Morgunblaðið - 07.03.1958, Síða 4
4
MORGVNBLAÐ1Ð
Föstudagur 7. marz 1958
I dag er 66. dagur ársins.
Föstudagur 7. marz.
Árdegisflæði kl. 6,18.
Síðdegisflæði kl. 18,43.
Slysavaröstofa Reykjavíkur í
Heilsuverndarstöðinni er opin all-
an sólarhtinginn. Læknavörður L
R (fyrir vitjaniri er á sama stað,
frf kl. 18—8. Sími lf ).
Naeturvörður e- i Ingólfs-
apóteki sími 11' . Reykjavíkur
apðtek, Laugavegs-apótek og
Iðunnar-apotek, fylgja öll lokun-
artíma sölubúða. Garðs-apótek, —
Holts-apótek, Apótek Austurbæj-
ar og Vesturbæjar-apótek eru öll
opin virka íaga til kl. 8, laugar-
daga til k. 4. Þessi apótek eru
öi: opin á sunnudögum milli ’d.
1 og 4. —
Kópai ogs-apótek, Álfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
frá kl. 9—16 og helgr daga frá
kl 13—16. Sími 23100.
Hafnarfjarðar-apótek er opið
alla virka daga kl. 9 -21. Laugar
daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi-
daga kl. 13—16 og 19—21.
Næturlæknir er Eiríkur Björns
son.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—19, laugardaga
kl. 13—16. Helgidaga ki. 13—16.
Vegna smávægilegra mistaka
verður læknavakt í Keflavík ekki
birt framvegis.
0 Helgafell 5958377 — IV/V
— 2.
RMR — Föstud. 7.3.20. — Fr. —
Atkv. — Hvb.
Í.O.Oif. 1 = 139378ii = D.dv.
(E^Brúðkaup
Síðastliðinn Iaugardag voru gef
in saman í hjónaband Hermína
Jónsdóttir frá Akureyri og Níels
Jacob Niclasen frá Færeyjum. —
Heimili ungu hjónanna verður
fyrst um sinn að Kirkjustræti 2,
Reykjavík.
Hjónaefni
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Fjóla Sveinbjörns-
dóttir, simamær frá Seyðisfirði
og Guðmundur Sigurjónsson, sjó
maður, Nýbýlavegi 21.
* Af M ÆLl *
Sjötíu ára er í dag Þorkelína
Jónsdóttir, Tjarnarkoti, Innri-
Njarðvík.
BBBS Skipin
Eimskipafélag ísiands h. f.: —
Dettifoss fór frá Keflavík 3. þ.m.
til Gautaborgar, Gdynia, Vent-
spils og Turku. Fjallfoss fór frá
Rotterdam 6. þ.m. til Antwerpen,
Hull, Kaupmannahafnar og Rvík-
ur. Goðafoss fór frá New York 26.
f.m. Væntanlegur til Reykjavikur
árdegis 8. þ.m. Gullfoss fór frá
Hamborg í gærdag til Kaupmanna
hafnar. Lagarfoss fór frá Gauta-
borg 2. þ.m. Væntanlegur til Rvík
ur á hádegi í gærdag. —
Reykjafoss fór frá Siglufirði 3.
þ.m. til Bremerhaven og Ham-
borgar. Tröllafoss er í New York.
Tungufoss kom til Hamborgar 6.
þ.m. Fer þaðan til Reykjavikur.
Skipadeild S.I.S.: — Hvassafell
fór i gær frá Reykjavík áleiðis
til Stettin. Arnarfell fór frá New
York 3. þ.m. áleiðis til Reykjavík
ur. Jökulfell er í Reykjavík. Dís-
arfell á að fara í dag frq Rostock
áleiðis til Islands. Litlafell er í
Rendsburg. Helgafell fer í dag
frá Akureyri til Svalbarðseyrar
og Húsavíkur. Hamrafell fór frá
Reykjavíkur 1. þ.m. áleiðis til
Batumi.
