Morgunblaðið - 15.03.1958, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.03.1958, Blaðsíða 9
Laugardagur 15. marz 1958 MORGVISRT. 4 ÐIÐ 9 Verður leitað til Alþjóða hafrann- sóknarráðsins varðandi útfærslu ísl. landhelginnar? Spjallað við dr. Árna Friðriksson framkvæmdastjóra jbess á sjó- réttarráðsteínunni i Genf öðru því sem einkennir haf- straumana og skapar skilyrði til síldveiða. Skoðun mín er sú, og hefur verið frá byrjun, að hér er um að kenna of sterkum Golf- straumi, er streymir norður með Vestúrlandi og austur með Norð- urlandi á sumrum um síldartím- ann. Þetta straumfall spyrnir Genf, 8. marz. EINN Islendingur situr hér sjó- réttarráðstefnuna í Genf, auk íslenzku sendinefndarinnar. Það er dr. Arni Friðriksson, framkvsemdastjóri Alþjóða haf- rannsóknarráðsins, og situr hann ráðstefnuna sem áheyrnarfull- trúi þeirra samtaka. Dr. Árni hef- ur gegnt störfum framkvæmda- stjóra Alþjóða hafrannsóknar- ráðsins frá því í ársbyrjun 1954 og mun hann vera eini íslend- ingurinn, sem sýnt hefur verið það traust og virðing að fela stjórn alþjóðlegra samtaka. Ég notaði tækifærið, þegar ég hitti dr. Árna að máli á fundujn sjóréttarráðstefnunnar, og bað hann að spjalla við mig um mark mið og störf Alþjóða hafrann- sóknarráðsins og þau mál, sem þar væru efst á baugi. Hefur aðsetur í Höfn — Hafrannsóknarráðið er ein elzta alþjóðastofnunin, sem nú er starfandi í heiminum, segir dr. Árni, og eins og kunnugt er þá hefur hún aðsetur sitt í Char- lottelund Slot í Kaupmanna- höfn, en þar hefur hún verið til húsa hin síðari ár. Þar eru mikil húsakynni og vegleg og var þar áður bústaður Friðriks konungs 8. í alls 43 ár. Eins og nú standa sakir eru 16 þjóðir meðlimir í Alþjóða hafrannsóknarráðinu. Tveir fulltrúar sitja þar frá hverju ríki og eru íslenzku full- trúarnir þeir Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri, og Jón Jónsson, forstöðumaður Fiskideildarinnar. Við Islendingar gengum í ráðið 1937 og vorum við Sveinn Björns- son, sem þá var sendiherra í Höfn, fyrstu fulltrúarnir. Æðsta stjórn ráðsins er fimm manna nefnd og velur hún fram- k væmdast j ór ann. — Hvert er markmið ráðsins, dr. Árni? — Það er að sameina rannsókn- ir þeirra landa, sem að því standa, þannig að heildarútkom- an verði sem víðtækust, rann- sóknaraðferðir samhæfðar og sem minnstur tvíverknaður. Ráð- ið starfar í um 20 nefndum. Fjall- ar t. d. ein um síld, ein um þorsk- inn, sjófræði o. s. frv., og heldur hver nefnd fund einu sinni á ári, þegar ráðið kemur saman. Eru þá gefin yfirlit yfir hvað gert hefur verið á árinu í hverju landi og á hverju sviði og lögð drög að því hvernig haga skuli störfum á ári komanda. Á þess- um fundum gefst 150—200 vís- indamönnum frá öllum heimin- um tækifæri til að kynnast og ræða verkefnin. Ráðið gefur út sex tímarit og fjalla þau um hinar ýmsu grein- ar starfsemi þess. Samræming fiskirannsókna — Og hver eru helztu verk- efnin? — Á þessu yfirliti sést að tvö af meginverkefnum ráðsins eru samræming fiskirannsókna landanna og útgáfustarfsemi. — Við þetta bætist að síð- ari árin hefur það æ meir færzt í vöxt að lögð hafi verið fyrir ráðið ýmis vandamál, sem upp hafa komið á svæði því, sem það nær til, en það grípur yfir höfin frá miðjarðarlínu norður að ísrönd, frá Barentshafi vestur fyrir Grænland. Eitt þessara verkefna, sem