Morgunblaðið - 28.11.1957, Blaðsíða 1
20 siður
44. árgangur.
271.
— Fimmtudagur 28. nóvember 1957
Prentsmiðja Morgunblaðsins*
Hverju jparí að leyna?
Tvö stjórnaríramvörp um Alsír
Löggjafaþingin máttu ekki
fjalla um samskotalánin
Hvenær hefur Eysteinn hagrætt
staðreyndunum nægilega?
SUMAR ríkisstjórnanna, sem
leitað var til um þátttöku í
samskotaláninu, höfðu þann
fyrirvara á samþykki sínu, að
málið þyrfti að bera undir
löggjafarþlng þeirra. En þá
bárust boð um, að slíkt mætti
alls ekki. Islenzka ríkisstjórn-
in væri þeirri aðferð með
öllu andvíg. Lánið yrði að
fást með þeim hætti, að alit
sýndist vera eftir „eðlilegum
leiðum“.
Af þessum sökum mun lánsfjár
hæðin verða minni en vonir stóðu
til. Eysteinn Jónsson sagði í upp
hafi Alþingis að leitað væri eftir
stærri fjárhæðum en íslendigar
hefðu áður samtímis tekið að
láni.
Um þær mundir stóðu vonir
til, að samskotin mundu nægja í
a.m.k. 10 millj. dollara lán. í bili
munu vonirnar ekki vera meiri
en um 7 millj. dollara, og þá ein-
göngu frá Bandaríkjunum og
Vestur-Þýzkalandi, eins og Þjóð-
viljinn sagði á dögunum.
Eftir því sem meira heyrist af
þessu lánabraski verður skiljan-
legra það, sem Tíminn segir s.l.
þriðjudag:
„ííins vegar kemur auðvitað
ekki til greina að birta skýrslu
um einstök atriði fyrr en niður-
stöður eru kunnar“.
Eysteinn Jónsson hefur í
skýrslugjöf sinni um fyrri lána-
útveganir sýnt, að hann lætur
sér ekki allt fyrir brjósti brenna.
Hann hefur t.d. á Alþingi neitað
staðreyndum um möguleika á
Sogsláni vorið 1956 og stórláni
í Þýzkalandi á sama tíma. Þá
hefur hann þvert ofan í stað-
reyndir neitað því, að lánin, sem
fengin hafa verið í Bandaríkjun
um eftir, að umræður um „ endur
skoðun varnarsamningsins" féllu
niður, væru í beinu sambandi við
áframhald varnanna.
Nú ætlar hann að bíða með
skýrslugjöfina þangað til að hann
geti í henni hagrætt staðreynd-
unum svo, að allt líti „eðlilega“
út. í því skyni á að misnota að-
stöðu á Alþingi og útvarpi. Reiðin
út af frásögnum Morgunblaðsins
kemur af því, að stjórnarliðið
telur, að þeirra vegna, muni
„skýrslugjöf“ Eysteins blekkja
færri en ella.
PARÍS, 27. nóv. — í dag lagði i
hin þriggja vikna gamla stjórn
Gaillards fram frumvarp sitt um
endurbætur á stjórnarháttum i
Alsír 24 tímum eftir að franska
þingið tók Alsir-málin til um-
ræðu. Frumvarpið var lagt fram
eftir að ráðherrann, sem fer með
Alsír-málin, Robert Lacoste,
hafði talað og mælt með því.
Búizt er við, að atkvæðagreiðslan
um það fari fram á föstudag.
Samhliða áætlun stjórnarinnar
um endurbætur í Alsír fjallar
þingið um annað frumvarp um
kosningalög fyrir Alsír. Er talið,
að stjór Gaillards muni fara fram
á traustsyfirlýsingu í sambandi
við frumvarpið. Stjórnin leggur
á það megináherzlu að fá bæði
frumvörpin samþykkt, áður en
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna tekur Alsír-málin til endan-
legrar meðferðar.
Öruggir um sigur
í þingræðu sinni í dag sagði
Lacoste, að Frakkar gætu verið
öruggir um sigur, ef haldið verðui
áfram að berjast í AJsír. Hann
kvað það rétt vera, að uppreisn-
armenn væru smám saman að
breyta flokkum sínum í full-
komnar hersveitir, en hins vegar
ætti þessi þrónu sér stað í smáum
stíl. Það er ómögulegt fyrir upp-
reisnarmenn að gera baráttu sína
að venjulegu stríði, sagði ráð-
herrann, og þess vegna getum við
verið öruggir um framtíðina.
