsstjóra, var
Sigríður Tómasdóttir, ættuð und
an Austur-Eyjafjöllum.
Föður sinn missti Eergsteinn
ungur, er hann fórst með „Is-
lendingnum“ í fiskiróðri við Vest-
mannaeyjar 1912, en hann var for
maður á honum. Bergsteinn ólst
upp undir Eyjafjöllum til ferm-
ingaraldurs, en þá fór hann til
Vestmannaeyja og dvaldist þar
að mestu til tvítugsaldurs. Gekk
hann þar að almennum störfum
til sjós og lands, réri m.a. á vetr-
arvertíðum.
Bergsteinn byrjaði að starfa
hjá Fiskimálanefnd 1935, en
nefndin keypti um það leyti hrað-
frystistöð þá, er Ingólfur Espolín
hafði látið gera, þar sem Fiskhöll-
in er nú til húsa við Norðurstíg,
og rekið um nokkurt skeið. Reið
Ingólfur Espólin þarna á vaðið
með fiskfrystingu eins og hún
gerist nú hér á landi, þ.e. á flök-
um frystum milli tveggja platna.
Flökin voru síðan sett í umbúðir
á sama hátt og nú. Var þessi fryst
ing eftir brezkri og amerískri fyr-
irmynd Bird Eye, sem Englend-
ingar voru þá fyrir nokkru byrj-
aðir á. En fiskfrysting hér á landi
var fyrst framkvæmd af Sæ'nska
frystihúsinu um 1930 og páver-
andi forstjóra þess H. Gustavson.
Var það frysting á heilum fiski
og flökum í pækli eftir svonefndri
Ottesens aðferð.
Eftir að Fiskimálanefnd keypti
þessa tilraunastöð af Ingólfi Es-
pólín, réði hún hann sem forstöðu
mann stöðvarinnar og til að ferð-
ast erlendis og kynna framleiðsl-
una.
Bergsteinn hafði þarna á Norð-
urstígnum þann starfa að búa út
sýnihorn eftir fyrirsögn Espólins.
Fyrst var þetta ekki stærra en
það, að hann gerði allt: flakaði,
frysti og pakkaði fiskinn jafn-
framt því sem hann gætti vél-
anna.
Þessi starfsemi var ekki þarna
á Norðurstígnum nema um eins
árs skeið, eftir að Fiskimálanefnd
keypti stöðina. Um það leyti tók-
ust samningar við Breta um kaup
á frosnum fiskflökum í öskjum
og pergamentspappír. Var það
undirstaðan að því, sem siðar
kom.
Fiskimálastjórnin leigði nú fs-
Vekií etóraukna aðdáun
Mjallhvítur fatnaðúr mun vekja aðdáun,
bæði á börnum yðar og þvotti yðar. Að
vísu hreinsa algeng þvottaefni þvottinn, en
einungis hið bláa Omo gerir hvítan fatnað
skjallhvítan. Hvíti þvotturhan, og líka sá
misliti, mun verða hvítari en nokkru sinni
fyrr, og hversu grómtekin sem fötinu eru,
hreinsar OMO hvern blett. Athugið mun-
inn, þegar þér notið ilmandi hið bláa OMO.
HIÐ BLÁJl OMO SKILAR YÐUR
neimim msmm pv&mí
björninn við Tjörnina, sem í upp-
hafi var nokkurs konar móður-
skip fyrir frystihúsin, sem risu
nú upp eitt á fætur öðru. Og Bret-
ar keyptu frystu flökin svo að
segja einir fyrstu 10 árin, en þar
af voru 5 stríðsárin, en þá fleygði
þessum iðnaði mjög fram.
Fiskimálanefnd annaðist söl-
una á fiskinum fyrstu árin, þar til
félagssamtök frystihúsanna sjáfra
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
og Samband ísl. samvinnufélaga,
tóku hana í sínar hendur um 1942.
Bergsteinn Á. Bergsteinsson
var ráðinn fyrsti verkstjóri þarna
í ísbirninum og starfaði hjá Fiski
málanefnd þar til 1940.
Þegar Bretar fóru að kaupa
hér frosinn fisk, sendu þeir tvo
Breta til að kenna íslendingum
verkunina eins og þeir vildu hafa
hana. Þessir menn voru Mr.
Clary Norgan og Mr. Jack Car-
nett. Voru þeir hér árum saman
við þetta leiðbeiningarstarf, og
ferðuðust um allt land. Seinna
fór Bergsteinn að fara í slíkar
ferðir, og menn komu í ísbjöm-
inn til þess að kynna sér þessa
vinnu.
Þegar Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna hóf starfsemi sína, réðist
Bergsteinn fljótlega til hennar
sem leiðbeinandi og starfaði þar,
þangað til hann var skipaður yfir
fiskmatsmaður á freðfiski árið
1944, en þá hófst vísir að opin-
beru mati á þessari vöru. Arið
eftir, 1945, er hann skipaður mats
stjóri á freðfiski, og árið 1949 er
harm skipaður fiskimatsstjóri og
þar með yfirmaður all fiskmats
í landinu. Nú starfa hjá Fiskmati
ríkisins 9 yfirfiskmatsmenn og
yfir 100 fiskmatsmenn í frysti-
húsum víðs vegar um land auk
saltfisks- og skreiðarmatsmanna.
Jafnframt gæðamati hefur Fisk
mat ríkisins gengizt fyrir nám-
skeiðum um fiskmat og fiskfram-
leiðslu síðan 1947, og hefur fisk-
matsstjóri veitt þeim forstöðu og
kennt þar ásamt öðrum kunnáttu-
mönnum.
Bergsteinn hefur farið fjölda
ferða til markaðslandanna til að
kynna sér kröfur kaupenda og
neytenda og verkunaraðferðir
keppinauta íslendinga á maikað-
inum.
Frá því fiskmat var sett á fót
hér á landi, hefur alltaf staðið
nokkur styr um þá menn, sem
valizt hafa til að gegna þessu
vandasama starfi, enda skiljan-
legt þar eð hér er um mikið hags
munamál að ræða fyrir viðkom-
komandi aðila bæði innlenda og
erlenda. Þeim mönnum, sem hér
eru að verki, er einatt miktll
vandi á höndum, og ekki sízt
manninum, sem hefur yfirstjórn
þessara mála og kemur til kasta
að skera úr, þegar ágreiningur
verður. En þrátt fyrir ýmis óhjá-
kvæmileg misklíðarefni, sent upp
hljóta að koma í slíku starfi, verð
ur ekki annað sagt, en að Berg-
steini Á. Bergsteinssyni hafi tek-
izt að synda hér milli skers og
báru. Hefur hann oft þurft á
festu sinni og stjómsemi én þó
lægni að halda,
Bergsteinn er kvæntur ágætri
konu, Sesselju Sigurðardóttur,
Daníelssonar gullsmiðs frá Eyrar
bakka, og eiga þau f jögur mann-
vænleg börn.
Bergsteinn dvelst nú erlendis.
Á þessum merku tímamótum
ævi þinnar vil ég árna þér allra
heilla Bergsteinn, og þakka þér
þann ríka þátt, sem þú hefur átt
í því að skipuleggja gæðamat á
mestum hluta útflutningsvöru
okkar og þitt mikla starf til auk-
innar vöruvöndunar.
Einar Sigurðsson.
Fataskápur
nýr og fallegur til sölu, með
góðum kjörum, i Sigluvogi
10, uppi. —
Bfc’ZT AÐ AUGLfSA
í MORGUNBLABUSU
«