ráðinu hefur nú verið falið er síldin, sem veiðist í sunnanverðum Norðursjó. Eng- lendingar töldu hættu á því að hinar miklu veiðar ungsíldar til vinnslu í verksmiðjum á megin- landi Evrópu væru orsökin til síldarþurrðarinnar á miðum Austur-Angliu. Báðu þeir ráðið um að reyna að fá úr Þessu skor- ið. Síðastliðið sumar gerði ráðið út leiðangur til síldarrannsókna í Norðursjónum og voru þá m. a. merktar 14.000 síldar. Rannsókn- um þessum verður haldið áfram í sumár í ennþá víðtækara mæli en í fyrra og lýkur þeim þar með. Sá árangur af þessum rann- sóknum, sem þegar hefur fengizt, bendir ótvírætt í þá átt að orsak- anna til síldarþurrðarinnar við austurströnd Englands hin síðari ár sé ekki að leita í aukinni ásókn við strendur meginlandsins. Ann- að verkefni sem ráðið hefur ver- ið beðið að taka að sér er það að fá úr því skorið hvort þorskveið- arnar í Barentshafinu hafi áhrif á þorskgengdina við Lofoten, en þar hefur veiði verið mjög stopul nú um skeið, eins og kunnugt mun vera. Enn mætti nefna ýmis verkefni varðandi Eystrasalt og vitað er að við eigum bráðum von á beiðni um að rannsaka síldveiðarnar í Ermarsundi og áhrif þeirra á síldveiðarnar í Norðursj ónum. — Hvað segir þú mér um verk- efni ráðsins varðandi ísland? — Ekki hafa ráðinu ennþá borizt nein verkefni varðandi fiskveiðarnar við ísland, en ekki er fráleitt að slíkar beiðn ir kunni að koma og þá helzt í sambandi við nýja útfærslu landhelgislínunnar. Má þá vart hjá því fara að ýmsar þjóðir, sem sækja fisk á ís- landsmið biðji ráðið að svara þeirri spurningu, hvort út- færslan, hvenær sem hún kæmi og hvernig sem hún yrði, væri nauðsynleg frá fiskifræðilegu sjónarmiði, fisk stofnunum til verndar. Hvenær kemur Norðurlands- síldin aftur? — Næst kemur spurning, Árni, sem ég yrði ekki hissa á þótt þú neitaðir að svara. Hvenær kemur síldin aftur fyrir Norð- urlandinu? — Eins og kunnugt er, segir dr. Árni, eru a. m. k. nokkrar þúsundir „fiskifræðinga“ á ís- landi og hver hefur sína einka- skoðun á þessu vandamáli! Um það hefur verið ritað í blöð og tímarit og rætt um það fram og aftur, jafnt af lærðum sem leik- um. Fiskirannsóknir eru einhver yngsta vísindagrein, sem fengizt er við nú á tímum og má jafna henni við atomfræðina að því leyti. Rannsóknir, eigi aðeins ís- lendinga heldur og almennt, eru svo ungar að árum, að enn ber nýjungar að garði hvert einasta ár. Við vitum fyrir víst, að síld- veiði verður siðar á Norðurlands- miðum, ef til vill eins og bezt var áður, en engum er fært að svara þeirri spurningu, hvenær sá dagur rennur upp. Sveiflur af því tagi, sem valdið hafa veiði- brestinum nú um langt skeið fyr- ir Norðurlandi eru það langvinn- ar, að þær verða ekki mældar með þeirri alin, sem hinar ungu fiskirannsóknir ráða yfir í dag. Breytingar á hafstraumunum Ég ætla mér reyndar ekki þá dul að skera úr um það hver sé hin almenna skoðun manna á meðal um orsök aflabrestsins. Hins vegar tel ég fullsýnt að or- sakanna sé að leita í breytingu á hafstraumunum og þar með einnig á hita sjávar. og seltu og Verkefnin vaxa — Þú kannt vel við starfið sem framkvæmdastjóri Alþjóða hafrannsóknaráðsins? — Já, prýðilega. Ég tók við störfum í ársbyrjun 1954. Fyrir velvilja og skilning ríkisstjórn- arinnar fékk ég lausn frá störf- um til að gegna stöðinni í þrjú ár. Sá tími var því útrunninn