Morgunblaðið - 29.04.1958, Qupperneq 4
4
MORGV1SBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 29. apríl 1958
EKDaybók
I dag er 119. dagur ársins.
29. apríl.
Þriðjudagur.
Árdegisílaeði kl. 2,26.
Síðdegisflæði kl. 15,07.
Slysavarðstofa Keykjavíkur Í
Heilsuverndarstöðinni er .<pin «.11-
an sólarhringinn. Læknavörður L.
R (fyrir vitjanir) er á sama stað,
frá kl. 18—8. — Sími 15030.
Næturvarzla er í Lyfjabúðinni
Iðunn, sími 17911.
Holts-apótek og Garðsapótek
eru opin á sunnudögum kl. 1—4.
llafnarfjarðar-p pótek er opið alla
virka daga kl. 9—21. Laugardaga kl.
9—16 og 19—21. Helgidaga kl. 13—16
— Næturlæknir er Ólafur Ólafs-
son.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—19. laugardaga kl.
9—16. Helgidaga kl. 13—16.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegl 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl. 13—16. — Simi 23100.
□ EDDA 59584297 — Lokaf.
RMR — Föstud. 2.5.20. — VS —
Fr. — Hvb.
Brúókaup
Sl. laugardag voru gefin saman
í hjónaband af séra Jóni Auðuns,
Steinunn Ólafsdóttir, Nýlendu-
götu 7 og Þorvaldur Þorvaldsson,
trésmiður. Heimili þeirra verður
að Nýlendugötu 7.
Skipin
Eimskipafélag íslands h.f.:
Dettifoss fer frá Ventspils 30.
þ.m. til Kotka og Reykjavíkur.
— Fjallfoss kom til Rvíkur í gær.
— Goðafoss fór í gærkvöldi frá
Vestmannaeyjum til Norðfjarðar,
Akureyrar, Siglufjarðar, ísafjarð
ar, Vestfjarða- og Breiðafjarðar-
hafna. — Gullfoss fór frá Kaup-
mannah. 25. þ.m. til Leith og
Rvíkur. — Lagarfoss kom til
Reykjavíkur 27. þ.m. — Reykja-
foss fór frá Rvík 25. þ.m. til Ham-
borgar, Bremen, Rotterdam, Ant-
werpen og þaðan til Hamborgar,
Hull og Reykjavíkur. — Trölla-
foss fór frá New York 25. þ.m.
til Reykjavíkur. — Tungufoss
kom til Hamborgar 27. þ.m. fer
þaðan til Reykjavíkur.
Skipaútgerð ríkisins:
Esja fór frá Rvík í gærkv. aust-
ur um land í hringferð. — Herðu-
breið er á Austfjörðum. — Skjald
breið fór frá Rvík í gærkv. vestur
um land til Akureyrar. — Þyrill
fór frá Raufarhöfn í gærkv. á-
leiðis til Bergen. — Skaftfelling-
ur fer frá Reykjavík í dag til
V estmannaeyj a.
Skipadeild S.Í.S.:
Hvassafell losar á Austfjarða-
höfnum. — Arnarfell fór frá
Ventspils 26. þ.m. áleiðis til
Norðurlandshafna. — Jökulfell
lestar frosinn fisk á Norðurlands-
höfnum. — Dísarfell losar á Aust
fjarðahöfnum. — Litlafell er
væntanlegt til Rvíkur í kvöld. —
Helgafell átti að fara frá Reme
í gær áleiðis til Reykjavíkur. —
Hamrafell á að fara í dag frá Pal-
ermo áleiðis tíl Batumi.
pgjFlugvélar
Fiugfélag íslands h.f.:
Millilandaflug: Hrímfaxi fer
til Glasgow og Kaupmh. kl. 08:00
í dag. Væntanl. aftur til Rvíkur
kl. 22:45 í kvöld. — Innanlands-
flug: í dag til Akureyrar (2 ferð-
ir), Blönduóss, Egilstaða, Flat-
eyrar, Sauðárkróks, Vestmanna-
eyja og Þingeyrar. Á morgun til
Akureyrar, ísafjarðar ' og Vest-
mannaeyja.
