Morgunblaðið - 15.03.1958, Blaðsíða 16
VBÐRIÐ
Allhvass suðaustan, þýðviðri.
oriwmlílíi
63. tbl. — Laugardagur 15. marz 1958
Genfarráðsfefnan
Sjá grein á bls. 9.
Fiumvarp Jóns Pálmasonar til að bæta fjárstjórn ríkisins:
Greiðslur úr ríkissjóði umfram
fjárlög séu háðar samþykki
þingkjörinna manna
Fjárlogin eru nu elcki virt nema að
takmörkuðu leyti
JÓN PÁLMASON hefur lagt
iram frumvarp til laga um eftir-
heimild til að eyða fé eða ákveða
útgjöld umfram það, sem gert er
ráð fyrir í fjárlögum eða öðrum
lögum, sem Alþingi hefur sett,
nema samþykki yfirskoðunar-
manna komi til. Gildir þetta um
allar starfsgreinar og stofnanir
ríkisins og tekur til beinna fjár-
útláta, lána, ábyrgða og manna-
ráðninga, annarra en í þær stöð-
ur, sem ákveðnar eru með lögum.
Nýjar stöður og stofnanir
Enga ríkisstofnun má setja á
fót nema með lögum, og skal
hafa samráð við yfirskoðunar-
menn um starfsmannafjölda og
ráðningar, að svo miklu leyti sem
lög um stofnunina ákveða það
ekki.
Nú vill einhver starfsgrein eða
stofnun rikisins fjölga starfsmönn
um eða ráða menn í ólögbundna
stöðu, auka húsnæði, kaupa bif-
reið eða gera aðrar ráðstafanir,
sem auka kostnað frá því, sem
verið hefur, og er þá skylt að
bera allt slíkt undir yfirskoðun-
armenn.
Skipting fjárveitinga
Þegar veitt er fé í fjárlögum
í einu lagi til meiri háttar verka,
svo sem atvinnuaukningar, skóla-
bygginga, vegaviðhalds, hafnar-
bóta o. fl., þá er skylt að hafa
samráð við yfirskoðunarmenn
um skiptinguna.
Starfsliættir yfirskoðunarmanna
Yfirskoðunarmenn velja sér
formann, er kallar þá til funda
og stjórnar fundum þeirra.
Verði þeir ekki sammála um
eitthvert mál, geta þeir krafizt
þess, að afgreiðslu á því verði
frestað, þar til Alþingi gefst færi
á að taka afstöðu til þess.
Skylt er ráðuneytisstjórum og
forstöðumönnum ríkisstofnana að
láta yfirskoðunarmönnum í té
allar upplýsingar, sem þeir óska
eftir.
Greinargerð með frumvarpinu
er birt á bls. 3.
Jón Pálmason
Iit til varnar gegn ofeyðslu hjá
ríkinu og stofnunum þess. Efni
frumvarpsins er það, að yfirskoð-
unarmenn ríkisreikninga, sem
kosnir eru af Alþingi slcv. ákvæð-
um stjórnarskrárinnar þurfi að
samþykkja þær ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar í fjármálum, sem
ekki byggjast á fjárlögum.
í frumvarpintu segir m.a.:
Ríkisstjórnin skal eigi hafa
Stýri Esju laskað-
ist á Patreksfirði
PATREKSFIRÐI, 14. marz. —
Hingað kom sl. nótt kl. 3, strand-
ferðaskipið Esja í hringferð vest
ur og norður um land. Var hið
versta veður, norðaustan stormur
með snjókomu og skafrenningi.
Esja lá við stálþilið í skipaskurð-
inum í Patrekshöfn við afferm-
ingu.
Kl. 7,30 sigldi skipið aftur á
bak út úr rennunni. Enn var norð
austan stórviðri, og stóð vindur-
inn þvert á skipið. Færðist það
eitthvað úr leið og tók niðri. Esja
liggur enn á ytri höfninni á Pat-
reksfirði.
Strax í morgun var fenginn
kafari frá vélsmiðjunni Sindra á
Vatneyri til að athuga skemmd-
irnar á stýrisútbúnaði, sem talið
var að hefði laskazt. Kom þá í
Ijós, að neðri „stamminn“ hafði
brotnað og neðri endi stýrisins
laskazt. Óvíst er enn hvort Esja
heldur ferðinni áfram til ísafjarð
ar og snýr þar við til Reykjavík-
ur, eða hvort Skjaldbreið komi
hingað á morgun og taki farþega
og vörur úr Esju á allar hafnir á
Vestfjörðum til ísafjarðar. Mundi
þá Esjan fara héðan beint suður
til viðgerðar. — Karl.
★
Eftir upplýsingum forstjóra
Skipaútgerðarinnar er ákveðið að
Skjaldbreið taki vörur og farþega
úr Esju og fiytji norður.
