Morgunblaðið - 25.03.1958, Page 11

Morgunblaðið - 25.03.1958, Page 11
Þriðjudagur 25. marz 1958 MORCVISBLAÐIÐ 11 Reykjavíkurflugvöllur nær yfir svæSi sem er kringum 300 hektarar lands. Vesturendi flugbraut- arinnar sem liggur fr áaustri til vesturs, „flúktir“ við Suðurgötuna (til vinstri) og við Miklatorg, austurendi brautarinnar. Á að leggja Reykjavíkurflug- völl niður og gera nýjan ? Umræðufundur í Flugmálafél. ályktar að svo skuli ekki gert SÍÐASTLIÐIÐ FIMMTUDAGS- KVÖLD efndi Flugmálafélag íslands til umræSufundar um framtíð Reykjavíkurflugvallar, en eins og forseti félagsins, Hákon Guðmundsson, hæstarétt- arritari, komst að orði, er hann setti fundinn, hefur framtíð Reykjavíkurflugvallar verið ofar lega á baugi nú í vetur. Agnar Kofoed-Hansen hafði framsögu í máli þessu, og gaf for- seti félagsins honum orðið eftir að hafa beðið Guðbrand Jónsson, fyrrum forstjóra, um að taka að sér ritarastörf. Margt manna var á fundinum og voru þar ýmsir framámenn íslenzkra flugmála, starfsmenn flugþjónustunnar hér í Reykjavík og á Keflavíkurflugvelli og svo ýmsir áhugamenn um flugmál. Agnar Kofoed-Hansen, flug- málastjóri, hóf mál sitt með því að minnast þess að allt frá því að fyrst var farið að fljúga flug- vélum hér á landi sumarið 1920, hafi Vatnsmýrin, sem svo hét þá, en nú er að mestu komin undir flugbrautir Reykjavíkurflugvall- ar, verið bækistöð slíks flugs. Fyrir svo sem 25 árum, voru flugmálin komin á það stig hér á landi, að blöðin skýrðu þá frá því að einhvern tíma í framtíð- inni myndi verða flogið um ís- land er hin stóru flugfélög myndu hefja flug milli heimsálf- anna. Síðar kemur svo Flugmálafé- lagið til sögunnar, 1936, en fyrir frumkvæði þess fór fram athug- un á því hvar hentugast þætti að gera flugvöll í nágrenni höf- uðborgarinnar. Þá sem fyrr beindist athygli manna að svæð- inu suður af Vatnsmýrinni. Ræðumaður sagði að íslending- ar hefðu aldrei haft bolmagn til þess að koma upp flugvelli í Vatnsmýrinni. Það var sem kunnugt er vegna utanaðkom- andi afla, nefnilega heimsstyrj- aldarinnar og brezka hernámsins, sem flugvöllurinn var gerður. — Hann var þá mesta mannvirki sem gert hafði verið á íslandi. Það voru færustu sérfræðingar Breta sem í krafti hernámsins ákváðu flugvallargerðina í Vatnsmýrinni og mannvirkið kostaði Breta 120 millj. kr. Láta mun nærri að í dag samsvari það hundruðum milljóna króna. Flugmálastjóri kvað það álit verkfræðinga, er hann hefði átt tal við, að flugvallargerð í lík- ingu við það sem Reykjavíkur- flugvöllur er nú, myndi ekki kosta þjóðina minna en 800—900 millj. kr. Síðan vék ræðumaður að and- róðrinum gegn Reykjavíkurflug- velli. Minntist hann í því sam- bandi, að á það hafi verið bent, að flug yfir bænum hefði í för með sér miklar hættur, óánægja bæjaryfirvaldanna, sem misst hefðu mikið lanu undir flugvöll- inn, sem af bænum hafi verið tekið, en hann engar bætur feng- ið fyrir, svo og loftárásarhættan. Rök þessi hafa vissulega við margt að styðjast. En ræðumað- ur sagði að á sumum sviðum í andróðrinum gegn flugvellinum hafi verið beitt múgsefj- unaraðferðum, í stað þess að hafa í huga nokkrar helztu stað- reyndirnar flugvöllinn varðandi. Það er staðreynd að