Loftleiðir h.f.:
Saga kom kl. 08:00 í morgun frá
New York. Fór til Glasgow og,
H LIDA
Bandaríska herstjórnin hefur upplýst hermálanet’nd Bandaríkjaþings um það, að fjöldi rússneskra
kafbáta sé jafnan á sveimi hvarvetna í norðanverðu Atlantshafi. Kemur það oft fyrir að Ijós-
myndir af þeim eru teknar úr lofti frá könnunarflugvélum og birtist ein þeirra hér. Hún sýnir
hina svonefndu VV-tegund, sem er ein stærsta gerð rússneskra kafbáta. — Flestir hafa hinir rúss-
nesku kafbátar bækistöðvar í Murmansk og Arkangelsk við íshafið og sigla þeir út á úthafið öðru
hvorum megin við ísland. Vitað er til þess að rússneskir kafbátar hafa stundum verið skammt út af
Canaveral-höfða í Flórída, þegar flugskeytatilraunir hafa staðið yfir.
London kl. 09:30. — Edda er vænt
anleg til Rvíkur kl. 08:00 í fyrra-
málið frá New York. Fer til Staf-
angurs, Kaupmh. og Hamborgar
kl. 09:30. — Saga er væntanleg
til Reykjavíkur kl. 19:30 á morg-
un frá London og Glasgow. Fer
til New York kl. 21:00
Pan American
flugvél kom til Keflavíkur í
morgun frá New York og hélt
áleiðis til Ósló, Stokkhólms og
Helsingfors. Flugvélin kemur
aftur annað kvöld og fer þá til
New York.
20.30. Sýnd verður litkvikmynd
Magnúsar Jóhannssonar, frá
Vatnajökli og litskuggamyndir
frá sl. sumri.
Árnesingafélagið heldur sum-
arfagnað að Hlégarði í Mosfells-
sveit, laugardaginn 3. maí. Góð
skemmtiatriði. Ferðir frá B.S.Í.
kl. 8,30 síðd.
Foreldrafélag Laugarnesskóla
heldur aðalfund og skemmtifund
kl. 8.30 í Laugarnesskólanum.
KO Ymislegt
Félagsstörf
Jöklarannsóknarfélag íslands:
— Aðalfundur í Tjarnarkaffi
(niðri), í dag 29. apríl kl.
Lokabólusetning vegna mænu-
veiki fer fram í Hlégarði næst-'
komandi miðvikudag og fimmtu-
dag kl. 3. — Héraðslæknir.
Bazar byggðasafnsnefndar Hún
vetningafélagsins, biður félags-
IViyndasaga fyrir börn
konur og aðra er styrkja vilja
bazarinn, að skila munum sem
allra fyrst.
Frá Verzlunarskólanum: —
Verzlunardeild verður sagt upp
í dag, kl. 2 í Austurbæjarbíói.
Skellinöðru stolið: — Á mið-
vikudaginn var, tapaði skólapilt-
ur skellinöðrunni sinni, R-691
NSU-gerð. Var hann að fara heim
úr skólanum, Gamla-Iðnskólan-
um og var skellinöðrunni stolið
meðan hann skrapp sem snöggv-
ast inn í skólann. Hann hefur
siðan haldið uppi spurnum um
hjólið og leitað til rannsóknar-
lögreglunnar, en enn sem komið
er hefur ekki tekizt að finna
hjólið. Eru þeir sem gætu gefið
uppl. um það, beðnir að snúa sér
til lögreglunnar. Skellinaðra
þessi er grá að lit, aurhlífarlaus
að framan og vantaði númer að
aftan.
