Morgunblaðið - 04.06.1958, Page 9
Miðvikudagur 4. júní 1958
MOKC.rvnr 4ðið
9
Útvarpsrœða Friðjóns ÞórSarsonar,
tlutt í fyrrakvöld
Herra forseti.
SAMKVÆMX stjórnarskrá ís-
lands njóta alþingismenn mikilla
réttinda og frelsis tii orðs og æð-
is, og eru eingöngu bundnir við
sannfæringu sína. Á liinn bóginn
ber þeim og að rækja ríkar skyld
ur við land og þjóð. Meginskylda
þeirra við kjósendur, fólkið i
landinu, hlýtur að vera sú að
koma heiðarlega fram og standa
við orð sín og eiða, svo sem fram
ast er unnt.
Það fer nú að líða að tveggja
ára afmæli hæstvirtrar ríkis-
stjórnar, hinnar samvirku for-
ustu vinstri manna. Er því eðli-
legt að flytja henni stutta afmæl-
iskveðju í eldhúsi þingsins og
beina til hennar nokkrum skeyt-
um, byggðum á orðum hennar og
athöfnum um nær tveggja ára
skeið. Sem betur fer hafa mörg
einkunnarorð hennar og yfirlýs-
ingar geymzt í skráðum heimild-
um, sem unnt er að grípa til og
draga fram í dagsljósið. Ella gæti
vafalaust orðið erfitt um sannan-
ir.
Tvö loforð
Vorið 1956 lögðu Framsóknar-
menn mikla áherzlu á tvennt:
Efnahagsmálin skyldu leyst til
frambúðar með varanlegum úr-
ræðum að undangenginni úttekt k°siaði-
á þjóðarbúinu í augsýn alþjóðar.
Herinn átti að víkja úr landi.
Þetta og margt fleira taldi Tím-
inn auðvelt að framkvæma með
því skilyrði, að Sjálfsíæðisflokk-
urin kæmi hvergi nærri. Til að
undirstrika enn betur hin fögru
fyrirheit, gaf Hræðslubandalagið
svokallaða út bækling, stefnu-
skrá umbótaflokkanna, með for-
síðumynd af bónda og sjómanni,
er takast í hendur. Það er hand-
hægt að bera saman loforð þessa
pésa um gull og græna skóga við
þær efndir sem orðið hafa. Á
hinn bóginn eru engin tök á því,
að gera því efni tæmandi skii á
örfáum mínútum. Það eru mörg
dagsverk. Einstök dæmi verða að
nægja. En niðurstaðan er alls
staðar hin sama: Hæstvirt ríkis-
stjórn hefur gengið á bak orða
sinna í einu og öllu. —
þeir blessun sína yfir alla klæki
og svik hræðslubandalagsins, er
þeir höfðu áður kallað svo. Það
má því segja, að vinstri flokk-
arnir allir hafi átt sinn þátt í til-
ræðinu við stjórnarskrána, er
margir töldu brot á meginreglum
réttar og siðgæiðs. En það er kapí
tuli út af fyrir sig, sem alþjóð
er kunnur. „111 var þín fyrsta
ganga“, má því segja um hæst-
virta ríkisstjórn og hefur fram-
haldið orðið eftir því.
Bankamálin
Það má að vísu finna þess
dæmi, að hæstvirt ríkisstjórn hafi
reynt að efna orð sín, þegar hún
taldi það sér í hag. Hún hét því
að „endurskoða bankakerfið, m.
a. með það fyrir augum að koma
í veg fyrir pólitíska misnotkun
bankanna". Þetta loforð efndu
stjórnarliðar dyggilega á sína
vísu, á þann hátt að sölsa undir
sig öll yfirráð í bönkum lands-
ins, er þeir töldu mestan slæg í,
og lyfta helztu gæðingum sínum
til æðstu valda. En svo var harð-
ur aðgangur, þegar þessi fengur
kom til skiptanna, að við lá, að
full vinslit yrðu þegar í upphafi
og allur þingheimur stjórnar-
sinna berðist. Allir vildu þeir fá
sína silfurpeninga, hvað sem það
gleymt
sinn.
