Morgunblaðið - 03.05.1958, Side 16
VEÐRID
Vestangola — skýjað.
ttnMðMfr
1. maí ræða
Bergsteins Guðjónssonar.
bls. 9.
Sjá
99. tbl. — Laugardagur 3. maí 1958
20 ára afmœli innanlands
flugs FIugfélagsins
Og ár síðan Viscount-vélarnar komu
í GÆR voru liðin tuttugu ár frá
því að Flugfélag íslands hóf inn-
anlandsflug.
Hinn 2. maí 1938, var fyrsta
farþegaflug á vegum félagsins
milli Akureyrar og Reykja-
víkur, en félagið var stofnað á
Akureyri rúmlega ári áður.
Á þeim tuttugu árum, sem
Flugfélagið hefur haldið uppi
flugsamgöngum, hafa flugvélar
þess flutt yfir hálfa milljón far-
þega og mikið magn af pósti og
vörum.
Er félagið hóf innanlandsflug
fyrir tuttugu árum, voru þrír
menn starfandi á vegum þess. Nú
eru starfsmenn þess um 230.
Flugfélag íslands heldur nú uppi
reglubundnum áætlunarflugferð-
um milli tuttugu og eins staðar
á lanáinu og til fimm staða
erlendis og hefur þar jafnframt
fulltrúa sína og skrifstofur starf-
andi.
í gær var einnig eitt ár liðið
frá því að hinar nýju Vickers
Viscount flugvélar komu fyrst
hingað til landg og við hátíðlega
Happdrætti
Sjálisiæðisflokksins
ALLIR þeir Sjálfstæðismenn,
sem fengið hafa happdrættismiða
til sölu, eru beðnir að gera skil
sem allra fyrst í skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins í Sjálfstæðishús-
inu. Opið er til kl. 5 í dag.
Það hefir mikið að segja, að
menn geri skil nú þegar, en biði
ekki með það fram á síðustu
stundu. Þegar er vitað, að al-
menningur hefir tekið happdrætt
inu mjög vel og taisvert hefir
selzt af miðum, enda er vinning-
urinn hinn glæsilegasti.
Með því að gera skil seldra
miða nú þegar, gera flokksmenn
starf þeirra manna, sem að happ-
drættinu vinna mun auðveldara. kaupa á áfengi, fötum og fleira.
athöfn á Reykjavíkurflugvelli
voru þeim gefin nöfnin Hrím-
faxi og Gullfaxi.
Daginn eftir, 3. maí, hófu þær
áætlunarflug og hafa þær síðan
verið í stöðugum ferðum á áætl-
unarleiðum félagsins milli landa
og einnig flogið innanlands eftir
ástæðum.
Gullfaxi hinn nýi og Hrímfaxi,
hafa reynzt mjög vel í hvívetna
og hefir farþegafjöldinn, sem
ferðast milli landa á vegum
félagsins, stóraukizt við tilkomu
þeirra. Sérstaklega er athyglis-
vert, hver aukning hefir orðið á
áætlunarleiðum félagsins milli
staða erlendis, þar sem mjög fátt
farþega var áður.
Á þessu fyrsta ári sínu í þjón-
ustu Flugfélags íslands, hafa
Hrímfaxi og Gullfaxi flutt 19846
farþega milli landa og flogið
1.719.000 kílómetra á 3438 klst.
í sumaráætlun Flugfélagsins,
sem nú er fyrir nokkru gengin í
gildi, fá þær ærið aí *tarfa, því
að áætlaðar eru tíu ferðir í viku
milli íslands og útlanda, þegar
áætlunin hefir að fullu komið til
framkvæmda hinn 29. júní næst-
komandi.
Sial — en skilaði
þýfinu aftur
N ORÐLENDIN GUR einn, sem
staddur er hér í bænum, var
rændur vertíðarhýrunni, er
hann var á ,kenndiríi‘ með tveim
mönnum öðrum í herbergi sínu.
Norðlendingurinn, sem er nýkom
inn af vertíð í Vestmánnaeyjum,
hafði stungið 12000 kr. í pening-
um undir kodda í herbergi sínu.
Gestur hans, sem þar hafði
nokkra viðdvöl, stal peningun-
um. Þegar lögreglan náði hon-
um, og hann hafði viðurkennt
þjófnaðinn, endurgreiddi hann
hluta fjárins, en af þýfinu
hafði maðurinn eytt peningum til
Kvöldfundur um rbjargráðin'
í. GÆRMORGUN var „19 manna
nefndin“ svokallaða boðuð á fund,
þar sem áfram skyldi rætt um
efnahagsráðstafanir ríkisstj órnar-
innar. Á þessum fundi hélt ræðu
Jónas Haralz, sem hefur verið
helzti sérfræðingur stjórnarinn-
ar um „bjargráðin". Meðan á
fundi stóð höfðu fulltrúar fengið
í hendur efnahagsmálatillögur
stjórnarinnar. Nokkrir nefndar-
manna höfðu beint fyrirspurnum
til Jónasar. Að fundi loknum af-
hentu nefndarmenn gögnin og
var síðan boðaður kvöldfundur
er hefjast skyldi klukkan 9 í
gærkvöldi í Alþingishúsinu. .
