Morgunblaðið - 17.06.1958, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 17. júní 1958
MORGUNBl 4Ð1Ð
19
22 stúdenfar útskrifaðir
úr Verzlunarskólanum
LÆRDÓMSDEXLD Verzlunar-
skóla Islands var slitið við hátíð-
lega athöfn í skólanum í gær, að
viðstöddum kennurum, nemendum
og aHmörgum gestum. M. a. voru
viðstaddir fulltrúar þeirra stúd-
enta, sem brautskráðust, fyrir 10
árum og bauð skólastjóri þá sér-
stakleg'a velkomna.
Samkvæmt skýrslu skólastjóra
voru 46 nemendur í lærdómsdeild
skólans sl. vetur, 21 í 6. bekk og
2ö í 5. bekk. — Stúdentspróf
þreyttu allir nemendur 6. bekkjar
og einn utanskóla. Hlutu 14 1.
einkunn en 8 aðra einkunn. Efst-
ur á stúdentsþrófi varð Gunnar
Þór Ólafsson með 7,17 (Örsteds-
skali), annar ,arð Margeir Sigur-
björnsson með 7,13 og þriðji
Garðar V. Sigurgeirsson með 7,00.
Er skólastjóri hafði afhent
nýju stúdentunum skírteini sín,
sæmdi hann þá verðlaunum, sem
fram úr höfðu skarað. Þeir Gunn-
ar Þór Óiafsson, Margeir Sigur-
björnsson, Garðar V. Sigurgeirs-
son og Hörður Sigurgestsson hlutu
allir bókaverðlaun fyrir ágæta
frammistöðu á stúdentsprófi. ■
Gunnar Þór Ólafsson hlaut enn-
fremur bókaverðlaun frá Alii-
ance Fransais, félaginu Germaníu
og félaginu Anglíu fyrir ágæta
frammistöðu í frönsku, þýzku og
ensku. Margeir Sigurbjörnsson og
Rafn Johnson hlutu einnig bóka-
verðlaun frá félaginu Anglíu fyr-
ir góða enskukunnáttu. Dansk-ís-
lenzka félagið veitti þremur stúd-
entum verðlaun fyrir góða frammi
stöðu í dönsku, þeim Önnu Þráins-
dóttur, Guðrúnu Lýðsdóttur og
Margeiri Sigurbjörnssyn'i. Garð-
ari Sigurgestssyni veittu 10 ára
stúdentar verðlaun fyrir ágætis-
einkunn í náttúrufræði. Lét skóla-
stjóri þess getið, að tveir í hópi
tíu ára stúdenta væru starfandi
visindamenn á sviði náttúnivís-
inda, þeir Högni Böðvarsson,
magister í Sviþjóð, og dr. Jakob
Magnússon, fiskifræðingur. Bragi
Kristjónsson hlaut sérstök verð-
laun frá skólanum fyrir óvenju-
lega hæfileika á X>ókfræðilegu
sviði. Umsjónarmaður 6. bekkjar,
Hróbjartur Hróbjartsson, hlaut
sértaka viðurkenningu fyrir vel
unnin störf. Óskar Yngvarsson í
5. bekk, sem fékk hæstu einkunn
í lærdómsdeilJ, 7,25, hlaut bókar-
verðlaun frá skólanum.
Að lokum ávarpaði skólastjóri
nýju stúdentana og brýndi sér-
staklega fyrir þeim að nota tím-
ann sem bezt. Sagði hann m. a.:
„Skólahald byggist á stundvísi,
ástundun og reglusemi. Er það
svo alkunnugt að óþarft ætti að
vera að taka slíkt fram. En því
miður eru þessar dygðir ekki eins
almennar í þjóðfélagi voru og
vera þyrfti. Nú má segja að um
seinan sé að brýna þetta fyrir
ykkur nú, er þér eruð að kveðja
skólann. En þvi er til að svara, að
þér eigið nú fyrir höndum miklu
lengri cg erfiðari skólagöngu. —
1 skóla lífsins sjálfs verðið þér
öll nemendur svo lengi sem yður
mun Iíf er.dast. Og þar riður ekki
síður á þeim höfuðdygðum, sem
prýða hvern gó*an mann í skóla,
skyldurækni, drengskap og stund-
vísi“.
