Morgunblaðið - 17.06.1958, Page 19

Morgunblaðið - 17.06.1958, Page 19
Þriðjudagur 17. júní 1958 MORGUNBl 4Ð1Ð 19 22 stúdenfar útskrifaðir úr Verzlunarskólanum LÆRDÓMSDEXLD Verzlunar- skóla Islands var slitið við hátíð- lega athöfn í skólanum í gær, að viðstöddum kennurum, nemendum og aHmörgum gestum. M. a. voru viðstaddir fulltrúar þeirra stúd- enta, sem brautskráðust, fyrir 10 árum og bauð skólastjóri þá sér- stakleg'a velkomna. Samkvæmt skýrslu skólastjóra voru 46 nemendur í lærdómsdeild skólans sl. vetur, 21 í 6. bekk og 2ö í 5. bekk. — Stúdentspróf þreyttu allir nemendur 6. bekkjar og einn utanskóla. Hlutu 14 1. einkunn en 8 aðra einkunn. Efst- ur á stúdentsþrófi varð Gunnar Þór Ólafsson með 7,17 (Örsteds- skali), annar ,arð Margeir Sigur- björnsson með 7,13 og þriðji Garðar V. Sigurgeirsson með 7,00. Er skólastjóri hafði afhent nýju stúdentunum skírteini sín, sæmdi hann þá verðlaunum, sem fram úr höfðu skarað. Þeir Gunn- ar Þór Óiafsson, Margeir Sigur- björnsson, Garðar V. Sigurgeirs- son og Hörður Sigurgestsson hlutu allir bókaverðlaun fyrir ágæta frammistöðu á stúdentsprófi. ■ Gunnar Þór Ólafsson hlaut enn- fremur bókaverðlaun frá Alii- ance Fransais, félaginu Germaníu og félaginu Anglíu fyrir ágæta frammistöðu í frönsku, þýzku og ensku. Margeir Sigurbjörnsson og Rafn Johnson hlutu einnig bóka- verðlaun frá félaginu Anglíu fyr- ir góða enskukunnáttu. Dansk-ís- lenzka félagið veitti þremur stúd- entum verðlaun fyrir góða frammi stöðu í dönsku, þeim Önnu Þráins- dóttur, Guðrúnu Lýðsdóttur og Margeiri Sigurbjörnssyn'i. Garð- ari Sigurgestssyni veittu 10 ára stúdentar verðlaun fyrir ágætis- einkunn í náttúrufræði. Lét skóla- stjóri þess getið, að tveir í hópi tíu ára stúdenta væru starfandi visindamenn á sviði náttúnivís- inda, þeir Högni Böðvarsson, magister í Sviþjóð, og dr. Jakob Magnússon, fiskifræðingur. Bragi Kristjónsson hlaut sérstök verð- laun frá skólanum fyrir óvenju- lega hæfileika á X>ókfræðilegu sviði. Umsjónarmaður 6. bekkjar, Hróbjartur Hróbjartsson, hlaut sértaka viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Óskar Yngvarsson í 5. bekk, sem fékk hæstu einkunn í lærdómsdeilJ, 7,25, hlaut bókar- verðlaun frá skólanum. Að lokum ávarpaði skólastjóri nýju stúdentana og brýndi sér- staklega fyrir þeim að nota tím- ann sem bezt. Sagði hann m. a.: „Skólahald byggist á stundvísi, ástundun og reglusemi. Er það svo alkunnugt að óþarft ætti að vera að taka slíkt fram. En því miður eru þessar dygðir ekki eins almennar í þjóðfélagi voru og vera þyrfti. Nú má segja að um seinan sé að brýna þetta fyrir ykkur nú, er þér eruð að kveðja skólann. En þvi er til að svara, að þér eigið nú fyrir höndum miklu lengri cg erfiðari skólagöngu. — 1 skóla lífsins sjálfs verðið þér öll nemendur svo lengi sem yður mun Iíf er.dast. Og þar riður ekki síður á þeim höfuðdygðum, sem prýða hvern gó*an mann í skóla, skyldurækni, drengskap og stund- vísi“. Er skólastjóri hafði lokið máli sínu, tók til máls Jakob Magnús- son, fiskifræðingur. Flutti hann skólanum þakkir og árnaðaróskir 10 ára stúdenta, og færði skólan- um ágæta bókagjöf frá þeim fé- lögum. Skólastjóri þakkaði ræðu- manni og þeim féiögum öllum fyr- ir góðar gjafir og sagði lærdóms- deild Verziunarskólans slitið að þessu sinni. Þriggja manna sendi- nefnd frá Fœreyjum komin til K.