Laust fyrir klukkan 9 komu
þeir saman niður í Alþingishús
Jónas Haralz og Gylfi Þ. Gísla-
son ráðherra. Um svipað leyti
kom Hannibal Valdimarsson ráð-
herra, en áður en hann fór inn,
ræddi hann á gangstéttinni við
meðráðherra sinn Lúðvík Jósefs-
son, s«m síðan ók á brott í bíl
sínum.
Einn nefndarmanna, sem tíð-
indamaður blaðsins hitti fyrir
utan Alþingishúsið, kvaðst ekki
vita hvort fundurinn myndi verða
langur eða stuttur og hann kvaðst
ekki heldur vita hvort „19 manna
nefndin" myndi á þessum kvöld-
fundi taka endanlega afstöðu til
efnahagsmálatillagnanna. — Það
varð sem sé ekki ráðið af þessu
stutta samtali hvort „bjargráðin'
myndu koma fram í dag. — Þeg-
ar þetta er skrifað um kl. 23, stóð
fundurinn enn yfir.
Maður slórslasasl
í bílslysi
AÐFARANÓTT 1. maí varð bíl-
, slys á Suðurlandsbrautinni á
móts við Múla. Strætisvagn, sem
var á leið til bækistöðva sinna
við Kirkjusand, kom úr Soga-
mýri, og lítil 4ra manna bíll rák-
1 ust saman. Einn maður var í litla
bílnum, Andrés Guðjónsson kenn
ari við Vélskólann, Eikjuvogi 26.
Hlaut hann höfuðkúpubrot,
skaddaðist mikið í andliti, lær-
brotnaði og eins hafði brjóstkass-
inn laskazt. Var hann fluttur með
vitundarlaus í Landsspítalann.
Er Andrés þungt haldinn.
Strætisvagnsstjórinn hefur bor-
ið, að litli bíllinn hafi beygt á
móti sér. Hafi hann talið að litli
bíllinn myndi ætla að nema stað-
ar sömu megin götunnar og stræt
isvagninn ók. Segist vagnstjór-
inn hafa verið búinn að draga
mikið úr ferðinni og verið að
sveigja frá litla bílnum, sem
skyndilega hafi líka sveigt
inn á veginn og skipti það eng-
um togum að bílarnir skullu sam
an af miklu afli.
Strætisvagninn varð fyrir
nokkrum skemmdum, en litli bíil
inn er talinn ónýtur.
Stóri jarðborinn við Nóatún, — tilsýndar. — Borturninn er
tæpiega 30 metra hár. — Manni virðist, í fljótu bragði, sem
ekki verði hlaupið með borinn og allt það, sem honum tii-
heyrir, iandshornanna á milli.
Stóri jarðborinn gefur
senn byrjað að bora
HINN mikli jarðbor, sem Reykja-
víkurbær og ríkissjóður keyptu
í sameiningu vestur í Bandaríkj-
unum til borunar eftir heitu
vatn og gufu, hefur nú verið sett-
ur upp á opnu svæði við Nóatún,
neðan Laugavegs. Turn borsins
gnæfir þar við himin.
Jarðbor þessi er mikið mann-
virki að sjá. Hann mun þó vera
af minnstu gerð slíkra bora, en
þeir eru notaðir til þess að bora
eftir olíu.
Borinn, sem er á hreyfanlegum
vagni, getur borað 700 metra
djúpa holu. Borunin sjálf fer
þannig fram að á enda borsins
eru þrjú tennt hjól, en þessi tann
kefli snúast í sífellu og mylja
bergið undir sér. Stærsta gerð
slíkra bora getur borað niður á
4000—5000 m dýpi.
Við borinn eru tvær dælur,
önnur dælir vatni niður í borhol-
una til þess að auðvelda borun-
ina og til þess að kæla borinn.
Hin dælan, en þær eru hvor um
14 ára skáti bjargaði 8
ára dreng frá drukknun
UM klukkan 21,30 á sumardaginn
fyrsta var 8 ára drengur, Halldór
Halldórsson, Sólvallagötu 19 að
leika sér á hjóli á hafnarbakkan-
um, við Loftsbryggju. Hafði hann
hjólað eftir mjóu bili framan við
vörugeymslu Skipaútgerðar Rík-
isins sem þarna stendur. Halldór
litli hjólaði á vír sem þarna ligg-
ur og féll við það í sjóinn ásamt
hjólinu. Hásjávað var og Halldór
ósyndur. Enginn fullorðinn var
þarna nærstaddur, en 3 börn á
sama reki og Halldór, sáu þegar
hann féll fram af bakkanum og
hrópuðu á hjáip.
