Morgunblaðið - 03.04.1958, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.04.1958, Blaðsíða 16
16 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 3. april 1958 ^ ------------------------- # Línustamparnir teknir í land. — / róbri Frh. af bls. 15 Bjartur blóðgar. Hinir fara hið- ur og fá sér að borða. Ekkert uppihald verður við verkið. Mér er að sjálfsögðu boðinn matur en ákveð að hætta ekki á það. — Treysti ekki almennilega sjó- hreystinni, þótt í rauninni hafi ekkert komið fyrir ennþá! Þarna stend ég mestallan dag- inn og fylgist með því sem verið er að gera. Allt gengur sinn vanagang. Hvert bjóð er um 300 faðmar að lengd með rúmlega 400 önglulh og er einn staijnpur undir hvert. Stamparnir ' eru jafnóðum færðir aftur í jbak- borðsgánginn frá dráttarmahnin- um á sama stað og þeir voru þegar siglt var. >út. Og þdnnig saxaðist á þetta hægt og hægt. Alltaf hélzt títlan hans Guðna. Báturinn valt eins og kefli að því er mér fannst, en ég var nú haettur að taka til þess. Ég fann að ég sjóaðist eftir því sem líða tók á daginh og nú var mér jafnvel farinn að dettá matur í hug. Ég sagði þeim strákunum að ég myndi bara taka hraust- legar til matar míns er við kæm- um að landi, þegar þeir voru að spyrja mig hvort, ég væri ekki svangur. Þeir sögðu mér að ég múndi fá þófskháusa, lifur og hrogn og þá blátt áfram varð maginn alheilbrigður og ég fann hvernig munnvatnskirtlarnir tóku kröftuglega til starfa. Samúel sagði méi’ að þeir hefðu einmitt verið að ræða um þetta sín á milli hvað ég vildi nú helzt éta þegar þar að kæmi og þeim hefði komið saman um þetta. — Þeir vilja það vanalega, þessir karlar, sem sjaldan koma í sjávarplássin. Línan slitin Nú tók að síga á seinni hlut- ann. Allt í einu kom trosriáður endi inn yfir borðstokkinn. Eng- in lina meir. Það hefir slitnað. Það er sett á fulla ferð og keyrt að næsta belg. Þar er dregið inn að nýju og belgurinn bundinn við enda línunnar, en stubbur- inn dreginn inn. Síðan er haldið að belgnum á ný og haldið á- fram. Nú förum við að koma í hailið. Framundan okkur eru nokkrir togarar, sem toga fram og aftur eftir hallinu. Þarna blasa við verstu óvinir línubátanna. Þeir skrapa botninn ferð ofan í ferð og slíta línuna á mörgum stöð- um, sópa stundum á brott fleiri bjóðum. Og eitthvað þessu líkt gerðist einmitt nú. Grámálaður þýzkari hafði kubbað fyrir okk- ur línuna á fjórum stöðum. Við misstum 4 bjóð, en nóðum öllum bólunum. Við þessu var ekkert að segja. Þegar tætlurnar voru komnar um borð var haldið til lands. Ttuttugu kílómetra Iöng lína var komin inn fyrir borð- stokkinn og við höfðum komizt sem næst 50 mílur frá landi. 14 skippurid af fiski voru riiðri í lést. Það er sett á fulla ferð og brátt er þessi veiðiförin á enda. Við höfum títluna á móti. Báturinn stingur stefninu í öldurnar eða flýgur fram á brúnir þeirra svo harin þurrkar sig langt aftur eft- ir en skellur síðan í næsta öldu- dal. Og nú þykir mér næsta nóg um darradansinn. En þetta er nú ekki mikið. Þeir höfðu séð hann krappari á Munin. — í vetur voru þeir að koma sunnan fyrir Eldey og þá þurrkaði hann sig aftur undir mitt, en allt gekk vel. Einn báturinn sló þó svo mjög úr sér að rétt var hægt að halda honum á floti. Það er stundum teflt á tæpt vað og bát- unum treyst umfram getu þegar stórsjór og rok er á móti en kraftmiklar vélar fleygja bátun- um öldufaldanna á milli. Herramannsmatur Og loks sjáum við Garðsskaga- vitann. Mér léttir því ég hef ekki séð votta fyrir landi allan dag- inn. Ég er líka farin að þreytast í löppunum af að standa upp á endann í stýrishúsinu. Ég hef aldrei hætt mér fram í lúkar sið- an ég fékk kaffisopann rétt eftir að við lögðum af stað. En þegar við siglum inn með landinu í áttina til Sandgerðis snarast ég fram í og nú er ég ákveðinn að taka duglega til matar míns. Ég ríf í mig hvern þorskhausinn af öðrum, sleiki beinin