Morgunblaðið - 15.03.1958, Qupperneq 1
16 síður ®g Lesbók
45 árgangur.
63. tbl. — Laugardagur 15. marz 1958
Frentsmiðja Morgunblaðsins
Utanríkisráðherra viðurkennir á Alþingi:
Aðalverktökum einum leyft að
selja vörur keyptar af erlendum
aðilum á Keflavíkurflugvelli
Vinnufriður í Danmörku
H. C. Hansen skarst i leikinn
HÖFN, 14. marz. — í nótt náðist
samkomulag milli fulltrúa at-
vinnurekenda og fulltrúa Iaun-
þega um kaup og vinnu 300.000
ófaglærðra verkamanna. Sam-
Upplýst, að engin ástæða er til gagnrýni á
Sameinaða verktaka
PINGSÁLYKTUNARTILLAGA þeirra Einars Olgeirssonar og
Karls Guðjónssonar um skipun nefndar til að rannsaka verzlunar-
viðskipti við herlið Bandaríkjanna og verktaka þess á íslandi var
til fyrri umræðu í neðri deild Alþingis í gær.
í umræðunum kom fram, að íslenzkir aðalverktakar hafa flutt
út af Keflavíkurflugvelli varning, sem fenginn var hjá varnar-
liðinu eða erlendum aðilum í þess þjónustu. Sölunefnd varnarliðs-
eigna gagnrýndi þessa flutninga, og voru þeir þá stöðvaðir af
utanríkisráðherra. — Jafnframt Ttom fram, að flutningar á eign-
um Samcinaðra verktaka af flugvellinum voru allt annars eðlis,
þar sem um var að ræða eignir, sem þeir höfðu keypt á innlendum
markaði eða sjálfir flutt inn-skv. fullkomnum leyfum.
Eins og óður hefur verið skýrt
fró í Mbl. er tillagan ó þessa leið:
„Neðri deild Alþingis ólyktar
að skipa 5 manna rannsóknar-
nefnd innandeildarmanna skv.
39. gr. stjórnarskrórinnar til þess
að rannsaka:
1) hvaða sala ó þeim varningi,
er herlið Bandaríkjanna á ís
landi eða verktakar í þjónustu
þess hafa flutt inn tollfrjálst, hef-
Genfarráðstefnan:
Bandaríkin meðmælt
friðan fiskimiða
GENF, 14. marz. — Frá Gunn-
ari G. Schram, fréttaritara
Morgunblaðsins á Genfarráð-
stefnunni.
í fyrradag talaði W. C. Ilerr-
ington, fulltrúi Bandaríkjanna, í
fiskifriðunarnefndinni. Kvað
hann mikla nauðsyn á því að
setja alþjóðareglur um fiski-
vcrnd til að koma í veg fyrir
rányrkju og koma á sem beztri
nýtingu fiskstofnanna. Nauösyn-
legt væri líka að setja ákveðnar
reglur um friðun fiskimiða þar
sem þörf krefði.
Mikla athygli vöktu ummæli
hans um sérstaka hagsmuni
strandríkja sem lifðu á fiskveið-
um, en þar kom hann inn á sjón-
armið Íslendinga: „Það kunna að
vera önnur vandamál, er skapast
af sérstökum efnahagslegum að-
stæðum, sem ættu að hljóta við-
urkenningu í alþjóðalögum“.
Síðar sagði hann: „Bandaríkja-
mönnum er ljóst, að efnahags-
ástandi, sem hefur sinar sér-
stöku orsakir og réttlætingu, hef-
ur verið lítill gaumur gefinn á
alþjóðaróðstefnum, og þeim leik-
ur hugur á að afla sér upplýs-
inga um þess konar efnahags-
ástand og kynnast sjónarmiðum
annarra sendinefnda varðandi
þetta vandamál“.
Bússinn Krylov sagði, að fiski-
friðunarsamþykktirnar yrðu að
taka skýrt fram, að bannað væri
að loka nokkrum hluta hafsins
fyrir útlendingum, sem þar vildu
fiska, en þó yrðu þeir að lúta
alþjóðasamþykktum við veiðarn-
Someining Þýzkolnnds ekki
óirávíkjoniegl skilyrði
BONN, 14. marz. — Formælandi
vestur-þýzku stjórnarinnar, Fel-
ix von Eckardt, sagði frétta-
mönnum í dag, að Bonn-stjórnin
mundi ekki gera það að ófrávíkj
anlegu skilyrði fyrir ráðstefnu
æðstu manna, að sameining
Þýzkalands yrði til umræðu þar.