-hafnar Stef vill fá útvarps stöðvarleyfi Mbl. hefur borizt frá Stefi eftirfarandi bréf, sem það hefur sent ríkisstjórninní: MED tilliti til þess að ríkisstjórn Islands hefur lagt svo fyrir að veita skuli varnarliðinu á Kefla- víkurflugvelli leyfi til að reka út- varpsstöð, vill Tónskáldafélag Is- lands — svo fremi ríkisstjórnin hyggst að standa að því að slík leyfisveiting sé lögleg — hér með virðingarfyllst leyfa sér að fara þess á leit að hún veiti einnig Tónskáldafélagi Islands leyfi til að reka sérstaka útvai-ps- stöð — en í því tilfelli til að kynna íslenzka tónlist og íslenzka menningu. Dagskrár Keflavíkur- útvarpsins óg Ríkisútvarpsins kynna mestmegnis erlenda tónlist, og ekki hafa enn verið tök á að kynna íslenzka tónlist með svip- uðum hætti. Vér treystum bví að hæstvirt rikisstjórn sjái sér fsert að svara tilmælum vorum svo fijótt að undirbúningur að vetrardagskrá geti hafizt bráðlega. KAUPMANNAHÖFN, 16. júní — A skrifstofu forsætis- og utan- ríkisráðherrans, H. C. Hansens, hófust í dag viðræður um fisk- veiðilögsögu Færeyja. Stóðu um- ræðurnar fram á kvöld og hefj- ast aftur árdegis á morgun. Af hálfu Færeyja taka þátt í við- ræðunum Kristian Djurhuus, lög- maður, Ole Jacob Jensen, er fjall ar um sjávarútvegsmál í fær- eysku landsstjórninni, skrifstofu- stjóri landsstjórnarinnar Johan Djurhuus og umboðsmaður Dana í Færeyjum, Elkær-Hansen. Eins og áður er kunnugt, hafði Hansen beðið alla færeyska stjórn málaflokka í Færeyjum að senda fulltrúa til Kaupmannahafnar til að ræða samþykkt lögþingsins um 12 mílna fiskveiðilögsögu. Meirihluti flokkanna hafnaði þessu boði á þeim forsendum, að engu yrði um þokað í samþykkt lögþingsins, og mæltist Hansen Samsöngur Karla- kórs Akureyrar KARLAKÓR AKUREYRAR hélt söngskemmtun í Austurbæjarbíói fimmtudaginn 5. þ. m. við góða aðsókn og ágætar undirtektir áheyrenda. Kórinn hefur verið á ferðalagi um Suðvesturland og sungið á Akranesi, Selfossi, Hafn- arfirði og i Keflavík. Kórinn er vel samæfður og hef- ur söngstjórinn, Áskell Jónsson, mjög góð tök á honum og stjórn- ar hann kórnum með festu og myndugleik. Þó eru á stundum ekki nógu mikil litbrigði í söngn- um — og lítill munur á píano og forte — en grátt og flatneskju- legt mezzo-forte of mikið ríkj- andi. Eigi að síður var mjög ánægjulegt að hlýða á kórinn og er þakkarvert þegar kórar utan af landi koma hingað og láta til sín heyra. Kórinn söng 15 innlend og er- lend lög, í sumum þeirra annað- ist ungfrú Guðrún Kristinsdóttir undirleik á pianó — mjög