í Árni Friðriksson „síldarsjónum", sem ætti að falla upp að landinu að norðan út frá ströndinni og til austurs á haf út. Sú er orsök síldarleysisins. árslok 1956. Þar sem ég var beð- inn að halda áfram starfinu veitti ríkisstjórnin mér enn heim- ild til að sinna starfinu í tvö ár í viðbót. Hið nýja skeið er á enda runnið í lok þessa árs og hefur ekki ennþá verið frá því gengið til fullnustu hvort ég hverf þá aftur heim eða held áfram störf- um mínum sem framkvæmda- stjóri hafrannsóknaráðsins. Síðan ég tók við fyrir um það bil fimm árum hafa verkefnin vaxið mjög. Nú er t. d. meðlima tala ráðsins 16 í stað 13 og hafa m. a. Rússar og Pólverjar bætzt í hópinn. — Hvernig gengur þér vinnan við þá? — Ekki verður annað sagt en öll samvinna við rússnesku fiski fræðingana hafi verið auðveld og ánægjuleg. Þeir sýna áhuga með því að senda stóra sveit manna á hvern fund og eru reiðubúnir til samvinnu um hvaða verkefni sem er. Við þetta má bæta að Rússar hafa boðið ráðinu að halda aðalfund sinn í Moskvu haustið 1960. — Að endingu, dr. Árni: Kýstu heldur að starfa áfram í Danmörku en flytjast aftur til Islands og starfa þinna þar? — Hún er skolli erfið spurningin þessi! Segja má að ég eigi sjö börn í sjó og sjö á landi— svo sem hafmeyjan forðum! Meðan ég dvelst ytra sakna ég vex-kefn- anna að heiman og samvinnunn- ar við vini mína þar. En ef ég flyttist aftur á milti heim myndi ég sakna margra verk- efna af því starfssviði, sem ég á við að búa sem sakir standa. O—♦—O Þannig fórust dr. Árni Frið- rikssyni orð um framkvæmda- stjórastöðuna, sem hann hefur gegnt á fimmta ár í hinni gömlu höll Friðriks konungs. Þar starf- ar hann bæði að óvenjuumfangs- miklum framkvæmdastörfum, sem ná yfir tvær heimsálfur, og heldur auk þess vísindastörfum sínum áfram á sviði fiskifræð- innar, er aflað hafa honum á liðn- um árum álits og viðurkenningar víða um lönd. Áður gaf Alþjóða hafrannsókna ráðið t. d. út fimm visindaleg sam- tímarit og voru sérstakir ritstjór- ar fyrir þremur þeirra. Dr. Árni stýrir nú sjálfur fjórum tímarit- anna og hefur að auki stofnað nýtt rit, Statistical Newsletter. Það er mikilli fiskveiðiþjóð sem okkur íslendingum augljós fengur að Islendingur skuli gegna embætti framkvæmda- stjóra Alþjóða hafrannsóknaráðs- ins, ekki hvað sízt ef svo skyldi fara að rannsóknir varðandi frið- un og vernd fiskimiða komi þar meir til umræðu en verið hefur. Gunnar G. Schram. Ceirharður Þorsteinsson : íslenzkir námsmenn í gamalli þýzkri bórg HÖFUÐEINKENNI hinnar merku borgar, Munchen, sem var stofn- uð 1158 af Hindriki ljóni (Heinrich dem Löwen), eru sögu- legar byggingar, stór torg og breiðar götur, sem liggja að þrengri og fjölfarnari götum mið- borgarinnar. Turnar Frúarkix-kjunnar gnæfa hátt upp skammt frá Maríu- torgi, sem frá fornu fari hefur verið miðdepill borgarinnar. Slcammt þaðan er hið fræga Hofbráuhaus við Platzel. Síðastliðið ár munu um 25.000 stúdentar hafa stundað nám við hina ýmsu skóla borgarinnar, flestir við háskólana, en þeir eru tveir. Hvergi í Þýzkalandi munu vera jafnmargir útlendir náms- menn, þeir eru nú um 2000. Mest ber á Austurlandabúum: Pers- um, Egyptum, Indverjum og Tyrkjum, en auk þess er mikill fjöldi frá Balkanlöndunum. Norð urlandabúar stunda mjög fáir nám hérna, aðrir en Norðmenn og íslendingar. Tvisvar á ári ræður