Morgunblaðið - 03.05.1958, Page 8

Morgunblaðið - 03.05.1958, Page 8
8 MORCUISBLAÐIÐ Laugardagur 3. maí 1958 3®|i0?lpnf>Wtt!í TJtg.: H.f. Arvakur, Reykjavlk. Framkvæmdastjóri: Sigfus Jónsson. Aðaintstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Yigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Ola, sími 33045 Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480 Askriftargjalo kr. 30.00 á mánuðí innanlands. 1 lausasölu kr. 1.50 emtakið. OTVIRÆÐAR UNDIRTEKTIR UTAN UR HEIME London Róm Buenos Aires Rokk um víða veröld NÚVERANDI ríkisstjórn hef ur löngum skellt skolla- eyrunum við röddum al- mennings. Með ólíkindum er þó, að Hannibal Valdimarsson hafi getað lokað eyrum sínum fyrir undirtektum mannfjöldans á Lækjartorgi 1. maí við hinni skeleggu gagnrýni Bergsteins Guðjónssonar á gerðir stjórnar- innar. Munurinn á viðbrögðum almennings við ræðu Bergsteins og öðrum ræðum á torginu, var slíkur, að jafnvel daufir hlutu að heyra. Ríkisstjórninni ætti að vera vorkunnarlaust að skilja, að verkalýðurinn hefur fengið meira en nóg af svikum hennar og úr- ræðaleysi. Skvaldrið um að stjórn að skyldi í samráði við „vinnu- stéttirnar“ hefur reynzt svo einskisvert, að almenningur tekur það nú orðið sem’ háð, þeg- ar því loforði er hampað. Verð- ur að telja það beina ögrun við verkalýðinn og samtök hans, að setið skuli heilan vetur yfir leit að úrlausn efnahagsmálanna og hin sérstaka nefnd verkalýðs- samtakanna, er til þess var kos- in, skuli þá fyrst kvödd til, þeg- ar stjórnarblöðin eru búin að tilkynna, að allt sé fastmælum bundið. Úr því að slík vinnu- brögð eru viðhöfð, þá eru miklu hreinlegra að segja berum orð- um, að verkalýðssamtökin og til- lögur þeirra séu einskis metin. Engum getur lengur dulizt, að sá er í raun og veru hugur stjórn- valdanna. ★ Sízt skal lítið gert úr þeim vanda, sem nú er við að etja í íslenzkum efnahagsmálum. Von- laust er að leysa hann, nema menn skilji eðli hans og orsakir. V-stjórnin sýnist vera fjær að gera það en nokkrir aðrir, sem að þessum málum hafa komið. í upphafi lofuðu núverandi stjórnarherrar að leysa vandann með því að leggja byrðarnar á einhverja aðra en allan almenn- ing. Þessu var ekki einungis lof- að fyrir kosningarnar, heldur ítrekað, þegar stjórnin tók við völdum og í síðari yfirlýsingum forsætisráðherrans og meðstarfs manna hans. Allt hafa þetta reynzt innantóm orð. Nýjar og nýjar byrðar hafa verið lagðar á verkalýðinn og nú stendur til að leggja á hann miklar álögur, þyngri en nokkru sinni fyr. Valdhafarnir telja þetta óhjá- kvæmilegt. E. t. v. er svo í raun og veru. En það, sem á vantar er að segja almenningi allan sannleikann. I stað þess að segja alþjóð hiklaust frá hinu raun- verulega ástandi, ræða málin í alþjóðaráheyrn, leyfa mönnum síðan að velja sjálfir þann kost, er þeir að athuguðum öllum gögnum telja vænlegastan, þá er farið með gögnin og úrræðin, sem til bjargar eiga að verða, sem hið dularfyllsta ríkisleyndarmál. Þetta er þeim mun hættulegra, sem nýjar álögur á allan almenn- ing hljóta að helgast af því, að þjóðin í heild hafi gert meiri kröfur og tamið sér kostnaðar- meiri lifnaðarhætti en hún hef- ur efni á. Tilgangurinn með álög- unum hlýtur að vera sá, að end- urheimta til atvinnuveganna það, sem um of hefur verið af þeim tekið. Hér er því fyrst og síðast og æ ofan í æ þörf á fræðslu og sönnum upplýsingum um eðli vandamálsins. Það