Morgunblaðið - 14.01.1958, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.01.1958, Blaðsíða 1
20 siður 45. árgangur. 10. tbl. — Þriðjudagur 14. janúar 1958. Prentsmiðja Morgunblaðsins Hver Reykvíkingur greiðir þrisvar til íjérum sinnum hærri gjöld til ríkisins en til bœjarins Reykgavíkurbœr brautryðjandi um margs konar sparnað og bœtf vinnubrögð VIÐ, FJÁRSTJÓRN Reykjavíkurborgar eru höfð nokkur meginsjónarmið, sem hér skulu gerð að umtalsefni. Þau sjónarmið eru þess eðlis, að allar opinberar stofnanir þurfa jafnan að hafa þau fyrir augum, ef vel á að takast um fjár- stjórn og framkvæmdir. 1. Vel og vandlega þarf að undirbúa áætlun-um tekjur og gjöld ársins. 2. Fjárhagsáætluninni þarf að fylgja af samvizkusemi og forðast umframgreiðslur eft ir því sem föng eru á. 3. Gera Þarf glögg reiknings- skil, semja og samþykkja bæjarreikning sem fyrst eft ir að reikningsári er lokið, en láta Það ekki dragast úr hófi. 4. Forðast miklar stökkbreyt- ingar í útgjöldum, reyna að hafa þau sem jöfnust frá ári til árs, eftir því sem þjóð- félagsástandið leyfir. 5. Gæta að staðaldri sparnað- ar og hagsýni í bæjarrekstr- inum. 6. íþyngja ekki gjaldendum með of miklum útsvars- byrðum. Skal hér nú athugað, hvernig háttað er framkvæmd þessara meginatriða varðandi fjármál Reykjavikur. 1. Vandaður undirbúningur fjárhagsáætlunar Undirbúningur fjárhagsáætlun ar Reykjavíkur hefur um margra ára skeið verið í höndum sér- stakrar nefndar, þriggja trúnað- armanna bæjarins, sem glögg skil kunna á öllum þáttum bæjar- rekstrarins og vinna að þessum undirbúningi í samráði við borg- arstjóra. Er lögð í það mikil vinna að gera áætlunina sem bezt úr garði. Að sjálfsögðu er reynt að áætla gjöld og tekjur sem næst raunveruleikanum. Sú að- ferð er ekki notuð hjá Reykja- víkurbæ að lækka heildartölur fjárhagsáætlunar með því að á- ætla vissa liði lægri en þeir hljóta að verða, eða taka stóra útgjalda liði út úr áætluninni og fleygja þeim fyrir borð, þó að allir viti og viðurkenni, að þessi gjöld þurfi að greiða engu að síður. Með slíku háttalagi væri aðeins verið að blekkja sjálfa sig og aðra. Að þessum undirbúningi lokn- um er frumvarp að fjárhagsáætl- un lagt fyrir bæjarráð, þar sem það er rætt rækilega á mörgum fundum, farið í gegn um hvern einstakan tekju- og gjaldaiið, en að því loknu «r frumvarpið lagt fyrir bæjarstjórn til fyrri um- ræðu. Var það gert nú í desem- bermánuði, en samkvæmt venju var samkomulag allra flokka um að geyma síðari umræðu og endanlega afgreiðslu þar til að loknum kosningum, til þess að hin nýja bæjarstjórn geti lagt síðustu hönd á fjárhagsáætlun fyrir árið í ár. 2. Fjárhagsáætlun hefur staðizt vel Á það er lögð megináherzla Gunnar Thoroddsen hjá Reykjavíkurbæ, að fjárhags- áætluninni sé fylgt sem allra ná kvæmast og reynt að forðast sem mest umframgreiðslur. Erh. á bls. 9. Brét til Hermanns AMBASSADOR Sovétríkj- anna, hr. Pavel K. Ermoshin, hefur í dag afhent Hermanni Jónassyni forsætisráðherra orðsendingu frá hr. N. Bulgan- in, forsætisráðherra Sovétríkj anna. Unnið er að því að þýða orð- sendinguna á íslenzku, og verð ur hún birt svo fljótt sem auð- ið er. Forsætisráðuneytið, 13. janúar 1958. r Skipulagsskrá Arnasafns verði breytt, svo að unnt verði að flytja það heim Danskir áhugamenn leggja fram til- lögu til lausnar handrifamálinu KAUPMANNAHÖFN, 14. - jan. — Hinn 16. sept. 1957 var skipuð nefnd manna í Dan- mörku, sem skyldi hafa það að markmiði að stuðla að já- kvæðri lausn handritamáls- ins. Formaður nefndarinnar var kjörinn Bent A. Kock, rit- stjóri í Kaupmannahöfn, en aðrir í nefndinni eru: H. Dons Christensen byskup, Ribe, cand. mag., S. Haugstrup Jen- sen, skólastjóri, Edv. Henrik- sen, forstj., Kaupmannahöfn, Sparring-Petersen, prófastur í Kaupmannahöfn og A. Ric- hard Möller, hæstaréttarlög maður í Kaupmannahöfn. Nefndin hefur nú samið tillögu Framh. á bls. 9 Eldflaugastövar í Hollandi? HAAG, 