Sagði hann þetta, þegar hann var
að svara spurningum um fréttir
þýzkra blaða, þar sem skýrt var
frá því, að Dulles utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna hefði gefið
í skyn, að Barfaaríkin gætu fall-
izt á ráðstefnu æðstu manna þar
sem eingöngu yrði rætt um af-
vopnun almennt.
Von Eckardt sagði, að frétt-
irnar hefðu verið bornar til baka,
en hins vegar mundu Vestur-Þjóð
verjar ekki koma í veg fyrir eða
tefja fyrir ráðstefnu æðstu
manna, enda þótt ákveðið yrði
að ræða þar aðeins um afvopnun.
ur farið fram með leyfi íslenzkra
stjórnarvalda;
2) hvort farið hafi verið að
lögum og settum reglum um þau
viðskipti;
3) hvers vegna hluti af þeim
viðskiptum sé framkvæmdur af
öðrum aðilum en þeim, sem rík-
isstjórnin hefur falið þessa verzl-
un;
4) hvaða einkaaðilar séu kaup-
endur og hvern ágóða þeir muni
hafa haft af þeim viðskiptum.
Nefndin skal hafa það vald,
sem heimilað er í 39. gr. stjórn-
arskrárinnar, til þess að heimta
skýrslur af embætismönnum og
öðrum.
Nefndin skal að rannsókn lok-
inni gefa deildinni ýtarlega
skýrslu um störf sín og niður-
stöður.“
Blaðaskrif undanfarið
Einar Olgeirsson fylgdi tillög-
unni úr hlaði með ræðu. Hann
sagði m. a.:
Tillaga þessi er borin fram til
að fá rannsókn á fyrirbæri, er
staðhæft hefur verið, að átt hafi
sér stað undanfarið.
Alþingi hefur jafnan haft sér-
staka gát á því, að hagnaður af
viðskiptum við hið erlenda her-
lið hér á landi rynni til ríkisins.
Árið 1944 voru sett bráðabirgða-
lög, sem þingið staðfesti 1945,
þar sem ákveðin er stofnun 5
manna sölunefndar setuliðseigna.
Tilnefndu allir stjórnmálaflokk-
arnir menn í nefndina. Lögin eru
enn í gildi og eru hin einu lög,
Framh. á bls. 2
Hansen sló í borðið
kvæmt fyrri samningum fá ófag-
lærðir menn styttingu vinnutim-
ans úr 48 tímum í 45 tíma á viku
aiveg eins og faglærðir menn, og
fulla launauppbót auk hækkunar
á aukagreiðslu til láglauna-
manna.
Um þessa hækkun urðu harðar
deilur, og lá við að samnings-
viðræðurnar færu út um þúfur,
þegar forsætisráðherrann skarst
í leikinn í gærkvöldi og kallaði
fulltrúa deiluaðila á sinn fund í
forsætisráðuneytinu. Hélt ráð-
herrann þrumandi ræðu yfir full-
trúunum og setti hnefann í
borðið.
Sennilega hefur stjórnin verið
klofin um spurninguna -hvort lög
gjafarvaldið ætti að skerast í
leikinn, ef til stórtiðinda drægi í
þessu deilumáli Nú er vinnufrið-
ur tryggður í Danmörku þrjú
næstu árin, ef samtök atvinnu-
rekenda og launþega samþykkja
samningsuppkastið. —Páll.
Frétfum um bardagana á
Súmötru ber ekki saman
Súkarno og rábherrar hans lýstir
stríðsglæpamenn
SINGAPORE, 14. marz. — í dag
eftir hádegi gerðu skip Djakarta
stjórnarinnar árás á hafnarborg
Padang borgar, sem er miðstöð
uppreisnarmanna á Mið-
Súmötru.
Útvarpið í Padang skýrði frá
því, aö árásin hefði staðið yfir
í klukkustund og mörg hús verið
eyðilögð. Árásin var gerð af
tveimur herskipum, sem liggja
fyrir akkerum rétt hjá Padang.
Rnssiim er ekkert ómögulegt
segir Kmsjeff 1 „kosniugaræðu" í Moskvu
MOSKVU, 14. marz. -— f dag
hélt Krúsjeff foringi rússneskra
kommúnista ræðu í Moskvu-
útvarpið þar sem hann lýsti því
m.a. yfir, að Rússar væra nú
komnir svo langt tæknilega, að
þeir gætu leyst af hendi hvaða
verkefni sem vera skyldi. Ræðan
var haldin í íþróttahöllinni i
Moskvu og er Iiður í „kosninga-
baráttu", en á sunnudaginn á að
kjósa í æðstaráð Sovétríkjanna.
