Morgunblaðið - 13.12.1957, Qupperneq 12
12
M ORGVTSBl AÐIÐ
Föstudagtir 13. des. 195?
Útg.: H.l. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aöaintsijorar: Valtýr Steíánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arm Ola, simi 33045
Auglýsingar: Arm Garðar Knstinsson.
Ritstjórn: Aðaistræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargialci ki . 30.00 á mánuði innaniands.
í lausasölu kr. 1.50 emtakið.
„FLOKKUR BÆNDA" HJÁLPAR
NÚ KOMMÚNISTUM
AÐ hefur margoft komið
fram á síðari árum, að
sterk hreyfing hefur
vaknað innan veggja verkalýðs-
samtakanna um að hrinda valdi
kommúnista, þar sem þeir hafa
náð því að koma ár sinni fyrir
borð. í sumum félögum verka-
lýðs og annarra launþega hafa
kommúnistar á undanförnum
árum náð meirihluta-valdi. Þeir
hafa hreiðrað um sig í slíkum
félögum og ber þar fyrst og
fremst að nefna Dagsbrún, þar
sem kommúnistar hafa ráðið um
mörg undani'arin ár. Reynslan
hefur ætíð orðið sú, að þegar
kommúnistar eru búnir að búa
nægilega tryggilega um sig í ein-
hverju tilteknu verkalýðsfélagi,
misnota þeir félagið, eignir þess
og verðmæti, eins og til dæmis
kom fram í Iðju í fyrra, og gera
slíkt félag í einu og öllu að lið
í starfsemi síns eigin flokks.
Þegar kommúnistar telja sig nægi
lega örugga setja þeir hagsmuni
kommúnistaflokksins langt ofar
hag félaganna sjálfra og haga
starfsemi sinni innan þeirra verka
lýðs- og launþegafélaga, þar sem
þeir hafa náð meirihluta, öld-
ungis eftir því hvaö' þeirra eigin
flokki hentar í þann og þann
svipinn.
Um hag launþeganna sjálfra
er ekki hugsað og urn hag félags-
ins og málefni þess er heldur
ekki skeytt.
Auk þess er svo alkunnugt, að
kommúnistar hafa á liðuum tíma
notað alls konar bolabrögð tii að
viðhalda meirihluta sínum i þeim
félögum, sem þeir hafa náð tang-
arhaldi á. Er alkunnugt, hvemig
þeir hafa til dæmis hagað sér viö
kosningar í félögunum, hveinig
þeir hafa haldið kjörskrám fyrir
öðrum, og yfirleitt hagað sér í
einu og öllu, eins og sjálft félag-
ið væri eign flokks þeirra en ekki
hagsmunasamtök tiltekinna
manna.
Óánægja innan þeirra laun-
þegafélaga, þar sem kommúnistar
hafa náð að beita meirihluta-
aðstöðu, hefur farið mjög vaxandi
á síðari tímum, eins og áður er
sagt. Félagarnir hafa séð betur
og betur, hvernig kommúnistar
misnotuðu þá og samtök þeirra.
Af þessu hefur svo leitt það að
myndazt hefur sterk hreyf-
ing meðal allra andstæð-
inga kommúnista, innan verka-
lýðs- og launþegafélaga um að
hrinda valdi þeirra af sér. Stjórn
arkjör fer fram í Dagsörún í n.k.
janúarmánuði og hafa andstæð-
ingar kommúnista þar ákveðið að
taka höndum saman og hafa sam-
eiginlegt framboð til stjórnar-
kjörs. Þessu hafa kommúnistar að
vonum tekið mjög illa Peir sjá
að vald þeirra í verkalýðsfélögun
um er í hættu og þess vegna bena
þeir sér sem mest þeir mega, til
að eyðileggja samtök lýðræðis-
sinnaðra manna. í þessu efni fá
þeir nú hjálp frá Framsóknar-
mönnum. Framsóknarflokkurinn
vill styðja kommúmsta í einu og
öllu innan verkalýðsféiaganna. I
forustugrein Tímans í gær eru
kommúnistar kallaðir „raunsæir
verkalýðssinnar“. Blaðið segir að
allir „raunsæir verkalýðssinnar"
hljóti að standa gegn samtökum
lýðræðissinna innan verkalýðs-
félaganna. Tíminn bendir á, að
Sjálfstæðismenn takí þátt í því
samstarfi og það á að vera næg
ástæða til þess að verkamenn og
launþegar eigi að safnast utan
um kommúnista.
