Morgunblaðið - 16.11.1957, Page 6
«
MORGU1SBLAÐ1Ð
Laugardagur lð. nóv. 1957
r
I
Frímerkjasýning
Reykjavík nœsta sumar
ANNAR fundur frímerkjasafn-
ara var haldinn í Tjarnarcafé
mánudaginn 11. þ. m. og var
furidurinn mjög fjölsóttur.
Frímerkjasýning
Formaður félagsins, Guido
Bernhöft stórkaupm., skýrði
félögunum frá því, að stjórn
Félags frímerkjasafnara hefði að
undanförnu rætt, hvort hægt
væri að koma á fót frímerkja
sýningu í Reykjavík á næsta
sumri og er það í fyrsta skipti,
sem slík sýning yrði haldin hér-
lendis, en frímerkjasýningar eru
mjög algengar erlendis og eru
ávallt til ánægju og fróðleiks fyr-
ir sýningargesti og fjölsóttar.
Kjörin var nefnd til að
kanna möguleika fyrir þessu
áformi félagsins og til undirbún-
ings þessarar fyrstu íslenzku
frímerkjasýningar en í nefndinni
eiga sæti Jónas Hallgrímsson,
Guðmundur Árnason stórkaupm.
og Leifur Kaldal gullsmiður. —
Ennþá er óráðið hvenær sumars-
ins sýningin gæti orðið og ekki
hefir henni heldur verið valið
nafn, en venja er að skíra ffí-
merkjasýningar einhverjum sér-
stökum heitum, en þess er vænzt
að félaginu megi takast að hrinda
þessu áhugamáli sínu í fram-
kvæmd.
Frímerkjablokk
Þá upplýsti meðstjórnandi
félagsins, Jónas Hallgrímsson, að
póst- og símamálastjórnin hafi
fúslega tekið upp samvinnu við
félagið um þetta mál og hefir
það verið fært í tal við Gunnlaug
Briem póst- og símamálastjóra,
hvort póstgtjórnin væri fáanleg
til að gefa út sérstaka frímerkja-
blokk eins og mjög oft tíðkast
við erlendar frímerkjasýningar
og nú síðast TABIL-blokkin, sem
gefin var út í Israel í tilefni af
opnun frímerkjasýningar þar í
september s. 1. Þessari málaleitan
félagsins var mjög vel tekið af
Fjörugl skáklíf hjá
Hreyfilsmönnum
HINN 22. okt. sl. hélt Taflfélag sf
Hreyfiis aðalfund sinn. Helztu
atriði úr starfsemi félagsins á
liðnu starfsári voru, auk venju-
legra innanfélagsmáila, skák-
keppnir við ýmis taflfélög og
starfshópa. Þá sendi félagið 4
menn á Norðurlandamót Spor-
vagnastjóra í Helsingfors á sl.
vori. Til þeirrar farar naut fé-
lagið drengilegs stuðnings ýmissa
aðila, svo sem Samvinnufélags
ins Ifreyfils, Skáksambands ís-
lands, Bæjarráðs Reykjavíkur og
síðast en ekki sízt bifreiðastjóra
á Hreyfli, og vill félagið færa
þessum aðilum sínar beztu þakk
ir.
Stjórn félagsins var öll endur
kjörin, en hana skipa: Þorvaldur
Jóhannesson formaður, Þórður
Þórðarson ritari, Þorvaldur
Magnússon gjaldkeri, Jónas Kr.
Jónsson, Vagn Kristjánsson með-
stjórnendur. Endurskoðendur:
Sigurjón Jónsson og Gunnar Guð
mundsson.
Vetrarstarfið hefst á hinu ár-
lega innanfélagsmóti, sem er ný-
byrjað, og eru þátttakendur 26.
Teflt er í þremur flokkum, meist-
arafiokki, 1. flokki og 2. flokki.
í meistaraflokki eru þátttak-
endur:
Þórður Þórðarson, Magnús
Norðdal, Óskar Sigurðsson, Guð-
laugur Guðmundsson, Anton Sig-
urðsson, Höskuldur Jóhannes-
son og Eggert Gilfer, sem teflir
sem gestur féiagsins á mótinu.
í fyrstu umferð meistaraflokks
vann Þórður Þórðarson Magnús
Norðdal, Eggert Gilfer vann Ósk-
ar Sigurðsson, biðskák varð hjá
Antoni Sigurðssyni og Guðlaugi
Guðmundssyni.
póst- og símamálastjóra og má
segja, að langt er síðan íslenzkir
frímerkjasafnarar og þeir menn
erlendis, sem íslenzkum merkj-
um safna, hafa átt slíku láni að
fagna, sem blokk þessi gæti orðið.
