Morgunblaðið - 16.11.1957, Qupperneq 2
2
MORCVISBL 4ÐJÐ
Tiaugardagur 18. nóv. 1957
*
■t
K
Rannsókn á vísitölunni
ÓLAFUR BJÖRNSSON flytur eftirfarandi tillögu til þingsályktunar
lun rannsókn á vísitölufyrirkomulagi og vísitöluútreikningi:
Alþingi ályktar að skipa 5 manna nefnd til þess að athuga
áhrif vísitölufyrirkomulagsins í launagreiðslum á fjárhagskerfið,
ennfremur grundvöll þann, er visitöluútreikningurinn nú er byggð-
ur á, og áhrif þau á kaupgjaldsgreiðslur, er það mundi hafa, ef
hann yrði færður i rétt horf. Af nefndarmönnum séu 3 tilnefndir
al sameinuðu Alþingi með hlutfallskosningu, einn af Alþýðusam-
bandi fslands og einn af Vinnuveitendasambandi fslands.
Vísitalan er byggð á gömlum
búreikningum
í greinargerðinni segir:
Tilgangur þess að láta kaup-
gjald breytast til samræmis við
breytingar á vísitölu framfærslu-
kostnaðar er sá að tryggja kaup-
mátt launa, þótt dýrtíð vaxi.
Grundvöllur núverandi útreikn
ings vísitölu framfærslukostnað-
ar er byggður á búreikningum,
er nokkrar fjölskyldur í Reykja-
vík, aðallega verkamannafjöl-
skyldur, voru fengnar til að
halda á tímabilinu 1. júlí 1939
til 30. júní 1940. Það er kunnara
en frá þurfi að segja, að geysi-
miklar breytingar hafa orðið á
neyzluvenjum fólks á þeim 18
árum, sem síðan eru liðin, m. a.
vegna bættrar efnahagsafkomu.
Er sú ástæða ein næg sönnun
þess, að grundvöllur visitöluút-
reikningsins hlýtur að vera úr-
eltur.
Vísitalan sýnir ekki vöxt
dýrtíðarinnar
En þar að auki er nú hverju
mannsbarni ljóst, að markvisst
hefur verið unnið að því með
ráðstöfunum í verðlagsmálum af
hálfu stjórnarvaldanna, að vísi-
talan gefi alranga mynd af raun-
verulegri þróun verðlagsins. Hef-
ur þó fyrst keyrt um þverbak í
þeim efnum með ráðstöfunum
þeim í efnahagsmálum, sem gerð-
ar voru um s. 1. áramót af nú-
verandi stjórnarflokkum. En þess
ar ráðstafanir og aðrar, sem
gerðar hafa verið af núverandi
ríkisstjórn, hafa m. a. verið í því
eftir því sem kæra og fram-
töl frá viðkomandi einstakl-
ingi kunna að gefa tilefni til.
í ljós kann að koma, að sumt
af því fólki, sem skráð er pannig
fólgnar að dulbúa vöxt dýrtíðar-
innar með því að halda niðri
verði á þeim vörutegundum, sem
veigamestar eru í vísitölunni,
með auknum álögum á aðrar
vörutegundir, sem almenningur
kaupir og neytir, en ekki hafa
verulegt gildi í grundvelli vísi-
töluútreikningsins.
Endurskoðun nauðsynleg
Vísitalan er því orðin með
öllu ónothæfur mælikvarði á
verðlagið, en af því leiðir, að
vísitölufyrirkomulagið í launa
greiðslum nær ekki þeim til-
gangi sínum að tryggja kaup-
mátt launanna.
Það má telja með öllu óvið-
unandi, að enginn nothæfur
mælikvarði á þróun verðlags-
ins sé til. En jafnframt því,
að vísitöluútreikningurinn
yrði færður í réttara horf, er
óhjákvæmilegt, að rannsökuð
séu áhrif vísitölufyrirkomu-
lagsins í launagreiðslum á
fjárhagskerfið, og leitað sé
úrræða, er veiti launþegum
betri tryggringu fyrir óskert-
um kaupmætti launa en vísi-
tölufyrirkomulagið gerir nú,
án þess að stofnað sé til upp-
lausnar fjárhagskerfisins.
