Morgunblaðið - 29.04.1958, Síða 16

Morgunblaðið - 29.04.1958, Síða 16
16 MORCVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 29. apríl 1958 1. KAFLI. Dyrnar á káetunni vori: læstar, og það var í sjálfu sér ekkert undarlegt. En það var rödd Lisette, sem virtist óeðlileg. Þeg- ar Joan drap á dyrnar, svaraði hún fyrir innan, á frönsku: „Hver er það?“ Rödd Lisette var hás og hræðsluleg. „Það er ég — Joan. Þú baðst mig um að koma og kveðja þig. Ertu búin að gleyma því?“ Lisette hafði útvegað boðsmiða frá París, og Joan hafði fengið hann um morguninn frá skrifstofu útgerðarinnar í London. Henni var boðið að koma og skoða nýja, franska skemmtiskipið Rocheile, sem lá um þær mundir í Sout- hampton. Joan hafði auðvitað orðið mjög glöð, en jafnframt öfundað systur sína örlítið, sem nú átti í annað skipti að vinna í snyrtisal á stóru, nýtízku lysti- skipi. Hin fasta siglingaleið Roc- helles var: Cherbourg—Sout- hampton—New York. Þannig var það alltaf Lisette, sem heppnin elti. Það var líka hún, sem hafði dvalizt hjá móður þeirra, á frönsku Riviera, eftir skilnað foreldranna. Þar hafði hún unnið í snyrtistofunni á Grand Estrelle Hotel í Cannes. Líf hennar hafði alltaf verið fullt af sólskini og gleði. Joan hafði fengið sömu mennt- un og systir hennar, sem var að- eins einu ári yngri en hún. En henni hafði ekki hlotnazt neitt rúm sólarmegin í lífinu. Hún þrælaði í hinni myrku, þokufullu borg, London, í lítilli og hvers- dagsiegri hárgreiðslustofu í Ful- ham. Joan hafði alltaf öfundað syst-1 urina í Cannes. Sjáif hafði hún dvalizt þar tæpan mánuð, í sum- arleyfinu sínu. Það var áður en móðir þeirra dó, og Joan hafði samvizkubit af því að vera svona lengi að heiman. Faðir hennar var lasburða, og það var skylda hennar, að hverfa aftur heim til hans. Þegar hann andaðist, ákvað hún að flytja til móður sinnar í Cannes, en áður en sú ákvörðun hennar kæmist í framkvæmd, dó móðirin líka. Hún var frönsk. — Faðir þeirra, hinn kaldlyndi Eng- lendingur, John Richard, hafði orðið yfir sig ástfanginn af henni. Þau höfðu svo gengið í heilagt hjónaband, en skilið aft- ur, eftir eins árs óhamingjusama sambúð. Eftir dauða móðurinnar, fór Lisette til Parísar, þar sem hún vann um nokkurt skeið hjá Antonie, en henni var ferðaþráin í blóð borin. Frá París lá svo leið hennar til Bruxelles og þaðan til Kaupmannahafnar og Rómar. Alis staðar vann hún á beztu og fínustu stofunum og þar sem hún hafði hin ákjósanlegustu meðmæli, gekk henni vel að fá starf á franska skipinu Fleurie. Þar vann hún þann tíma sem ferðamannastraumurinn var mest ur, síðastliðið ár og nú átti hún svo að fara með Rochelle, í fyrstu ferð þess til Ameríku. Joan hafði komið með hraðlest inni til Southampton, sem var yf- irfull af farþegum, er annað hvort ætluðu að ferðast með Roc- helle, eða bara sjá það og dást að því. Dyrnar á káetu Lisette voru, sem fyrr segir, læstar. Joan varð að banka mörgum sinnum á hurð- ina, áður en henni var svarað. Og Joan átti mjög annríkt, því að það var margt sem hún vildi sjá og skoða: Káeturnar á fyrsta farrými, þilförin, þar sem far- þegarnir gengu sér til skenrmtun- ar og setusalirnir, kvikmynda- salurinn, hin margumtalaða sund laug og snyrtisalurinn, þar sem systir hennar átti að vinna. Lisette gat eflaust sýnt henni allt þetta og margt fleira.... „Komdu inn .. já, en reyndu að flýta þér“, sagði Lisette óró- lega, þegar hún hafði opnað dyrn ar. Joan hafði aldrei fyrr séð hana svona órólega í svip og fram komu. Hún var alltaf vön að taka lífinu með ró og jafnaðargeði. — Einnig það hafði vakið öfund hjá Joan. Nú, eins og alltaf þegar fund- um þeirra bar saman eftir langan aðskilnað, veitti Joan því athygli, hversu líkar þær voru í raun og veru. Það heföi mátt halda að þær væru tvíburasystur. Báðar höfðu þær sama svarta liðaða hárið, sömu hreinu, reglulegu andlits- drættina, sömu ljósgráu augun og sajna full-stóra munninn. Joan var bara örlítið hærri en Lisette og virtist alvörugefnari I lund. „Jæja, hérna hefurðu mig svo. Og þúsund þakkir fyrir boðsmið- ann, sem þú lézt senda méi'“. „Mér finnst það líka gaman, að þú skulir vera kornin", sagði Lisette. „Hélztu kannsike að ég myndi ekki koma?