Morgunblaðið - 13.12.1957, Side 3
Föstudagur 13. des. 1957
M O R C V X B 1 4 Ð 1Ð
3
— Varðarfundurinn
Frh. af bls. 1.
ingaskylda á herðar kjósendum.
Þeim værí gert að skyldu að
neyta kosningaréttar síns. Til að
fullnægja því, sem þannig er
sagt, að menn eigi að hafa rétt
til, sem er leynd á því, hvort
atkvæði hefur verið greitt eða
ekki, á að vera hin mesta laun-
ung yfir kjörskránni eftir kjör-
daginn. Engir óviðkomandi eiga
að hafa vitneskju um, hvort
menn hafi kosið eða ekki. En
hvernig halda menn að slíkt
verði í framkvæmdinni? Setjum
svo að slíkt tækist í Reykjavík,
þó ekkert sé hægt um það að j
segja fyrirfram. En hver trúir
þá því, að þrátt fyrir þessa iög- j
gjöf, sem bannar að fylgjast með |
kosningu með því að merkja við |
skrár í kjördeild, að þá verði j
því haldið leyndu úti á landi
hverjir hafi kosið, þar sem ef til
vill er ekki nema aðeins nokkr- I
ir tugir manna í kjördeild, eða j
í hæsta lagi nokkur hundruð, og
þar sem atkvæði í kjördæmi
skifta kannski í heild aðeins fá-
um hundruðum eða fáum þús-
undum. Hver trúir því að á slík-
úm stöðum verði nokkur leynd
á því, hverjir hafi kosið og hverj-
ir ekki, spurði ræðumaður. Um
hinar dreifðu byggðir landsins
þjóta almenningsvagnarnir, 'sem
eru í eigu kaupfélaganna, þar er
veldi SÍS og félaga þess í al-
mætti sínum, og þar er bókað
allt um hag hvers manns. En
hver trúir því, að þar muni þetta
vald ekki fylgjast með því, hvort
kotVjóndinn kýs eða ekki? í
Reykjavík og í mesta fjölmenn-
inu þar í kring er ef til vill hægt
að halda sliku leyndu, en það
er ekki hægt í fámenninu, en
þar er líka unnt að beita þeirri
kúgun, sem ekki er hægt að
beita í fjölmenninu.
Einhver stjórnarliði sagði eitt
sinn fyrir nokkru, að Lárus Jó-
hannesson væri dýrasti maður á
Islandi, því það hefði kostað 40
milljónir að kaupa undan honum
kj ördæmið. Bætti þá annar
stjórnarliði við, að þettá væri
aðeins fyrsta afborgunin. Ræðu-
maður kvað ekki skipta mestu
máli, hve stórri upphæð hefði
verið eytt í þessum tilgangi, held-
ur hvaða hugarfar væri hjá vald-
höfunum. Ræðumaður skýrði frá
því, að Eysteinn Jónsson hefði
gripið fram í fyrir einum þing-
manni á Alþingi nú í dag og sagt
að það borgaði sig ekki fyrir
hann að vera að tala. Eysteinn
Jónsson veit hvernig hægt er að
beita sér með því að benda mönn
um á að það borgi sig ekki fyrir
þá að hafa skoðun. En ef fjár-
málaráðherrann leyfir sér að
tala þannig í áheyrn alls þing-
heims við einn af kjörnum full-
trúum þjóðarinnar, hvernig halda
menn þá að sé talað við fólkið
. úti í byggðunum undir fjögur
augu. En svo segja þessir menn,
að það sé algert einkamál, hvern-
ig menn kjósa. En þessir menn
eru einmitt hinir sömu, sem ráða
yfir svo að segja öllum meiri
háttar farartækjum í heilum
byggðarlögum og hafa til þéss
öll tækifæri að fylgjast með því,
hvort hver maður í heilum kjör-
dæmum kýs eða kýs ekki.
Það hefur oft komið fram af
hálfu stjórnarflokkanna að hlut-
ur Reykjavíkur á að vera annar
en alls almennings í landinu. Þeir
líta oft á Reykvíkinga sem eins
konar annars flokks fólks. Emil
Jónsson gerði einu sinni í ræðu,
lítið úr fylgisaukningu Sjálf-
stæðismanna við síðustu kosning-
ar af því að fylgisaukningin
hefði, eins og hann orðaði það
bara orðið í Reykjavík. Þarna
kom fram sem oftar af hálfu
þessara manna, að Reykvíkingar
eru minna metnir en aðrir lands
menn. Það frumvarp, sem nú ligg
ur fyrir er annað dæmi um hinn
sama hugsunarhátt.