13. jan. — Hollenzk* stjórnin gaf í dag út þá yfirlýs- ingu, að ef nauðsyn krefði mundl hún leyfa, að komið yrði upp eldflaugastöðvum á hollenzku landi. Stjórnin minnist í þessu sambandi á þá skoðun allra full- trúa NATO-ríkjanna, sem fram kom i París á dögunum, að nauðsynlegt sé, að Atlantshafs- ríkin séu alltaf útbúin beztu vopnum, sem völ er á hverju Jimenez hræddur CARACAS, 13. jan. Perez Jimen- ez, forseti Venezúela, lét í dag handtaka landvarnaráðherrann, Romulo Fernandez. Hann lýsti því Síðan yfir, að þetta hafi verið nauðsyniegt til þess að styrkja eininguna innan hersins. — í út- varpsræðu sagði forsetinn, að hann og stjórn hans mundu gera allt, sem í þeirra valdi stæði til að tryggja frið og ró í landinu. TÓKÍÓ, 13. jan. — Eins og kunn- ugt er af fréttum, þá er Tókíó stærsta borg í heimi. Á síðasta ári hækkaði íbúatala hennar um 279,335 og eru íbúar borgarinnar nú 8,573,879. Bent A,- Koch. 9ÖÖÖ vísindamenn vilja hanna tilraunir með kjarnorkusprengjnr NEW YORK, 13. janúar. — í dag afhenti bandaríski vís- indamaðurinn og Nóbelsverð- launahafinn, dr. Linus Paul- ing áskorun til S. Þ., þar sem skorað er á stórveldin að hætta tilraunum með kjarn- orkuvopn. Undir áskorunina skrifa yfir 9000 vísindamenn frá 44 löndum, þ. á m. Albert Schweitzer og Bertrand Russ- el. 36 Nóbelsverðlaunahafar skrifa undir skjahð, sem var afhent Hammarskjöld, aðal- ritara S. Þ., á sérstökum fundi í dag. — Meðal vísindamann- anna eru 101 meðlimur banda Framh. á bls. 2 Hinn fjölmenni fundur Óðins á sunnudag Er kosningar nólgost bera menn samnn ðtnla stjórn Eeybjnvíkur og svik vinstri stjórnorinnor -A Mikill baráttuhugur var ríkjandi á hinum fjölmenna launþegafundi Óðins, sem haldinn var í Sjálfstæðishúsinu á sunnudaginn. Þótti vel við eiga, að fyrsti kjósendafundur Sjálfstæðismanna í kosningabaráttunni, skyldi vera fjöl- setinn fundur launþega. ★ Tvennt setti einkum svip sinn á fundinn og olli því, hve hann var fjölsóttur og einhuga. í fyrsta lagi, að laun- þegarnir hafa nú fundið fyrir því á síðustu þremur misser- um, hve núverandi ríkisstjórn hefur stórlega skert kjör þeirra. í öðru lagi setti það nokkurn svip á fundinn, að kosningar fara fram um næstu helgi í Dagsbrún, en það er nú oi'öið áberandi mcðal verkamanna í því félagi, að þeir eru orðnir langþreyttir á áralangri óstjórn kommúnista. ★ Á kjósendafundi Óðins héldu átta Sjálfstæðismenn ræður og iauk fundinum með ræðu Gunnars Thoroddsen, sem gerði grein fyrir, hvernig Reyltjavíkurbær undir for- ustu Sjálfstæðismanna hefði unnið að heill launþeganna, sem byggja Reykjavík. Fundurinn hófst kl. 2 á sunnu- dag með stuttu ávarpi Magnúsar Jóhannessonar formanns Óðins. enn hann er sem kunnugt er einn af efstu mönnum á lista Sjálf- stæðisflokksins við bæjarstjórn- arkosningarnar. Setti hann fund- inn og stjórnaði honum. Hér verður greint nokkuð frá um- ræðunum. Fyrstu ræðun* flutti Gunnar Helgason erindreki sem rakti með skýrum sögulegum stað- reyndum, hvernig núverandi stjórnarflokkar hafa svikið öll sín loforð til launþeganna um bætt lífskjör. Taldi hann að mörg um fyrrverandi stuðningsmönn- um stjórnarflokkanna hafi brugð ið heldur í brún, er þeir sáu efnd ir vinstri stjórnarinnar á loforð- unum. Gunnar minnti m.a. á orð Hanni- bals Valdimarssonar í útvarps- ræðu 19. júní 1956, eða rétt fyrir kosningarnar. Þá sagði Hannibal: „Það er bjargföst skoðun nú- verandi stjórnar Alþýðusam- bands íslands, að nú ríði verka- lýðshreyfingunni lífið á að eign- ast svo sterkan þingflokk á Al- þingi, skuldbundinn af stefnu- skrá Alþýðusambandsins, að gengislækkun, lögbindingu kaups, vísitöluskerðingu eða nýju skatta flóði, verði ekki með neinu móti komið fram á Alþingi". Takið eftir þessum orðum Hannibals, þau fjölluðu um 1) gengislækkun, 2) lögbindingu kaups, 3) vísitöluskerðingu, 4) nýtt skattaflóð. Og nú er að líta á aðgerðir Framhald á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.