Það hefði einhvern timann þótt
skrýtin forsögn ef sagt hefði ver-
ið, að sá flokkur, sem kennir sig
við íslenzka bændur, yrði til þess
að hlaða á þennan hátt undir
kommúnista í samtökum laun-
þega. Það hefði einhvern tímann
þótt hæpin spásögn ef það
hefði verið sagt fyrir, að Tím-
inn mundi halda því fram,
að „raunsæja verkalýðssinna"
væri fyrst og fremst að
finna í hópi kommúnista, en ekki
meðal andstæðinga þeirra. Það
var líka sú tíðin að Framsóknar-
menn töldu kommúnista sízt aí
öllu í þeim hópi, sem þeir nefna
nú raunsæja vérkalýðssinna“.
Árið 1955, þegar kommúnistar
stofnuðu til verkfallanna miklu,
sem hafa orðið örlagríkust fyrir
íslezka atvinnuvegi og launþeg-
ana. sagði Eysteinn Jónsson ber-
um orðum, að kommúnistar bæru
alla sök á því sem orðið hefði
og að allur vandi í efnahags- og
atvinnumálum landsmanna hefði
verið auðleystur, ef tilræði komm
únista gegn atvinnuvegunum
hefði ekki komið til. Þá taldi Ey-
steinn Jónsson þá vera „raunsæja
verkalýðssinna", sem hamla
vildu gegn sókn kommúnista, en
nú er þessu snúið við. Tíminn
telur þá vera beztu verkalýðs-
sinnana, sem styðja kommún-
ista kröftuglegast.
Tíminn er enn að endurtaka
það í forystugreininni í gær, að
Sjálfstæðismenn hafi svo mikil
ráð innan verkalýðsfélaganna, að
þeir stofni atvinnuvegunum í
hættu með því sem þeir kalla
„verkfallsbrölt", þeir vilji
„stöðva hjól atvinnuvegana“, eins
og það er orðað í Tímanum. Sú
var tíðin að Tíminn lét ekki mik-
ið yfir því, að Sjálfstæðismenn
réðu nokkru í verkalýðsfélögun-
um. Þegar Framsóknarmenn rufu
stjórnarsamstarfið við Sjálfstæðis
menn í fyrra, var það ein höfuð-
ástæðan, sem borin var fram af
þeirra hálfu, að ekki væri unnt
að stjórna landinu með Sjálf-
stæðismönnum, vegna þess að
þeir hefðu engin ráð eða ítök inn-
an verkalýðsfélaganna. Þar yrði
að leita til verkalýðsflokkanna
og þá auðvitað fyrst og fremst
kommúnista, til þess að unnt væri
að stjórna landinu. Nú er einnig
þessu snúið við. Nú eru það Sjálf-
stæðismenn, sem hafa svo mikil
ráð innan verkalýðsfélaganna að
hætta stafar af, að dómi Tímans.
Andstæðingar kommúnista
munu láta sig þessi gífuryrði Tím
ans og Þjóðviljans engu skipta.
Þeir munu hópast saman til að
hnekkja .valdi kommúnista í
verkalýðsfélögunum við þær
kosningar, sem fara í hönd í fé-
lögunum nú á næstu mánuðum.
Barátta kommúnista og Fram-
sóknarmanna gegn þessari við-
leitni mun einungis verða til þess
að þjappa andstæðingum komm-
únista enn fastar saman en áður.
fj»ÍITAN ÚR HEIMI
Deilan um flutning fljófandi
aldsneytis til Scopusfjallsins
k s.l. ári hafa Jórdanir og ísraelsmenn refið
vopnabléssáttmálann hvað efiir annað
AÐ ÞVÍ er bezt verður séð, hef-
ir Dag Hammarskjöld, aðalritari
S.Þ., tekizt að leysa deiluna milli
Jórdaníu og ísraels í sambandi
við flutninga til Scopusfjallsins.