Ræðumaður lauk máli sínu
með því, að segja að Reykvík-
ingar mundu kunna að svara fyr-
ir sig í þessum efnum. Ef áhnf
þessa frumvarps yrðu nokkur, þá
mundu þau verða allt önnur en
til væri ætlazt. Nú mundi skap-
ast meiri ófriður en nokkru sinni
áður í sambandi við kosningar,
enda væri heldur ekki ætlunin
að skapa frið að hætti frjálsra
manna, heldur fá þann frið, sem
er svipaður því sem einræðis-
menn vilja hafa í kringum sig.
Þar er slík friðun alger, þar er
aðeins einn listi eða aðeins einn
frambjóðandi. Það á vitaskuld
langt í land að slík friðun komist
á hér á landi en á mjóum þvengj-
um læra hundarnir að stela og
það er glöggt, hvað þeir vilja.
Þessir sömu flokkar, sem bera
fram þetta frumvarp, hafa við-
haft kosningasvindl í þeim til-
gangi að fá fleiri þingmenn en
þeim bar með lýðræðislegum að-
ferðum og þeir gerðu breytingu
á kosningalögunum til að gera þá
að þingmönnum, sem raunveru-
lega voru fallnir. Nú á að ganga
á rétt kjósendanna enn einu
sinni og fara enn lengra í of
beldisáttina. Kjósendur munu
svara þessu með því að slá á þá
krumlu á kosningadegi, svo að
hún hrökkvi til baka og hætti sér
ekki lengra út á þá braut að gera
rétt Reykvíkinga minni en ann-
arra landsmanna.
Úr rcsðu Gunnars
Thoroddsen
G.unnar Thoroddsen rakti i
upphaíi ræðu sinnar hve Alþingi
hefði nú verið aðgerðarlaust í 2
mánuði og myndu elztu þing-
menn, sem setið hefðu á þingi í
áratugi, ekki annað eins. En svo
hefði þetta „stórmál“ um kosn-
ingahömlurnar skollið yfir. Ræðu
maður benti á, að ekki hefði ver-
ið leitað neins samkomulags um
þær breytingar, sem hér væri ver
ið að gera og milliþinganefndin,
sem sæti til að ræða um kosninga
löggjöfina, hefði ekki verið
kvödd til fundar um málið. Hins
vegar sagði ræðumaður að til-
drögin til frumvarpsins væru
oi'ðin nokkuð íöng. Skömmu eft-
ir að núverandi stjórn var mynd-
uð fóru sérfræðingar hennar í
kosningaklækjum að bei-a sam-
an ráð sín um það, hvernig stjórn
arflokkarnir gætu náð undir sig
sem flestum bæjar- og sveitax--
stjói-num og þá fyrst og fremst,
hvernig þeim mætti takast að
vinna Reykjavíkurbæ, sem þeir
kalla helzta vígi Sjálfstæðis-
manna. Þessum herrum fannst
þeim hafa tekist vel kosninga-
svindlið í fyrra og það jafnvel þó
dómur kjósendanna hefði verið
á þá lund að atkvæðum þeii’ra
hefði fækkað og hlutfallstalan
lækkað frá því sem áður var.
Með kosningaklækjunum stapp-
aði þó nærri að þessir flokkar
fengju hreinan meirihluta á þingi
með aðeins þriðjung kjósenda að
baki sér. Það var því engin furða
þó að þeir teldu að einhver ráð
hlytu að vera til þess að ná
Reykjavík undir sig með svipuð-
um brögðum.
Fyrst var rætt urn, að flokkarn
ir hefðu einn og sama lista í
Reykjavík. Þar hafði Framsbkn
forustuna. Þetta bar þó ekki ár-
angur vegna þess, að Alþýðu-
flokkurinn hafði fengið nóg af
samneytinu við Framsókn í kosn
ingunum síðustu og neitaði al-
gex-lega slíku sameiginlegu fram-
boði.
Annað atriðið sem hugleitt var,
var hvort ekki mundi hægt að
lögleiða kosningabandalög, þann
ig að eftir kosningar mætti leggja
saman öll atkvæði, sem stjórnar-
flokkarnir hefðu fengið, og búa
a þann hatt til handa þeim meii’i
hluta, sérstaklega í Reykjavík.
