Morgunblaðið - 16.11.1957, Qupperneq 8
8
MORCVISBJ 4 Ð1Ð
Laugardagur 16. nóv. 1957
JKrogiit!fritafrifr
Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjaid kr. 30.00 á mánuði innaniands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
ÓHEILINDI KOMMÚNISTA
GAGNVART SJÁVARÚTVEGINUM
KOMMÚNISTAR leggja nú
ofurkapp á að sanna
þjóðinni að þeir séu hin-
ir einu og sönnu stuðningsmenn
og bjargvættir íslenzks sjávar-
útvegs. Á þessari fáránlegu stað-
hæfingu hamrar sjávarútvegs-
málaráðherra þeirra mánuð eftir
mánuð. Hann hefur m. a, haldið
því fram að fiskiskipaflotinn hafi
verið aukinn meira á því rúmlega
eina ári, sem vinstri stjórnin hef-
ur setið við völd, en á 3 árum
þar á undan, þegar Sjálfstæðis-
menn fóru með forustu sjávarút-
vegsmála.
Ólafur Thors formaður Sjálf-
stæðisflokksins og fyrrverandi
sjávarútvegsmálaráðherra svar-
aði þessari staðhæfingu Lúðvíks
Jósefssonar í ræðu, sem hann
flutti á fundi fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í fyrrakvöld. —
Skýrði hann frá sannleikanum í
þessum málum með þeim tölum,
sem fyrir liggja um aukningu
bátaflotans. Á árinu 1954 jókst
bátaflotinn um 26 báta, samtals
854 smálestir, 1955 um 35 báta,
samtals 1377 smálestir og 1956
um 39 báta, samtals 2185 smá-
lestir. Samtals hefur því báta-
flotinn aukizt á þessum þremur
árum meðan Sjálfstæðismenn
höfðu forystu sjávarútvegsmál-
anna um 100 báta, alls 4416 smá-
lestir.
Ólafur Thors benti hins vegar
á að ef sú frásögn kommúnista-
ráðherrans væri sönn, að fiski-
skipafiotinn hefði í valdatíð
kommúnista, aukizt meira en á
s.l. þremur árum, þá ætti aukn-
ingin á fyrsta valdaári vinstri
stjórnarinnar að nema hvorki
meira né minna en 4—5 þús.
smálestum. Sannleikurinn væri
hins vegar sá að hún næmi ekki
4 þús. smálestum, heldur rúmum
1200 smálestum. Þetta er aðeins
eitt dæmi um þær stórfelldu
blekkingar, sem sjávarútvegs-
málaráðherra kommúnista leyfir
sér að fara með um mál sjávar-
útvegsins.
Úrræðalevsi um togara-
kaupin.
Þegar kommúnistar tóku við
forystu sjávarútvegsmálanna í
ríkisstjórn Hermanns Jónassonar,
var það helzta loforð þeirra að
byggðir skyldu 15 nýir togarar til
éflingar atvinnulífinu í öllum
landshlutum. Lögin um togara-
kaupin og heimild fyrir ríkis-
stjórnina til þess að taka 150
millj. kr. lán til þeirra, voru sam-
þykkt á Alþingi um miðjan des-
ember árið 1956.
Kommúnistar létu þá sem
þessi lög myndu tafarlaust verða
framkvæmd og smíði hinna nýju
togara hafin.
En allt hefur þetta orðið á
annan veg. Sjálfstæðismenn báru
fram fyrirspurn á Alþingi um
daginn um hvað togarakaupun-
um liði, hvar byggja ætti skipin,
hvar lán hefðu fengizt og hvaða
staðir ættu að vera útgerðarstað-
ir skipanna.
Sjávarútvegsmálaráðherra
kommúnista gat engum af
þessum spurningum svarað á
jákvæðan hátt. Hann neyddist
til þess að lýsa því yfir að
enginn kaupsamningur hefði
verið gerður um einn einasta
togara. Ekkert lán hefði held-
ur fengizt til skipakaupanna
og engin ákvörðun hefði verið
tekin um útgerðarstaði hinna
væntanlegu nýju togara.
Þáttur
Sjálfstæðismanna.