hann hefur orðið aðallyftistöng fyrir flug- mál íslendinga og alla þróun þeirra á síðustu árum. Er grund völlur fyrir því að leggja flug- völlinn niður, fjárhagslegur grundvöllur? Er flugtæknilegur möguleiki á því að koma öðrum flugvelli upp nér í nágrenni Reykjavíkur? Ræðumaður kvað alla þekkja svo til fjármálaástandsins hér, að hann fengi ekki með nokkru móti séð hvernig hægt yrði að koma upp nýjum flugvelli, sem kosta myndi ekki mikið undir hundrað millj. kr. Á sama tíma er getuleysi vo'rt á sviði flugmála svo alvarlegt, að allt viðhald mannvirkisins hefur verið alvar- lega vanrækt og það svo, að það er nú tekið að grotna niður. — Ræðumaður lýsti einnig reynslu sinni af daufum undirtektum fjármálavaldsins, sem einatt teldi auknar fjárveitingar til flugmálanna tómt mál um að tala. Gat flugmálastjóri þess í þessu sambandi að á liðnum 20 árum hefðu íslendinga'r varið 32 millj. kr. til flugmálafjárfestingar eða sem svarar 1,5 millj. kr. árlega. Þessu næst vék ræðumaður máli sínu að þeim tveim stÖðum sem til mála hefur komið að gera flugvelli á, ef Reykjavíkurflug- völlur yrði lagður niður. Annar þessara staða er Álftanesið. Það er nú sem óðast að byggjast upp og taldi hann engar líkur til þess að þar yrði gerður flugvöllur. Þá myndi þurfa að leggja þar niður vaxar.di byggð, auk þess sem sér væri ekki kunnugt um að ríkið hefði neinn ráðstöf- unarrétt yfir lanciinu þar. Um Kapelluhraun, sui.nan Hafnar- fjarðar, sagði flu lastjóri, að hann hefði athi, veðurskil- yrði þar og væru ; stundum þannig að ólend-,ú væri þar, en á sama tíma allt að 2000 feta skýjahæð yfir Reykjavík. Það hefur einnig komið fram í viðræðunum urn framtið Reykjavíkurflugvallar, að athug- aðir yrðu þeir möguleikar að flytja millilandaflugið til Kefla- víkurflugvallar. Um þetta kvaðst flugmálastjóri ekki ræða á þessu stigi, því það mál snerti fyrst og fremst flugfélögin tvö og mundi af þeirra hálfu gerð grein fyrir því. Flugmálastjóri kvaðst vilja benaa á leið, er hægt yrði að fara og þá mætti enn nota Reykjavíkurflugvöll um langt árabil, þó flugvélar myndu krefjast lengri lendingabrauta. Með því að breyta nokkuð legu vesturbrautarinnar væri jafn vel hægt að lenda hér Reykjavík, án þess að fljúga nokkuð að ráði yfir sjálfum bæn- um. Slíkar breytingar myndu að vísu kosta nokkurt fé. Flugmála- stjóri lauk máli sínu með því að hvetja menn til þess að líta raun- sæjum augum á þetta mál, ann- að gæti hér orðið slíkt tilræði við íslenzk flugmál að afleiðingarnar gætu oröið ófyrirsjáanlegar. Guðmundur Marteinsson, verk- fræðingur, tók næstur til máis. Hann kvaðst furða sig á þeirri miklu bölsýni er fram hefði kom- ið í ræðu flugmalastjórans. Hann kvaðst ekki mundu ætla sér þá dul að ræða um flugtæknilegu hliðina á því máli hvar gera ætti nýjan flugvöll, ef Reykjavíkur- flugvöllur yrði lagður niður. — Hann kvað sig hafa verið tals- mann þess að gera flugvöll Kapelluhrauni, og teldi hann sjálfsagt að á því máli færi fram miklu ýtarlegri rannsókn er sér væri kunnugt um, að þar hefði fram farið. Ræðumaður kvaðst ræða þetta mál útfrá því sjónar- miði að það væri staðreynd að Reykjavíkurflugvöllur hefði ekki möguleika á því að mæta þeirri