Nauðsyn ber því til þess, að
vísitölufyrirkomulagið og vísi-
töluútreikningurinn sé tekið
til athugunar og endurskoð-
unar af fulltrúum Alþingis og
samtaka þeirra, er hér eiga
mestra hagsmuna að gæta, og
því er tillaga þessi fram bor-
in.
annað, sem fram kemur úr þeirri
átt, t. d. eins og þegar Samband
ísl. samvinnufélaga náði því að
vera útsvarslaust í bænum fyrir
heilt ár!
Páll Ásgeir Tryggvason
Nýr hæslaréllar
lögmaður
PÁLL Ásgeir Tryggvason, deild-
arstjóri í utanríkisráðuneytinu,
hefur nú lokið prófmálum sínum
fyrir Hæstarétti, en þau eru þrjú,
og þar með öðlast réttindi til að
flytja mál fyrir réttinum, sem
hæstaréttarlögmaður.
Páll Ásgeir varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík ár-
ið 1942 og settist þá í lagadeild
Háskóla íslands, en þar lauk
hann embættisprófi vorið 1948
með mjög hárri fyrstu einkunn.
Gerðist hann þá þegar fulltrúi í
dómsmálaráðuneytinu, en síðan
haustið 1948 hefir hann verið í
utanríkisráðuneytinu og deildar-
stjóri alþjóðadeildar ráðuneytis-
ins nú í rúmlega eitt ár.
Páll Ásgeir hefur alla tíð síðan
hann varð stúdent tekið virkan
þátt í félagsmálum þeirra, svo
sem t.d. í stjórn stúdentaráðs á
háskólaárum sínum og var form. <
Stúdentafélags Reykjavíkur ár-
ið 1951—52.
Páll Ásgeir er sonur hins þjóð-
kunna útgerðarmanns Tryggva
Ófeigssonar og konu hans Herdís-
ar Ásgeirsdóttur. Páll er nú 35
ára að aldri og kona hans er frú
Björg Ásgeirsdóttir, Ásgeirsson-
ar, forseta fslands.
Leiðrétting
VILLA varð í frásögn þeirri, sem
birtist í gær af fulltrúaráðsfundi
Sjálfstæðisfélaganna.
A fundinum ritaði blaðamaður
Mbl. niður eftir Ólafi Thors, að
á árunum 1954—1956 hefði báta-
flotinn aukizt um 4416 tonn, en
á stjórnarári Lúðvíks Jósefsson-
ar um rúm 1200 tonn. Þetta er
að sjálfsögðu rétt.
Við samningu greinarinnar tók
blaðamaðurinn upp til skýringar
svofelld ummæli úr Þjóðviljan-
um: „Fiskiflotinn hefur verið
aukinn meira á einu ári en á 3
árum í tíð íhaldsins“. Þetta tákn-
ar að sjálfsögðu, að Þjóðviljinn
heldur því fram, að ,aukningin á
stjórnarári Lúðvíks hafi verið
meira en 4416 tonn en ekki 1200
tonn, eins og rétt er. Hitt er mis-
skilningur hjá blaðamanni Mbl.,
að Þjóðviljinn segi, að aukning
flotans á stjórnarári Lúðvíks sé
13.000 (þ. e. þrisvar sinnum aukn
ingin 1954—56). Blekkingarnar
hjá kommúnistablaðinu eru nógu
jniklar samt!
Firmakeppni
í badminton
TENNIS- og badmintonfélag
Reykjavíkur, hefur ákveðið að
efna til firmakeppni í tvíliðaleik
í badminton og hefjast undanrás-
ir í dag klukkan 4 í KR-hús-
inu. Félagið hyggst nú fá hingað
danskan kennara til þess að veita
félagsmönnum tilsögn og er efnt
til firmakeppninnar í því skyni
að félagið fái staðið undir nauð-
synlegum kostnaði af komu hins
danska þjálfara. Um 60 fyrirtæki
hafa ákveðið þátttöku sina í
keppninni, sem búizt er við að
verði skemmtileg og spennandi.
Til úrslita verður keppt um verð-
launagrip.
