Morgunblaðið - 13.12.1957, Síða 22
22
MOnr.T’WfíT 4*>1Ð
Fðstudagur 13. des. 1957
i I i
SKAK
i 1 i
Teflt í 4 . umferð.
Hvítt: B. Larsen
Svart: F. Ólafsson
Nimzoindversk vörn
1. d4 Bf6
2. c4 e6
3. Rc3 ....
(Ég álít að hér komi fyrsta yfir-
sjón Larsens, vegna þess að hann
hefir í nokkur ár sérhæft sig í
„Catalana“ með góðum. árangri
og virðist því ástæðulaust að
hverfa til annara byrjana í jafn-
sterku móti og þessu).
3. .... Bb4
4. e3 0-0
5. Bd3 d5
6. a3 dxc4
7. Bxc4 Bxc3t
8. bxc3 c5
9. Re2(?) ....
(Þessi leikur á ekki við í stöðu
þar sem svartur getur rifið upp
miðborðið með c og e peðum
sínum. Betra var því hin venju-
lega aðferð Rf3).
9....... Dc7
10. Bd3 e3!
(Friðrik hefur um nokkurt skeið
teflt þessa vörn, og er því fljótur
að notfæra sér tækifærið, sem
Larsen gefur honum til þess að
auka svigrúm manna sinna).
11. dxe5 ....
(Hvítur kýs heldur að fá drottn-
inguna til e5, en Rb8, sem yrði
biskupapari hans fjötur um fót).
11....... Dxe5
12. f4
(Hvítur á nú þegar erfitt um
vik, og kýs að veikja kóngsstöðu
sína. T.d. 12. 0-0 Bf5! og hvítur
er sviftur biskupnum sínum og
peðaveikleikinn á c3 og a3 verð- 31. Kg7
ur kærkomið skotmark fyrir 32. Bxh5 gxh5
svartan) 33. Hd6 Hxc3
12. .... Dd5! 34. Rf5f Kg8
13. 0-0 Hd8 35. Rh6t Kg7
14. Bc2 Dxdl 36. Rf5t Kg8
15. Hxdl Hxdl (Friðrik þráleikur til þess
16. Bxdl Rc6 vinna tíma).
(Eftir nákvæma taflmennsku í
byrjuninni hefur Friðrik þvingað
fram drottningarkaup, og skilið
Larsen eftir með 3 veikleika:
a3, c3 og e3, auk þess sem hann
getur lagt undir sig d-línuna án
þess að hvítur fái að gert. Niður-
staðan er því sú að svartur hefur
yfirburðarstöðu, sem hann verð-
ur þó að tefla mjög nákvæmt
til að tryggja vinninginn).
17. Rg3 Bg4
18. Ba4 ....
(Eina von Larsens liggur í bisk-
upaparinu. Hann reynir því að
auka svigrúm þess eins og mögu-
legt er).
18...... Ra5
19. e4 Hd8
20. Be3 ....
(Til álita kemur 20. Ha2, t. d. 20.
. . Hd3; 21. Hd2! En svara 20. ..
Rc4 með Bb3).
20.................. bG
21. h3 Hd3!
22. hxg4 ....
(Hvítur missir óumflýjanlega
peðið á c3, t. d. 22. Bf2, þá Bd7;
23. Bxd7, Rxd7; Aftur á móti
svarar svartur 22. Kf2 með
Hxc3!).
22 ............... Hxe3
23. Rf5! ....
(Larsen velur beztu leiðina, því
g5 og e5 er hættulaust með öllu
fyrir svartan).
23 ............... Hxé4
24. Hdl h6
(Hvítur hótaði máti).
25. Hd8 Kh7
26. Bc2 Helf!
(Hér mátti svartur ekki leika
26. .. Hxf4? vegna 27. g3!! og
vinnur skiptamun).