er hver ein- stakur maður í landinu, sem af sinni hálfu þar-f að leggja nokk- uð af mörkum. Frumskilyrði til þess að menn geri það, svo að gagni sé, er, að þeir skilji nauð- synina á því sjálfra sín vegna og þjóðarinnar í heild. ★ Með laumuspili sínu er ríkis- stjórnin í senn að auka sín eigin bráðabirgðavandræði og koma í veg fyrir varanlegan bata á þeirri meinsemd, sem hún er að kukla við lækningu á. Alger slit, einmitt þess ráð- herra, sem stöðu sinni samkvæmt ætti að hafa mest samband við verkalýðinn, úr raunverulegum tengslum við hann sjást af upp- hlaupinu út úr dagskrá rikisút- varpsins 1. maí. Reynt er að gera það að einhverju meginmáli í hvaða eiginleika tilteknir valda- menn haldi þar ræðu, hvort það sé Alþýðusamband íslands sem biðji þá um að tala eða sjálft ríkisútvarpið! Almenningur læt- ur hégóma slíkan sem þennan sig engu skipta. Tímarnir eru og sannarlega alvarlegri en svo, að verjanlegt sé að eyða orku í því líkan barnaskap. En tildrið virð- ist vera valdhöfunum nú fyrir öllu öðru. Það er réttmæt gremja verka- lýðsins yfir öllum þessum aðför- um, sem lýsti sér í undirtektunum á Lækjartorgi 1. maí. íslendingar skilja vel þýðingu verkalýðs- hreyfingarinnar. Allir, hvar í stétt, sem þeir standa, gera sér grein fyrir, að hún er og á að vera eitt mesta aflið í okkar þjóð- félagi. En hún á að vera frjáls og óháð. Það á ekki að misnota hana í pólitískum tilgangi, eins og núverandi ráðamenn hafa gert. Undir því yfirskini að hún eigi að hafa úrslitavöld í þeim efnum sem heyra undir Alþingi og almenna kjósendur í landinu, er verið að svipta hana bæði völdum og virðingu. Það sýnir framkoman gagnvart 19 manna nefndinni og allt atferli stjórnar- herranna undanfarna mánuði. ★ Ótti valdhafanna kemur svo fram í því, að þeir láta nú hand- langara sína beita sér fyrir al- mennri uppsögn samninga, og þar með undirbúa alvarlegri vinnudeilur en nokkru sinni fyr. Þetta gera mennirnir, sem mest hafa hrósað sér af vinnufriði, og blákalt borið fram að stjórnar- seta sín sé skilyrði fyrir, að hann haldist. Nú á að láta gremju al- mennings út af úrræðaleysi vald- hafanna fá útrás á þann veg að efna til þessa ófriðar. Heilindin sjást af því, að stjórnarblöðin skrifa samtímis og á víxl um það, að hinar nýju álögur séu óhjá- kvæmilegar til að bjarga at- vinnuvegunum og að nú séu skil- yrði fyrir almennri kauphækk- un! Hið sanna er að hvert sem litið er, sjást þess merki að V-stjórnin hefur ekki ráðið við þau verkefni, sem hún tók að sér. Nýjar vinnu- deilur verða ekki til að bæta þann vanda. Eina eðlilega leiðin nú er, að stjórnin leggi niður völd og gefi þjóðinni kost á að kveða sjálf á um örlög sín. ROKKIÐ er mjög umdeilt meðal allra þeirra þjóða, er kynni hafa haft af þessu fyrirbæri siðmenn- ingarinnar. Fréttaritarar New York Times í ýmsum löndum gerðu nýlega athuganir á þróun rokksins og virisældum, og voru niðurstöðurnar birtar í The New York Times Magazine. Er birtur útdráttur úr þeim hér á eftir. í Englandi hefir rokkið tekið nokkrum breytingum á þeim tveim árum, sem það hefir verið í tízku. Enskir unglingar eru taldir dansa rokkið af meiri siðsemi en bandarískir unglingar, enda var sú regla sett í danssölum í Eng- andi, að rokkdansarar yrðu að hafa a.m.k. annan fótinn á gólf- inu allan tímann! Talið var nauð synlegt að setja þessa reglu, af því að of margir fengu spark í höfuðið. Svo að enskir