“ „Ég var ekki alveg viss um það. Þú gazt hafa fengið boðs- bréfið of seint, eða tafizt á einhvern hátt“. „Ég hefði nú látið allt sitja á hakanum, til þess að komast hing að. Mig hefur alltaf langað svo mikið til þess að sjá svona skraut legt skemmtiskip — og svo auð- vitað þig líka. Það hittist svo vel á, að ég var nýbúin að fá sumar- ! leyfið mitt“. „Og ætlarðu þá ekki að fara í I ferðaiag?" „Nei, því miður get ég það nú ekki, þetta árið, sökum peninga- leysis. Þú veizt að ég er búin að fá mér litla íbúð og húggögnin í hana hafa kostað mikla i>eninga. Þú ættir bara að sjá hvað hún er orðin snotur og vistleg". „Jæja, er hún það?“ sagði Lis- ette annars hugar og sneri gér frá henni. „Þetta er allra snotrasta ká- eta“, sagði Joan. — „Ertu ei'n í henni?“ Lisette svaraði ekki alveg strax. Joan fannst hún eitthvað “breytt frá því sem áður var. Allt- af þegar þær höfðu hitzt áður, hafði Lisette látið móðan mása, svo að eldri systirin gat varla Afgreiðslustúlku vantar okktir nú þegar í tóbaks og sælgætisbúð. Upplýsingar á skrifstofunni. Sími 17052. suiipimuu, skotið einu einasba orði inn í milli. Hún hafði alltaf haft frá svo mörgu að segja. Eitthvað meira en lítið hlaut að hafa kom- ið fyrir, fyrst hún var svona hljóð í dag. „Já, ég bý hérna alein", sagði Lisette að lokum. „Ég setti það sem skilyrði, að ég fengi að búa ein í klefanum. Ég hef ekki neinar taugar til að búa með öðru stúlkubarni. Þeim þótti auðvitað gott að fá stúlku, sem talaði ensku, því að hér eru margir ensk ir og amerískir farþegar. .. Mér finnst bara of þröngt hérna. Káetan mín í Fleurie var tals- vert stærri". „Mér finnst að þú hljótir að vera hamingjusöm. Ég get ekki varizt þvi að hugsa sem svo: Bara ef ég væri þú. Það hlýtur að vera alveg dásamlegt að ferð- ast svona og komast burt frá öllu þeasu....“ „Hvað áttu við með: „öllu þessu“?“ spurði Lisette og hló stuttum kuldahlátri. „Veiztu nokkuð hvort ég kemst það?“ „Ég skil þig ekki fyllilega". Nú fyrst veitti Joan því athygli, að systirin var svo föl yfirlitum, að jafnvel kinnaroðinn gat ekki hul- ið það. Augun voru líka dauf og þreytuleg, eins og hún hefði ekki notið svefns langan tíma. „Þú þarft þess heldur ekki“, sagði Lisette og hló þvinguðum hlátri. „Fáðu þér nú sæti og kveiktu þér í vindlingi. Þeir eru franskir, svo að ég veit lekki hvernig þér líkar við þá“. „Ég vandist þeim, þegar ég heimsótti ykkur mömmu á Riviera ströndinni". „Mamma, já .... bara ef mamma hefði nú Ilfað", sagði Lisette með skyndilegum ofsa. — Hún settist á þilrekkjuna og huldi andlitið í höndum sér. Joan settist við hlið hennar og lagði handlegginn yfir axlirnar á henni. Enda þótt Joan væri ekki nema einu ári eldri, en systirin, hafði hún alltaf borið næstum móður- íega umhyggju fyrir henni. Hún hafði oft verið áhyggjufull yfir því, að Lisette, sem var aðeins tuttugu og tveggja ára, skyldi sí- tfellt vera á ferðinni frá einum staðnum til annars, um París, Róm og Bruxelles. Oft hafði hún skrifað henni og heðið hana að koma til London, svo að þær gætu búið saman, en alltaf hafði Lis- ette svarað neitandi og það gat Joan heldur ekki láð henni. Til- vera Lisette lá á allt annari'i bylgjulengd. Hún myndi aldrei geta sætt sig við sömu lífskjör og Joan. „Er nokkuð að, vina mín?“ spurði Joan alúðlega. Lisette spratt á fætur: „Nei, hvað ætti það að vera?“ sagði hún þrjózkulega. „Hvernig dettur þér slíkt í hug?“ „Bara vegna þess að þú sagðist sakna mömmu“. „Og er það nokkuð undarlegt, þó að ég sakni hennar? Mamma skildi mig. Ég gat sagt henni allt“. „Gætirðu ekki reynt að segja mér allt?