Er skólastjóri hafði lokið máli
sínu, tók til máls Jakob Magnús-
son, fiskifræðingur. Flutti hann
skólanum þakkir og árnaðaróskir
10 ára stúdenta, og færði skólan-
um ágæta bókagjöf frá þeim fé-
lögum. Skólastjóri þakkaði ræðu-
manni og þeim féiögum öllum fyr-
ir góðar gjafir og sagði lærdóms-
deild Verziunarskólans slitið að
þessu sinni.
Þriggja manna sendi-
nefnd frá Fœreyjum
komin til K.-hafnar
Stef vill fá útvarps
stöðvarleyfi
Mbl. hefur borizt frá Stefi
eftirfarandi bréf, sem það
hefur sent ríkisstjórninní:
MED tilliti til þess að ríkisstjórn
Islands hefur lagt svo fyrir að
veita skuli varnarliðinu á Kefla-
víkurflugvelli leyfi til að reka út-
varpsstöð, vill Tónskáldafélag Is-
lands — svo fremi ríkisstjórnin
hyggst að standa að því
að slík leyfisveiting sé lögleg —
hér með virðingarfyllst leyfa sér
að fara þess á leit að hún veiti
einnig Tónskáldafélagi Islands
leyfi til að reka sérstaka útvai-ps-
stöð — en í því tilfelli til að
kynna íslenzka tónlist og íslenzka
menningu. Dagskrár Keflavíkur-
útvarpsins óg Ríkisútvarpsins
kynna mestmegnis erlenda tónlist,
og ekki hafa enn verið tök á að
kynna íslenzka tónlist með svip-
uðum hætti.
Vér treystum bví að hæstvirt
rikisstjórn sjái sér fsert að svara
tilmælum vorum svo fijótt að
undirbúningur að vetrardagskrá
geti hafizt bráðlega.
KAUPMANNAHÖFN, 16. júní —
A skrifstofu forsætis- og utan-
ríkisráðherrans, H. C. Hansens,
hófust í dag viðræður um fisk-
veiðilögsögu Færeyja. Stóðu um-
ræðurnar fram á kvöld og hefj-
ast aftur árdegis á morgun. Af
hálfu Færeyja taka þátt í við-
ræðunum Kristian Djurhuus, lög-
maður, Ole Jacob Jensen, er fjall
ar um sjávarútvegsmál í fær-
eysku landsstjórninni, skrifstofu-
stjóri landsstjórnarinnar Johan
Djurhuus og umboðsmaður Dana
í Færeyjum, Elkær-Hansen.
Eins og áður er kunnugt, hafði
Hansen beðið alla færeyska stjórn
málaflokka í Færeyjum að senda
fulltrúa til Kaupmannahafnar til
að ræða samþykkt lögþingsins
um 12 mílna fiskveiðilögsögu.
Meirihluti flokkanna hafnaði
þessu boði á þeim forsendum, að
engu yrði um þokað í samþykkt
lögþingsins, og mæltist Hansen
Samsöngur Karla-
kórs Akureyrar
KARLAKÓR AKUREYRAR hélt
söngskemmtun í Austurbæjarbíói
fimmtudaginn 5. þ. m. við góða
aðsókn og ágætar undirtektir
áheyrenda. Kórinn hefur verið
á ferðalagi um Suðvesturland og
sungið á Akranesi, Selfossi, Hafn-
arfirði og i Keflavík.
Kórinn er vel samæfður og hef-
ur söngstjórinn, Áskell Jónsson,
mjög góð tök á honum og stjórn-
ar hann kórnum með festu og
myndugleik. Þó eru á stundum
ekki nógu mikil litbrigði í söngn-
um — og lítill munur á píano og
forte — en grátt og flatneskju-
legt mezzo-forte of mikið ríkj-
andi. Eigi að síður var mjög
ánægjulegt að hlýða á kórinn og
er þakkarvert þegar kórar utan
af landi koma hingað og láta til
sín heyra.