lífsgleðin ríkjum í bayersku höfuðborg- inni: á októberhátiðinni og í Fasching. Á októberhátíðinni getur að líta dökkbrúna bjór- vagna, hlaðna gömlum eikar- tunnum, dregna af silfuiprýdd- um þróttmiklum hestum og vísa þeir leiðina út á ,,Wies’n“, hið rúmgóða Theresien-engi, við fót- stall Bavaria-styttunnar, en þar er hámark þessarar hátíðar. I janúar byrjar glaumur og gleði Fasching-hátíðarinnar (kjöt kveðjuhátíð) og stendur fram á miðnætti aðfaranótt öskudags. Fyrir heimsstyrjöldina síðari höfðu margir merkir íslendingar stundað nám í Múnchen. En það var ekki fyrr en haustið 1915 að fyrstu íslenzku stúdentarnir komu til þess að stunda hér háskólanám. Á næstu árum fjölgaði stúdent- um ört og 1. des. 1953 var stofn- að Félag íslendinga í Munchen og voru stofnendur 13 talsins. Hlutverk félagsins er að gæta sameiginlegra hugsmuna með- lima sinna, halda uppi kynnum þeirra innbyrðis, svo og við ís- lendinga annars staðar í Þýzka- landi, og að leiðbeina nýjum félögum við hin ýrnsu byrjunar- vandamál. Árið 1956 fékk F. I. M. kjallara herbergi til afnota í Barerstrasse 800 ára ann. Fyir próf-vinnu sína, sem jafnan er lokaraun þeirra, er brautskrást og tekur þá oft marga mánuði að ljúka, hlaut hann hæstu einkunn, sem gefin hefur verið fyrir slíka vinnu hér. Auk þeirra ummæla kennara sinna, að hann hefði sýnt frábæra hæfi- leika til visindaiðkana. Háskólinn i Miinchen 42 og var það innréttað sem félagsheimili. Félagsheimilið er opið þrjú kvöld í viku og liggja þar frammi íslenzk dagblöð og tilkynningar til félagsmanna. Fundir eru haldnir einu sinni í mánuði. Nú í vetur stunda 27 fslend- ingar nám hér og skiptast þannig: við tækni-háskólann er 21, þ. e. rafmagnsverkfræðingar (6), byggingaverkfr. (4), efnafr. (4), húsagerðarlist (2) og véla- verkfr. (1). Við „Universitat" eru 5, þ. e. tannlækningar (4) og dýralækningar (1). Auk þess stundar einn söngnám við tón- listarháskólann. Árangur íslenzku stúdentanna má teljast mjög góður og hafa fjórir þegar lokið burtfararprófi. Árið 1956 lauk Bjarni Krist- jánsson prófi í vélaverkfræði, 1957 luku svo prófi Baldur Jó- hannsson í landmælingaverkfr. og Sigmundur Guðbjarnason og Sigurður Guðmundsson í efna- fræði. Þess má geta í þessu sam- bandi, að Sigmundur Guðbjarna- son, sem ennþá dvelst hér og hyggst ljúka doktorsgráðu, gat sér óvenjugóðan orðstíi- við skól- Er þelta afrek hans þó ennþá glæsilegra, þegar þess er gætt, að hann hefur lokið námi sínu á skemmsta tíma, sem hugsan- legt er í þessari grein. Fyi-ra hluta prófi hafa 4 stú- dentar lokið og í vor munu 7 væntanlega ná þeim áfanga. Skólafyrirkomulag er þannig hér, að kennslan fer fram á tveimur misserum: vetrarmisseri frá nóv. til febrúar-loka og sum- armisseri í maí, júní og júlí. Kennsluhléin eru ætluð til þess að nemendur vinni að hinni bók- legu hlið námsins. Með því móti er gert ráð fyrir að hægt sé að ljúka námi í flestum greinum á 4 árum. Ef fríin eru hins vegar notuð til fjáröflunar, eins og ís- lendingarnir hafa þurft að gera, lengist námstíminn óhjákvæmi- lega allmikið og getur þá farið allt upp í 6 ár. Hafi einhver áhuga á frek- ari upplýsingum, er lélaginu hin mesta ánægja að veita þær. Utanáskrift: Félag íslendinga í Múnchen c/o Islandpost Múnchen 12 Barerstrasse 42 Deutscliland

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.