Morgunblaðið - 14.01.1958, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 14. janúar 1958
MORCVNBLAÐIÐ
19
Sl. laugardag- var haldinn kjósendafundur Sjálfstæðismanna í Kópavogi. Hefur áður verið sagt
frá honum í blaðinu. Fundarinn var haldinn í barnaskólahúsinu og flutti þar ræðu m.a.
Bjarni Benediktsson. Á mynd þessari sér yfir fundarsalinn.
Vinnubókarkort
í landafræði
RÍKISÚTGÁFA námsbóka hefur
nýlega gefið út vinnubókarkort
í landafræði, teiknuð af Marino
L. Stefánssyni kennara. Kortin
eru átta: — 1.—4. ísland, suð-
vesturhluti, norðvesturhluti, norð
austurhluti og suðausturhluti. —
5. Reykjavík og nágrenni. — 6.
ísland, heildarkort. — 7. Evrópa.
— 8. ísland og nálæg lönd. Flest
kortin eru nafnalaus, en með all-
mörgum tölum, og merkir hver
tala ákveðinn stað. Skýringar og
nafnalistar fylgja. Kort þessi eru
ætluð til þess að auka fjöl-
breytni og lífrænt starf í landa-
fræðinámi, og er stærð þeirra
miðuð við það, að hægt sé að
geyma þau í venjulegu vinnu-
bókarmöppum.
Mitt innilegasta þakklæti
V erksfæbisskúr
til leigu nú þegar. Upp-
lýsingar Efstasnndi 9.
félcapslíf
Ægiringar
Æfingarnar eru byrjaðar aft-
ur og eru sem fyrr á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum kl.
7. — Mætið vel. — Stjórnin.
Knattspyrnufélagið Þróttur
II. I. og M.-flokkur
Umræðufundur um knattspyrnu
mál og kvikmyndasýning verður í
skálanum þriðjud. 14. jan., kl. 8,30.
Fjölmennið og mætið réttstundis.
Stjórnin.
til allra skyldra og óskyldra
FjöMaframleiðsla á flugskeyti, sem
liægt er að skjóta frá kafbátum
WASHINGTON, 13. jan. — Hinn
nýi landvarnaráðherra Banda-
ríkjanna, McElroy, sagði í dag
á lokuðum fundi hermálanefndar
fulltrúadeildarinnar, að Banda-
ríkjaher hefði enga sönnun fyr-
ir því, að Rússar væru komnir
lengra en Bandaríkjamenn í
— Ufan úr heimi
Frh af bls 10
er bezt geymd á tízkusýningum
og næturklúbbum. Enginn hefur
saknað þeirra í þessi 20 ár og það
mun enginn sakna þeirra næstu
20 árin“.
Hertoginn af Windsor kemur
sjaldan til Bretlands. Venjulega
er hann þá einn á ferð og er fagn-
að af fáum öðrum en nánustu
vinum og vandamönnum. Hann
dvelst jafnan stutta stund í senn
í landinu og þarvera hans þykir
ekki umtalsverður atburður né
ástæða til þess að sýna honum
minnstu hlýju. Kona hans hefur
einungis komið þangað með hon-
um tvisvar sinnum.
Óhæfur konunsjur?
Noklcur blöð hafa að undan-
förnu brotið upp á því, að tími
væri kominn til þess að taka
Windsorhjónin í sátt. Það eru
blöð Beaverbrooks lávarðar, sem
ganga þar fremst, enda er hann
gamall og góður vinur hertogans.
En margir svara þessum skrif-
um til eitthvað á þá leið, að það
sé móðgun við Margréti prins-
essu, sem fórnað hafi ást sinni
fyrir þjóð sína, að taka hertog-
ann í sátt. En samt hafa þó marg-
ir, sem fylltust andúð í garð her-
togans, þegar hann lét af konung-
dómi, skipt um skoðun. Þeir efast
um það, að Edward sé þeim
kostum gæddur, að hann hefði
orðið Bretum sá konungur, er
þeir þörfnuðust í þrengingum
styrjaldaráranna. Og þessir menn
eru þakklátir forsjóninni fyrir
það, að brezka þjóðin naut for-
ystu mikilhæfs konungs og ást-
sæls á hættustund. Greifi einn
viðhafði eitt smn þau orð um her
togann, að hann hefði alla ókosti
konungs, en byggi ekki yfir nein
um kostum, sem konung prýddu.
