Morgunblaðið - 16.11.1957, Qupperneq 16
VEÐRIÐ
Suðaust n og sunnan kaidi, þoku-
loft, lítils háttar súld eða rigning
með köflum
Á 150 ára afmæli
Jónasar Hallgrímssonar
Sjá bls. 9.
Þessi mynd er af einu af listaverkum Nínu Xryggvadóttur
listmálara, sem verið hafa til sýnis undanfarið á vegum list-
kynningar Morgunblaðsins. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Ölvaður maður felur sig
hafa verið rœndan
Sýslunefnd Kjósarsýslu
mótmælir þjóðnýtingu
UM klukkan 3.30 aðfaranótt
fimmtudagsins ók einn af bílum
lögreglunnar fram á mann einn
við gatnamót Kringlumýrarveg-
ar og Suðurlandsbrautar. Maður-
inn var talsvert ölvaður, föt
hans óhrein, en að öðru leyti var
ekkert á honum að sjá. Hann
sagði lögreglumönnunum þá
sögu, að hann hefði þá um nótt-
ina verið rændur peningaveski
sínu, en í því hefðu verið um
8000 krónur í peningum. Þegar
þessa nótt var hafin leit að ræn-
ingjunum, en hún varð árangurs-
laus.
Rannsóknarlögreglan tók mál-
ið síðan í sínar hendur.
Það kom þegar í upphafi fram
að hinn rændi veit mjög lítið
um ferðir sínar þetta kvöld. Það
er þó staðreynd að hann var með
fyrrgreinda fjárhæð á sér, og
hann hefur lýst því er hann var
rændur.
Umrætt kvöld var hann ásamt
öðrum manni í bíl inni í Höfða-
borg. A meðan vinur hans var
þar hjá kunningja sínum, beið
rændi maðurinn í bílnum. Hann
segist næst muna það að eftir að
hafa ekið í bílnum nokkra leið,
hafi hann verið staddur, einhvers
staðar, sennilega í Höfðaborg, að
því er hann telur. Þar hafi fjórir
ungir menn verið. Hafi þeir sagt
við sig, að fyrir það að hafa neit-
að þeim fyrr um kvöldið um vín,
muni þeir ná í það sjálfir. Segir
hann mennina síðan hafa þjarm-
að að sér og haft sig undir, tekið
peningaveskið úr jakkavasa hans
og hlaupið á brott.
Við rannsókn, sem enn stend-
ur yfir, hefur bílstjórinn á leigu-
bílnum borið að rændi maðurinn
hafi farið úr bílnum á Laugavegi
og hafi hann séð á eftii honum
niður Vatnsstíginn. Vinur hans
var það ölvaður að á framburði
hans eða frásögn af atburðarás
kvöldsins er ekkert að græða.
Hann var í bílnum er rændi
maðurinn fór úr honum við
Vatnsstíginn.
Eins og málið stóð í gær var
rannsóknarlögreglan ekki búin
að komast að því hvar sennilegt
væri að maðurinn hefði verið
rændur. Ekki hafði tekizt að
finna ræningjana í gærkvöldi. —
Maðurinn telur sjálfur að hann
hafi verið rændur inni í Höfða-
borg, lögreglan finnur hann á
Kringlumýrarvegi, og síðast veit
bílstjórinn, sem honum ók þetta
kvöld, um ferðir hans á Vatns-
stígnum.
Pillar stela áfengi
AÐFARANÓTT fimmtudagsins
var brotizt inn í Tjarnarkaffi og
lögðu þjófarnir leið sína í vín-
stúkuna. Þar tóku þeir 10 flöskur
af léttum og sterkum vínum.
Á fimmtudaginn handtók lög-
reglan tvo unga menn ölvaða,
þeir munu jafnaldrar vera, 17
ára. Þeir höfðu verið að verki í
vínstúkunni og voru búnir með
allt vínið að tveim líkjörsflösk-
um undanskildum.