163. Næsta morgun hjálpar afi Klöru að
klæða sig, ber hann út í sólskinið og legg-
ur hann i grasið fyrir framan kbfann. „En
hvað hér er yndislegt," hrópar Klara upo
yfir sig. „Já, ég hefi ekki farið með nein-
ar ýkjur eða hvað?“ svarar Heiða. Klöru
vinnst ekki tími til að svara, þvi að í
sama bili kemur afi með geitarmjólkina.
Þegar Klara sér Heiðu drekka mjólkina
í einum teig, fer hún að dæmi hennar.
„A morgun drekkum við úr tveimur.
skálum, er það ekki, Klara,“ segir afi
glaðlega.
165. Klara og Heiða hafa mikið að
gera, því að amma, sem farin er aftur til
heilsulindanna 1 Ragaz, hefir mælt svo
fyrir, að þær verði að skrifa henni a
hverjum degi. „Verðum við að fara inn
til að skrifa þetta bréf?“ spyr Klar.i
„Nei, við verðum að reyna að koma því
við að skrifa bréfið úti,“ svarar Heiða og
hleypur inn í kofann til að sækja
skammelið sitt og nokkrar skólabækur,
sem nota má fyrir skrifborð. Og nú taka
þær stallsystur til við að skrifa ömmu
langt bréf.
164. Er Pétur kemur með geiturnar
sínar, gengur hann beint til Heiðu og
segir önugur: „Kemur þú með í dag?“
Heiða horfir undrandi á hann: „Það er
ekki hægt, af því að Klara er hérna, en
afi hefir lofað því, að einhvern tima meg-
um við Klara fara saman upp eftir. Það
verður afskaplega gaman, finnst þér það
ekki?“ Pétur svarar engu, en fer leiðar
sinnar nöldrandi. í laumi steytir hann
hnefana framan í Klöru, sem situr í hjóla-
stólnum sínum í sólskininu og veitir reiði
Péturs enga eftirtekt.
Læknar fjarverandi:
Árni Guðmundsson fjarverandi
frá 25. þ.m. til 22. maí. — Stað-
gengill Jón Hjaltalín Gunnlaugss.
Kristjana Helgadóttir verður
fjarverandi óákveðinn tíma. Stað-
gengill er Jón Hj. Gunnlaugsson/
Hverfisgötu 50.
Magnús Ágústsson læknir verð
ur fjarverandi frá 1. maí um ó-
ákveðinn tíma.
Ólafur Jóhannsson fjarverandi
frá 8. þ.m. til 19. maí. Staðgengill
Kjartan R. Guðmundsson.
Sveinn Pétursson, fjarverandi
til mánaðamóta. — Staðgengill:
Kristján Sveinsson.
Þórður Þórðarson, fjarverandi
8/4—15/5. — Staðgengill: Tómas
A. Jónasson, Hverfisgötu 50. —
Viðtalstími kl. 1—2. Sími: 15730.
CT Söfn
Ba-jarbókasafn Keykjavíkur,
Þingholtsstræti 29A, sími 12308.
Útlán opið virka daga kl. 2-—10,
laugardaga 2—7. Lesstofa opin
kl. IO-t-12 og 1—10, laugardaga
10—12 og 1—7.. Sunnudaga, útlán
opið kl. 5—7. Lesstofan kl. 2—7.
Útibú, Hólmgarði 34, opið mánu-
daga kl 5—7 e.h. (f. börn); 5—9
(f. fullorðna). Þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og föstud.
kl. 5—7. — Hofsvallagötu 16 op-
ið virka d ga nema laugardaga,
kl. 6—7. — Efstasundi 26, opið
mánudaga, miðvikudaga og föstu-
daga kl. 5—7.
MáttúrugripasafniS: — Opið á
sunnudögum kl. 13,30—15 þriðju-
dogum og fimmtudögum kl. 14—15
I.istasafn Einars Jónssonar, Hnit
björgum er opið kl. 1,30—3,30 á
sunnudögum og miðvikudögum.
Þjóðminjasafuið er opið sunnu-
daga kl. 1—4, þriðjudaga, fimintu
daga og iaugardaga kl. 1—3.