landbúnaðinum í þetta
Með „bjargráðunum" eru lagðar
þungar byrðar á bœndur
Ríkisstjórnin mun falla
á vanefndum sínum
Ekki skyldi unnið með
kommúuistum
Eitt var það, sem bandalag Al-
þýðu- og Framsóknarflokks lagði
höfuðáherzlu á fyrir síðustu al-
þingiskosningar, en það var, að
ekki kæmi til mála að vinna með
kommúnistum. Slíkar yfirlýsing-
ar voru margoft endurteknar í
blöðum flokkanna í útvarpsum-
ræðum, á "fundum og í einkavið-
tölum. Þessi yfirlýsing kom m.a.
mjög greinilega fram á forsiðu
Tímans á sjálfan kjördaginn,
sunnudaginn 24. júní 1956. Þar
segir svo m.a., með leyfi hæstv.
forseta:
„Eins og margbúið er að
lýsa yfir af hálfu Alþýðu.
flokksins og Framsóknar-
flokksins verður ekkert sam-
starf haft við þetta bandalag
kommúnista um stjórn, af þvi
að þeir eru ekki hóti sam-
starfshæfari en áður, þótt þeir
hafi skipt um nafn“.
Þetta sagði Tíminn á kosn-
ingadaginn, en ekki var þetta
Tímablað orðið mánaðargamait,
þegar búið var að mynda ríkis-
stjórn, þar sem komúnistar voru
stærsti stuðningsflokkurinn og
raunverulegir leiðsögumenn í
flestum efnum. Á Alþingi lögðu
Samgöngumálin
Það verður ekki annað sagt en
að bandalag þeirra, er sjálfir
nefndu sig umbótaflokka, hafi
gefið landbúnaðinum og dreifbýl
inu fögur fyrirheit. í framfara-
áætlun þeirra var rætt um bætta
tækni og jafnvægi í byggð lands-
ins, aukna rafvæðingu, eflingu
landbúnaðar og aukið lánsfé til
framkvæmda, bættar samgöngur
og hagstæða verzlun. Er þó fátt
eitt talið. Tökum samgöngumálin
sem dæmi til nánari athugunar.
Það dylst engum, sem eitthvað
þekkir til í sveitum landsins, að
góðar og greiðar samgöngur eru
eitt allra stærsta hagsmunamál
þeirra. Góðir vegir eru jafn nauð
synlegir til að draga lífsnauðsynj
ar til búanna og koma afurðum
þeirra á markað. Samgönguerfið-
leikar og einangrun eru skæðustu
óvinir íslenzkra sveita.
Því ber ekki að neita, að stór-
felldar umbætur hafa átt sér stað
í samgöngumálum landsmanna
undanfarin ár. Vegakerfið hefur
verið aukið og endurbætt og
margar brýr verið byggðar yfir
ár og torfærur. Þrátt fyrir þetta
eru mörg byggðarlög enn illa á
vegi stödd og búa við mikið ör-
yggisleysi, einkum að vetrarlagi.
í þessu efni er mjög fróðlegt að
kynna sér hið merka og ítarlega
álit, sem milliþinganefnd í sam-
göngumálum skilaði snemma á
þessu ári. Nefnd þessi var skip-
uð skv. þingsályktun frá 15. marz
1956. Álit hennar og tillögur
byggjast m.a. á upplýsihgum frá
sýslunefndum og bæjarstjórnum
hvaðanæva að af landinu og sýna
ljóslega, hversu brýn hagsmuna-
mál er hér um að ræða.
Fjárveitingar minnkaðar
Það er nú ljóst orðið, hver af-
staða núverandi ríkisstjórnar er
til þessara lífsnauðsynlegu fram
kvæmda. Á sama tíma ©g fjárlög
hafa hækkað og þanizt út á nær
öllum sviðum sl. tvö ár, virðist
það hafa verið eina sparnaðar-
mál hæstvirts fjármálaráðherra
að skera stórlega níður fjáveit-
ingar til nýbyggingar þjóðvega.