Þetta fjall liggur skammt fyrir
utan Jerúsalem, og samkvæmt
vopnahléssamningnum eftir stríð
ið milli Israels og Arabaríkj-
anna árið 1948 eiga Gyðingar
Scopusfjallið, en mega ekki víg-
Við höftim leyfi til að eiga
tvær konur, sagði krónprins-
inn af Marokkó. Við gætuni
kvænzt austri og vestri og ver-
trúir báðum aðilum.
girða það eða nota á neinn ann-
an hátt í hernaðarlegum tilgangi.
Læknamiðstöð á Scopusfjalli
Á Scopusfjalli eru hinn frægi
háskóli Gyðinga og Hadassah-
læknamiðstöðin svokallaða, og
því hafa báðir aðilar fallizt um-
yrðalaust á, að Scopusfjallið
megi ekki nota í hernaðarlegum
tilgangi. Þetta kemur sér eink-
um vel fyrir Jórdaníu, því að
arabiski vegurinn milli Jerúsal-
em og borgarinnar Nablus ligg-
ur fram hjá fjallinu.
— O —
ísraelsmenn hafa samt séð á-
stæðu til að hafa ofurlítinn varð-
flokk á fjallinu, og hafa Jórdan-
ir látið birgðaflutninga til varð-
flokksins afskiptalausa. En um
miðjan sl. mánuð þóttust Jórdan-
ir hafa komizt að þvi, að flutt
væri fljótandi eldsneyti til Scop-
usfjallsins, og bentu á, að hér
væri um brot á vopnahléssátt-
málanum að ræða. Töldu þeir, að
eldsneytið væri notað í sambandi
við byggingu ólöglegra víggirð-
inga Israelsmanna á fjallinu.
Yfirborðsleg rannsókn
Þann 21. nóv. sl. voru allir
flutningar til fjallsins stöðvað-
ir. ísraelsmenn kærðu þetta fyr-
ir vopnahlésnefndinni og kröfð-
ust rannsóknar í málinu. Niður-
staða rannsóknarinnar varð sú,
að olían væri notuð til rafmagns
framleiðslu og til olíukyndingar
í brauðgerð. Þetta vakti mikla
reiði af hálfu Jórdana, og Amman
stjórnin neitaði að eiga nokkur
skipti við yfirmann vopnahlés-
nefndarinnar, Byron Leary of-
ursta, og taldi rannsókn hans
mjög yfirborðslega.
Þá tók Hammarskjöld til sinna
ráða og ákvað að fljúga í snatri
til landanna fyrir botni Miðjarð-
arhafsins. Þar dvaldist hann tíu
daga. Margir munu vafalaust
furða sig á, að Hammarskjöld
skyldi eyða sínum dýrmæta tíma
í að jafna svo lítilvæga deilu.
En ekki má gleymast, að bæði
Jórdanía og Israelsmenn hafa á
sl. ári rofið vopnahléssáttmál-
ann kvað eftir annað og þar með
einskisvirt fyrirmæli S.Þ., svo
að þær eiga nokkurra hagsmuna
að gæta. Þær verða að sýna þess
um þjóðum, að þeim er full alv-
ara að krefjast þess, að vopna-
hiéssáttmálinn frá 1949 sé virtur.