Friðrik
jafn
Larsen
í 2.-3. sæti
FRIÐRIK Ólafsson vann báðar
biðskákirnar sem hann átti. Var
það skák við Troianescu úr 9.
umferð og skák við Kolarov úr
10. umferð. Úrslit annarra bið-
skáka urðu:
Donner vann Ivkov.
Stáhlberg vann Alster.
Niephaus vann Orbaan.
Ivkov og Alster jafntefli.
Röðin er þá þannig:
1. Szabo 10 vinninga.
2.—3. Friðrik og Larsen 8%.
4.—6. Uhlmann, Donner og
Trifunovic 7%.
7. Stáhlberg 7.
.—10. Diickstein, Teschner og
Ivkov 5.
.—12. Kolarov og Troianescu
414 og biðskák.
13. Niephaus 414.
14. Alster 4.
15.—16. Hanninen og Clarke 314.
17.—18. Lindblom og Orbaan 1.
Bygging
Kennaraskóls
EINS óg áður hefur verið sagt
frá í Mbl. flytja þrír Sjálfstæðis-
menn tillögu á Alþingi um að
haldið verði áfram byggingu húss
fyrir Kennaraskólann, en til
þeirrar framkvæmdar hefur ver-
ið veitt allmikið fé og hófst
grunngröftur á sínum tíma. Nú
hefur Gísli Guðmundsson, þing-
maður Norður-Þingeyinga, lagt
fram breytingatillögu um að
hefja skuli byggingu nýs kenn-
araskólahúss, og því valinn stað-
ur á Norður-, Austur- eða Vest-
urlandi.
Líflegt
í Skerjadjúpi
FRÉTTARITARI Mbl. í Sand-
gerði símaði í gær, að sú síld,
sem í gær hafi borizt þar á land,
alls nær 240 tunnur, sé talin
fallegasta síld, sem þar hefur
sézt og veidd hefur verið hér
við Faxaflóa. Þessi góða síld er
öll fryst til beitu fyrir vetrar-
vertíðina.
Hæsti bátur i Sandgerði í gær
var Muninn II. og var hann með
100 tunnur. Formaðurinn á bátn-
um, Guðni á Flankastöðum, einn
mesti aflamaður bátaflotans,
sagði að úti í Skerjadjúpi sé nú
illlíflegt um að litast.
Bátum fjölgar lítils háttar dag
frá degi. Því verður ekki á móti
mælt, að nokkur von hefur vakn-
að meðal útgerðarmanna og sjó-
manna um það að síldin kunni
nú að vera að ganga á miðin
aftur.
REYKJUM, Mosfellisveit. —
Frumvarp það á Alþingi,’ sem
miðar að því að tekinn verði af
bændum umráðaréttur þeirra
yfir jarðhita í löndum þeirra,
virðist ætla að mæta mikilli mót
spyrnu út um sveitir landsins. En
nú í vikunni var um þetta þjóð-
nýtingarfrumvarp rætt á sýslu-
fundi Kjósarsýslu og því þar
mótmælt.
Frumvarp það *em hér um
ræðir gerir ráð fyrir því, að
bændur á jarðhitajörðum skuli fá
umráð yfir því vatni sem er í
minna en 100 m dýpi. Jarðhitinn
á meira dýpi í löndum þeirra
skuli verða þjóðnýttur og af
bændum tekinn og þeim eigi
greiddar bætur fyrir.
Ýmsar sýslunefndir hafa fjall-
að um málið, og sent Alþingi
áskorun um að fella það úr laga-
frumvarpi þessu sem að því mið-
ar að takmarka eignarrétt bænda
Friðrik Friðriksson
predikar í Neskirkju
HINN aldni kirkjuhöfðingi dr.
theol Friðrik Friðriksson mun á
sunnudaginn flytja prédikun við
guðsþjónustu í Neskirkju sem
hefst klukkan 2 síðd.
Séra Friðrik Friðriksson, hefur
verið blindur maður á þriðja ár.
Eigi að síður hefur hann í haust
flutt prédikanir víða um land í
kirkjum, og enn er hann áhuga-
samur leiðtogi hins merka félags-
skapar KFUM, sem hann stofnaði
og hefur stýrt í meira en hálfa
öld.