Þetta mundi hafa haft það í för
með sér, að kjósendur eins flokks
hefðu raunverulega ekki haft
hugmynd um, hvað þeir væru að
kjósa. Alþýðuflokksmaður hefði
exns getað búizt við að hann
væri að kjósa kommúnista, eins
og íxiann síns flokks. Einnig þetta
strandaði en ekki er vitað með
vissu hvernig á því stóð en talið
er að bæði Alþýðuflokksmenn og
kommúnistar hafi gugnað. Ef til
vill hafa kommúnistar ekki tal;ð
heppilegt að hafa svo opinbert
samstarf við þá, sem þeir kalla
.hei’námsílokkana á sama tíma
og þeir eru að Viefja nýja sýndar
sókn í varnarmálunum. Fram-
sókn var hins vegar albúin í þetta
klækjabrask, eins og allt annað.
En nú velta menn fyrir sér
spurningunni, hvert sé raunveru
lega efni þessa frumvarps um
kosningahömlurnar og hvernig
leit þetta frumvarp út, þegar að
það var lagt fyrir Alþingi á
mánudaginn var?
Það fyrsta, sem menn reka aug
un í er ákvæðið um að auka stór-
um alla skriífinnsku við atkvæða
grciðslu fyrir kjördag. Reynslan
hefur ekki sýnt að menn væru
að gei’a sér leik að því að kjósa
fyrir kjördag. Nú eiga allir, sem
vilja að greiða atkvæði á þenn-
an hátt, að skýra kjörstjóra ýtar-
lega frá ástæðum sínum fyrir
kjörfund og sem nákvæmast frá
því, hvar þeir verði á kjördegi.
Allt þetta á svo að færa í bók. Það
er ljóst að slíkt verður erfitt í
framkvæmdinni, eins og komið
hefur fram í umræðum á Alþingi.
En tilgangurinn er augljóslega
sá, að gera þeim sem erfiðast fyr-
ir, sem vilja kjósa fyrir kjördag
og er þetta ein af hömlunum,
sem á að lögleiða.
í fyrstu útgáfu frumvarpsins
var ákvæði um að kjörfundum
skuli slitið ekki scinna en kl. 10.
En pá sé spurningin hvað rekið
hafi stjórnarflokkana til þess að
láta loka kjörstöðum svo miklu
fyrr, en verið hefur. Menn hafa
getið sér þess tn, að tilgangur-
inn væri að komast sem næst
klukkunm hjá Rússum, en hún
er nokkuð á undan því, sem hún
er hjá okkur en hún væri þá
nær því að vera 12 þar eystra!
Nú hefur stjórnin hins vegar
breytt þessu í kl. 11. Jón Kjart-
ansson bar fram þá tillögu í gær.
að þá mætti byrja að kjósa
klukkan 9 að morgni. Þessu var
hafnað af stjói-narflokkunum, en
þó vilja þeir heimila yfii’kjör-
stjórn að ákveða að byi’jað sé
klukkan 9, en undir öllum kring-
umstæðum skal alltaf hætta að
kjósa kl. 11. Þetta miðar auðvit-
að að því að gera kjósendum
erfiðara fyrir, þar sem tíminn
er styttur. Það má segja, að ekki
hafi verið ástæða til að halda
kosningu lengur áfram en til
miðnættis, en til þess að svo
yrði, þyrfti enga lagabreytingu.
Þá á að vera óheimilt að senda
upplýsingar af kjörfundi um það,
hver hafi kosið, og liggur við
sekt og til vara fangelsi. Þetta
náði fyrst til allra, þannig að
eiginkona mátti ekki segja eig-
inmanni sínum hvort hún hefði
kosið eða ekki, nema að verða
brotleg við lögin. Þessu hefur nú
verið breytt svo, að ákvæðið nær
ekki til alls almennings, heldur
eingöngu til frambjóðenda og
umboðsmanna þeirra. Þeim er
bannað að gefa upplýsingar varð-
andi kosningu. Allir, sem eru á
framboðslistum eða eru umboðs-
menn þeixra, verða að lúta þessu
tanni, að viðlögðum sektum eða
fangelsi. Þá segir, að óheimilt
sé að skrifa hjá sér, hvei’jir
greiði atkvæði. Því hefur nú ver-
ið breytt í það horf, að óheimilt
sé að rita sér til minnis, hverj-
ir kjósi. Þetta er samkvæmt nýrri
breytingartillögu frá allsherjar-
nefnd. Þegar framsögumaður
stjórnarflokkanna var spurður
að því í dag, hvers vegna þetta
væri haft svo, þá fékkst það
fram að ekki væri refsivert að
leggja á minnið, hver hefði kos-
ið!