stökkbreytingu, sem flugvéla- sérfræðingar erlendis boðuðu í náinni framtíð. Þessu máli sínu til stuðnings kvaðst hann vitna- í grein sem birzt hefði í norsku verkfræðingatímariti, eftir yfir- verkfræðing hins heimskunna norræna flugfélags, SAS. En þar gerir hann að umtalsefni nauð- synlega lengd flugbrauta miðað við þær áætlanir sem nú eru uppi meðal flugvélasérfræðinga um gerð millilandaflugvéla; sem flutt geta í einu 200—300 far- þega. Þær munu verða komnar í notkun kringum árið 1977, seg- ir í grein yfirverkfræðingsins. Þróunin í flugvélasmíðinni virð- ist vera sú, samkvæmt grein yfir- verkfræðingsins, að flugvélar þessar þurfi allmiklu lengri flug- brautir en nú tíðkast, enda ráð- gera nú frændþjóðir vorar stækk un flugvalla sinna, í Kaupmanna- höfn á Fornebu og víðar með hliðsjón af því að flugvélarnar sem teknar verða í umferð á næstu áratugum, þurfi lengri brautir. Guðmundur Marteinsson sagði að það bæri að því að stefna að millilandaflugið yrði flutt suður Keflavíkurflugvöll og þaðan yrði lagður góður vegur til Reykjavíkur. Það bæri og að stefna að því að flytja flugvöll- inn frá Reykjavík og smásaman vinna að gerð nýs flugvallar í Kapelluhrauni eða á þeim stað öðrum í nágrenni Reykjavíkur, sem heppilegur þætti. Um þenn- an flugvöll yrði innanlandsflug- ið og eftir 12—15 ár yrði hægt að taka flugvöll þennan í notkun Hann kvaðst fullyrða að flugvall- argerð í Kapelluhrauni yrði svo miklum mun kostnaðarminni heldur en í Vatnsmýrinni að samanburður við flugvallagerð þar kæmi tæplega til greina. Við lauslega áætlun mætti ætla að ein flugbraut í Kapelluhrauni jafnlöng þeirri lengstu á Reykja víkurflugvelli myndi kosta 20— 50 milljónir króna. , Að afloknu kaffihléi var fundi haldið áfram. Fyrstur tók til máls Baldvin Jónsson, fyrrverandi flugráðs maður. Var hann sammála flug málastjóra og taldi óþarfa að amast við flugvellinum þar sem nægilegt byggingarland væri allar áttir frá bænum. Næstur talaði Valdimar Krist- insson. Var ræða hans fróðleg og ítarleg. Var hann ósammála flug málastjóra um margt. Taldi Valdi mar óæskilegt að hafa flugvöll hjarta bæjarins, enda tíðkaðist slíkt ekki og erlendis væru flug- vellir byggðir allfjarri borgum (að Berlínarborg undantekinni), þar sem athafnasvæði væri nægi- legt. Valdimar dróg mjög í efa þá fullyrðingu flugmálastjóra að enda þótt kostað hefði 120 millj. kr. að byggja Reykjavíkurflug- völl á styrjaldarárunum, þá mundi sá kostnaður nema 1000 millj. kr. nú. Færi það eftir flug- vallarstæði því sem valið yrði og vinnutækni og afköst væru öll meiri nú en þá var. Valdimar taldi beztu lausn þessa vanda- máls að bj'ggja steinsteyptan veg til Keflavíkur og flytja a. m. k. miðstöð millilandaflugsins þang- Flugturninn er að grotna niður, en þar er rekin umfangsmikil starfsemi á sviði alþjóðlegrar flugþjónustu og þar er Veður- stofan í húsnæði, sem ekki verður við unað. að. Slíkur vegur mundi kosta um 32—40 millj. kr. og hefðu hin ört vaxandi athafnapláss á Suð- urnesjum þörf fyrir bættar sam- göngur. Varaflugvöll fyrir milli- landaflugvélar þyrfti að starf- ækja á Suðurlandsundirlendi og benti ræðumaður á að flugvöllur- inn á Sauðárkróki hefði þegar bjargað erlendri