rokkdans- arar eyða orku sinni í að engjast og beygja sig niður að gólfi — aftur á bak og áfram í stað þess að sveifla dömunum hátt í loft. Um skeið kom kalypsó til sög- unnar, en mátti sín einskis gegn rokkinu. Rokkið er vinsælast meðal unglinga á aldrinum 14—21 árs. Frægustu rökksöngvararnir eru bandarískir að Tommy Steele undanteknum, sem varla átti garmana utan á sig, er rokkið kom til sögunnar, en nú er orð- inn vellauðugur. í Frakklandi hefir rokkið aldrei náð mikl- um vinsældum, m.a.s. unglingarn ir létu ekki ánetjast auðveldlega. Er bandarísk rokkmynd var sýnd í París haustið 1956, var lögregl- an kvödd á vettvang af ótta við, að til óláta kæmi. En það var álíka hljótt í kvikmyndahúsinu og á skákmóti. Víða er þó enn dansað rokk á vinstri bakka Signu, á Rivieraströndinni og í Marseilles, en undanfarna mán. hefir rokkið orðið að láta í minni pokann fyrir svokölluðu Cha-cha, sem kvað vera upprunnið í Mið og Suður Amexíku. í Þýzkalandi bæði austan og vestan tjalds mun rokkið standa með íniklum blóma. Reyndir og ráðsettir menn telja, að aldrei hafi verið meiri slysahætta á dansleikum en nú, allt síðan frumstæðir menn lögðu niður eld- og sverð- dansa. f þýzkum veitingastöðum verða þjónarnir oft að hafa bar- borðin sem brjóstvörn, er rokkið stendur sem hæst. Unglingarnir virðast líta á rokkið sem eins konar íþrótt, er sameini kosti lyftinga og skíðaferða í Alpa- fjöllunum. Bezta sönnun þess, að hér er um íþrótt að ræða, er sú, að unglingarnir vilja vera ein- kennisbúnir. Piltarnir verða hlezt að klæðast bláum gallabux- um, annars eiga þeir á hættu, að ungu stúlkurnar, sem verða að vera í peysum, neiti að dansa við þá. í Rússlandi mun alþýðu manna á engan hátt vera illa við rokkið, því að henni er varla kunnugt um til- veru þess. Þrátt fyrir þetta hafa opinberir aðilar jafnt og þétt hamrað á því, að rokkið sé villi- mannlegt, og því hefir verið skip að á bekk með abstrakt mynd- list (!) og gert útlægt. Kynni rússneskra unglinga af jassi yfir- leitt eru undir því komnin, hvort þeim tekst að ná í erlendar jass- plötur og hvernig þeim tekst að ná í erlendar útvarpsstöðvar, en yfirleitt heyrist mjög illa í þeim. Sannleikurinn mun vera sá, að þeir gera lítinn greinarmun á Louis Armstrong og Elvis Pres- ley. En þrátt fyrir boð og bönn fara vinsælar danshljómsveitir sínu fram og reyna að fylgjast með tízkunni, t.d. hafa Rússar ný lega tekið til við að leika Cha cha. í PóIIandi hefir rokkið verið mjög vin- sælt undanfarin tvö ár, en er nú á undanhaldi. Pólskum yfirvöld- um varð brátt ljóst, að það var ekkert náið samband milli dans- laga og þjóðskipulags, og menn látnir einir um, hvort þeim féll það í geð eða ekki. Og æskan komst fljótt á bragðið. Eftirfar- andi saga er táknræn fyrir af- stöðu fullorðna fólksins: Ung stúlka í bleikum pokakjól dans- aði rokk í ákafa á danssýningu á skemmtistað nokkrum. Mið- aldra maður vék sér að henni og vildi fá hana til að hætta dansin- um. „Herra minn“, sagði stúlkan. „Við erum „jeunesse"! Mann- inum þótti þessi skýring fullnægj andi. Honum hefir sennilega orð- ið hugsað til æskuára sinna. Ka- þólska kirkjan hefir látið rokkið svo til afskiptalaust. Ef til vill er það afskiptaleysið, sem veldur því, að vinsældir rokksins fara óðum þverrandi. 1 Ítalíu er rokkið þegar orðið úrelt. Frh. á bls. 14. Tókíf Kaíró Varsjá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.