Kórinn söng 15 innlend og er-
lend lög, í sumum þeirra annað-
ist ungfrú Guðrún Kristinsdóttir
undirleik á pianó — mjög smekk-
lega, svo sem vænta mátti. Ein-
söngvarar með kórnum voru
tenorarmr Jóhann og Jósteinn
Konráðssynir og bassinn Eiríkur
Stefánsson, sem skiluðu sínum
hluta með prýði.
SöngStjóra, undirleikara og
einsöngvurum bárust blómvendir
og varð kórinn að syngja mjörg
aukalög. Söngskemrntun þessi
var kórnum og öllum, sem hlut
eiga að máli til sóma — hafið
kærar þakkir fyrir komuna.
Vikar.
Ánægjuleg íerð
FYRIR nokkrum dögum birti út-
varpið víðtal við Svein Þórðarson,
aðalféhirði Búnaðarbanka Islands,
i sambandi við störf Reykvíkinga-
félagsins. Fórust honuni þanrig
orð, að þetta væri féiag „hinna
kyrrlátu Reykvíkinga". Og sann-
ariega hefur þetta félag ekki lát-
ið mikið yfir sér, hvorki með aug
lýsingum eða neins konar bram-
bolti. En þo hefur félag þetta
starfað í 18 ár, og á talsverðar
eignir. Félagið heldur nokkuð
reglulega fundi, þar sem eldri og
yngri félagar koma saman, rabba
saman og rifja upp gamlar end-
urminningar. Auk þess eru á
fundunum sýndar kvikmyndir,
flutt erindi um Reykjavík, söng-
ur og listrænn tónlistarflutning-
ur o. fl. Og þarna ríkir einhugur
og samheldni.
En nú hefur Reykvikingafélag-
ið ákveðið að hefja „sumarstarf-
semi“ og var byrjað með ferð til
Akraness. Þetta myndarlega pláss
er nú á hvers manns vörum vegna
þeirrar stóriðju sem þar er nú að
rísa upp, sem er Sementsverk-
smiðjan. Að vísu voru veðurguð-
irnir félaginu dkki að öllu leyti
hliðhollir, en gestrisni Akurnes-
inga bætti það upp og margir
áttu þar vini og kunningja. Ég,
sem þessar línur rita, átti þess
kost, að vera með sem gestur. Er
mér Ijúft að -egja það, að ég hef
óvíða verið með í hópferð, þar sem
jafnmiki' ánægja, eining og sam-
hugur hefur ríkt. — Haldið var
heim af Akranesi um kvöldið í
glampandi kvöldsólarskini. Hafði
veður þá batnað, og var siglt í
blíðasta veðri — heim til Reykja-
víkur. Einn úr stjórn Reykvíkinga
félagsins lét svo um mælt, að alls
staðar nyti félagið góðvildar
bæjarbúa o. fl., til dæmis hefði
stjórn hf. Skallagríms, skipstjói
o. skipshöfn á ms. Akraborg,
sýnt félaginu sérstaka góðvild og
góða fyrirgreiðslu í sambandi við
þetta ánægjulega ferðalag.
Ferðulangur.
því til þess, að lögmaðurinn
kæmi einn.
Eyjaskeggjar
bjartsýnir
um síldarvertíð
VESTMANNAEYJUM, 16. júni:
Það er ekki hægt að segja, að
svartsýni gæti meðal Vestmanna
eyinga þegar síldveiðarnar ber á
góma. Þetta er svo líka í raun-
veruleikanum. Héðan munu fara
fleiri bátar til sildveiða við Norð
urland en nokkru sinni fyrr í út-
gerðarsögu Vestmannaeyja, eða
alls 41 skip. f fyrra var tala sild-
arbátanna liðlega 30. Aðeins 5 eða
6 bátar voru þá með sæmilegan
afla og gaf vertíðin því ekki til-
efni til þeirrar bjartsýni, sern nú
er ríkjandi hér. Fimmtán bátar
eru farnir norður, en hinir munu
fara í þessari viku og um næstu
helgi. —Bj. Guðm.