Það mun vafalaust marga fýsa
að hlýða á prédikun hans í Nes-
kirkju á sunnudaginn, en sóknar-
presturinn séra Jón Thorarensen
þjónar fyrir altari.
MYNDIN sýnir biðskýli, sem
Strætisvagnar Reykjavíkur eiga
spölkorn frá landsspítalanum. Er
það. eitt af 13 skýlum, sem sett
hafa verið upp á þessu ári. Þetta
skýli hefur nýlega orðið fyrir
miklum spjöllum af völdum
skemmdarvarga. Sést á myndinni,
að brotnar hafa verið í því 2 stór-
ar rúður, og þarf þó töluvert til,
því þær eru úr sveigjugleri, sem
ekki verður unnið á nema með
sleggjum eða hnullungssteinum.
Hitt sést ekki á myndinni sem
betur fer, að á veggi skýlisins
hafa verið krotuð ýmis sóðaorð
og um það á annan hátt gengið á
þann veg, að ekki er viðeigandi
að segja frá því á prenti. Það
mun kosta um 1500 kr. að setja
yfir jarðhita í löndum þeirra.
1 áskorun sýslunefndar Kjós-
arsýslu til Alþingis kom þetta
sjónarmið glöggt fram. Á það er
bent í greinargerð að með slíkri
lagasetningu sé um tvímælalausa
skerðingu á eignarrétti íslenzkra
bænda yfir jörðum sínum að
ræða.
Mjög er am þetta mál rætt í
hinum ýmsu sýslum þar sem
jarðhiti er og er það almenat svo,
að bændur eru mótfallnir slíku
lagaboði. M. a. sem sent hafa
Alþingi mjög harðorð mótmæli
ern Árnesingar.
Ný löfl við
kvæði Jónasar
ÚTVARPSSTJÓRI, Vilhjálmur Þ.
Gíslason, skýrði frá því í gær-
kvöldi í útvarpinu að „Afmælis-
sjóður útvarpsins" hefði ákveðið
í tilefni af 150 ára afmæli Jónas-
ar Hallgrímssonar, að efna til
samkeppni milli tónskálda þjóð-
arinnar.
Verkefnið er að semja ný lög
við kvæði Jónasar: eitt lag við
eitthvert hinna styttri kvæða.
Yrði það einsöngslag með píanó-
undirleik. Hitt lagið yrði öllu
meira verk, fyrir einsöng, kóra
eða hljómsveitarverk, við eitt-
hvert hinna stærri kvæða Jónas-
ar.
Verðlaun verða veitt, 1500 kr.
1. verðlaun fyrir einsöngslag, en
fyrir stærra verkið 5000 kr. 1.
verðlaun. Sagði útvarpsstjóri að
samkeppni þessari myndi ljúka
1. marz næsta ár. í dómnefnd,
sem þegar er skipuð eiga sæti,
auk útvarpsstjóra, Páll fsólfsson,
Viktor Urbancic, Fritz Weishap-
pel og Guðmundur Jónsson óperu
söngvari.
nýjar rúður í gluggana, og í sama
kostnað hefur orðið að leggja
þessa dagana vegna tveggja
annarra skýla, sem álíka með-
ferð hafa hlotið. Er því fullkom-
in ástæða til að hvetja fólk til
að reyna að koma í veg fyrir
að svona atburðir endurtaki sig.
(Ljósm. Tryggvi Samúelsson).
Varðarkaffi í Valhöll
i dag kl. 3-5 s.d.
YKvatarkafii í Sjólf-
stæðishúsinu ó morgun
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉLAGIÐ HVÖT hefur kaffisölu í Sjálf-
stæðishúsinu á morgun. Verða Hvatarkonur með heitt á könnunni
frá því kl. 2 og fram undir kvöld. Félagið hefur hvatt meðlimi
sína til að senda brauð og kökur í Sjálfstæðishúsið í fyrramáiíð.
Fara fregnir af því, að því kalli verði hlýtt á myndarlegan hátt og
ei því þess að vænta, að fjölmenni verði í Sjálfstæðishúsinu á
morgun.