Stanzlous ótíð í hólfan mónuð
Veðurglöggir menn spá góðri hláku
HOLSF J ÖLLUM, 14. marz. —
Hér á Hólsfjöllum hefur verið
stanzlaus ótíð í hálfan mánuð
og engri kind hleypt út úr húsi
einn einasta dag. Hross hafa
verið úti, en nú er mjög tekið
Skólakostnaður
Stjáxnarliðið fellir
tillögur Péturs Ottesen
Á FUNDI í neðri deild Alþingis
í gær var gengið til atkvæða um
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
breytingar á lögum um greiðslu
kostnaðar við skóla, sem reknir
eru sameiginlega af ríki og sveit-
arfélögum (sbr. Mbl. sl. miðviku-
dag). Breytingartillaga Péturs
Ottesen um aukna hlutdeild rík-
isins í stofnkostnaði héraðsskóla
\ar felld að viðhöfðu nafnakalli
með 17 atkv. gegn 10. Stjórnar-
liðar voru á móti, Sjálfstæðis-
menn með tillögunni. — Tillaga
Péturs um aukna hlutdeild ríkis-
ins í hitunarkostnaði þessara
skóla, ef þeir njóta ekki hita-
veitu, var felld með 15 atkv.
gegn 10. Síðan fór frumv. til
3. umræðu.
Erfitf aðfá menn fi!
að vinna togogaraafla
á Patreksfirði
PATREKSFIRÐI, 14. marz. —
Gylfinn landaði hér s.l. þriðjudag
180 lestum af 'fiski sem fóru til
vinnslu í hraðfrystihúsið hér.
Ólafur Jóhannesson er væntan-
legur hingað í næstu viku. —
Mikill hörgull er nú á vinnu-
afli í landi. Til þess að geta unnið
afla togarans í frystihúsinu þurfti
að fá menn innan af Barðaströnd
og voru þeir fluttir á snjóbíl yfir
Kleifaheiði. Verður reynt að fá
mannafla af Barðaströnd fram
vegis hingað þegar togararnir
landa. —Kari.
að þrengjast um fyrir þau og eru
menn í óða önn og taka þau á
hús. Eru horfur á að taka þurfi
einnig fullorðin hross á hús, en
það hefur ekki gerzt fyrr.
í þorralok var hér búið að
gefa sauðfé jafnmikið og í allan
fyrravetur.
Hér um slóðir er vonazt til að
vel muni hlána nú um helgina.
Beztu veðurspámenn hér um slóð-
ir telja að svo verði.
Samgöngur eru hér engar utan
póstferða, en um daginn kom
Björn Pálsson hingað á sjúkra-
flugvélinni til að sækja veikan
mann í Möðrudal og gekk það
allt að óskum.
I Jökuldal hefur verið harður
vetur og jarðlaust þar með öllu.
Bændur munu þó yfirleitt enn
vera birgir að heyjum, en þess
munu þó dæmi að á stöku bæjum
sé nú svo gengið á heybirgðir að
bændur séu uggandi orðnir, ef
ekki bregður fljótlega til hins
betra. — Víkingur.
Illviðri og
fiskileysi
SIGLUFIRÐI, 14. marz. — Sama
ótíðin er búin að vera hér síðan
fyrir jól. Þeir eru teljandi dag-
arnir, sem ekki hefur snjóað eitt-
hvað. Mikil ófærð er um allan
bæinn og aðeins aðalgötum hald-
ið opnum og til þess er notuð ýta.
Ógæftir hafa verið miklar og
lítið aflazt þegar gefið hefur,
hvort heldur er á línu eða í
„troll“. Togbátarnir hafa ekki
komizt út síðan á þriðjudag, er
þeir komu inn og lönduðu 15
—20 lestum af fiski. Þá hefir tog-
arinn Elliði landað um*200 lest-
um af fiski til herzlu og fryst-
ingar. — Guðjón.
Matthías Johannessen.
9Borgin hló6 — ný Ijóðabók
eftir Mlatthías Joharanesen
í GÆR kom í bókabúðir ljóðabók
eftir Matthías Johannessen, sem
hann nefnir „Borgin hló“. í henni
eru 30 ljóð. Bókin er gefin út af
Helgafelli og kostar 60 krónur.
Ljóð Matthíasar hafa áður Ijirzt
í ýmsum tímaritum, en þetta er
fyrsta ljóðabók hans. Matthias er
28 ára gamall og hefur stundað
blaðamennsku síðan 1952. Hann
lauk prófi í íslenzkum fræðum
Bilun í Skeið-
fossvirkjun
SIGUFIRÐI, 14. marz. — Allar
aflvélar ríkisverksmiðjanna eru
nú í gangi nótt sem dag, því ann
ars væri hér rafmagnslaust að
mestu.