Sjálfstæðismönnum getur verið
það gleðiefni að flokkui þeirra
hefur unnið að uppbyggingu
sjávarútvegsins og þá ekki hvað
sízt fiskiskipaflotans af festu og
raunsæi undanfarin ár. Undir
þeirra forystu var hinn gamli
og úrrelti togarafloti endurnýj-
aður á árunum eftir síðustu
heimsstyrjöld. Þá voru keyptir
til landsins 42 r.ýir togarar og
eru þeir í dag langsamlega stór-
virkustu framleiðslutæki þjóðar-
innar. 1 skjóli þessa togaraflota
og mikillar aukningar bátaflot-
ans hefur hraðfrystiiðnaðurinn í
landinu stóraukizt og framleiðir
nú 50—60 þús. tonn af flökum
á ári.
Þessi uppbygging fiskiskipa-
stólsins undir forystu Sjálfstæð-
ismanna og efling hraðfrystiiðn-
aðarins hefur gerbreytt öllu á-
standinu í velflestum sjávarþorp-
um landsins til hins betra. Sjáv-
arafli þjóðarinnar er nú unninn
betur en áður og vinnuaflið hag-
nýtt skynsamlegar.
Böl hallarekstrarins
Jafnhliða því, sem Sjálfstæðis-
menn hafa beitt sér fyrir því að
sjávarútvegurinn fengi ný, af-
kastameiri og fullkomnari tæki,
hefur hann stöðugt varað þjóð-
ina við því að auka framleiðslu-
kostnað atvinnutækjanna úr hófi
fram og gera til þeirra kröfur,
sem bersýnilegt er að útflutn-
ingsframleiðslan fengi ekki risið
undir. En þessum aðvörunarorð-
um hefur því miður ekki verið
sinnt. Þvert á móti hefur Ólafur
Thors, sem mörg undanfarin ár
hefur verið sjávarútvegsmálaráð-
herra, verið svívirtur fyrir það
af kommúnistum og fylgifiskum
þeirra, að hafa varað við halla-
rekstrinum og of miklum kröfum
á hendur sjávarútveginum.
Það er staðreynd, sem ekki
verður sniðgengin, að kommún-
istar hafa haft forgöngu um það
að gera kröfur, sem útflutnings-
framleiðslan hefur ekki getað
fullnægt. Of stór hluti þjóðar-
innar hefur tekið undir þessar
kröfur og haldið að hægt væri
að bæta kjör sín á því að leggja
byrðar á útflutningsframleiðsl-
una, sem hún hefur ekki getað
risið undir. Þessa gáleysis geldur
bæði sjávarútvegurinn og allur
almenningur í landinu í dag.
Forysta sjávarútvegsmála-
ráðherra kommúnista í útvegs
málunum er ekki byggð á
raunhæfum úrræðum til þess
að leysa vanda þessa undir-
stöðuatvinnuvegar þjóðarinn-
ar. Hún er þvert á móti byggð
á skrumi og einstæðri yfir-
borðsmennsku og blekking-
um. Það sannar sú saga, sem
rakin hefur verið hér að fram
an. —
UTAN UR HEIMI
rmimmm'
.
í Smyrna í Tyrklandi munaði litlu að stórslys yrði á dögunum. — Langferðabíll þéttsetinn fólki
rakst á annan bíl á brú einni. Við áreksturinn kastaðist langferðabíllinn á handrið brúarinnar,
braut það, en stöðvaðist, er hann var kominn nær hálfur fram af brúnni — og vó þar salt. Kona
nðkkur, sem sat framarlega í bílnum stökk út utn dyrnar örvita af hræðslu — með barn sitt í
fanginu. Beið hún bana, en barnið sakaði ekki. Aðra farþega sakaði heldur ekki.
Ur ýmsum áftum
FYRIR skömmu héldu kven-
tízkufrömuðir þing í Rómaborg.
Margir merkir menn voru fengn-
ir til þess að halda ræður á
þinginu — og öllum til undrunar
kom sjálfur Píus pófi og ávarpaði
þingheim. í ræðu sinni var páfi
mjög hreinskilinn í dómum um
Píus páfi
tízkuna. Hann sagði að sumir
tízkufrömuðir væru ófyrirleitnir
í sköpun sinnj og hrein skömm
væri að mörgum kvenklæðnaðin-
um. Hins vegar sagðist hann alls
ekki vera á móti tízkunni sem
slíkri. Unga fólkið girntist alltaf
eitthvað nýtt og glæsilegt, það
væri æskunni eðlilegt og bæri
sízt að lasta það. Hann kvað tízku
frömuði hafa mikil áhrif á dag-
legt líf manna, því að klæðaburð-
ur fólks hefði ekki svo lítið að
segja. Hins vegar mætti ekki
misnota það vald og þau áhrif,
sem tízkufrömuðir hefðu í sínum
hötidum.