Þannig lagði hann til í fjárlaga-
frumvarpi sínu á sl. hausti, að
fjárveiting til vegaframkvæmda
yrði lækkuð úr tæpum 16 millj.
kr., sem hún var á f járlögum árs-
ins 1957, niður í 12 millj. króna.
Það er fróðlegt og furðulegt
í senn, að slík tillaga skuli fram-
borin af þeim flokki, sem jafnan
hefur talið sig réttborinn til að
ráða öllu í sveitum landsins og
kveðst bera hag bændastéttarinn-
ar í fyrir brjósti öllum öðrum
fremur.
Þegar á átti að herða, og Fram
sókn varð vör við ákveðna af-
stöðu Sjálfstæðismanna 1 þessu
máli, þorði hún ekki að halda
tillögu þessari til streitu. Leikar
fóru þannig. að fjárveiting til ný-
byggingar þjóðvega var hækkuð
upp í tæpar 16 millj. kr., eða
sömu fjárhæð og sl. ár.
Það er auðsætt, að hér er í raun
og veru um stórlækkaða fjárveit-
ingu að ræða. Kostnaður við
vegagerð hefur vaxið til muna sl.
tvö ár og þjóðin fær styttri nýja
vegi á komandi sumri og færri
brýr en undanfarin ár fyrir sömu
fjárveitingu að krónutölu, hvað
þá nú, eftir að bjargráðalögin
nýju hafa tekið gildi.
Það er að vísu nauðsynlegt og
sjálfsagt að gæta fyllsta sparnað-
ar og hófsemi í meðferð ríkis-
fjár. En Sjálfstæðismenn teija
fráleitt að draga úr framlögum
til vegagerða á sama tíma og fjár
austur og eyðsla fer í vöxt á öll-
um öðrum sviðum. Þess vegna
flutti Jón Pálmason, þingmaður
Austur-Húnvetninga, tillögu í
samvinnunefnd samgöngumála á
Alþingi. um að hækka umrædda
fjárveitingu til vega í 20 millj.,
en stjórnarliðið í nefndinni
skellti við skollaeyrum og stakk
tillögu þessari undir stól.
Landbúnaðurinn og
„bjargráðin“
Þetta Alþingi er orðið ærið
langdregið. Þingfundir í hvorri
deild eru komnir nokkuð á ann-
að hundrað, þó að flestir hafi
þeir verið stuttir. í byrjun febr.,
þegar fundir hófust að nýju eftir
jólaleyfið, stakk formaður þing
flokks Sjálfstæðismanna upp á
því, að fundum yrði frestað, unz
úrræði ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálunum lægju fyrir. Þess-
um tilmælum var ekki sinnt, en
þingmenn hafa setið og beðið svo
mánuðum skiptir eftir „bjargráð-
unum“ svokölluðu.
Hæstvirtur fjármálaráðherra
telur bjargráðalög ríkisstjórnar-
innar stórkostlegt hagsmunamál
fyrir landbúnaðinn, sbr. ræðu
hans, er birtist í Tímanum fyrir
skömmu. Betur, að svo væri. Ég
held þó, að bændum hrjósi al-
mennt hugur við þessum síð-
bornu úrræðum vinstri stjórnar-
innar. Samkvæmt þeim á allt að
hækka, jafnvel brýnustu lífs-
nauðsynjar, svo sem kornvörur,
kaffi og sykur um a.m.k. 15%.