millilandaflug- vél. Taldi Valdimar æskilegt að byggja smáflugvöll í nágrenni bæjarins fyrir innanlandsflug og væri ekki hægt að leggja Reykja- víkurflugvöll niður fyrst um sinn, en gera verði ráð fyrir að svo verði i framtíðinni. Taldi ræðumaður að um 300 hektarar af bæjarlandinu væru óbyggileg- ir vegna staðsetningar flugvallar- ins. Allt væri þetta land mjög verðmætt vegna nálægðar þess við Miðbæinn. Gunnar Sigurðsson flugvallar- stjóri Reykjavíkurflugvallar, tal- aði næstur. Studdi hann flug- málastjóra og hvað að ekki væri hægt að taka ákvörðun um Reykjavíkurflugvöll -næstu 10— 15 ár. Bergur G. Gklason, flugráðs- maður: Hann var á móti brott- flutningi flugvallarins og taldi að hér væri um drjúgan tekju- stofn að ræða fyrir bæjarfélagið. menn yrðu að hafa í huga, sagði hann, að flugvöllurinn, lofthöfn- in, gæti orðið mikilvæg fyrir atvinnulíf og viðskipti eigi síður en Reykjavíkurhöfn. Agnar Kofoed-Hansen talaði næstur og svaraði þeim Guð- mundi Marteinssyni og Valdimar Kristinssyni. Taldi hann að hin- ar stóru flugvélar, sem Guðm. Marteinsson talaði um væru ein- göngu notaðar í „grimmustu sam- keppni“ hinna stóru flugfélaga í millilandaflugi og mundu ís- lendingar ekki hafa efni á að afla sér slkra farartæltja. Sagðist flugmálastjóri vera ósammála Valdimar, sem sagt hefði að ís- lenzk flugmál væru óvenju glæsi leg, hitt væri sonnu nær að „ís- lenzk flugmál hangi á bláþræði". Endurtók hann að það væri álit hagfræðinga að nýr flugvöllur gæti kostað allt að 1000 millj. kr., Um að flugvöllurinn hindraði skipulag bæjarins, sagði flug- málastjóri, að skipulag bæjarins hefði ekki alltaf verið til sóma og mætti flugvallarsvæðið gjarn- an bíða. Örn Ó. Johson, framkvæmda- stjóri Flugfélags Islands, ræddi um erfiðleika F. í. ef flytja þyrfti innanlandsflugið til Kefla- víkurflugvallar eða ef skjpta þyrfti rekstrinum og reka milli- landaflug frá Keflavík, en innan- landsflug frá Reykjavík. Taldi hann að það sem er óhagstætt fyrir flugfélagið væri einnig ó- hagstætt fyrir þjóðina. Kvað hann starfslið hinna íslenzku flugfélaga vera um 400 en gæti orðið um 1350, ef framkvæma ætti allar skoðanir og viðgerðir hérlendis og þyrfti því að koma upp sem svaraði 7 þús. manna bæ fyrir starfsfólkið er skyldu- lið þess væri meðtalið. Guðmundur Marteinsson tók aftur til máls. Taldi hann umræð- urnar hafa verið fróðlegar en þó þætti sér ekki hafa gætt nægilegs hugmyndaflugs og hefðu menn að ósekju mátt láta gamminn geysa og væri skaðlaust að at- huga fleiri möguleika en þann að Reykjavkurflugvöllur sæti kyrr þar sem hann er. Úlfar Þórðarson læknir. Taldi hann umræðurnar hafa verið ánægjulegar. — Bæjarstjórnin skyldi þýðingu flugvallarins, en hins vegar þyrfti að athuga möguleika um aukið öryggi borg- aranna. í dag væri nauðsynlegra að byggja hús yfir fólkið fyrir þá peninga sem nýr flugvöllur mundi kosta, en athuga þyrfti gaumgæfilega hver framtíð flug- vallarins væri. Þess skal að lokum getið ,að Flugmálafélagið bauð bæjarráðs- mönnum á fund þennan, en þar eð bæjarstjórnarfundur var þennan sama dag, síðdegis, og stóð fram á xvöld, urðu bæjar- ráðsmenn að boða forföll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.