Marilyn í vax.
Á dögunum bættist enn ein vax
brúðan við í safni Madame
Tussaud í London. Það var Mari-
lyn Monroe —- og skartaði hún
þar í sínu fegursta. Þegar fregnin
barst út fylltist safnið á skömm-
um tíma.
Vissi hvað hún átti
að segja.
Á dögunum hafði Elísabeth
Englandsdrottning móttöku fyrir
ýmsa gesti. Meðal þeirra var leik-
an Jayne Mansfield. „Ó, yðar há-
tign, þér eruð svo laglegar“ —
sagði Mansfield, þegar hún tók í
hönd drottningar. Meira mun
þeim ekki hafa farið á milli.
Skemmdarverk?
Bandaríska leynilögreglan hef-
ur hafið rannsókn á hvarfi far-
þegaflup-vélarinnar frá PAA yfir
Kyrrahafi á dögunum skammt
frá Hawai eyjum. Sem kunnugt
er var flugvél þessi með 44 menn
innanborðs og var leitað árangurs
laust að flugvélinni í marga daga.
Ekkert hefur fundizt fyrr en í
fyrrakvöld, að flugvélar sáu all-
mörg lík á reki í sjónum á þess-
um slóðum. Flugstjórn Honolulu
og San Francisco heyrði til
flugvélarinnar, er hún gaf síðast
upp staðarákvörðun. Fjórum
stundum síðar heyrðu leitarflug-
vélar neyðarskeyti, en engin
vissa er fyrir því að skeyti þau
hafi verið frá áhöfn flugvélar-
innar. Ef svo hefur verið hefur
flugvélin ekki sokkið strax eftir
að hún féll í sjóinn og a.m.k. ein-
hverjir haldið lífi, eða þá að
áhöfnin hefur komizt í björgunar
báta. Hins vegar er allt á huldu
um slysið. Sams konar flugvél
frá sama flugfélagi varð að nauð-
lenda í fyrra á svipuðum slóðum,
en allir björguðust þá. Hvað kom
fyrir? — spyrja menn. Skemmd-
arverk?
Zhukov í stofufangelsi.
Frá Moskvu berast þær fréttir,
að Zhukov sé nú í stofufangelsi
í sveitasetri sínu. Segir og, að
áreiðanlegar heimildir séu fyrir
Zhukov
því, að hann hafi ekki játað synd
ir sínar og beðizt afsökunar á
fundi miðstjórnarinnar, eins og
segir í Pravda. Þá segir, að árós-
argreinin í Pravda á Zhukov,
sem birt var undir nafni Konjevs
marskálks hafi ekki verið rituð
af honum sjálfum, heldur af
Alexei Zheltov hershöfðingja,
gallhörðum stalinista og svörn-
um fjandmanni Zhukovs. Er al-
mennt búizt við því að Zheltov
eigi frama í vændum.Hann hefur
að undanförnu verið yfirmaður
stjórnmáladeildar Rauða hersins
en nú mun hann sennilega verða
útnefndur marskálkur.
Engin slagsmál.
Joe Louis, fyrrum hnefaleika-
kappi, hefur nú skilið við eigin-
konu sína Rose Morgan. Louis
er nú 43 ára, en hún 44. Þetta var
annað hjónaband hans og stóð
það í tvö ár. Segir í .fréttum,
Joe Louis
að þau hafi komið sér saman um
að skilja í vináttu, því að sam-
búðin hafi verið „allt of erfið“.
Louis lét blaðamönnum í té þær
upplýsingar, að ekki mætti skilja
þetta svo, að þau hefðu slegizt
mikið. Hins vegar hefur hann að
undanförnu unnið hjá einhverju
kúabúi í Chicago, en eiginkonan
hefur unnið í New York. „Nú
getum við bæði notið sálarfriðs“
— sagði hann.