Morgunblaðið - 13.12.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.12.1957, Blaðsíða 1
24 síður 44. árgangnr. 284. tbl. — Föstudagur 13. desember 1957 Prentsmiðja Morgunblaðsins- Varðarfundurinn um kosningahömlurnar: ,Þeir skulu ekki fá frið til að eyðileggja Reykjavik” Kosningahömiurnar miScst fyrsf og fremst wiö Reykjavik FramsóknarmeBin geta eftir sem áðnr haidið áfram kosnlnga- . dreifbýiinu kugun sinni ÖLL Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík héldu sameigin- legan fund í gærkvöldi og var fundarefnið, hvert kosninga- hömlur stjórnarflokkanna stefndu. Var fundurinn mjög fjölsóttur. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, formaður Varð- ar, setti fundinn og lýsti því að nú væri kornið fram frum- varp, sem miðaði að því að þrengja möguleika fólks til að neita kosningaréttar síns. — Væri tilgangurinn auðsjáan- lega sá að hnekkja áhrifum fjölmennasta stjórnmála- flokksins og þá fyrst og fremst hér í Reykjavík. Hann kvað Sjálfstæðismenn ekki telja sínum flokki stafa nein sérstök hætta af þessu máli, heldur snúi það raunverulega að öllum kjósendum í land- inu. Ræðumenn á fundinum voru þeir Bjarni Benedikts son aðalritstjóri og Gunnar Thoroddsen borgarstjóri. Úr rœðu Bjarnct Benediktssonar Bjarni Benediktsson hóf mál sitt með því að segja, að ekki vantaði fögur orð og lýsingar þeirra, sem bæru fram Kosninga- lagabreytinguna, um hver væri tilgangur hennar. Þeir segðust tetia sér að „friða kjördaginn". Tilkoma og undirbúningur frum- varpsins sýmr þó, að þessir menn hafa allt annað en frið og góð- an tilgang í huga. Ef svo hefði verið, þá mundu þeir hafa lagt frumvarpið fyrir með öðrum hætti. Venja hefur verið, að ef gera á meiri háttar breytingar á kosningalögunum, þá sé leitað samkomulags allra þingflokka og í þeim tilgangi starfar nú milliþinganefnd innan þingsins, þar sem leita á samkomulags milli flokkanna um breytingar á kosningafyrirkomulaginu. Þessi nefnd hefur undanfarið setið undir forsæti eins Framsóknar- þingmanns og hefur ekki heyrzt að þetta frumvarp hafi verið undir þá nefnd borið. Hins veg- ar hafði á undanförnum vikum heyrzt að frumvarp í þessa átt væri í uppsiglingu og hafði bend- ing um það komið fram í bæj- arstjórn Reykjavíkur. Ekkert hefur verið um málið rætt við Sjálfstæðisflokkinn, sem er fjól- mennasti flokkur þjóðarinnar. Þvert á móti hefur málinu verið haldið leyndu fyrir honum, þar til það var lagt fram. Það vakti athygli hve mikið lá á, þegar málið loksins kom fram, því þá var það tekið á dagskrá án lög- legs fyrirvara. Þingdeildin var knúin til þess, með atkvæðum stj órnarf lokkanna, að taka til umræðu frumvarp, sem þing- menn höfðu ekki getað lesið í næði og þekktu naumast. Þetta hefur í rauninni komið mjög hart niður á stjórnarflokkunum sjálf- um, því þeir hafa neyðzt til að breyta ýmsum ákvæðum í með- förunum, vegna þess hve frum- varpið, var hroðvirknislega sam- ið. Hér átti að greiða stór högg, en vegna þess hve fumið og fljót- færnin var mikil, varð úr því klámhögg, sem bitnaði að veru- legu leyti á þeim sjálfum, sem reiddu svo hátt til höggs. Ræðumaður sagði, að í sam- bandi við þetta frumvarp kæmi fram meiri hræsni cg yfirdrep- skapur en menn ættu að venj- ast af hálfu stjórnarflokkanna en þó heíðu þeir gengið lengra í þeim efnum, en dæmi væru til áður. í athugasemd við 4. gr frumvarpsins væri sagt, að til- gangurinn væri sá að óviðkom andi menn fengju ekki vitneskju um það, hvort menn hefðu kos- ið eða ekki. Ræðumaður sagði að deila mætti um, hvort slíkt væri í rauninni einkamál kjós enda. í sumum elztu lýðræðis- löndum væri það ekki talið neitt einkamál kjósendanna, heldur væri þar þvert á móti lögð kosn- Framh. á bls. 3. Hvað er á seyði í Indónesíu? Óstaðfestar fregnir segja, að herinn hafi tek- ið völdin og Sukarno sé í fangelsi — HAAG, 12. des. — Útvarps- stöðvar í Hollandi hættu allt í einu venjulegum útsending- um og skýrðu frá því, að Sukarnó, forseti Indónesíu, Bréfi Bulganins fálega O O iekið í Washington Rússar reyna aðeins að grafa undan Áflanfshafs- WASHINGTON, 12. des. — 11 dag sat Eisenhower Banda- ríkjaforseti fund með Örygg- isráði Bandaríkjanna og segja fréttamenn, að rætt hafi verið um Bulganinsbréfið síðasta og það skref, sem Rússar