smekk- lega, svo sem vænta mátti. Ein- söngvarar með kórnum voru tenorarmr Jóhann og Jósteinn Konráðssynir og bassinn Eiríkur Stefánsson, sem skiluðu sínum hluta með prýði. SöngStjóra, undirleikara og einsöngvurum bárust blómvendir og varð kórinn að syngja mjörg aukalög. Söngskemrntun þessi var kórnum og öllum, sem hlut eiga að máli til sóma — hafið kærar þakkir fyrir komuna. Vikar. Ánægjuleg íerð FYRIR nokkrum dögum birti út- varpið víðtal við Svein Þórðarson, aðalféhirði Búnaðarbanka Islands, i sambandi við störf Reykvíkinga- félagsins. Fórust honuni þanrig orð, að þetta væri féiag „hinna kyrrlátu Reykvíkinga". Og sann- ariega hefur þetta félag ekki lát- ið mikið yfir sér, hvorki með aug lýsingum eða neins konar bram- bolti. En þo hefur félag þetta starfað í 18 ár, og á talsverðar eignir. Félagið heldur nokkuð reglulega fundi, þar sem eldri og yngri félagar koma saman, rabba saman og rifja upp gamlar end- urminningar. Auk þess eru á fundunum sýndar kvikmyndir, flutt erindi um Reykjavík, söng- ur og listrænn tónlistarflutning- ur o. fl. Og þarna ríkir einhugur og samheldni. En nú hefur Reykvikingafélag- ið ákveðið að hefja „sumarstarf- semi“ og var byrjað með ferð til Akraness. Þetta myndarlega pláss er nú á hvers manns vörum vegna þeirrar stóriðju sem þar er nú að rísa upp, sem er Sementsverk- smiðjan. Að vísu voru veðurguð- irnir félaginu dkki að öllu leyti hliðhollir, en gestrisni Akurnes- inga bætti það upp og margir áttu þar vini og kunningja. Ég, sem þessar línur rita, átti þess kost, að vera með sem gestur. Er mér Ijúft að -egja það, að ég hef óvíða verið með í hópferð, þar sem jafnmiki' ánægja, eining og sam- hugur hefur ríkt. — Haldið var heim af Akranesi um kvöldið í glampandi kvöldsólarskini. Hafði veður þá batnað, og var siglt í blíðasta veðri — heim til Reykja- víkur. Einn úr stjórn Reykvíkinga félagsins lét svo um mælt, að alls staðar nyti félagið góðvildar bæjarbúa o. fl., til dæmis hefði stjórn hf. Skallagríms, skipstjói o. skipshöfn á ms. Akraborg, sýnt félaginu sérstaka góðvild og góða fyrirgreiðslu í sambandi við þetta ánægjulega ferðalag. Ferðulangur. því til þess, að lögmaðurinn kæmi einn. Eyjaskeggjar bjartsýnir um síldarvertíð VESTMANNAEYJUM, 16. júni: Það er ekki hægt að segja, að svartsýni gæti meðal Vestmanna eyinga þegar síldveiðarnar ber á góma. Þetta er svo líka í raun- veruleikanum. Héðan munu fara fleiri bátar til sildveiða við Norð urland en nokkru sinni fyrr í út- gerðarsögu Vestmannaeyja, eða alls 41 skip. f fyrra var tala sild- arbátanna liðlega 30. Aðeins 5 eða 6 bátar voru þá með sæmilegan afla og gaf vertíðin því ekki til- efni til þeirrar bjartsýni, sern nú er ríkjandi hér. Fimmtán bátar eru farnir norður, en hinir munu fara í þessari viku og um næstu helgi. —Bj. Guðm. Krúsj’eff segir Veslorveblin ófús til samkomu- lags MOSKVU, 16. júni — Tassfrétta- stofan birti í kvöld útdrátt úr bréfi sem sovézki