Þá á að vera ólieimilt að hafa
meö sér á kjörstað kjörskrá eða
nokkra aðra skrá. Undir það ætti
t. d. að falla skattskrár, marka-
skrár eða símaskrár. Það segir
að bannað sé að hafa slíkar skrár
meðferðis á kjörstað. En ef
spurt er, hvort þá sé óheimilt að
láta senda sér nana á eftir á
kjörstað, er sagt, að slíkt hafí
ekki verið athugað!
Það er baunað að bera eða hafa
uppi merki eða auðkenni á kjör
stað eða næstu húsurn eða að
liggjandi götum. Nú vita menn.
að Framsóknarmenn eru í fullu
óleyfi að innrétta einskonar
heimili_ fyrir flokksstarfsemi
sína í íshúsinu Herðubreið, sern
er rétt við hinn gamla kjörstað
Reykvíkinga, Miðbæjarskólann.
Eftir þessu ætti því ekkert að
mega hafa í eða á því húsi, sem
benti til þess, hvaða starfsemi
þar færi fram. Alþýðuflokks-
menn hafa haft sína kosninga-
skrifstofu á kjördegi í Iðnó, sem
er rétt við Miðbæjarskólann, og
ætti því hið sama að ganga yfir
þá. Ef til vill mundu kommún-
istar sleppa, sem eru hinu megin
við Tjörnina.
Allt þetta sýnir hversu hroð-
virknin og fumið er mikið. Of-
stækið er slíkt, að það ber alla
vitglóru flutningsmannanna ofur-
liði.
Nú er spurn, af hverju Fram-
sóknarflokkurinn fylgir slíku
frumvarpi svo hart fram, en það
er einmitt sá flokkurinn, sem hef-
ur verið ósvífnastur í „smölun“
og ágengni við kjósendur á kjör-
degi. Skýringin er eingöngu sú,
að í framkvæmdinni munu þessi
lög aldrei ná til þeirra kjördæma,
þar sem þeir hafa nokkuð fylgi,
heldur er aðeins unnt að beita
þeim í fjölmenninu, eins og í
Reykjavík og öðrum þéttbýlum
stöðum. En til þess að geta fylgzt
með kosningu í Reykjavík a
sama hátt og Framsóknarmenn
geta fylgst með kosningunum úti
á landi, hafa flokkarnir hér taliö
sig þurfa að hafa menn í kjör-
deildum til að líta eftir því, hverj
ir hafa kosið og hverjir ekki. —
Það sést ekki, að það geti ver
ið neinn glæpur að fylgjast með
því, hvernig kosning gengur. En
í fjölmenninu gerir Framsókn
ekkert til þó þar sé ekki hægt
að fylgjast með kosningu, því
atkvæði þeirra eru þar svo fá
En svo er spurningin: Eftir
hvers óskum slíkt frumvarp sem
þetta sé borið fram? Ekki hafa
kjósendur óskað þess. Engar ósk
ir hafa komið frá félögum eða
fundum um þetta mál. Ekkert
sveitarfélag eða bæjarstjórn hafa
gert samþykkt í þessa átt. Ekki
hefur Samband íslenzkra sveitar-
félaga beiðst þess. Tvær bæjar-
stjórnir í stórum kaupstöðum
hafa látið álit sitt uppi um stytt
ingu kjörtímans og báðar verið
því andvígar. Fyrir fáum dögum
kom tillaga fram um það í bæj -
arstjórn Akureyrar að loka kjör-
stað kl. 10. Málinu var vísað til
bæjarráðs, en þar var þessi til
laga felld með atkvæðum allra 5
bæjarráðsmanna, sem tilheyra
hinum ýmsu flokkum. Bæjar-
stjórn Reykjavíkur hefur tekið
hina sömu aðstöðu til málsins.
Það er hræsni þegar stjórn-
arílokkarnir segjast mcð þessu
frumvarpi vera að „friða kjör-
daginn“. Þjóðviljinn fer heldur
ekki dult með það, hvert frum-
varpinu sé stefnt. Stjórnarflokk-
arnir telja að með þessu móti hafi
þeir fundið ráð til þess að
hnekkja Sjálfstæðismönnum í
Reykjavík, vegna þess hve þeir
eru fjölmennur flokkur þar og
eiga mikið andir þvi að kosning
sé almenn. Það má vex-'a að þetta
frumvarp boði líka hvert stjórn-
arflokkarnir stefna.
Það má vera að það boði nýjar
og meiri hömlur á kosningarétti
almennings. En þessir flokkar
skulu ekki fá „frið“ til að Ieggja
í rúst atvinnu og efnahag lands
manna. Þeir skulu ekki fá frið til
að eyðileggja traust íslands að
fullu og öllu út á við og þeir
skulu ekki fá frið til að eyði
Ieggja Reykjavík. Það munu
Reykvíkingar sjá um á kjördeg-
inum í janúar.