Litla stúlkan á myndinni er Heiða eins og hún lítur út í kvik-
myndinni, sem gerð hefir verið um hana. Stjörnubíó sýndi
þessa mynd á sínum tima og vegna þess að senda verður
filmuna til Þýzkalands næstu daga, verður myndin sýnd i
bíóinu kl. 5 á laugardag og sunnudag. — í vor kemur svo
framhald myndarinnar og nefnist það „Heiða og Pétur“.
ggiFlugvélar
Flugfélag íslands h.f.: Hrím-
faxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08,00 í dag. —
Væntanlegur aftur til Reykjavík
ur kl. 23,05 í kvöld. Flugvélin fer
til Osló, Kaupmannahafnar og
Hamborgar kl. 08,30 í fyrramálið.
Innanlandsflug: 1 dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar, Fagur-
hólsmýrar, Hólmavlkur, Horna-
fjarðar, ísiafjarðar, Kirkjubæjar
klausturs og Vestmannaeyja. Á
morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir), Blönduóss,
Egilsstaða, ísafjarðar, Sauðár-
króks, Vestmansaeyja og Þórs-
lxafnar.
Loftleiðir li.f.: — Hekla er vænt
anleg kl. 07,00 í fyryamálið frá
New York. Fer til Osló, Kaup-
mannahafnar og Hamborgar
kl. 08,30. Saga er væntanleg til
Reykjavíkur kl. 18,30 annað
kvöld frá Kaupmannahöfn, Gauta
borg og Stafangri. Fer til New
York kl. 20,00.
P Félagsstörf- ■
Frá Guðspekifélaginu: — Að-
alfundur Dögunar er í Guðspeki-
félagshúsinu í kvöld og hefst kl.
8. — Kl. 8,30 verður fyrirlestur,
Sigvaldi Hjálmarsson talar: —
„Hvað er Yoga?“. Þorsteinn Hall
dórsson flytur kafla úr ritum P.
Bruntons „Fágun tilfinningalífs-
ins“. Ennfremur verður hljómlist
HEIÐA
43. í stóra húsinu hans herra Sesemanns
í Frankfurt situr Klara 1 hjólastólnum
sínum. Hún er yndisleg stúlka með Ijóst
hár og blíðleg, blá augu, en hún er mjög
íölleit og veikluleg. Við hliðina á stól
hennar situr ungfrú Rottenmeier, þraðbein
í baki. Síðan frú Sesemann dó, hefir hún
stjórnað þessu stóra húsi. Hún er mjög
ákveðin, en ekki sérstaklega vingjarnleg.
Klara horfir sífellt á úrið sitt. „Kemur
hún ekki bráðlega, ungfrú Rottenmeier?“
spyr hún hvað eftir annað.
Mynslasaga fyrir norn
44. Heiða, sem Klara bíður eftir með
svo mikilli eftirvæntingu, er nú komin að
stóra húsinu, og þjónninn Sebastian opn-
ar dyrnar. „Mig langar til að tala við
ungfrú Rottenmeier," segir Dídí frænka.
„Það kemur mér ekkert við“. segir
Sebastian. „Styðjið á hinn bjölluhnappinn,
þá kemur Tinetta stofustúlka." Og
Sebastian fer inn aftur. Dídí styður á
hinn hnappinn og Tinetta stofustúlka
birtist í gættinni. Hún ber snjóhviian
kappa á höfðinu. Drembileg á svip vísar
hún þeim upp á loft.
45. Ungrfú Rottenmeier starir á Heiðu.
„Hváð heitir þú?“ Heiða, sem horft hefir
undrandi á hina viðamiklu hárgreiðslu á
höfði ungfrúarinnar, svarar hátt og greini-
lega: „Heiða“. „Á það að vera nafn eða
hvað? Hvaða nafni varst þú skírð?“ spyr
ungfrú Rottenmeier. „Ég man það ekki“.
„Er stelpan ósvifim?" Ungfrúin er reið.
Dídí segir, að Heiða hafi verið skírð Aðai-
heiður. „Já, það verður þó að teljast nafn.
Hvað er hún gömul?" „Hún er rúmlega
tíu ára“. — Dídí rekur ofurlítið í vörö-
urnar.
og kaffiveitingar í fundarlok. —
Gestir eru velkomnir.
Óbáði söfnuSurinn. — Bræðra
félag óháða safnaðarins heldur
skemmtikvöld í Kirkjubæ laugar-
daginn 8. marz kl. 8,30. Félags-
vist og skemmtiatriði. Allt safn-
aðarfólk hjartanlega velkomið.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur. -
Næsta saumanámskeið félagsins
hefst föstudaginn 7. marz kl. 8
síðdegis, í Borgartúni 7.