Handbók um islenzk frímerki
Þá var annað mál til umræðu
á fundinum, þess efnis, að félagið
reyndi sem fyrst að gefa út hand-
bók um öll íslenzk frímerki sem
út hafa komið og yrði bók þessi
rituð á íslenzku og ensku og var
einnig kjörin nefnd innan félags-
ins til að vinna að samnýigu
slíkrar bókar og í sæti útgáfu-
nefndar eiga sæti þessir menn:
Óskar Sæmundsson, Indriði
Waage, Alfreð Guðmundsson,
Jón Ingimarsson, Sigurður
Þorsteinsson og Þórður Guðjohn-
sen, sem allir eru reyndir og
áhugasamir frímerkjasafnarar og
má því vænta góðs árangurs af
starfi þeirra til undirbúnings út-
gáfu þessarar bókar, sem gæti
orðið nauðsynleg upplýsingabók
og leiðarvísir þeirra er safna ís-
lenzkum frímerkjum.
Ýmis önnur mál voru rædd á
fundinum, sem var í alla staði
hinn ánægjulegasti og fer félög-
um í Félagi frímerkjasafnara ört
fjölgandi.
Skákmót
Suðurnesja
Keflavíkurflugvelli, 14. nóv. —
Nú er lokið fjórum umferðum á
Skákþingi Suðurnesja, en í því
taka þátt 20 skákmenn og er
keppt í tveim flokkum, meistara
og 1. flokki.
Nú eru þeir efstir Hörður Jóns
son og Haukur Magnússon frá
Keflavík með 3Vz vinning, þá
Ragnar Karlsson, Suðurnesja-
meistari, sem á þessu móti mun
verja titilinn. Hann er nú með
3 vinninga og biðskák. í þriðja
sæti er Páll G. Jónsson með 3
vinninga. Af þessu má sjá að
fjórar fyrstu umferðirnar hafa
verið tefldar af kappi. Fimmta
umferðin verður tefld á sunnu-
daginn. — BÞ.
Ulfenberg
GóSnr gjolir til Hellnakirkju
HELLNUM, 12. nóv. — Sunnu-
daginn 3. nóv. sl. bárust Hellna-
kirkju 2 góðar gjafir. Sóknar-
presturinn sr. Þorgrímur Sigurðs
son á Staðarstað veitti gjöfunum
móttöku að aflokinni messugjörð
og færði gefendum þakkir fyrir
hönd safnaðar.
Gjafirnar voru altarisklæði,
gefið af hjónunum Málfríði Ein-
arsdóttur og Gunnari Kristófers-
syni frá Gíslabæ, nú heima á
Leifsgötu 8, Reykjavík og hökull
gefinn af safnaðarkonum í
Hellnasókn. Altarisklæðið og hök
ullinn er hvort tveggja gert af
Unni Ólafsdóttur í Rvík, fagrir
og vandaðir gripir, og voru í
Á ferð umhverfis jörðu
FYRIR skemmstu var hér á ferð
Svíi einn, sem er á ferð umhverf-
is hnöttinn. Ulfenberg heitir
hann og er mörgum ís-
lendingum að góðu kunn-
ur. Lengst af hefur hann
stundað organleik heima í Sví-
þjóð og sótti þing organleikara,
sem haldið hefur verið tvisvar hér
á síðustu árum, eignaðist marga
góða kunningja hér — og kom
hér við á hinni löngu ferð sinni
til þess að hitta þá. En Ulfenberg,
sem nú hefur lagt organléikinn
á hilluna, hafði ekki það eitt er-
inda hér, því að nú hefur hann
gerzt rithöfundur og skrifar einn
ig greinar í Varmalandstidningen
stórblað í Suður-Svíþjóð.
Þetta er ekki fyrsta langferð
Ulfenberg, því að áður hefur
hann dvalizt í Afrlku og ferðazt
um hana þvera og endilanga —
og í Indlandi hefur hann einnig
dvalizt um skeið.
Næsti áfangi hans í hnattferð-
inni er Bandaríkin og þar ætlar
Fé beilf aflur í Mikla-
holtshreppi
BORG, Miklaholtshreppi, 14. nóv.
— Fyrir nokkru gerði hér hríðar-
kafla. Varð illt til jarðar vegna
snjóa og var fé tekið á gjöf. Nú
hefur allan snjó tekið upp og er
farið að beita fé aftur. Hagar
eru góðir. Bílfært er um héraðið
sem á sumardegi. —Páll.
hann að dveljast um skeið meðal
kunningja. Upp úr áramótunum
heldur hann til Hawai og til Jap-
an kemur hann með vorinu. Það-
an fer han* til Síam, Burma,
Indlands og síðan heim til Sví-
þjóðar um Grikkland, Ítalíu og
Frakkland svo eitthvað sé nefnt.