Reuter.
Lí&an Eisenhowers betri
Fundur NATO-leiðtoganna sennilega
haldinn 16. des.
WASHINGTON, 27. nóv. —
Líðan Eisenhowers Banda-
ríkjaforseta var miklu betri í
dag, og eyddi hann deginum
með fjölskyldu sinni. Auk
þess átti hann stutta fundi
við Nixon varaforseta og
helztu ráðgjafa sína. Þetta
fólst í opinberri fréttatil-
kynningu, sem send var frá
Hvíta húsinu í kvöld.
í fyrri fréttatilkynningu sagði,
að Eisenhower hefði vaknað
hress og hvíldur í morgun eftir
10 tima svefn. Hann fór á fætur
og át sinn venjulega morgun-
verð. Líflæknir forsetans, Ho-
ward Snyder hershöfðingi, sagði
í viðtali við blaðamenn, að enn
væri of snemmt að segja um það
hvort áfall forsetans væri annað
eða meira en æðastífla í heilan-
um. Sá læknir er ekki til, sem
getur á þessari stundu úrskurð-
að, hvort Eisenhower forseti hef-
ur fengið vægt slag eða ekki,
sagði Snyder.
Var að mála
Nixon varaforseti og nánasti
ráðgjafi Eisenhowers, Sherman
Adams, áttu síðar í dag 15 mín-
útna ráðstefnu við forsetann um
opinber mál. Var forsetinn þá al-
klæddur og hafði verið að mála
í vinnustofu sinni í Hvíta húsinu.
Nefnd tekur við í bili
Ekki er talið sennilegt, að Eis-
enhower leggi niður forsetastarf
ið vegna hinna nýju veikinda.
Hins vegar er líklegt, að fram-
kvæmdavaldið verði lagt í hend-
ur nefndar fremstu manna lands-
ins í nokkrar vikur eða jafnvel
mánuði. I kvöld virtist allt benda
til þess, að slík nefndarskipun
væri í aðsigi, en hið sama var
gert, þegar forsetinn veiktist síð-
ast.
Stjórnarskrárbreyting sennileg
Stjórnarskrá Bandaríkjanna
hefur engin ákvæði, sem segi til
um, hvenær forseti eigi að draga
sig í hlé, en hins vegar segir þar,
að varaforsetinn skuli gegna
skyldum forseta, þegar sá síðar-
nefndi er ekki fær um að gegna
þeim. Það er hvergi tekið fram,
hver skuli ákveða það, hvenær
forsetinn er ófær um að gegna
skyldum sínum. Talið er, að veik-
indi forsetans muni knýja þingið
til að breyta þessu atriði stjórn-
arskrárinnar.
Framh. á bls. 19
□-
Bandarískt
gervitungl
NEW YORK, 27. nóv. — For-
stöðumaður bandarísku gervi-
tungl-rannsóknanna, dr. John
Hagen, sagði í dag, að vísinda-
mennirnir á Cape Carneveral í
Flórida séu að leggja síðustu
hönd á undirbúninginn undir för
fyrsta bandaríska gervihnattar-
ins út í geiminn. Opinberlega
liefur ekki verið tilkynnt, hve-
nær hnettinum verður skotið, en
búizt er við, að það verði ekki
fyrr en á miðvikudaginn kemur.
Hnötturinn er sex tommur í þver-
mál.
□-
Krúsjeff talin stafa hætta
af stalínistanum Súslov
VINARBORG, 27. nóv. — Það
hefur vakið athygli víða um heim,
að á ráðstefnu kommúnistaleið-
toga frá 68 þjóðum, sem haldin
var í Moskvu eftir byltingaraf-
mælið á dögunum, lék aðstoðar-
Bandtnrískir gervi-ioitsteinar
komnir tii sóiarinnar
BEDFORD, Massachusetts,
USA, 27. nóv. — Það er ekki
vitað með vissu, hvað orðið
hefur af gervi-loftsteinum
þeim, sem bandaríski flugher-
inn sendi út í geiminn fyrir
fimm vikum. Einn vísinda-
mannanna, sem áttu stærstan
þátt í tilrauninni, er þeirrar
skoðunar, að nokkrir þessara
loftsteina sveimi nú um-
hverfis sólina, en aðrir vís-
indamenn álíta, að loftstein-
arnir hafi farið fram hjá sól-
inni lengra út í geiminn.