Krúsjeff var klappað mikið lof
í lófa, þegar hann sagði hlust-
endum sínum, að byggingar-
framkvæmdir í Sovétríkjunum
Konungshjónin í írun skilin
TEHERAN, 14. marz: — í dag
var gefin út opinber tilkynning
þess efnis að Reza Pahlevi kon-
ungur í íran hafi skilið við konu
sína „með mikilli sorg“. Hátt-
settir embættismenn við hirðina
fóru þegar að svipast um eftir
nýju drottningarefni.
Hjónabandið var leyst upp
vegna þess, að þau hjónin voru
barnlaus, en ríkiserfinginn verð-
ur að vera beinn afkomandi kon-
ungsins. Soaraya fyrrverandi
drottning, sem er 25 ára gömul,
gaf þá yfirlýsingu, að hún fórn-
aði hamingju sinni með mikilli
hryggð og gæfi samþykki sitt við
hjónaskilnaðinum.
Hún mun fá 100 milljón ríala
(um 2.500.000 krónur) og árleg
eftirlaun, auk þess sem hún held-
ur öllum skartgripum sem hún
hefur fengið frá manni sínum
öðrum en þeim, sem beinlínis
tilheyra krúnunni.
Reza Pahlevi var áður kvæntur
systur Farúks Egyptalandskon-
ungs og áttu þau eina dóttur. Þau
skildu árið 1948 eftir 9 ára hjóna
band.
ættu ekki sinn líka í veröldinni.
Hann kvað hag verkamanna
mjög hafa batnað, þeir fengju
hærra kaup, betri vinnuskilyrði
og meiri tryggingar. Sagði hann,
að nú væri búið að ganga frá
áætlun, sem binda mundi endi á
húsnæðisskortinn innan 12 ára.
Götuvinna kvenna
Krúsjeff sagði, að hætt hefði
verið við að byggja skýjakljúfa
vegna kostnaðarins, en nú væri
í ráði að mynda samvinnufélög
um byggingar til að auðvelda
fólki að kaupa eigin hús.
Hann kvað erlenda gesti hafa
á réttu að standa þegar þeir gagn
rýndu einn þátt í rússnesku at-
vinnulífi, nefnilega erfiðisvinnu
kvenna, sem oft ynnu með haka
og skóflu að því að hreinsa götur
eða leggja vegi. Sagði hann, að
ekki kæmi annað til mála en
Rússar gætu fundið upp vélar til
að auðvelda þessi störf, úr því
þeir hefðu komið spútnik á loft.
Krúsjeff sagði, að kjötfram-
leiðsla Rússa hefði aukizt um
38% á síðustru fjórum árum. Naut
gripum licfur fjölgað um 10.900.-
000, sagði hann. Þá hét hann því,
að vinnudagur iðnaðarmanna
mundi brátt verða 7 tímar, en
vinnudagur námumanna og ann-
arra, sem ynnu hættuleg eða lýj-
andi störf, yrði 6 tímar.
Er þetta í annað sinn á einni viku
sem höfuðborg uppreisnarmanna
verður fyrir árás.
Padang-útvarpið skýrir frá þvi,
að uppreisnarmenn hafi komið í
veg fyrir landgöngu stjórnar-
hersins á austurströnd Súmötru
í morgun. Tvö af þremur skipum,
sem notuð voru til þessarar land-
göngutilraunar, voru eyðilögð.
Lítill hópur hermanna, sem í
land komst, hefur nú verið um-
kringdur og verður sigraður í
dag, segir útvarpið.
Padang útvarpið neitar.
Padang-útvarpið ber til baka
þá frétt stjórnarinnar í Djakarta
að her hennar hafi nú á valdi
sínu hin auðugu olíuhéruð Pakan
Bahru, þar sem Caltex- olíufélag-
ið á stærstu fyrirtæki sín. Þá
skýrir útvarpið frá því, að bar-
dagarnir standi enn yfir, og að
uppreisnarmenn hafi fellt 150
menn úr 600 manna fallhlífaher-
styrk stjórnarinnar sem gerði
árásina.
Stríðsglæpamenn
Stjórn uppreisnarmanna
hefur sent út tilskipun þess
efnis að Sukarno forseti og
allir ráðherrar hans skuli
handteknir og sakaðir um
stríðsglæpi. Sjafruddin forsæt
isráðherra uppreisnarmanna
lét hafa þetta eftir sér í dag:
„Ef ég hefði Sukarno hér,
mundi ég hengja hann á
hæsta gálga.“
Djakarta-stjórnin tilkynnti I
morgun, að herstyrkur hennar
hefði tekið Dumai, eina af helztu
borgunum á Mið-Súmötru þar
sem olíufélögin eiga mikið af
olíuvinnslustöðvum. Hefði það
gerzt á miðvikudag skömmu eftir
að hersveitir og fallhlífadeildir
stjórnarinnar hófu árás sína á
Pakan Bahru.