Morgunblaðið - 07.03.1958, Qupperneq 18
*
MORGVTSBLAÐIÐ
Föstudagur 7. marz 1958
tir framlengdur
VIÐSKIPT AS AMNIN GUR ís-
lands og Spánar frá 17. desember
1949, sem falla átti úr gildi um
síðustu áramót, hefir verið fram-
lengdur óbreyttur til 31. desein-
ber 1958.
Framlengingin fór fram í Mad-
rid hinn 22. febrúar sl. með er-
indaskiptum milli Agnars Kl.
Jónssonar ambassadors og Sr. D.
Fernando María Castiella y Maiz
utanrikisráðherra Spánar.
Fullirúar á Búnaðarþingi
Gunnar Huseby
varpaði 14,85 m
KR hélt innanfélagsmót í kúlu-
varpi s. 1. miðvikudag. Lengst
varpaði Gunnar Huseby 14,85 m.,
2. Friðrik Guðmundsson 13,98
m og 3. Sigurður Júlíusson 12,23.
í langstökki án atrennu stökk
Hörður Lárusson 3,20 m., sem er
mjög góður árangur.
Frá Búnaðarþingi:
Miklar umræður um
heimaslátrun
1 GÆR var fjárhagsáætlun Bún-
aðarfélags íslands fyrir árið
1958 til fyrstu umræðu á Búnað-
arþingi.
Fjárhagsáætiun B. I.
Niðurstöðutölur áætlunarinn-
ar eru 3.628.560,00 kr.
Hæstu tekjuliðir:
Frá ríkissjóði 2.857.806,00 kr.,
seldar forlagsbækur 225.000,00
kr., tekjur af Frey 390.000,00
kr. Hæstu gjaldaliðir eru: Stjórn
arkostnaður 466.653,00 kr., Bún-
aðarþing 229.000,00 kr., jarðrækt
in 409.698,00 kr., búfjárræktin
377.306,00 kr., búnaðarfræðsla
345.720,00 kr. til búnaðarsam-
sambanda 325.000,00 kr., útgáfu-
kostnaður Freys 400.000,00
Fjárhagsáætluninni var að lok
inni framsögu vísað til annarrar
umræðu.
Erindi Þórarins Helgasonar
varðandi elliheimili í sveit var
til síðari umræðu og afgreitt án
umræðna.
Heimaslátrun
Enn urðu talsverðar umræður
um erindi yfirdýralæknis varð-
andi slátrun stórgripa. Urðu
menn ekki á eitt sáttir um að
fella úr gildi undanþáguheimild-
ina til heimaslátrunar stórgripa
er ætlaðir væru til sölu. Bent
var á að í ýmsum afskekktum
fámennum héruðum mundi lítt
framkvæmanlegt að koma stór-
gripum til löggiltra sláturhúsa.
Komu fram tillögur um að við-
halda undanþágunni þar sem sér
staklega stæði á þó þannig að
viðurkenndum sláturskýlum
væri komið upp. Bent var á að
góð meðferð við slátrun nægði
ekki þegar um væri að ræða
flutning á kjötinu langan veg.
Það væri einnig nauðsyn að hafa
aðstöðu til þess að frysta kjötið
þegar að lokinni slátrun. Slík
aðstaða myndi jafnan vera fyrir
hendi þar sem löggilt sláturhús
væru. Þar sem málið var nú til
síðari umræðu en breytingartil-
lögur komu fram við ályktun
nefndarinnar og fjöldi fulltrúa
lét í ljós skiptar skoðanir á lausn
þessa máls var því vísað til nefnd
ar á ný til' þess að freista þess
að samræma hin ólíku sjónar-
mið.
70 ára
7. marz 1958 — Hamingjuósk
Já, Guði sé lof, er gaf mér þig
sem móðir,
er gleðibrosin léku þér um kinn
og kærleik nærðust hjartastrengir
hljóðir
og höndum fórstu um reifar-
strangann þinn.
Mér er sem ég sjái bros þitt blíða,
er barst þú mig við glaða hjartað
þitt.
Þú kaust það strax að láta vel
mér líða
og lagðir'smáan dreng í rúmið
sitt.
Já, það varst þú, sem gerðir mig
að manni
og maki þinn með hjartna sam-
stilling,
og æska mín í hlýjum heima-
ranni
var hjóna beggja kærleiks-
sameining.
Nú sendi ég þér þökk í litlu ljóði,
þau launin eru smærri en
verðugt er.
Að njóta þín var lífs míns
glæsti gróði.
sem góðri móður Drottinn fylgi
þér.
Ragnar Guðmundsson.
Á miðvikudag var samþykkt á
Alþingi þinasályktunartillaga
Eggerts Þorsteinssonar um rann
sókn á fjárfestingarþörf opin-
berra stofnana og á leigusamn-
ingum, sem ríkisstofnanir hafa
gert sl. 10 ár við einstaklinga,
félög og aðra opinbera aðila. —
Tillögunni hafði verið nokkuð
breytt.