Ymislegí
Happdrætti Háskóla íslands. -
Dregið verður í 3. flokki mánu-
dag 10. marz. Menn skyldu at-
huga, að síðasti söludagur í þess-
um flokki er á laugardag.
Hjúkrunarkvennablaðið, 1. tbl.
1958 er komið út. Efni: Greining
á krabbameini í brjósti. — Árs-
skýrsla FÍH. Laun hjúkrunar-
kvenna. Ástríður Símonardóttir
(minningargreinar). — Raddir
hjúkrunarnema. Hvers ber að
vænta af hjúkrunarnámi? Diet
uppskriftir. Fréttir og tilkynn-
ingar. —
Jan Castricuin, Zuid Kerken-
laan I Limmen (N. H.), Holland,
sem er 17 ára, óskar eftir að kom-
ast í bréfaviðskipti við pilt eða
stúlku á sínu reki hér á landi.
Hann er frímerkjasafnari og vill
skipta á íslenzkum frímerkjum.
Breiilwooil Internatíonal Stanip
Club, 2023 Westwood Blvd., Los
Angeles, 25, California, U.S.A.,
sem hefur milligöngu um frí-
merkjaskipti meðal unglinga í 27
löndum, hefur óskað eftir því, að
blaðið birti heimilisfang og utaná-
skrift sína, sem hér með er gert.
Þeir unglingar, sem hafa áhuga
á frímerkjaskiptum við önnur
lönd, geta því skrifað beint til
klúbbsins og komizt þannig f frl-
merkjaskiptasamband við ein-
hver af þessum 27 löndum. For-
maður klúbbsins heitir Phil Fem,
og veitir hann allar upplýsingar
bréflega.
Frá háskólanum. — Dr. HerdtB
von Magnus, sem hingað er kom
in í boði Háskóla Islands, flytur
fyrirlestur í kvöld kl. 8,30 í 1.
kennslustofu háskólans, fyrir
lækna og læknanema, um bóluefni
gegn mænuveiki, framleiðslu þess
og notkun.
Meií&samskoí
Álicit á Strandarkirkju, afh.
Mbl.: Stúlka kr. 15,00; N N 5,00;
S E 50,00; Ó Þ Hafnarfirði 50,00;
V Akranesi 100,00; A J Rvik
100,00; Þorvaldina 100,00; F N
100,00; ónefndur 25,00; Guðrún
100,00; áheit K K 50,00; J G afh.
af Sigr. Guðm., Hafnarfirði 10,00
Bryngeir Guðjónsson 100,00; H
S H 500,00; kona 10,00; Á S
100,00; Þ G 50,00; R E E 50,00;
Margr. Magnúsd., 50,00; S J
15,00; gömul kona 30,00; Dóra
10,00; Á P 130,00; A J 50,00; Þ
Þ 20,00; Hulda 10,00; E S 200,00;
N N 30,00; Sigrún 100,00.
L 50,00.
Læknar fjarverandi:
Jónas Bjarnason læknir verður
fjarverandi 2—3 vikur.
Þorbjörg Magnúsdóttir verður
fjarveranli frá 19. febr. í rúman
mánuð. Staðgengill Þórannn
Guðnason.
Kristjana Helgadóttir, fjarver-
andi frá 1. marz, óákveðið. Stað-
gengill: Jón Hjaltalin Gunnlaugs
son.
Söfn
Bæjarbókasufn itteykjavíkur,
Þingholtsstræti 29A, sími 12308.
Útlán opið virka daga kl. 2—10,
' laugardaga 2—7. Lesstofa opin
! kl. 10—12 og 1—10, laugardaga
10—12 og 1—7.. Sunnudaga, útlán
opið kl. 5—7. Lesstofan kl. 2—7.
Útibú, Hólmgarði 34, opið mánu-
daga kl 5—7 e.h. (f. börn); 5—9
(f. fullorðna). Þriðjudaga, mið-
I vikudaga, fimmtudaga og föstud.
i kl. 5—7. — Hofsvallagötu 16 op-
’ ið virka d-ga nema laugardaga,
kl. 6—7. — Efstasundi 26, opið
' mánudaga, miðvikudaga og föstu-
t daga kl. 5—7.