Morgunblaðið - 16.10.1957, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 16. okt. 1957
MORGVNBLAÐIÐ
15
Samþykktir F jó r ð u n g s þ i n g s Vestfjarða:
Landhelgislínan verSi fœrð úf - hcetf-
ar flugsamgöngur og símasamband
Fagnað framkvæmdum i raforkumálum
FJÓRÐUNGSÞING Vestfjarða
fyrir árið 1957 *var sett að Bjark-
arlundi hinn 31. ágúst sl. Stóð það
í tvo daga. Sturla Jónsson odd-
viti á Suðureyri setti þingið, en
forsetar þess voru kjörnir þeir
Jóhann Salberg Guðmundsson
sýslumaður og Ari Kristinsson
sýslumaður. Ritarar þingsins
voru þeir Páil Pálsson í Þúfum
og Jóhannes Davíðsson í Hjarð-
ardal. Á fundinum voru mætt-
ir 18 fulltrúar og tveir af þing-
mönnum Vestfjarða, þeir Kjart-
an J. Jóhannsson og Sigurvin
Einarsson.
Margar tillögur samþykktar
Margar tillögur voru sam-
þykktar á þinginu, m.a. þessar:
Fjórðungsþingið lýsti yfir á-
nægju sinni með samþykkt Al-
þingis í handritamálinu og sam-
þykkti að leggja fram á þessu
ári kr. 2.800 til væntanlegrar hús-
byggingar yfir Árnasafn.
Samþykkt var að skora á fé-
lagsmálaráðuneytið að hlutast til
um, að fé það, sem greitt er til
atvinnuleysistrygginga, verði
geymt og ávaxtað í lánastofnun-
um viðkomandi bæjar- eða sveit-
arfélags.
Þá var samþykkt óskorun til
Alþingis um að auka fjárveit-
ingar til nýrra þjóðvega á Vest-
fjörðum. f því sambandi var lögð
áherzla á að lokið verði á næsta
ári lagningu Arnarfjarðarvegar,
sem tengir Vestfirði við Barða-
strandarveg, að lokið verði á
næsta ári lagningu Vatnsfjarðar-
og Ögurvegar, að fullgerður verði
sem allra fyrst vegur frá Kalda-
lóni út að Mýri á Snæfjallaströnd.
Og ennfremur beindi þingið því
til vegamálastjórnarinnar, að hún
láti fara fram athugun á vegar-
stæði úr Háttardal í Súðavíkur-
hreppi, um Skötufjarðarheiði nið
lir í Húsadal í Mjóafirði.
Fjármál sveitafélaga
Fjórðungsþingið samþykkti að
leggja til að ríkissjóður taki að
sér greiðslur bæja- og sveita-
félaga til atvinnuleysistrygginga-
sjóðs að fullu, að ríkissjóður
greiði halla á sjúkrahúsum og
sjúkraskýlum, sem bæja- og
sveitafélög reka, — og að lagt
verði landsútsvar á áfengisverzl-
un, tóbakseinkasölu og verzlun-
ar- og viðskiptafyrirtæki, sem að
allverulegu leyti hafa tekjur sín-
ar af þjónustu við landsbyggð-
ina, sem verði tekjustofn bæja-
og sveitafélaga.
Þá fagnaði Fjórðungsþingið
því, sem áunnizt hefir í raforku-
málum Vestfirðinga og leggur
ríka áherzlu á að veita rafmagni
hið fyrsta til þeirra kauptúna og
sveitafélaga, sem fyrirhugað er
að fái rafmagn frá þeim raforku-
verum, sern reist hafa verið, og að
10 ára áætlun raforkumálastjórn
arinnar verði framfyigt.
Landhelgislínan verði færð út
Fjórðungsþingið ítrekaði fyrri
samþykktir sínar í landhelgismál-
inu og gerði þá kröfu til Alþing-
is og ríkisstjórnar, að landhelgis-
línan verði færð út og friðuð
verði hefðbundin fiskimið línu-
báta úti fyrir Vestfjörðum og á
Húnaflóa. Verði öflugri gæzlu
haldið uppi á hinum friðlýstu
svæðum.
Þá var samþykkt að skora á
Alþingi og símamálastjórn að
bæta hið fyrsta ástandið í síma-
málum Vestfjarða, bæði innan
héraða og við aðra landshluta.
Enn fremur skoraði þingið á síma
málastjórnina að setja sem fyrst
upp sjálfvirka símstöð fyrir ísa-
fjörð og nágrannakauptúnin.
Bættar flugsamgöngur
Fjórðungsþingið skoraði ein-
dregið á flugmálastjórnina
að hefja hið allra fyrsta
flugvallargerð á Skipeyri við
Skutulsfjörð. Enn fremur skor-
aði þingið á flugmálastjórnina að
láta fara fram rannsókn á flug-
vallarstæðum víða á Vestfjörðum
eftir því, sem henta þykir til þess
að tryggja viðunandi flugsam-
göngur.
Samþykkt var að leggja fram
3000 kr. til minnisvarða Jóns
Sigurðssonar á ísafirði.
Stjórnarkosning
f stjórn Fjórðungssambandsins
voru kosnir Ari Kristinsson sýslu
maður Barðstrendinga, Jóhann
Salberg Guðmundsson sýslumað-
ur Strandamanna og Sturla Jóns-
son oddviti á Suðureyri. Vara-
menn voru kjörnir Sigurður Elías
son, Jóhann Gunnar Ólafsson og
Hjörtur Hjálmarsson.
WíLLIT - plata 1 cm.
á þykkt einangrar jafnt og:
1,2 cm asfalteraður korkur
2,7 cm tréullarplata
5.4 cm gjallull
5.5 cm tré
24 cm tígulsteinn
30 cm steinsteypa
WELLIT þolir raka og fúnar ekki. WELLIT plötur erumjög léttar og auðveldar í meðferð.
Brigðir fyrirliggjandi.
IVIcirz Trading Co.
Klapparstíg 20 — Sími 17373
Verð:
4 cm. þykkt kr. 30.50 ferm.
5 cm þykkt kr. 35.70 ferm.
Eruð þér skemmtilegur
Viljið þér reyna hæfni yðar sem skemmtikraftur?
Ef þér getið sungið dægurlög, dansað, sýnt sjónhverf-
ingar, dáleitt, sagt fyndnar sögur, eða gert eitthvað ný-
stárlegt — þá fáið þér nú tækifæri til að reyna yður sem
skemmtikraftur.
Viðtalstími kl. 6—8 e. h.
í Breiðfirðingabúð (uppi) í dag).
Diversion.
íbúð óskast
Óska eftir 2—3 herbergja íbúð.
Upplýsingar í síma 19611.
Til sölu
er allt bókaupplag bókaútgáfanna Hrímfells ©g
Snæfells, ef viðunandi boð fæst:
Bækurnar eru þessar:
Helvegir hafsins
Undraheimar undirdjúpanna
Sjö ár í þjónustu friðarins
Frumskóga Rutsi
Læknishen dur
í leit að Paradís
Tímaritið S.O.S.
Forlagsverk bókanna nemur um kr. 650.000.00.
Þeir, sem kynnu að vilja kaupa bókaupplagið, sendi
tilboð fyrir 1. nóvember nk. til undirritaðs, er gefur
allar nánari upplýsingar.
Skiptaráðandinn í Vestmannaeyjum,
9. október 1957.