Krúsj’eff segir
Veslorveblin
ófús til samkomu-
lags
MOSKVU, 16. júni — Tassfrétta-
stofan birti í kvöld útdrátt úr
bréfi sem sovézki forsætisráð-
herrann Krúsjeff sendi Eisen-
hower Bandaríkjaforseta nýlega.
f bréfinu lætur Krúsjeff í ljósi
efa um, að forráðamenn Vestur-
véldanna óski raunverulega eftir
fundi æðstu manna stórveldanna.
Segir hann i bréfinu, að ekki
verði betur séð en að tilgangur-
inn með ósk Vesturveldanna um
undirbúningsviðræður sé sá að
hindra fund æðstu manna. Tími
sé nú kominn til, að báðir aðil-
ar geri ljósa grein fyrir því, hvort
þeir óski eftir slikum fundi eða
ekki. Ber Krúsjeff Vesturveld-
unum á brýn, að þau vilji á
stórveldafundi ræða ótímabær
vandamál, sem ekki sé hægt að
leysa, svo að þau geti síðar bent
á, að þau hafi spáð rétt um, að
fundurinn muni engan árangur
bera.
Myndlistar- og
listiðnaðar-
happdrætti
Á MORGUN verður dregið I
Myndlistar- og listiðnaðarhapp
drætti Sýningarsalarins, Hverfis-
götu 8—10. Sýning á vinningum
er opin í salnum og miðar seldir
þar frá kl. 2—7 e. h. : dag.
Á happdrættissýningunni eru
verk m. a. eftir Ásmund Sveins-
son, Jóhannes S. Kjarval, Svavar
Guðnason, Kristínu Jónsdóttur,
Nínu Tryggvadóttur, Jón Engil-
berts, Sigurjón Ólafsson, Þorvald
Skúlason, Barböru Árnason, Sig-
rúnu Jónsdóttur og Ragnar Kjart-
ansson.
simanumer
okkar er
2-24-80
Þakka innilega ættingjum, félögum og vinum fyrir heim- |
sóknir, gjafir og skeyti á 75 ára afmælinu. j
Lifið heil.
Gmðmundur Bjarnason,
bakari. |
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, fjær og nær, börnum
mínum, tengdabörnum og öðrurn vinum, sem heiðruðu mig
með heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum á sjötugsafmæli
mínu þann 5. júní síðastliðinn.
Hamingjan fylgi ykkur öllum ævinlega.
Elísabet Kemp, Skagaströnd.
Hugheilar þakkir mínar vil ég færa öllum vinum og vanda-
mönnum fyrir allar þær miklu gjafir, kveðjur og heimsókn
er gerði mér fimmtugsafmælisdaginn, 3. júní, ógleyman-
legan. — Lifið heil. — Guð blessi ykkur öll.
María Tómasdóttir,
Borgarnesi.
Móðir okkar
JÚLÍA STEINUNN ÁRNADÓTTIR
andaðist í Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, sunnudaginn
15. þessa mánaðar.
Börnin.
Eiginmaður minn
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
skipstóri andaðist 16. júní
Guðrún Hafliðadóttir.
Maðurinn minn
TÓMAS M. GUÐJÓNSSON
útgerðarmaður Vestmannaeyjum, andaðist laugardtglnn
14. júní s.l.
Fyrir hönd vandamanna.
Sigríður Magnúsdóttir.
Bróðir okkar
JÓN MAGNÚSSON
frá Hafnarhólmi, andaðist í Vancouver 31. mai s. 1.
Fyrir hönd systkina og annarra ættingja.
Eymundur Magnússon,
Bárugötu 5.
Stjúpdóttir mín og systir okkar
ANNA GUNNARSDÓTTIR
andaðist í Landsspítalanum 14. þessa mánaðar.
Margrét Friðriksdóttir og systkini.
Útför móður okkar
GUNNÞÓRUNNAR GÍSUADÓTTUR
sem andaðist 12. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 18. þ.m.
Guðrún Hinriksdóttir,
Hallsteinn Hinriksson.
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall
JÓHANNS SAMÚELSSONAR
Árndís Árnadóttir,
Guðrún Samúelsdóttir, Ingvi Samúelsson,
Þórunn Samúelsdóttir, Guðmundur Samúelsson.