hafa nú stigið með bréfaskriftum sín- um fyrir ráðherrafund At- lantshafsríkjanna, sem hald- inn verður í París. Sú tillaga Bulganins, að efnt verði til fundar æðstu manna s-tórveldanna, hefur hlotið held- ur daufar undirtektir í Washing ton. — Stjórnmálamenn í Was- hington eru þeirrar skoðunar, að Eisenhower og Dulles muni báðir undirstrika það á ráðherrafund- inum, að bréfaskriftir Rússa séu til þess eins gerðar að grafa und an Atlantshafsbandalaginu. — I Lundúnum segja stjórnmála- menn, að hvergi komi fram í bréf um Bulganins, að hann hafi áhuga á því, að stórveldin ræði um hinar eiginlegu orsakir kalda stríðsins. — Eins og allir viti, séu Þýzkalands- og afvopnunar- málin aðalorsök spennunnar í heiminum. Einnig sé ástandið í löndunum fyrir botni Miðjarðar- hafs mikilvægt atriði, þegar leit- að er orsaka kalda stríðsins. Þá er einnig bent á, að ekkert nýtt komi fram í bréfi Bulganins. Fréttir herma, að flestir for- sætisráðherrar NATO-ríkjanna hafi fengið bréf frá Bulganin. I bréfum sínum til forsætisráð- herra Frakka og Hollendinga varar hann m.a. við því, að komið verði á fót eldflaugastöðvum í þessum löndum og einnig ræðir hann um „styrjaldaráform Breta og Bandaríkjamanna". Sukarno hefðu verið tekinn höndurn og beðinn að leita hælis er- lendis sem pólitískur flótta- maður, og herinn hefði tekið stjórn landsins í sínar hend- ur. í fréttinni sagði ennfrem- ur, að hún hefði ekki verið staðfest opinberlega. Fréttaritari AFP í Djakarta segir, að Djuanda, forsætis- ráðherra Indónesíu, hafi skýrt frá því í útvarpi í höfuðborg- inni, að Sukarnó forseti væri sjúkur og læknar ráðlegðu honum að leita sér lækninga erlendis. — Annars er enn allt á huldu um það, livernig í þessu liggur. ★ Síðustu fregnir í gærkvöldi hermdu, að Sukarnó forseti hefði sagt af sér embætti, bug aður á sál og líkama. RÓMABORG, 12. des. — Fréttir herma að ítalski kommúnista- flokkurinn sé nú í meiri vanda staddur en nokkru sinni áður. Á flokksþinginu varð aðalritarinn, Giorgio Amendola, að viður- kenna, að nú væri 200 þús. flokks mönnum færra en í fyrra. Hefur meðlimunum því fækkað um 10%. Álitið er, að flokksbundnir kommúnistar í Ítalíu séu nú und- ir 2 milljónum, en eins og kunn- ugt er, þá er ítalski kommúnista- flokkurinn hinn stærsti í Evrópu utan Rússlands og lcppríkjanna. Taka Þjóðverjarog Japanir við af Hoílendingum í indónesiu! 200 rússneskir kafbáfar sfrendur Bandaríkjanna Rússneskir sjóliðsforingjar leita hælis í New York YORK, 12. des. — Tveir NEW YORK, 12. rússneskir sjóliðsforingjar hafa nýlega beðið um hæli sem póli- tískir flóttamenn í New York. Fréttaritarar segja, að þeir skýr' nú bandarísku leyniþjónustunni frá mikilvægum atriðum í sam- bandi við rússneska flotann. — Mál þetta hefur vakið mikla at- hygli vestra, en bandarísk stjórn- arvöld hafa í lengstu lög reynt að halda því leyndu. Fréttamenn segja, að annar Rússinn, Levi Predechevsky, hafi skýrt svo frá, að um 200 rússneskir kafbátar séu stöð- ugt við strendur Bandaríkj- anna, viðbúnir að láta til skar ar skríða, ef svo ber undir. — Hinn Rússinn sagði, að rauði flotinn hefði yfir að ráða um 500 nýtízku kafbátum. Flotamálaráðuneyti Bandaríkj- anna hefur látið í ljós óánægju sína yfir því, að þetta hefur kvis- azt út. Það hefur þó ekki reynt að bera fréttina til baka. DJAKARTA, 12. des. — Indó- nesíumenn eru nú farnir að leita hófanna hjá Vestur-Þjóðverjum og Japönum, að þeir hlaupi í skarðið fyrir Hollendinga og taki að sér ýmis þau störf, sem þeir hafa gegnt í Indónesíu und- anfarið. — Fréttamenn segja, að Indónesíustjórn beini nú Ev- rópuviðskiptum sínum til Vestur- Þýzkalands í stað Hollands. Þá hefur stjórnin farið þess á leit við Japana, að þeir annist sigl- ingar umhverfis eyjarnar, sem Hollendingar hafa séð nm hingað til. — Subchan .verzlunarráðherra Indónesíu, hefur sagt, að nú verði Hamborg miðstöð Evrópuvið- skiptanna í stað Amsterdams og Rotterdams. Þá hefur samgöngu- málaráðherra Japans, Nakamura, staðfest fregnir þess efnis, að Indónesíustjórn hafi leitað til Japana um að þeir taki við strand ferðunum af Hollendingum. — Gert er ráð fyrir því, að Japanir fari sér hægt í þessu til að skaða ekki samvinnu Japans og Hol- lands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.