Aukaniðuriöfnun útsvara
hefur farið fram eins og
lögboðið er
Kærufrestur til 22. þessa mánaðar
EINS og fyrirskipað er í út-
svarslögunum hefur svonefnd
aukaniðurjöfnun útsvara far-
ið fram hér í bæ. Kærufrestur
er til 22. nóv. n. k.
Einstaklingar, sem hér
koma til greina eru þeir, sem
skv. Þjóðskrá Hagstofu ís-
lands, hafa haft aðsetur hér í
bæ í meira en ár áður en
álagning fer fram. Hins veg-
ar telja þessir einstaklingar
sér lögheimili annars staðar,
þó þeir hafi atvinnu og aðset-
ur hér í bæ. —
Áætlunarútsvör
Eins og áður er sagt er Þjóð-
skrá Hagstofu íslands lögð
hér til grundvallar. En með
því að þessir einstaklingar
hafa ekkert framtal sent og
ekki gert grein fyrir sér á
annan hátt, er þeim áætlað
útsvar, sem þeir síðan fá
breytt eða jafnvel fellt niður,
í Þjóðskránni sé skólafólk eða
aðrir slíkir einstaklingar, sem að
jafnaði bera ekki útsvar en úr
því þeir höfðu haft hér aðsetur
skv. Þjóðskránni en hafa ekki
gert grein fyrir högum sínum,
var ekki um annað að ræða, en
áætla öllum einstaklingum út-
svar, sem svo stendur á um,
sem getið er hér á undan. Þetta
er í samræmi við það sem ver-
ið hefur og lögmælt er.
„Tíminn“ er að dylgja um
það í gær, að Niðurjöfnunar-
nefnd hafi, í sambandi við
þessa útsvarsálagningu, „far-
ið mun lengra en venjulegt
er“ og að kærufrestur. sé á-
kveðinn „stuttur". Þetta er
gersamlega út í loftið, álagn-
ingaraðferð er hin sama og
kærufrestur skv. lögum.
Framsóknarklækir.
I sambandi við æsingagrein
Tímans má rifja upp að það orð
hefur lengi legið á að ýmsir
Framsóknarmenn, sem flytjast cil
Reykjavíkur og hafa þar atvinnu,
reyni sem lengst að telja sér lög-
heimili utanbæjar til að losna við
að greiða útsvar til Reykjavíkur-
bæjar. Er þetta í samræmi við
Stóraukin samvinna
Atlantshafsríkjanna
er tyrsta boðorð þingmannaráðsfefnunnar
PARÍS, 15. nóv. — Frá Reuter
STJÓRNMÁLANEFND þing
mannafundar Atlantshafsríkj-
anna lagði áherzlu á það í dag, að
ráðherrar Atlantshafsrikjanna
yrðu að koma oftar og reglulegar
saman en verið hefði. Siðustu at-
burðir sýndu, hve hættuleg á-
hrif óeining á stjórnmálasviðinu
gæti haft á samheldni Atlants-
liafsríkjanna. Skoraði nefndin á
ríkisstjórnir aðildarrikjanna að
hafa eins náið samstarf í einstök
um málum og mögulegt væri.
Tvær tillögur
Ráðstefnan samþykkti tvær til-
lögur varðandi framtíðarsam-
heldni ríkjanna. Önnur var um
að sett skyldi upp æfingastöð fyr-
ir eldflauga- og kjarnorkuvopna-
sérfræðinga. í áætluninni er
kveðið á um námsstyrki og marg-
víslegan stuðning við slíka vís-
indamenn.
í hinni tillögunni, sem er í 7 lið
um, er fjallað um stefnu NATO-
landanna. Þar er m.a. kveðið á
um að leggja beri mjög aukna
áherzlu á smíði atomvopna, nána
samvinnu milli stjórnmála- og
hermálaleiðtoga þjóðanna, og af
öllum kröftum skuli unnið að
stóraukinni samvinnu landanna
á hernaðarsviðinu.
Moo Tse-Tung ó í
erfiðum viðræðum
VOROSHILOV, forseti Sovét-
ríkjanna, heimsótti Mao Tse-
Tung i gær, en Kínverjinn er
núna í Moskvu í sambandi við
40 ára byltingarafmælið. Tass-
fréttastofan skýrði frá heimsókn
Voroshilovs, og er það í fyrsta
sinn í nær viku, sem minnzt er
á Mao. Stjórnmálafréttamenn
segja að þögnin í kringum Mao
eigi rót sina að rekja til þess, að
hann á nú í erfiðum viðræðum
við yfirmenn í Kreml um rúss-
neska hjálp til handa Kína.