Prófessor Fritz Zwicky frá
tæknistofnuninni í Pasadena í
Kaliforníu hefur haft forgöngu
um tilraunina með loftstein-
ana. Hann sagði, að stefna
og hraði lofsteinanna, þegar
þeim var skotið úr eld-
flaug í 90 kílómetra hæð 16.
okt., benti til þess, að þeir færu
nú í sporbaugum umhveriis sól-
ina.
Feiknavegalengdir
Annar vísindamaður frá flug-
hernum, eðlisfræðingurinn Jer-
ome Pressman, hefur látið í ljós
þá skoðun, að loftsteinarnir hafi
hingað til farið um 300 milljón
kílómetra vegalengd í geimnum,
ef þeir hafa ekki verið truflaðir
af aðdráttarafli sólarinnar. Aðrir
vísindamenn telja ofangreinda
tölu of háa. Þeim reiknast svo til,
að hinar litlu alúminíum-kúlur
(loftsteinarnir), sem fóru af stað
með 60.000 kílómetra hraða á
klukkustund, hafi aðeins farið
um 40 milljón kílómetra.
Gagnlegar rannsóknir
Tilraunin með þessa gervi-loft-
steina er talin geta gefið verðmæt
ar upplýsingar um það, hvernig
ná megi eldflaugum aftur til
jarðar án. þess að þær „slitni upp“
eða eyðist af núningnum við gufu
hvolf jarðar. Ennfremur geta loft
steinarnir orðið gaglegir við rann
sóknir á fjarlægustu lögum gufu
hvolfsins.
10 ÁRA UNDIRBÚNINGUR
Fréttin um gervi-loftsteinana
barst ekki út fyrr en um síöustu
helgi, fimm vikum eftir að þeir
höfðu verið sendir út í geiminn,
og var það sökum þess, að vís-
indamennirnir gátu fyrst þá sagt
frá því, að tilraunin hefði heppn-
azt.
I
| Undirbuningur tilraunarinnar
I hófst þcgar fyrir 10 árum, og
hafa verið gerðar margar tilraun-
ir áður en tilraunin 16. okt. heppn
aðist. Aero-Bee-eldflaugin, sem
var notuð, hafði 12—13 kg af
sprengiefni og hylki með rann-
sóknartækjum. Hylkið er komið
aftur til jarðarinnar með öll tæk-
in.
framkvæmdastjóri rússneska
kommúnistaflokksins, Suslov,
mjög mikilvægt hlutverk og lét
frá sér fara ummæli, sem voru
í anda Stalin-tímans.
Suslov krafðist þess m
Súslov
allir aðrir kommúnistaflokkar
yrðu skilyrðislaust að viður-
kenna „forustuhlutverk Sovét-
ríkjanna í hinum sósíalísku her-
búðum“, nákvæmlega eins og
Stalin gerði á sínum tíma, en
þetta var hreint brot á loforði
Krúsjeffs til Títós, þegar rúss-
neska sendinefndin fór iðrunar-
för til Júgóslavíu árið 1955 til að
biðja Tító fyrirgefningar á mis-
gerðum Stalins.
Loforð Krúsjeffs
Við það tækifæri sagði Krúsjeff
skýrt og skorinort, að ekkert ríki
í hinum kommúníska heimi gæti
gert kröfur til að drottna yfir
eða hafa áhrif á annað kommún-
istaríki. öll kommúnistaríki
væru nákvæmlega jafnrétthá.
Þetta loforð itrekaði Krúsjeff á
leynifundi sínum við Tító í t
Rúmeníu í sumar leið. En á ráð-
stefnu kommúnistaleiðtoganna
um fyrri helgi kom ekkert slíkt
jafnrétti til mála.
- Krúsjeff þagði
Bæði í ræðu Suslovs og álykt-
un ráðstefnunnar var lögð á það
rík áherzla, að gagnrýni Sovét-
ríkjanna væri hin eina rétta mæli
stika fyrir alla kommúnista-
flokka. Það var heimtuð alger
hlýðni. Talið er, að Krúsjeff hafi
ekki haft sig í frammi og að yfir-
lögðu ráði ekki tekið til máls.
Getur Tító bjargað Krúsjeff?
í Belgrad gætir þeirrar skoð-
unar nú æ meir, að Tító hafi
neitað að eiga aðild að ályktun
ráðstefnunnar í þeirri von, að
hann geti bjargað Krúsjeff. —
Frh. á bls. 19.