Þórður Eiríksson, Ásgarði 71,
14 ára gamall, sem er skáti, var á
gangi í Tryggvagocu og heyrði
til þeirra, hljóp til og þreif björg-
unarhring frá Slysavarnafélagi
íslands, sem þarna var nálægt og
kastaði honum til Halldórs, sem
náði honum. Þórður dró Halldór
fram með Loftsbryggjunni, þar
til hann gat náð honum upp.
Halldór litli sem hafði drukkið
lítils háttar sjó, kastaði upp, þeg-
ar Þórður hafði komið honum
upp á bryggjuna, en Halldór jafn
aði sig mjög fljótlega. Þórður fór
úr jakkanum og færði Halldór í
sinn jakka og fór með hann heim
á Sólv&llagötu. Þórður fór síðan
ásamt föður drengsins og náðu
þeir upp hjólinu. Halldóri litla
varð ekki meint af volkinu, og
má þakka það snarræði Þórðar
sig 200—300 hestafla, dælir
upp úr borholunni leðjunni sem
myndast.
Hentugast var að byrja að bora
hér í Reykjavík, því að hér er að-
staðan bezt til að setja borinn
saman og til að þjálfa bormenn-
ina, um leið og leitað er eftir
meira af heitu vatni til hagsbóta
fyrir bæjarbúa.
í gær voru vélamennirnir, sem
unnið hafa að samsetningu bors-
ins, undir handleiðslu bandarísks
vélamanns, svo langt komnir, að
þeir sögðu tíðindamanni Mbl., að
ekkert myndi til fyrirstöðu að
taka til óspilltra máianna við bor
un þarna við Nóatúnið, þegar eft-
ir helgina. Við erum langt komn-
ir með að sannprófa vélarnar.
Þarna í Nóatúni á að bora eftir
heitu vatni fyrir Hitaveituna og
á þessum stað vona sérfræðing-
ar að þeir komi niður á heita-
vatnsæð.
Þegar borinn er að verki þarf
fimm menn til að stjórna hon-
um.
Keflavík eignasf
norræna vinabæi
KEFLAVÍK, 2. maí — Fyrir
milligöngu Keflavíkurdeildar
Norræna félagsins hefur Kefla-
vík nú eignast sína vinabæi á
Norðurlöndum. Samþykkt var
á bæjarstjórnarfundi að Kefla-
víkurbær tengist vináttuböndum
við eftirtalda bæi: Kristianssand
í Suður-Noregi, Hjörring á Norð-
ur-Jótlandi, Trollháttan í Sviþjóð
og Kerava í Finnlandi, en sá bær
er skammt norður af Helsinki.
I Keflavíkurdeild Norræna félags
ins eru nú um 60 meðlimir, og
er Alfreð Gíslason bæjarfógeti
formaður deildarinnar. —Ingvar.
Fékk 1000 kg af
þorski úf af Þjótun-
um og Hólmunum
AKRANESI, 2. maí. — Fjórtán
netjabátar, sem voru á sjó á mið-
vikudaginn, komu með samtals
144 lestir. Aflahæstur var Ólafur
Magnússon með 15 lestir. Hingað
kom togarinn Bjarni Ólafsson í
morgun með um 230 lestir eftir
að hafa verið tólf daga að veiðum
200 lestir eru þorskur, hitt karfi.
Frá hádegi til kl. 7 í gær fengu
tveir menn, sem voru á smátrillu
út af Þjótunum og Hólmunum,
1000 kg af ljómandi fallegum
þorski á handfæri.
Afli Sandgerðisbóla 7342 lestir ó
móti 6883 lestum ó sama tíma
í fyrra
SANDGERÐI, 2. maí — S. 1.
hálfan mánuð hafa gæftir verið
sæmilegar fyrir Sandgerðisbáta.
Hafa bátarnir farið 9—13 róðra
hver, og alls hafa þeir farið 172
róðra á móti 87 róðrum á sama
tímabili í fyrra. Þennan hálfa
mánuð *r keildarafli bátanna
1133 lestir á móti 387 lestum á
sama tímabili í fyrra. Mestan
afla í róðri fékk Svanur, 16,5
lestir, annar var Pétur Jónsson
með 15,6 lestir og þriðji Guð-
björg með 13 lestir.
Mestan afla á þessum hálfa
mánuði fékk Svanur, 125,5
lestir í net, næstur var Pétur
Jónsson með 102 lestir í net,
þriðji Guðbjörg með 94,5 lestir á
línu og fjórði Viðir II með 80
lestir á línu. Mestan afla frá
vertíðarbyr j un hefur Guðbjörg
645 lestir, næstur er Pétur Jóns-
son með 605,5 lestir og þriðji
er Víðir II með 584 lestir.
Afli Sandgerðisbáta er í april-
lok alls 7342 lestir í 1203 róðr-
um, móti 6883 lestum í 1277 róðr-
um á sama tíma í fyrra. Afli er
nú tekinn að verða tregur hjá
bátunum, en þó munu þeir halda
eitthvað áfram að róa. —Axel.