Og þeir eru margir, sem vilja
taka hertogann í sátt einmitt
vegna þess, að þeir trúa því að
forsjónin hafi gripið í taumana
og gefið Bretum forystufæran
konung, er örlagastundin nálgað-
ist. En þessar raddir eru ekki
háværar frekar en aðrar, sem
ræða málefni Windsorhjónanna.
Hins vegar virðist hópur öflugra
manna reiðubúinn til þess að
berjast fyrir sáttum, heilum sátt
um hertogahjónanna af Windsor
og brezku þjóðarinnar.
smíði langdrægra eldflauga. —
Hann bætti því þó við, að þessi
mál væri nú tekin sömu tökum
og ef fullvíst væri, að Banda-
ríkjamenn stæðu Rússum að baki
í þessari vísindagrein. Ekki væri
þorandi annað en búast við hinu
versta. —. Landvarnaráðherrann
sagði, að herinn hefði ýmsar
áætlanir á prjónunum, t. d. væri
í ráði, að hefja fjöldaframleiðslu
á flugskeytinu „Polaris". sem
hægt væri að skjóta 2400 km.
vegalengd. Yrði fjöldaframleiðsla
á þessari gerð flugskeyta hafin
innan 18 mánaða. Hægt er að
skjóta þessu flugskeyti frá kaf-
báti, og þarf haan ekki að koma
upp á yfirborðið til þess.
Frakkar fækka
íher sínum
PARÍS, 13. jan. — Af fjárlaga-
frumvarpinu, sem lagt var fram
í franska þinginu í dag, má sjá,
að Frakkar hyggjast minnka her-
afla sinn um 15% á því fjárhags-
ári, sem nú er að hefjast. Sam-
kvæmt því munu Frakkar fækka
um 135 þús. menn í her sínum,
svo að í honum verða 890 þús.
menn í árslokin.
PARÍS, 13. jan. — Alexis
Jeltov hershöfðingi hefur
verið rekinn úr stöðu sinni í
Rauða hernum. Hann hefur
stjórnað stjórnmáladeild hers
ins. Þegar Zhukov var rekinn
úr embætti hermálaráðherra
í október í haust, lét Jeltov
mjög að sér kveða, að því er
fréttir hermdu. Það var ekki
sízt fyrir hans orð, að Zhukov
varð að lúta í lægra haldi. —
Segja sumir fréttamenn, að
hann hafi kært Zhukov fyrir
flokksstjórninni og sagt, að
hann virti að vettugi fyrir-
mæli flokksins um fræðslu
innan hersins í kommúnist-
Brotizt imi
í (lúfuaræktarbú
EINN af þeim fáu mönnum hér í
bænum, sem lagt hafa stund á
dúfnarækt; kerfisbundna ræktun
sjaldgfefra dúfnaafbrigða, fékk
heimsókn dúfnaþjófa um helgina.
Hann á dúfnahús á tveim stöð-
Um hér í bænum, annað skammt
frá Miklatorgi en hitt er við Háa-
leitisveginn.
Maður þessi hefur lagt stund
á dúfnarækt í 30—40 ár, og stund
að þetta sem frístundastarf. Á
hann aðeins úrval dúfna. — Það
eru því miklar líkur til þess að
skjótlega muni takast að finna
dúfnaþjófana, nema því aðeins
að þeir hreinlega drepi fuglana.
Þessar dúfur, sem hafa ætíð verið
í góðum húsum og verið gætt vel
og vandlega, þola ekki að vera
í lélegum kofum, í kulda og á
lélegu fóðri.
Eigandinn telur að hann hafi
misst 20—30 dúfur úr hvoru húsi.