Að ræðu borgarstjóra lok-
inni hvatti formaður félags-
ins, Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson, alla Sjálfstæðismenri
og raunar alla Reykvíkinga,
til að svara kosningahömlurn
stjórnarflokkkanna með því
að sækja nú betur kjörstaði
en nokkru sinni áður og sýna
með því hvert væri svar frjáls
huga kjósenda gagnvart slík
um ofbeldisaðgerðum, sem
hér væri íuunveruiega um að
ræða.
STAKSTEIWAR
Ósmekkvísi Eysteins
TJm síðustu helgi var mann-
fagnaður á Akranesi vegna hafn
arframkvæmda þar. Fyrst voru
hafnarmannvirkin „vigð að þýzk
um sið“, segir Tíminn hinn 10.
des. Um kvöldið var svo vegleg
veizla, sem forseti bæjarstjórnar
veitti forstöðu. Þar voru, að sögn
Tímans „bankaráðsmenn, váð-
herrarnir Eysteinn Jónsson og
Gylfi Þ. Gíslason“. En báöir þess
ir menn eru í hankaráði Fram-
kvæmdabankans. Eysteinn hélt
ræðu og segir Tíminn:
„Eysteinn Jónsson, fjármála-
ráðherra sagði: „að Akurnesing-
ar hefðu borið gæfu til að velja
sér formann fyrir bæjarmál sín,
sem sótt hefir málefni bæjarins
af hliðstæðu kappi og forsjá, sem
beztu formenn þeirra á sjónum,
og er þá mikið sagt, en ekkert
ofsagt að mínum dómi“.
Hér- hefur gesturinn farið að
segja húsráöendum til um
hvernig þeir ættu að haga sín-
um eigin málium. Slikt hefur
ætíð þótt lítil hæverska.
Má hægri krati“ ekki
fá stöðu?
Þjóðviljinn segir hinn 7. des.
svo um skipun Stefáns Pétursson-
ar í embætti Þjóðskjalavarðar:
„Skipun Stefáns í þetta em-
bætti — eiít vir'ðulegasta embætti
hér á landi — er lireint hneyksli.
Um stöðu Þjóðskjalavarðar sóttu
margir lærdómsmenn, vel hæfir
til stárfans, en menntamálaráð-
herra gengur fram hjá þeim öll
um og velur prófleysingjann í
hópnum, Stefán Pétursson, flokks
bróður sinn. Þetta er þriðja meiri
háttar embættið, sem rá'ðherrar
Alþýðuflokksins veita foi’hertum
hægri krötum á skömmum tíma“.
Þjóðviljinn þegir um, að einskis
prófs er krafizt til þessarar stöðu,
en Stefán hefur árum saman með
sæmd starfað við safnið.
Kafnar imdir nafni
Enn þá eftirtektarverðara er,
að Þjóöviljinn gerir engar athuga
semdir við skipun Steingríms
Hermannssonar, sem liann segir
frá í beinu framhaldi hinuar
frásagnai’innar Steingrím skorti
þó alla sérfræðslu til síns starfs.
A móti lionum sóttu tveir vís-
indalega menntaðir menn, sem
ágætt orð hafa getið sér. Við þá
stöðuveitingu var undirbúnings-
menntunin því að engu höfð.
Enda kom Tíminn upp um óróa
samvizku í stjórnarliðinu, þegar
liann skyndilega tók að telja
Steingrím í hópi „ungra vísinda-
rnanna".
Óhrjálegur hópur.
Alþýðublaðið og Tíminn hafa
ekki á fréttasíöum sagt frá heim
sókn „hcrnámsandstæðinga“ til
forsætisráðherrans, sem sagði að
„betra væri að vanta brauð“ en
hafa her í landi. En Hannes á
liorninu segist liafa mætt hópn-
um og Iýsir honum svo:
„Hópurinn var ekki stór. Megin
hluti hans var skipaður staur-
blindustu kommúnistum Reykja
víkur, fólkinu, sem telur að árás
Rússa á Ungverjaland fyrir ári
hafi verið sjálfsögð, en ungversku
vei’kamennirnir og menntamenn-
irnir fasistar og gagnbyltingar-
menn.
„-------En heldur var svipur
baráttunnar óhrjálegur------“.
Hannes gleymir að geta þess,
að þetta eru hans eigin samstarfs
menn og stuðningsmenn Her-
manns, sem áx-eiðanlega veiiir
þeim hæfilega umbun áður en
yfir lýkur.