E. andskeppni Dana og íslendinga í
fr|álsí|>róttum í sumar
IsS. frjálsíþróttamenn verða
á mörgum stórmóiuan í Evrópu
SAMNINGAR hafa nú verið gerðir um landskeppni í frjálsum
íþróttum milli Dana og íslendinga og fer hún fram í Randers
(skammt frá Árósum) 30. og 31. ágúst nk. Skýrði formaður FRÍ,
Brynjólfur Ingólfsson, blaðamönnum frá þessu í gær. — Merkt,
danskt íþróttafélag, Freyja, í Randers á 60 ára afmæli á þessu ári,
og verður landskeppnin hámark mikilla hátíðahalda í því til-
efni. Hafa verið gerðar ýmsar breytingar á góðum íþróttavelli par
ineð landskeppnina í huga.
Vel tekið
Brynjólfur sagði að stjórn FRÍ
hefði unnið að þessu máli eftir
að ársþing FRÍ á sl. ári fól stjórn-
inni að koma á einni landskeppni
árlega. Var leitað fyrst til Norð-
manna, en af samningum varð
ekki. Þá buðu A-Þjóðverjar til
landskeppni fyrst í ágúst við B-
lið sitt. Sá tími er óhentugur ís-
lendingum vegna Evrópumeistara
mótsins síðar í sama mánuði. Var
ekki um annan tíma að ræða af
hálfu Þjóðverja, en málinu er
haldið opnu og er líklegt að af
landskeppni við þá verði á næsta
ári eða næstu árum.
Er FRÍ sneri sér að Dönum
tóku þeir þegar vel í mánJ, enda
hafa þeir fullan hug á að reyua
að vinna íslendinga í frjáls-
íþróttum, en ísland hefur fjórum
sinnum farið með sigur af hólmi
yfir Danmörku.
Stendur nú vel á því að hópur
íslenzkra frjálsíþróttamanna verð
ur í Stokkhólmi eftir miðjan
ágúst í sambandi við Evrópu-
mótið. Verður þar kjarni lands-
liðsins, en aðrir munu þá fá
tækifæri til að sjá Evrópumótið
og halda síðan til landskeppninri-
ar í Randers.
Kjörin sem Danir bjóða upp á
eru þau, að þeir greiða FRÍ ákveð
in styrk í ferðakostnað til Kaup
mannahafnar 'óg greiða síðan
dvöl og ferðir íslendinga í
Danmörku.
Landskeppni Dana og íslend-
inga í þessari grein hefur alltaf
verið skemmtileg. Báðar þjóðir
eiga ung og efnileg landslið og
það er skoðun formanns FRÍ, að
íslenzka liðið verði í sumar sterk-
ara en nokkru sinni fyrr. Sömu
trú hafa Danir á sínu liði — og
þá er ekki að spyrja um spenn-
inginn í keppninni.
Evrópumótið
Undirbúningur undir þátttöku
í Evrópumótinu ér í fullum gangi.
Tilkynnt hefur verið hámarks-
tala þátttakenda héðan — 17
keppendur. Áætlaður kostnaður
við að senda slíkan hóp er var-
lega áætlaður 130 þús. kr., og
hefur FRÍ fengið styrk Alþingis.
80 þús. kr., í því skyni. Geta
íþróttamannanna ræður þó að
sjálfsögðu ein um það hve stór
hópurinn verður. Sennilega má
áætla að 10—12 menn fari utan,
og fleiri verði um miklar fran’-
farir íþróttamannanna að ræða.
Ýmis bo.
FRÍ hafa þegar boðizt ýmis boR
fyrir íslenzka íþróttamenn til
ýmissa stórmóta í sumar. M. a.
má nefna að 6 menn eru boðnir
til A-Þýzkalands að EM loknu.
Þá er boð til Búdapest og boð til
Dresden. — Verður áreiðanlega
mikið fjör í frjálsíþróttum hér
í sumar.
Manchester
sigraði
United
1:0
MANCHESTER United sigraSi
West Bromwich Albion í auka-
leik ensku bikarkeppninnar meS
einu marki gegn engu. Markið
skoraði hægri útherjinn Webster
á síðustu sekúndum leiksins.
Bezti maður liðsins var enn einu
sinni Ernie Taylor. Það var hann,
sem kom ruglingi á vörn WBA
og sendi síðan knöttinn til vinstri
útherjans Charlton, en hann gaf
knöttinn ýfir til Webster, sem
skoraði viðstöðulaust.
Vellinum var lokað klukku-
tíma fyrir leikinn, þar sem völl-
urinn rúmaði ekki fleiri áhorf-
endur. Talið var að um tuttugu
þúsund manns hefðu verið fyrir
utan völlin er leilturinn hófst.
Áhorfendur voru yfir sextíu þús-
und. — Manchester United leikur
gegn Fulham í undanúrslitum
bikarkeppninnar. Fulham er í
annarri deild.
Biosilía hættir við þótttöku
RIO DE JANEIRO, 6. marz. —
Brasilía mun hætta við þátttöku
í úrslitakeppni heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu, ef
sænska knattspyrnusambandið
fellur ekki frá hinum háu kröf-
um um endurgjald fyrir útvarps
lýsingu af leikunum.
Yfirlýsingu þessa gaf formað-
ur íþróttasambands Brasilíu. •—
Har.ii sagði og að mál þetta yrði
ræti í brasiliska þinginu.
ViSskiptasamning-
Happdrætti Háskóla Islands
Á MORGUN er síðasti söladagur ■ 3. flokki
Athugið: Til áramóta eru eftir 10198 vinningar
— samtals 13 245 OOO krónur