27. Kf2 Hcl
28. Re3f g6
29. g5! hxg5
30. fxg5 Rh5
(Larsen hefur lagt mörg vanda-
mál fyrir Friðrik, en öllu hefur
Friðrik eytt. Ef 30. .. Rg4f?, þá
31. Rxg4, Hxc2; 32. Kgl og erfitt
yrði að losa sig úr mátnetinu á
f6 og g8).
31. Bdl(?) ....
(Meiri varnarmöguleika veitti
31. Hd7!, Kg7; 32. Be4! Eftir hinn
gerða leik er aðeins um „taktísk"
vandamál að ræða).
46. Rc6 a5
47. Ra7 a4!
48. Rb5 Kg6
49. Kc Kxg5
50. KxbG Kg4
51. Kxc5 Kg3
52. Kb4 Kxg2
53. Rd4 li4
54. Re2 Kf3
55. Rgl Kg4!
ABCDEFGH
FjármálaráBherra hefur
fekiB völdirt af Alþingi
Rætt um afgreiðslu fjárlaga, fjáröflun
til toll- og löggæzlunnar o. fl.
37. RhGf Kh7
38. Rxf7 Rc4
(Riddarinn kemur á réttu augna-
bliki til hjálpar kóngi sínum).
39. Hh6f Kg7
40. Rd8 Re5
41. Hd6 ....
(Þýðingarlaust var Hxh5).
41...... Hxa3
42. Ke3 He3f!
43. Kxe3 ....
(Ef 43. Kf2, þá Rg4f og c4).
43...... Rc4f
44. Ke4 Rxd6f
45. Kd5 Rf7
Staðan eftir 55. leik svarts.
Stöðumynd
(Riddarinn heldur jafntefli gegn
Kóng og peði, en tapar gegn
Kóng, riddara og peði).
56. Kxa4 Rg5
57. Kb4 Rf3
58. Re2 h3
59. Rc3! ....
(Síðasta hálmstráið!).
59....... Rg5!
(Ef 59. .. h2; 60. Re4, hl; 61.
Rf2f). Hvítur gafst upp.
IRjóh.
Nemendahlióni-
leikar Demelz
VIÐ höfum fengið hingað til
lands margt hinna ágætustu tón-
listarmanna erlendra og er óþarfi
að nefna þar nöfn, þau eru svo
kunn.
Einn þeirra er ítalinn Demetz,
sem komið hefur á fót hér söng-
skóla. Demetz er sjálfur mjög góð-
ur söngvari, og nemendatónleikar,
er hann hefur stofnað til hér sýna,
að hann er einnig mjög hæfur
söngkennari. Margt kom fram á
gætra nemenda, á þessum nem-
endatónleikum, og nokkrir sem
vöktu mikla athygli, eins og Jón
Sigurbjörnsson, sem raunar er
þekktur hér og Sigurveig Hjalte-
sted, sem er orðin mikil söngkona.
Við stöndum í þakkarskuld við
Demetz fyrir starf hans hér.
Dr. Urbancic aðstoðaði á tónleik
unum með sinni alkunnu smekk-
vísi. — Víkar.
Góðnr bækur
fyrir unglingu
höfum við í miklu úrvali.
Fyrir 8—10 ára:
Bergnuminn í risahelli. — Þýðing Isaks
Jónssonar skólastjóra. Tileinkuð ömmum
barnanna hans.
Fyrir 10—16 ára pilta og stúlkur:
Nonnabækurnar, ellefu bindi.
Bækur Stefáns Jónssonar, sjö bindi,
þ. á. m. nýja bókin Óli frá Skuld.
Ævintýri Árna og Berit. Þrjú bindi.
Kolskeggur, saga um ungan mann
og mikinn gæðing.
Draugaskipið og aðrar sögur.
ÞEGAR Alþingi kom saman í
okt. s. 1. bar ríkisstjórnin fram
lagafrumvarp um bráðabirgða-
breytingar á tollskránni. Var þar
m a. lagt til, að áfram yrði í
gildi ákvæði, sem sett var í
fyrra, þess efnis, að 1% álag
skyldi lagt á aðflutningsgjöld.