forsætisráð- herrann Krúsjeff sendi Eisen- hower Bandaríkjaforseta nýlega. f bréfinu lætur Krúsjeff í ljósi efa um, að forráðamenn Vestur- véldanna óski raunverulega eftir fundi æðstu manna stórveldanna. Segir hann i bréfinu, að ekki verði betur séð en að tilgangur- inn með ósk Vesturveldanna um undirbúningsviðræður sé sá að hindra fund æðstu manna. Tími sé nú kominn til, að báðir aðil- ar geri ljósa grein fyrir því, hvort þeir óski eftir slikum fundi eða ekki. Ber Krúsjeff Vesturveld- unum á brýn, að þau vilji á stórveldafundi ræða ótímabær vandamál, sem ekki sé hægt að leysa, svo að þau geti síðar bent á, að þau hafi spáð rétt um, að fundurinn muni engan árangur bera. Myndlistar- og listiðnaðar- happdrætti Á MORGUN verður dregið I Myndlistar- og listiðnaðarhapp drætti Sýningarsalarins, Hverfis- götu 8—10. Sýning á vinningum er opin í salnum og miðar seldir þar frá kl. 2—7 e. h. : dag. Á happdrættissýningunni eru verk m. a. eftir Ásmund Sveins- son, Jóhannes S. Kjarval, Svavar Guðnason, Kristínu Jónsdóttur, Nínu Tryggvadóttur, Jón Engil- berts, Sigurjón Ólafsson, Þorvald Skúlason, Barböru Árnason, Sig- rúnu Jónsdóttur og Ragnar Kjart- ansson. simanumer okkar er 2-24-80 Þakka innilega ættingjum, félögum og vinum fyrir heim- | sóknir, gjafir og skeyti á 75 ára afmælinu. j Lifið heil. Gmðmundur Bjarnason, bakari. | Hjartanlega þakka ég öllum þeim, fjær og nær, börnum mínum, tengdabörnum og öðrurn vinum, sem heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum á sjötugsafmæli mínu þann 5. júní síðastliðinn. Hamingjan fylgi ykkur öllum ævinlega. Elísabet Kemp, Skagaströnd. Hugheilar þakkir mínar vil ég færa öllum vinum og vanda- mönnum fyrir allar þær miklu gjafir, kveðjur og heimsókn er gerði mér fimmtugsafmælisdaginn, 3. júní, ógleyman- legan. — Lifið heil. — Guð blessi ykkur öll. María Tómasdóttir, Borgarnesi. Móðir okkar JÚLÍA STEINUNN ÁRNADÓTTIR andaðist í Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, sunnudaginn 15. þessa mánaðar. Börnin. Eiginmaður minn KRISTJÁN KRISTJÁNSSON skipstóri andaðist 16. júní Guðrún Hafliðadóttir. Maðurinn minn TÓMAS M. GUÐJÓNSSON útgerðarmaður Vestmannaeyjum, andaðist laugardtglnn 14. júní s.l. Fyrir hönd vandamanna. Sigríður Magnúsdóttir. Bróðir okkar JÓN MAGNÚSSON frá Hafnarhólmi, andaðist í Vancouver 31. mai s. 1. Fyrir hönd systkina og annarra ættingja. Eymundur Magnússon, Bárugötu 5. Stjúpdóttir mín og systir okkar ANNA GUNNARSDÓTTIR andaðist í Landsspítalanum 14. þessa mánaðar. Margrét Friðriksdóttir og systkini. Útför móður okkar GUNNÞÓRUNNAR GÍSUADÓTTUR sem andaðist 12. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju mið- vikudaginn 18. þ.m. Guðrún Hinriksdóttir, Hallsteinn Hinriksson. Þökkum auðsýnda samúð við fráfall JÓHANNS SAMÚELSSONAR Árndís Árnadóttir, Guðrún Samúelsdóttir, Ingvi Samúelsson, Þórunn Samúelsdóttir, Guðmundur Samúelsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.