Búsáhöld, hreinlætisvörur og
skófatnaður um 25—27%. Land-
búnaðarvéiar, sem bændur eru
löngu búnir að panta og voru
látnir greiða fullu verði í vetur,
eiga nú að hækka yfir 30%, endá
voru umsóknir bænda um þær
látnar bíða eftir bjargráðunum,
eins og svo margt annað. Rekstr-
arvörur landbúnaðarins munu
allar stórhækka. Innfluttar fóð-
urvörur t.d. um 43%. Byggingar-
efni hækkar til muna. Þetta eru
aðeins nokur dæmi. En hvað eiga
bændur að fá í staðinn? Jú, þeir
eiga að fá 5% kauphækkun með
haustinu og þeir, sem selja mjólk,
fá samsvarandi hækkun miðað
við 1. júní. Getur svo hver og
einn séð, hversu hagstæð útkom-
an verður og væri synd að segja,
að stjórnarflokkarnir hefðu
Samstarf Framsóknar og
kommúnista
Þá eru aðgerðir þessar ekki
sérlega uppörvandi fyrir þá, sem
eru að hefja búskap í sveitum
landsins. Samkvæmt framfara-
áætlun ,umbótaflokkanna‘ átti að
koma upp við Búnaðarbankann
sérstakri lánadeild, er veitti frum
býlingum hagstæð lán. Ennfrem-
ur skyldi hafin veiting -bústofns-
lána. — Raunin er þó sú, að frum
býlingar hafa nær enga lánsfjár-
möguleika og veðdeild Búnaðar-
bankans er galtóm og meira en
það.
Hitt er svo athyglisvert, að í
ríkisstjórninni gengur ekki hníf-
urinn á milli Framsóknarmanna
og kommúnista, nema þá rétt til
málamynda, og ekki hefur
heyrzt ein einasta óánægjurödd
frá bændafulltrúum Framsóknar
Fi'iðjón Þórðarson
flokksins um stjórnarsamstarfið
og stjórnarstefnuna. Og eftir bæj
arstjórnarkosningarnar í vetur,
sem hleyptu uggvænum hrolli i
allt stjórnarliðið, sagði hæstvirt-
ur forsætisráðherra, að úrslit
þeirra ættu að kenna stjórnarlið-
um, að nú væri höfuðnauðsyn að
taka upp enn nánara samstarf en
áður.
Aðalfundur Hús-
mæðraféíags
Reykjavíkur
NÝLEGA var haldinn aðalfundur
Húsmæðrafélags Reykjavíkur í
húsakynnum félagsins í Borgar-
túni 7. Á síðastliðnu ári hefur
félagið haldið saumanámskeið og
haft með höndum sýnikennsht,
eins og undanfarin átta ár. Á
þessu tímabili munu 3000 konur
hafa sótt námskeiðin og saumað
um 6000 stykki.Á fundum Hús-
mæðrafélagsins í vetur hf'ta ver-
ið tekin fyrir mörg mál, svo sera
dýrtíðarmálin, skattamál
hjóna, áfengisvarnarmai n og í
sambandi við pau upptok'jneimi'.i
fyrir ungar stúlkur o. fl.
Þrátt fyrir aukin útgjöld, er
fjárhagur félagsins góður og mun
bazar félagskvenna eiga sinn
þátt í því. Á aðalfundinum var
stjórnin endurkjörin. Hana skipa:
Jónína Guðmundsdóttir. formað-
ur, Inga Andreasen, varaformað-
ur. Soffía Ólafsdóttir, ritari,
Margrét Jónsdóttir, gjaldgeri,
Þórdís Andrésdóttir, Þóranna
Símonardóttir og Kristín Bjarna-
dóttir, kemur í stað Guð-
rúnar Ólafsdóttur, sem lézt á
árinu.
Að aðalfundarstörfum loknum
urðu umræður um tilhögun
rjómasölui.nar í bænum. Lýstu
fundarkonur óánægju sinni yfir
þeirri ráðstöfun Mjólkursamsöl-
unnar að hætta að selja rjóma i
lausri vigt, en selja aðeins pe’a
í einu, um leið og verðið á hverj-
um pela var hækkað um 70 aura.
Var einróma samþykkt tiliaga
þar að lútandi.
Ríkisstjórnin hefur sjálf skapað
vandamálin
Það dregur enginn í efa, að
hæstvirt ríkisstjórn hafi átt við
ýmis vandamál að etja, síðan hún
tók við völdum. En mikið af þeim
vanda hefur hún skapað sjálf.