Skal það Iagt í sérstakan sjóð
og notað til að byggja tollstöðv-
ar í landinu.
Um þetta atriði frv. urðu mikl-
ar umræður í neðri deild í gær,
er frv. var þar til 3. umr. Lögðu
SjáJfstæðismenn til, að fjár til
þessara framkvæmda skyltíi afl-
að á sama hátt og annarra opin
berra framkvæmd, þ. e. með
fjárveitingum á fjárlögum.
Einnig lögðu þeir til, að fé fyrr-
nefnds sjóðs skyldi einnig notað
til að byggja lögreglustöðvar og
endurbæta fangelsi. Umræður
um málið urðu harðar, enda
snerust þær að nokkru um það
form, sem fjárlögin hafa fengið
á seinni áium, og um úthlutún
hins svonefnda atvinnubótafjár.
Ólafur Björnsson tók fyrstur
til máls í umræðunum í gær.
Lagði hann fram breytingatillögu
frá sér og Jóhanni Hafstein. Var
þar lagt til, að ekki yrði bætt
1% álagi á tolla og lagt í sjóð
þann, er fyrr er sagt frá, heldur
yrði 1% af tollunum tekið frá,
áður en þeir renna í ríkissjóð og
lagt í þennan tollstöðvasjóð.
Benti Ólafur á, að það væri í alla
staði einfaldari aðferð og eðli-
legri, m. a. af því, að þá ætti
aimenningur betra með að fa
yfirlit yfir tolla- og fjármál ríkis
ins.
Eysteinn Jónsson mælti gegn
tillögunni og ræddi um nauðsyn
þess að bæta tollgæzluna á land-
inu.
Erfiðleikar löggæziiinnar
Bjarni Benediktsson: Það er
mikil nauðsyn, að byggðar séu
nýjar tollstöðvar, en hin almenna
löggæzla á líka í miklum erfið-
leikum.
I tíð fyrrverandi ríkisstj. var
rætt um að sameina tollgæzlu og
almenna löggæzlu meira en ver-
ið hefur, og þyrfti að fá niður-
stöðu í því máli, áður en ákveð-
ið er að byggja tollstöðvar víða
um land.
Fyrir löngu hefur verið sýnt
fram á, að aðbúnaður löggæzl-
unnar er með öllu óviðunandi,
t. d. hér í Reykjavík og í aðal-
fangelsi ríkisins. Fjárveitingar
hafa hins vegar ekki fengizt til
að bæta úr því.
Er núverandi ríkisstjórn tók
við völdum var unnið að við-
gerðum á Litla Hrauni. Var ýmis
legt úr lagi um stund þess vegna,
en fljótlega var það tilkynnt um
allt land, að flest væri þar í
ólestri, en nú skyldi úr bætt.
Er öllum aðgerðum var lokið,
leið ekki á löngu, unz fangar
brutust út jafnauðveldlega og
áður. Sýnir þetta, að húsið er
alls ekki nothæft fyrir þessa
starfsemi og er það skýrt dæmi
um nauðsyn þess að bæta aðstöðu
löggæzlunnar.
Síðan bar Bjarni fram tillögu
um að fé úr sjóði þeim er fyrr
er nefndur skyldi einnig veitt
til lögreglustöðva og endurbóta
á fangelsum.
Eysteinn Jónsson snerist
einnig gegn þessari .tillögu og
bar við brýnni þörf tollgæzl-
Hvað sýna fjárlögin
Jóhann Hafstein: Við Ólafur
Björnsson erum andvígir þeirri
tekjuöflunarleið, sem ríkisstjórn
in fer fram á, þar sem við teljum
að hún muni skapa hættulegt for
■ dærni. Við erum hins vegar ekki
í á móti því, að fé verði veitt til
} tollstöövahúsa, og höfum bent á
aðra leið til að afla þess.