í Skeiðfossvirkjun er nú hið
alvarlegasta ástand, því önnur
vélasamstæðan er biluð og að
auki hafa langvinn frost haft
þau áhrif að vatnið hefur stór-
lega minnkað. Er orðið svo vatns
lítið, að bregði ekki til hins betra,
muni vatnið þrotið um mánaða-
mótin, en vonandi rætist úr áður
en til svo alvarlegra tíðinda dreg
ur. — Guðjón.
Varðarkaffi í Valhöll
í dag kl. 3-5 s.d.
við Háskóla Islands vorið 1955 óg
fór síðan til Hafnar og stundaði
framhaldsnám í bókmenntum
1955—56.
„Borgin hló“ er smekklega úr
garði gerð, prentuð á góðan
pappír stóru og fallegu letri. —
Hörður Ágústsson listmálari sá
um útlit bókarinnar.
Fjölmenn íitför
Gísla Guð-
mundssonar
í GÆR fór fram útför Gísla Guð
mundsson, bókbindara. — Fjöl-
menni var í Dómkirkjunni er lík-
fylgdin kom þangað og þar var
þá fyrir utan Lúðrasveit Reykja-
víkur, er lék sorgarlag. Söng-
menn úr Dómkirkjukórnum báru
kistuna inn í kirkjuna.
Dómprófastur, séra Jón Auð-
uns, flutti minningarræðuna, en
að henni lokinni söng Dómkirkju
kórinn. Þá lék dr. Páll ísólfsson
einleik á kirkjuorgelið PÍLA-
GRÍMAKÓRINN eftir Wagner,
óperusöngkonan Guðrún Á. Sím-
onar söng sálminn „Allsherjar
drottinn" eftir Cesar Frank. Söng
þá kórinn á ný og lauk kirkju-
athöfninni með því að Dómkirkju
kórinn söng nokkur vers úr
„Allt eins og blómstrið eina“.
Gísli Guðmundsson, söng í kór
Dómkirkjunnar í 65 ár, hafði
sjálfur áður en hann lézt ákveðið
hvað sungið skyldi og leikið þá
er hann félli frá.
Stjórn og starfsmenn ísafoldar
prentsmiðju báru kistuna úr
kirkju og í kirkjugarð bókbindar
ar.
Sextán bílar veöurtepptir v/ð mjólk-
urflutninga austan Fjalls í nótt
Skgfrenningurinn var svo svartur að ekki sá út úr augum
EINS og kunnugt er af fréttum
hefur verið hið versta veður í
Árnessýslu undanfarna daga. —
Hellisheiði hefur verið ófær
nokkuð lengi, og mjólkurbílarn-
ir hafa farið Hrýsuvíkurleiðina.
I gær var talsverð ófærð á kafla
fyrir neðan Hlíðarskóla, en bíl-
arnir komust þó yfir hann. —
Áætlunarbíll, sem lagði af stað
frá Reykjavík kl. 4,30 í gærdag,
kom kl. 9 á Selfoss. Ýtur og
vegheflar eru á þessari leið, bíl-
unum til aðstoðar.
Sá ekki út úr augum
Austur um sveitir var mikil
ófærð í gærdag. Víðast hvar
var skafrenningur svo svartur,
að ekki sá út úr augum. Dró
þá mjög í skafla, og var ófært
í flestar sveitir, sem sækja átti
mjólk í. Margir bílar urðu teppt-
ir, og þar á meðal margir mjólk-
urbílar frá Selfossi, sem urðu að
bíða í nótt fastir í snjó á hinum
ýmsu leiðum. Ekki hefur verið
hægt að moka neitt austur um
vegina eða upp í Hreppa vegna
veðurhamsins.
16 bílar veðurtepptir í nótt
A Rauðalæk voru þrír mjólk-
urbílar veðurtepptir í nótt. Voru
þeir ýmist á heimleið eða á leið
eftir mjólkinni. Þrír voru veður-
tepptir á Hellu, tveir á Hvols-
velli, tveir vörubílar eða leigu-
bílar í mjólkurflutningum á
Hvítanesi í Landeyjum, einn í
Þykkvabæ, einn 'á Kílhrauni á
Skeiðum og fjórir ofar á Skeið-
unum. Þrír af þeim voru á Efri-
Brúnavöllum í nótt.
Snjóplógur í Grímsnesi
Einn bíll kom úr Grímsnesi í
gærdag, og annar var væntan-
legur í gærlcveldi, ásamt bíl,
sem tók mjólk úr Laugardal í
gærdag. Flutti hann mjólk frá
Apavatni, en þangað var komið
með mjólkina á sleðum. Snjó-
plógur fór á undan þessum bíl-
um úr Grímsnesi.