Hefur hann nú kært yfir þjófn-
aði þessum til rannsóknarlög-
reglunnar. Meðal dúfna þeirra er
stolið var er danskt afbrigði,
„Skagadúfur" mjög fallegar með
svart höfuð og brjóst, en að öðru
leyti hvítar.
Ólíklegt er að dúfnaþjófarnir
geti haft nokkurt gagn af dúfum
þessum.
ískum fræðum. — Eftirmað-
ur Jeltovs er Golikov hers-
höfðingi.
— Jörundur
Framh. af bls. 11.
dr Þorsteinn þorskabítur
Kaupverð togarans Jörundar
mun vera um 6,5 milljónir króna.
í Reykjavík mun kaupsamnig-
ur verða undirritaður, en tog-
arinn mun hér taka höfn í
fyrsta skipti á föstudaginn kem-
ur. Það hefur verið ákveðið að
hann skuli heita Þorsteinn þorska
bítur. — Skipstjóri verður Einar
Sigurjónsson frá Hafnarfirði, en
hann hefur verið með togarann
og munu yfirmenn og flestir
hásetar sem á togaranum eru
áfram verða á skipinu. — Á.
Kosningaskrifstofa Sjálistæðisflokksins
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
er í Vonarstræti 4, V.R. Skrifstofan er opin frá kl. 10—10
daglega. Símar: 1 71 00, 2 47 53 og 1 22 48.
Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru beðnir að hafa
samband við skrifstofuna og gefa upplýsingar um þá, sem
verða fjarverandi á kjördegi.
Andsfæðingur Zhukovs fallinn
fyrir margskonar vinsemd og gjafir á sl. ári. Sérstaklega
vil ég nefna stjórn Kaupfélags Hafnfirðinga og kaup-
félagsstjóra fyrir mikla hjálp í sjúkdómslegu minni.
Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gleðilegt áir.
Hafnarfirði, 9. janúar 1958.
ELlN BJARNADÓTTIR
Suðurgötu 6.
Ég vil hér með þakka öllum þeim mörgu sem á einn
eða annan hátt sýndu vistmönnum á Sólvangi, Hafnar-
firði, og stofnuninni sjálfri vinarhug á sl. jólum og ára-
mótum. Sérstaklega vil ég flytja varnarliðsmönnum á
Keflavíkurflugvelli beztu þakkir fyrir kvikmyndasýning-
artæki er þeir gáfu Sólvangi.
Öllum þeim er hér eiga hlut að máli flyt ég hugheilar
nýáu’sóskir.
Sólvangi, 12. janúar 1958.
Guðmundur Gissurarson, forstjóri.
Maðurinn minn og faðir minn
SKIJLI JÓHANNSSON
verzlunarmaður, Bugðulæk 16, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 15. þ.m. kl. 1.30 e.h.
Kristín Sigurðardóttir,
Sigurður Skúlason.
Faðir minn
HRÖMUNDUR SIGURÐSSON
fyrrverandi rafstöðvarstjóri á Bíldudal, lézt 9. janúar.
Jarðarförin ákveðin síðar. Fyrir hönd aðstandenda.
María Hrómundsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við and-
lát og jarðarför
GUÐRlÐAR BJÖRNSDÓTTUR
Einnig þökkum við lækni og hjúkrunarkonum 6. deildar
Landsspítalans fyrir góða hjúkrun meðan hún dvaldi þar.
Heigi Gislason,
Svanhildur Bogadóttir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
útför
DÝRLEIFAR TÓMASDÓTTUR
Vandamenn.
Innilegar þakkir fyrir vinarhug og samúð við andlát og
útför
GfUÐRÚNAR MAGNtJSDÓTTUR
Tjarnarg. 47
Dætur, tengdasynir og barnabörn.
Móðir mín
INGIBJÖRG TEITSON f. HELGADÓTTIR
lézt af slysförum í Everett, Washington, Bandaríkjunum,
þann 10. janúar.
Lillian Teitson.