“ „Þú ert ekki mamma. .. Lis- ette leit undan og hristi höfuðið. „Þú ert alveg eins og pabbi. Þú myndir aldrei geta sktlið mig. .. En nú máttu. ekki vera reið. Eig- um við ekki að fá okkur eitt glas? Hérna á ég eina flöisku". Það var franskt koníak og flaskan var ekki nema rúmlega hálf. Hafði Lisette drukkið þetta allt? hugsaði Joan með sér. Var það þess vegna sem hún hegðaði sér svona undarlega? „Mig langar ekki í neitt að diekka", flýtti Joan sér að segja. Svo hló hún afsakandi. „Ég hlakka svo til að skoða skipið. Þú ætlar að sýna mér hvern krók og kima í því, er það ekki?“ „Jú, þaó skal ég gera — eftir litla stund. Hérna er raunar ekki svo mikið að skoða“. „Það hljómar nú dálítið yfir- lætislega", sagði Joan brosandi. „Þú veizt ekki sjálf hversu hepp in þú ert“. „Þú getur sjálf orðið jafnhepp- in — eins og þú kallar það. Sæktu bara um starf á einhverju af þess um stóru millilandaskipum. Þú ert duglegri að vinna en ég. Það sagði mamma oft, þegar þú heim- sóttir okkur. Þá gramdist mér það, en seinna sannfærðist ég um, að hún hafði á réttu að standa. Hvers vegna viltu endilega halda áfram að þræla í þessari tötra- 'legu kompu í Fulham?" Joan hafði oft og mörgum sinn 'um spurt sjálfa sig þessarar sömu spurningar. Hún vissi það vel, að henni myndi reynast auð- velt að fá annað starf. En hún var íhaldssöm að eðlisfari, eins og faðir hennar hafði verið. Og svo kunni hún vel við viðskiptavinina hjá Gustav — ekki manneskjur sem gátu vel eytt hálfum degin- um í hárgreiðslustofunni, heldur konur sem áttu mjög annríkt og þótti gott að fá fljóta og góða þjónustu. „Ég hef reynt að koma.st í sigl- ingar", svaraði Joan. „Ég hef sótt um starf hjá en.sku skipaútgerð- unum, en það eru alls staðar svo langir biðlistar. „Hugsaðu ekki um ensku skip- in. Það er ómögulegt að vinna á þeim....“ Lisette baðaði út báð- um höndum, til aukinnar áherzlu. „Það er svo óskaplega strangur aginn á þeim. Starfsfólkið má ekki svo mikið sem tala nokkur orð við farþegana og því síður koma inn í borðsalinn eða út á dansgólfið með þeim. Og jafn- skjótt og maður hefur brotið ein- hverja þessa asnalegu reglu, er SHUtvarpiö Þriðjudagur 29. apríl: Fastir liðir eins og venjulega. 19,00 Framburðarkennsla í dönsku. 19,10 Þingfréttir. 19,30 Tónleikar: Óperettulög (plötur). 20.30 Daglegt mál (Árni Böðvars son kand. mag.). 20,35 Erindi: Myndir og minningar frá Kaper- naum; síðari hluti (Séra Sigurð- ur Einarsson). 21,00 „Afmælis lúðrasveit Alberts Klahn 1958": 40 blásarar úr Sinfóníuhljómsveit íslands, Lúðrasveit Reykjavíkur og Lúðrasveit Hafnarf jarðar leika undir stjórn Alberts Klahn. Einsöngvari: Þorsteinn Hannes- son. 21,30 Útvarpssagan: „Sólon Islandus" eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi; XXVI. (Þor- steinn Ö. Stephensen). 22,10 Iþróttir (Sigurður Sigurðsson). 22.30 „Þriðjudagsþátturinn". —. Jónas Jonasson og Haukur Mort- hens stjórna þættinum. — 23,25 Dagskrárlok. 1) Grávöruþjófarnir þora ekki að skilja Dídí eftir á ströndinni og eru nú með hana á leið til íoringja síns, Ríkarðs McCords. 2) Þegar líða tekur á daginn, segir foringi ræningjanna: Hér skulum við hafa áningastað og það er bezt að kvenmaðurmn sjái um matseldinn. Miðvikudagur 30. apríl. Fastir liðir eins og venjulega. 12.50—14.00 „Við vinnuna": Tón- leikar af plötum. — 1930 Tón- leikar: Óperulög (pl.). — 20,30 Lestur fornrita: Harðar saga og Hólmverja; V. (Guðni Jónsson prófessor). 20.55 íslenzk tónlist (pl.): „Eg bið að heilsa", ballett- músik eftir Karl O. Runólfsson (Sinfóníuhljómsveitin leikur; dr. Victor Urbancic stjórnar). —- 21.35 Tónleikar (plötur). —. 21.45 íslenzkt mál (Ásgeir Blön- dal Magnússon kand. mag.). — 22.10 „Víxlar með afföllum", framh.leikrit Agnars Þórðarson- ar; 8. þáttur endurtekinn. — Leikstjóri: Benedikt Árnason. — 22.50 Létt lög: Julie Lóndon syng- ur (pl.). — 23.10 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.