Ferðin mun taka hann um eitt ár.
Ulfenberg leit upp á ritstjórn
Morgunblaðsins áður en hann
hélt vestur um haf og bað hann
fyrir beztu kveðjur til kunningja
sinna hérlendis, því að dvöl hans
varð styttri en upphaflega var
ráðgert og hafði hann því ekki
tækifæri til þess að hitta nema
fáa.
Fyrsli róðurinn frá
Suðureyri
SUÐUREYRI, Súgandafirði, 14.
nóv. — Bátarnir hafa undanfarið
verið að undirbúa róðra og var
lagt af stað í fyrsta róðurinn í
kvöld. Voru það þrír bátar sem
réru en alls verða þeir fimm,
sem stunda róðra héðan í vetur.
Frétzt hefur að bátar frá Djúpi
hafi fengið góðan afla undanfar-
ið út af Djúpinu, eða um 4—8
lestir i róðri. Bátarnir héðan
munu sækja á svipuð mið, eða
norður af Horni á Húnaflóamið.
Þeir koma ekki að fyrr en seint
annað kvöld, ef veður helzt
sæmilegt. —Óskar.
sferifar úr
daglega lífinu
Listaskáldið góða
IDAG eru 150 ár liðin, siðan
Jónas Hallgrímsson grét í
fyrsta sinn undir hraunastalli
norður í Öxnadal.
Velvakandi átti leið um Hljóm-
skálagarðinn fyrir nokkrum dög-
úm og staðnæmdist þá litla stund
við styttu Jónasar, sem Einar
Jónsson gerði fyrir stúdenta í til-
efni af 100 ára afmæli skáldsins.
Þegar Velvakandi var ungur og
herskár vildi hann ólmur láta
taka styttuna niður, bræða hana
upp og nota málminn í aðra líkn-
eskju. Átti að steypa hana eftir
annarri mynd sem Einar gerði af
Jónasi.
í endurminningum sínum segir
myndhöggvarinn, að styttan í
Hljómskálagarðinum hafi verið
gefð eftir forsögn nefndar sem
mælti nákvæmlega fyrir um, að
Jónas skyldi sýndur eins og hann
hefur væntanlega litið út á síð-
ustu æviárunum, lágvaxinn, hok-
inn og klæddur velktum og léleg-
um fötum. Myndhöggvarinn var
óánægður með þetta verk sitt, og
segir jafnvel, að það muni standa
á milli Jónasar og unnenda hans
meðal komandi kynslóða.
Velvakandi hefur raunar smám
saman orðið sáttari við myndina í
garðinum, og sér enga ástæðu
til að bræða hana upp! Hitt er
víst, að seinni mynd Einars af
skáldinu er mikið iistaverk. Ætti
sem fyrst að steypa hana í eyr
og setja á einhvern stað, þar sem
auðvelt er að kynnast henni. Yfir
myndinni er skáldlegur og ójarðn
eksur svipur, skáldið er sveipað
í síðan kufl og drjúpir höfði. Er
því líkast sem myndhöggvarinn
hafi haft í huga orð Jóhanns
Sigurjónssonar:
„Dregnar eru litmjúkar
dauðarósir
á hraungjörn lauf
í haustskógi.
Svo voru þínir dagar,
sjúkir en fagrir,
þú óskabarn
ógæfunnar".
Dauði Lincolns
„Hr. Velvakandi.
S.L. sunnudag birtist í Morgun-
blaðinu ágæt trúarleg hug-
vekja, sem nefnist Á annarri lcið
en ég.
í hugvekjunni er minnzt á mik-
ilmennið Abraham Lincoln
Bandaríkjaforseta og Stanton,
andstæðing forsetans, er síðar
varð ráðherra í stjórn hans. Segir
orðrétt í blaðinu: „Fáum árum
siðar stóð Stanton yfir líki Lin-
colns í Fordleikhúsinu, þar sem
hann var myrtur, og sagði með
djúpri geðshræringu: „Hér liggur
stærsti stjórnmálamaðurinn, sem
heimurinn hefur átt“.
Ég er einn af aðdáendum Lin-
colns og hefi gert mér nokkurt
far um að lesa bækur um ævi
hans. Þykir mér því ástæða til að
benda á, að í hugvekjunni gætir
smámisskilnings. Lík Lincolns
var aldrei í Fordleikhúsinu. Hann
varð fyrir skotárás þar milli kl.