Við síðustu kosningar töldu
stjórnarflokkarnir þ ið allra
meina bót, ef takast mætti að
gera Sjálfstæðisflokkinn áhrifa-
lausann Á síðustu tveim þingum
hafa þeir fylkt liði og sameinast
um að drepa svo að segja hverja
einustu tillögu, sem fram hefur
komið af hendi Sjálfstæðismanna.
Nú loksins, eftir nær tveggja
ára strit, þegar ríkisstjórnin fær-
ir þjóðinni bjargráð sín og finn.
ur gagnrýni og andúð úr öllum
áttum, tekur hún að hrópa ákaft
á tillögur frá Sjálfstæðismönn-
um. Fleiri tillögur til að fella,
áður en hún fellur sjálf. Hæst.
virt rikisstjórn finnur, að hún er
að renna skeið sitt á enda. Við-
fangsefni liennar er nú það eitt
að stritast við að sitja sem lengst.
Það alvarlegasta við bjargráð
hennar er það, að þau eru ein-
ungis til bráðabirgða og munu
varla endast þjóðiuni yfir há-
bjargræðisíímann. sem nú íer í
hönd, hvað þá lengur.
Þetta sér og veit hæstvirt rík-
isstjórn og þetta grunar allan al-
menning. Alþjóð, sem undanfarn
ar vikur hefur fylgzt með skrif-
um stjórnarblaðanna um land-
helgina og. horft á máttvana rík-
isstjórn neyta síðustu orku sinn-
ar til að kasta sjálfu fjöreggi
þjóðarinnar á milli sín í full-
komnu ábyrgðarleysi, getur ekki
borið neitt traust til valdhafanna
lengur.
Núverandi hæstvirt ríkisstjórn
mun falla á vanefndum sínum.
En við skulum vona, að trú allr-
ar þjóðarinnar á landið og fram-
tíð þess lifi. Að menn haldi á-
fram að treysta því hezta í fari
þángræðis og lýðræðis. Að is-
lenzka þjóðin geri þá lágmarks-
kröfu til valdhafanna hverju
sinni, að þeir skýri satt og rétt
frá staðreyndum og gangi aldrel
á bak orða sinna.
2,250 km. upp
í voldostólinn
LEIÐ de Gaulle upp í æðsta
valdastól varð 2,250 km löng. Frá
| sveitasetri hans í Colombey- Les-
Deux-Egilses er 250 km löng leíð
— og frá því de Gaulle fór fyrst
til Parísar til þess að leggja
grundvöllinn að valdatöku sinni
ók hann þessa leið níu sinnum.
Einkabílstjóri hans. Paul Font-
enil, er sagður mjög snjail bíl-
stjóri — og síðustu dagana hefur
ekki verið svefnsamt hjá honum.
Þá 10 daga, sem aðdragandi og
undirbúningur valdatöku de
Gaulle hefur staðið yfir, hefur
Fontenil ekið 10,000 km í ýmsum
grindagjörðum fyrir herforingj-
ann — með hann eða án. Á milli
sveitasetursins og Parísar ekur
hann aldrei undir 130 km hraða
með herforingjann, sem jafnan
er að flýta sér. Fontenil er 49 ára
og orðinn gráhærður, en hann
hefur ekið de Gaulle síðan í lok
styrjaldarinnar. Bíllinn hefur ver
ið heimili Fontenil alla tíð síðan
— og hann hefur á þessum árum
oftar látið fyrirberast í framsæt-
inu yfir nóttina en hann
hefur .sofið heima hjá sér.
Eldur í íbúðarliúsi
DALVÍK, 2. júní. — A sunnu-
daginn kom upp eldu: í íbúðar-
húsinu að Karlsá á Ufsaströnd.
Slökkviliðið hér á Dalvík var
kallað á vettvang. Slökkvistarfið
var auðvelt. Blæjalogn var. —
Brunaskemmciir urðu ekki ýkja—
miklar á husinu, en vatnsskemmd
ir allverulegar.
Innanstokksmunum var flest-
um búið að bjarga út. er slökkvi
liðið kom, lítt skemmdum.