og slafra í mig kinnfiska og úða síðan upp í mig hrogn- um og lifur. Annan eins mat held ég að ég hafi aldrei borðað, svona nýjan og ferskan. Mér var hugs- að til þeirra sem verða að gera sér að góðu sömu fæðu þegar hún er orðin að minnsta kosti þriggja daga gömul og þykir þó herramannsmatur. Klukkan er rúmlega hálfniu þegar ég hef hvatt mína ógætu skipsfélaga og þakkað ánægju- legar samverustundir. Ég geng upp bryggjuna, reikull í spori. Nú, já. Ég er kominn méð sjó- riðu. Og ég ákveð að fá mér brennivínstár og dreypa hæfilega á mig svOna til þess að vega upp á móti sjóriðunni. vig. Tjarnarcafe opið á fimmtudag og laugardag. Lokað á föstudaginn langa og páskadag. H A F N A B ra Ö R Ð U R Gömlu dansarnii 1 Gúttó annan dag páska kl. 9 e.h. Hljómatríóið leikur (Jenni Jóns) Nefndin. Heslamannafélagið Hirðnr heldur ÁRSHÁTtÐ sína laugardaginn 12. þ.m. í Hlé- garði. Aðgöngumiðar fást hjá stjórninni og Kristjáni Vigfússyni, Reykjavík. LESBÓK BAfíNAN. rA TKSBÓK BARNANNA Cjömuií f>iA,la, Tíkin hennar Leifu, tók hún frá mér margt: löð og skaflaskeifu, skinn og vaðmál svart; nýjan og langan naglatein, — nú er hún sett í vísnagrein. Tíkin sú er ekki ein, Óðinn var með henni, ég kenni. Torfa gleypti hún, tuttugu hafra tröllin öll, og ljá í orfi, Haukadal, og hundrað stráka, hesta tólf, og átján presta, kapal og kaupskip, kálfa tólf og Þórólf. Rótaði hún í sig Rangár- völlum, Reykjanesi og Bakkanum öllum, Ingólfsfjall og allan Flóa, — aftur lét hún kjaftinn mjóa. Þó var hún ekki hálf að heldur, ekki veit ég hvað Því veldur. Flugdrekinn HEFUR þú nokkurn tíma átt flugdreka? Dreka, sem maður festir við snúru og lætur stíga hátt til lofts, uns hann sýnist ekki stærri en örlítili (lcpill úti í himinbláman- um? Gagnstætt því, sem er um flesta flugmódelsmíði er fremur auðvelt að búa til góðan flugdreka. Úr tveimur iéttum spýtum, helzt úr balsa- tré, býrðu til kross, sem er 35x50 cm. (sjá mynd 1) Kroasinn er felldur saman eins og sýnt er á mynd 2, og síðan límir þú, bindur, eða neglir saman samskeytin. Nú strekkir þú snuru milli A, B, C og D. — Klipptu svo til sterkan, hclzt vaxborinn, pappír, sem á að vera svolítið stærri en drekinn. Brún- irnar á pappírnum eru brotnar yfir snúruna og limdar eða saumaðar fastar. Búðu svo til fall- ega, marglita skúfa úr garni og festu þá við A, B og C. Sams konar dúska fest- ir þú á ltala drekans, sem festur er við D. Lengst úti á halanum er fest hæfilega þungum skúf úr hampi til að halda drekanum í jafnvægi. Milli A og C er fest snúru, sem ekki á að strekkja fast, og á hana miðja er bundin löng, grönn lína. Hún má gjarn an vera 200 metra löng. Ef vindurinn er hagstæð- ur, getur drekinn stigið mjög hátt. Mynd 2 sýnir aðra gerð af dreka. í staðinn fyrir krossspyturnar, .entur sporöskjulöguð tág, sem á annarri hliðinni er fest við ca. 50 cm langa spýtu. Síðan er snúra strekkt milli A, D og C og pappír strengdur yfir. Svo óskum við ykkur góðrar skemmtunar — og góðs vindar fyrir drekana. SKRÍTLU S AMKEPPNIN 96. Anna litla ®r í mömmuleik með brúð- una sína. „Ef þú verður ekki þæg, Lísa“, sagði hún, „færðu ekki að fara með mér í bæinn. Og mundu, að ég er ekki eins og hún mamma, sem segir bara svona, en tek- ur mig með sér samt“, bætti hún við. Margrét, 11 ára, Keflavík. Á 97. „Heyrið þér, rakari, viljið þér gefa mér glas af vatni?“ „Er yður illt?“ „Nei, mig langar bara til að vita, hvort hálsinn á mér er ekki farinn að leka“. Vinkonur, Rangárvallasýslu. ★ 98. Læknir (mætir lítl- um dreng); „Hvert ert þú að fara, litli minn?“ — Ekkert svar. Læknir; „Því svararðu mér ekki?“ Drengurinn: „Ég þori það ekki, mér hefur ver- ið sagt, að það kosti fimm krónur að tala við þig“. Stefán, 11 ára, Hafnarfirði, ★ 99. Frú Agústa heldur stóra veizlu. •— Þegar hænsnasteikin er borin inn, segir ein frúin: „Ekki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.