Yfirskin af hálfu
Jórdaníumannr
Auðvitað má draga í efa, að
Scopusdeilan hefði leitt til alvar
legra átaka milli fsraels og Jór-
daníu. Hvorug þjóðin hefir löng-
un til að fara í stríð, og sagt er,
að hin harða afstaða Jórdaníu í
þessu máli sé að nokkru leyti yfir
skin. Egyptar hafa ásakað Huss-
ein Jórdaníukonung um að
standa ekki eindregið með Araba
ríkjunum gegn ísrael, og hafi
Hussein gripið þetta tækifæri.til
að steyta hnefann framan í fsra-
elsmenn í augsýn allra Araba-
þjóðanna. Afstaða Egypta til
Husseins breyttist líka þegar í
stað við þessa atburði, og egypzki
sendiherrann í Amman gerði sér
ferð í utanríkisráðuneytið til að
lýsa yfir stuðningi Egypta við
Jórdaníumenn
För Hammarskjölds
litin hornauga
Enn er of snemmt að spá nokkru
um, hvernig Egyptar bregðast
við þeim sættum, sem Hammar-
skjöld hefir komið á. En vitað
er, að ýmsir aðilar meðal Araba-
þjóðanna hafa litið för Hammar-
* KVIKMYNDIR +
„Aumingja tengdamó3irin“
ÞESSI brezka gamanmynd £rá
Rank-félaginu sem sýnd er nú
í Tjarnarbíói er með betri brezk-
um gamanmyndum, sem hér hafa
sézt undanfarið, laus við frá-
leitar ýkjur, en skemmtileg yfir-
leitt og mörg atriði hennar bráð-
smellin. — Efni myndarinnar er
hið gamalkunna, þar sem aðal-
persónurnar lenda í vafasamri
atburðaflælcju, er vekur alvarleg
an grun maka þeirra, en þó eink-
um hinnar siðavöndu og aðsóps-
miklu tengdamömmu, en það
klassiska fyrirbæri kannast flest-
ir við.. — Atburðarás myndarinn
ar er hröð og aðalleikendurnir
skjölds hornauga og eru reiðu-
búnir til að halda áfram að ala
á ólgunni meðal Arabaþjóðanna.
S.Þ. vilja hins vegar framar öllu
koma á varanlegum friði í lönd-
unum fyrir botni Miðjarðarhafs-
ins. Til þess að koma því til leið-
ar er tvennt nauðsynlegt:
1. Gera verður endanlegan
friðarsamning milli Araba-
ríkjanna og ísraels.
2. Nauðsynlegt er að skipu-
leggja lausn á flóttamanna
vandamálinu. Margt bendir
til þess, að S.Þ. muni í sam-
ráði við Bandaríkin gera á
næstunni nýjar — og ó-
væntar — tillögur um lausn
þess vandamáls.
Ekki er ósennilegt, að Hamm-
arskjöld hafi átt ýmiss konar er-
indi austur til Jórdaníu. Hann
átti að fara fyrr til landanna fyr-
ir botni Miðjarðarhafsins en tafð
ist vegna þeirrar „uppfinningar“
Sovétrílcjanna, að stríðshætta
væri á landamærum Sýrlands og
Tyrldands.
— O —
Hammarskjöld hefir þurft að
fara mjög gætilega í erindrekstri
sínum. Hann hefir ekki getað
tekið eins létt á málunum og
krónprinsinn frá Marokkó, er
hann hitti þáverandi utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, Shepi-
lov, í Kairó í fyrra. Við höfum
leyfi til að ganga að eiga tvær
konur, sagði Mulay Hassan. Við
gætum kvænzt austri og vestr:
og verið trúir báðum aðilum. Ef
til vill felast nokkur sannindi
um Arabaþjóðirnar í þessari at-
hugasemd. En piparsveinninn
Hammarskjöld getur ekki leyft
sér það sama og Múhameðstrúar-
mennirnir.'
fara mjög vel með hlutverk sín,
en þeir eru, hin fagra leikkona,
Kay Kendall, Brian Reece, Stan-
ley Holloway og Fabia Drake. —
Einkum er Stanley Holloway, er
leikur hinn brezka og frjálslynda
tengdapabba, bráðskemmtilegur.
Ego.
Sagðiaf sér
ráðlierraembætti
AMMAN, 11. des. — Dóms- og
uppbyggingarmálaráðh. Jórdaníu
sagði af sér embætti í dag. Ekk-
ert var sagt um orsök afsagnar-
innar og ekki var héldur til-
kynnt hver yrði eftirmaður hans.
—Reuter.
SCOPUS-
; tfHadassa hospifo/
universitet
JERUSALEM'
Él
%0(ieberget
Getsemane
#v
GAMLE BY'
JORDAN
Á kortinu sést Scopusfjallið, þar sem Hadassah-sjúkrahúsið er
og hebreski háskólinn. Samkvæmt vopnahléssamningnum frá
1949 er gamli hlutinn af Jerúsalem undir stjórn Araba en nýi
lilutinn undir stjórn fsraelsmanna. Landsvæðið fyrir austan
Jerúsalem tilheyrir allt Jórdaníu.