Það er auðveld aðferð til að
koma í veg fyrir hækkanir á
fjárlögum að afla fjár eins og
ríkisstjórnin leggur hér til. I
stað þess að láta sjást á fjár-
lögum hve mikils fjár þarf að
afla er farið i kringum þau og
lagður ákveðinn hundraðs-
hluti ofan á tolla. Þetta er ekki
einstakt fyrirbrigði. Stjórnin
stefnir nú að því undir for-
ystu Eysteins Jónssonar, að
fjárlögin gefi æ minna til
kynna um fjárreiður hins op-
inbera og f jármálaástandið al
mennt.
Fjárlagafrumvarpið var lagt
fram með mikluin greiðsluhalla í
haust. Sagðist stjórnin þá ekki
hafa liaft tíma til að ráðgast við
stuðningsflokka sína um ráðstaf-
anir til að jafna hann. Nú hefur
þing setið 2 mánuði, en við stjórn
arliðana á þingbekk hefur ekk-
ert verið talað. Þeim hefur aðeins
verið fyrirskipað að afgrciða nú
f járlög á rúmri viku, og það á að
gera án þess að heildarmynd af
fjármálum þjóðarinnar fáist um
leið. — Enn er jafnvel allt í ó-
vissu um heildarmynd fjárlag-
anna sjálfra.
Þingið álirifalaust
Björn Ólaísson: Ég tel að bæta
þurfi aðstöðu tollgæzlunnar. Af-
greiðslur hjá henni og afgreiðslur
á tollpappirum taka nú mun
lengri tíma en vera ætti. En að-
ferðin við fjáröílun í þessu sam-
bandi er annað mál, og það er
vaxandi ósiður að afla tekna með
því að bæta nýjum liðum á toll-
reikningana. Fjölbreytni í inn-
heimtu tolla fer sívaxandi og
lýsir það glögglega hinu sjúka
fjármálaástandi, sem nú er.
Bjarni Benediktsson: Viðbrögð
fjármálaráðherra við tillögu
minni bera Ijóst vitni um þá
starfshætti hans. Hann bregzt við
málum eftir því, hverjum eftir á
verður þakkað það, sem gert er.
Hann er á móti tillögunni, en
ekki kæmi mér á óvart, þótt
hann veitti síðar fé til löggæzl-
unnar utan fjárlaga — og þakk-
aði það dugnaði og áhuga Her-
manns Jónassonar og skilningi
sínum!
Það er rétt sem hér hefir kom
ið fram, að afskipti Alþingis af
fjárlögum eru nú efnislega úr
sögunni. Sl. sunnudag kom þann-
ig skipun um það að afgreiða nú
fjárlagafrumvarpið án tafar úr
nefnd, svo að afgreiðsla þess í
þinginu sjálfu gæti byrjað. Þar
verður að sjálfsögðu í einu og
öllu farið eftir skipunum fjár-
málaráðherrans.
Næst tók fjármálaráðherra til
máls, en síðan Jóhann Hafstein
og Gylfi Þ. Gíslason. Urðu eftir
það miklar umræður um atvinnu-
bótaféð, sem veitt er á fjárlögum
og útlilutun þess. Tók Ingólfur
Jónsson þátt í beim umræðum
auk þingmanna sem áður höfðu
talað. Úrslit málsins urðu þau, að
tillögur Sjálfstæðismanna voru
felldar en frumv. afgreitt frá Al-
þingi sem lög.
ást í
TÓKÍÓ, 12. des. — Ung og fögur
prinsessa, sem ekki fékk leyfi
foreldra sinna til að giftast ung
um járnbrautarstarfsmanni, sem
hún elskaði, framdi sjálfsmorð í
fyrradag. Ungi maðurinn gerði
slíkt hið sama. Unga prinsessan
hét Aishin Kakura Eisei, frænka
fyrrum Mansjúríukeisara, en pilt
urinn hét Okubu. Hann var af
fátæku fólki korninn. Foreldrar
stú.kunnar hafa geíið leyfi til
þers, að elskendurnir veröi jarð-
að.ir í sömu kistu.