Erfiðleikar
Hjálparbeiðnin er sögð standa
Slakað á
....eða hætt?
WASHINGTON, 15. nóv. — Utan-
ríkisráðuneyti Bandaríkjanna til-
kynnti í dag að Bandaríkin hefðu
stungið upp á því við Rússa að
tilskipanirnar um svokölluð
bannsvæði fyrir Bandaríkjamenn
í Rússlandi og Rússa í Bandaríkj-
unum yrðu ógiltar. Samtímis var
tilkynnt að Bandaríkin hefðu
slakað á reglum þeim er giltu
um ferðir Rússa í Bandaríkjun-
um eftir að Rússar höfðu slakað
á reglum um ferðir Bandaríkja-
manna í Rússlandi. —Reuter.
í sambandi við nýja fimm ára
áætlun í Kína, og er hún svo um-
fangsmikil að ógerningur er að
framkvæma hana, nema til komi
stórkostleg fjárhagsleg aðstoð
frá Rússlandi. 1 þessu sambandi
minna menn á orð Maos til
æðsta ráðsins þar sem hann
lagði mikla áherzlu á hlutverk
Sovétríkjanna sem leiðtoga
kommúnistar ík j anna.
Viðræðurnar um hjálpina eru
sagðar erfiðar vegna breyttrar
afstöðu Rússa til Fólverja og
Ungverja. Ofan á það bætist að
Rússar hafa veitt ýmsum arabísk
um þjóðum og öðrum þjóðum
mikla aðstoð og telja sumir
fréttamanna, að af þeim sökum
muni Rússar endurskoða stuðn-
ingsstefnu sín við önnur komm-
únistalönd. Krúsjeff á þessa dag-
ana í miklum viðræðum við leið-
toga kommúnista í ýmsum lönd-
um, m. a. Gomulka í Póllandi og
Ulbricht í A-Þýzkalandi.
Oliueinkasala
TVEIR af þingmönnum komm-
únista, Alfreð Gíslason og Björn
Jónsson, flytja tillögu til þings-
ályktunar um að ríkisstjórninni
skuli falið að undirbúa Iög um
olíueinkasölu ríkisins. — Vilja
flutningsmenn láta athuga sér-
staklega í því sambandi, hvort
heppilegt myndi verða, að ríkið
hefði fyrst í stað aðeins heild-
sölu olíunnar með höndum, en
tæki síðar að sér olíuverzlunina
alla.
Málverkafalsanir
PARÍS — Franska lögreglan á
sem stendur í miklum eltinga-
leik við hóp alþjóðlegra glæpa-
manna, sem hafa leikið þann leik
að falsa evrópsk listaverk og selt
falsanirnar auðtrúa Bandaríkja-
mönnum.
Fyrir nokkru fann lögreglan
við húsrannsókn hjá Hollending
einum 5 málverkafalsanir. Holl-
endingurinn sagði, að þessi verk
væru þegar seld til Texas. Hann
neitaði að upplýsa hverjir hefðu
málað, en verkin voru eftirlík-
ingar af verkum eftir Renoir,
Gauguin, Utrillo, Daumier og
Cezanne.
Hver er mesti
f riðarsinni ?
NEW YORK. — Samkv. skoðun-
arkönnun, sem fram hefur farið
í 13 löndum um það, hvaða mað
ur hafi unnið ötulast að því að
varðveita heimsfriðinn á undan-
förnum mánuðum, hefur Eisen-
hower Bandaríkjaforseti verið
þar fremstur í flokki, en Nehru
kemur honum næstur. Næstir
þeim voru Hammarskjöld, Páf-
inn, Adenauer og Macmillan.
PILNIK, stórmeistari, teflir
fjöltefli við Heimdellinga í VaL
höll á morgun, sunnudag, kl. 2
siðdegis. Að vanda eru þátttak-
endur beðnir sjálfir að leggja til
töfl ef þeir mögúlega geta.
Fjölteflið hefst stundvíslega.
<