9 og 10 að kvöldi hins 14. febrú-
ar 1865, en var síðan borinn
meðvitundarlaus út úr leikhúsinu
og yfir í hú« hinum megin göt-
unnar, þar sem maður að nafni
Peterson bjó. Lincoln komst
aldrei til meðvitundar og lézt
þarna í húsinu að morgni 15.
febrúar kl. 7,22. Stanton var
meðal þeirra, er stóðu þar yfir
honum á dauðastundinni. Sagði
hann þá hin frægu orð: „Now he
belongs to the ages“.
Virðingarfyllst
G. P.“
□-
-□
AKRANESI, 14. nóv. — Síðustu
daga hefur verið unnið að gatna
gerð á Akranesi. Hefur verið bor
in möl ofan í Laugarbraut og
stóran hluta Vesturgötunnar sem
er léngsta gata bæjarins.
Að sögn bæjarverkfræðingsins
hér, er ákveðið í framtíðinni að
steypa götur í grennd við höfn-
ina og Silfurtorg, en að aðrar göt
ur bæjarins verði malbikaðar.
— Oddur.
fyrsta sinn notaðir við guðsþjóiw
ustu þennan dag.
Milt veðurfar
Veðurfar er nú hér milt og gott.
Fé hafði víða verið tekið á hús i
harðindakafla um mánaðamótin,
en sleppt aftur þegar hlýnaði á
ný.
Inflúenza
Inflúenza er nú hér, fer mikinn
á sumum heimilum og leggur alla
í rúmið nær samtímis. Ungt fólk
og. börn virðast næmari fyrir
veikinni, a.m.k. enn sem komið
er.
Magnús frá Knerri látinn
Þann 3. nóv. sl. lézt í Akranes-
spítala, Magnús Árnason frá
Knerri í Breiðavík 80 ára gam-
all. Hann átti heima lengi í Ólaf*
vík, en bjó lengst að Knerri.
Magnús var orðlagður atorku-
maður og stundaði löngum sjó-
mennsku ásamt landbúskapnum.
Hann verður jarðsettur í dag 1
Ólafsvík. — K. K.
Tómslundanámskeið
í Hafnarfirði
HAFNARFIRÐ.I — Tómstunda-
námskeið fyrir unglinga á aldria
um 12—16 ára, eru nú að hefj-
ast á vegum Áfengisvarnarnefnd
ar Hafnarfjarðar. Námskeiðin
verða tvö, annað fyrir pilta og
hitt fyrir stúlkur. Hefst það fyrir
pilta í kvöld kl. 8, og þurfa þeir,
sem ætla að taka þátt í því, að
mæta þá í Góðtemplarahúsinu. •
Kennari verður Svavar Jóhann-
esson og verður kennd flugmódel
smíði. — Námskeiðið fyrir stúlk-
ur hefst þriðjudaginn 19. þ.m. á
sama stað og tíma, og þurfa þær
einnig að mæta þá. Kennari verð
ur Margrét Sigþórsdóttir og kenn
ir að vinna úr basti, tágum og
fleira.
Þetta er þriðji veturinn, sem
nefndin heldur slík námskeið, og
hafa þau ávallt verið fullsetin.
Vegleg gjöf til Reyni
valiakirkju
□-
-□
VALDASTÖÐUM, 4. nóvember.
SUNNUDAGINN 3. þ.m. barzt
sóknarnefnd Reynivallasóknar,
eftirfarandi bréf, ásamt veglegri
gjöf:
„Við systurnar, Guðbjörg, Ingi
björg og Fríða, dætur Guðmund
ar Guðmundssonar fyrrum bónda
í Hvammsvík og konu hans Jak-
obínu Jakobsdóttur frá Valda-
stöðum, afhendum hér með
Reynivallakirkju meðfylgjandi
2 raflýstar súlur til minningar
um það, að 3. nóv. í ár eru liðin
eitt hundrað ár frá fæðingu móð
ur okkar, og einnig til minningar
um nýlátna systur okkar Guð-
ríði. Gjöf þessari fylgja fyrirbæn-
ir okkar um blessun Guðs Reyni
vallasöfnuði til handa.
Fyrir hönd systranna.
Guðbjörg G. Kolka“.
Fyrir hönd sóknarnefndar og
safnaðarfólks, færi ég inmlegar
þakkir, fyrir einlæga vinsemd og
kærkomna gjöf. Ég óska geí-
endum og þeirra nánasta skyldu-
liði allrar blessunar um ókomin
æviár.
Steinl Guðmundsson.
Makarios til Kýpur
fyrir jól?
NICOSIA, 13. nóv. — Dagblað
griskumælandi Kýpurbúa skýrir
svo frá, að samkvæmt áreiðan-
legum heimildum muni Makarioa
erkibiskup verða hehnilað a*
hverfa til Kýpur innan skamms.
Segir blaðið, að líklegt sé, að
Bretar munu veita biskupi heiot
fararleyfi fyrir jól.