Morgunblaðið - 21.06.1958, Síða 2

Morgunblaðið - 21.06.1958, Síða 2
2 MORCl’NRT 4ÐIÐ Laugardagur 21. júní 1958 — ÚtifundurJnn Framh. aí' bls. 1 verða sér ævarandi varnað gegn hvers konar tillátssemi við riki og stjórnarstefnur, sem sitja á svikráðum við frið og frelsi og eiga allt vald undir samvizku- 'ausum ofbeldisaðgerðum“. Ekki tutla eftir .... Fyrsti ræðumaöur var séra Sigurbjörn Einarsson prófesaor, fulltrúi Stúdentafélags Reykja víkur. — Hann sagði m. a.: l>etta lítilræði, sem Kadar og bræður hans, meiri og minnx, hafa bætt í afrekaskrá sína, á dá- litla forsögu. Það gerðist fyrir tveimur árum rúmum, að svipt var hulu af réttarfari og samlífs- háttum af rússneskri gerð, hulu, sem hafði verið eða átt að vera næsta held þar til. Það var birt öllu mannkyni, að í þessum ríkj- um hefði ekkert verið tíðara á liðnum árum en að taka ménn af lífi fyrir litlar sakir eða eng- ar, auk rakalausra fangelsana og margs konar ójafnaðar annars og siðlausra ofbeldisverka. Þessar afhjúpanir voru merkastar fyrir það, að með þeim var heiminum gefið í skyn, að nú skyldu teknir upp nýir siðir með nýjum herr- um, enda var fyrirdæmingin á glæpum Stalínstímabilsins mein- ingarlaus og marklaus ellegar. Þeir, sem vonuðu, að slík tíma- mót yrðu, voru blekktir. Það er ekki tutla eftir nú af því æru- fati, sem þessir valdamenn færð- ust í á kostnað Stalíns hins bal- sameraða. Þetta er fyrsti þáttur tvævetrar sögu. Með þessum hætti er ekki skipt við kommúnista hér á landl Síðari höfuðþátturinn snertir Ungverja sérstaklega. Sá þáttur er ennþá huggrónari okkur Is- lendingum. Við höfum eðliléga, sjálfkrafa samkennd með hverri þeirri þjóð, sem geldur smæðar sinnar og legu í viðskiptum við aflmeiri nágranna. Ungverjum virtist daga eftir hrollkalda nótt. Þeir drógu mjög svo eðlilegar ályktanir af vel rökstuddum upp- lýsingum um herfileg glæpaverk öreigaalræðisins. Og þeir gerðu þá sanngjörnu kröfu, að undirrót þessara fordæmdu mistaka væri numin brott, hinu algera einræði flokksstjórnarinnar skyldi létt. Og þeir gerðu ennfremur þá kröfu, sem frá íslenzku sjónar- miði var nokkuð sanngjörn, að fjölmennur og öflugur útlendur her, sem beitti ekki aðeins þrá- setu gagnstætt öllum eðlilegum rökum, heldur bar beina ábyrgð á glæpsanalegu stjórnarfari, skyldi hverfa úr landi þeirra. Við vitum og munum, hvernig þessu reiddi af. Ekkert hafði Stalín gamli svartara á samvizk- unni en það, sem gerðist á ábyrgð Ólafur Thors á Selfossfundinum: Hefjum nýja nýsköpun Gefum Framsókn fri — sagbi Siguröur Ó Ólafsson ÓLAFUR THÓRS, formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigurður Ó. Ólafsson alþingismaður voru frummælendur á þjóðmálafundi þeim, sem Sjálfstæðisflokkurinn efndi til að Selfossi í gærkvóldi. Gefum Framsókn frí Sigurður setti fundinn og kvaddi Gunnar Sigurðsson í Seljatungu til að vera fundar- stjóra. Sigurður flutti síðan ræðu. Fjallaði hann fyrst um ýmis héraðsmál, en vék síðan að efnahagsmálunum almennt ' og sagði í lok ræðu sinnar: | Framsóknarmenn neituðu, með an þeir voru í ríkisstjórn með j Sjálfstæðisflokknum, að gera | þær ráðstafanir, sem þurfti að gera í ársbyrjun 1956 til nð stöðva þá dýrtíð, sem leiddi af vérkföllunum 1955. Framsókn rauf siðan stjórnarsamstarfið ag efndi til kosninga á þeim al- röngu forsendum, að efnahags- málin væru lcomin í öngþveiti. Stjórnarflokkarnir hafa nú lagt 1100 millj. kr. nýja skatta á þjóð- ina á 2 árum og viðurkenna þó að aðeins sé um bráðabirgðaráð- stöfun að ræða. Það orkar bví ekki tvimælis, að efnahagsmálin | eru nú komin í algert strand og , atvinnuvegirnir í hættu. Hér á landi verður ekki rekin heilbrigð og réttlát fjármála- stefna, meðan fjármálaráðherr- ann er frá Framsóknarflokknum. Sá flokkur hefur alltof lengi far- ið með fjármál ríkisins og of mik- ið vald í rikisstjórnum. Það verður að gefa honum frí frá þeim störfum í næstu áratugi, en það tekst því aðeins, að þjóð- in veiti Sjálfstæðisflokknum meirihluta á þingi í næstu kosn ingum. Hver er stefna ríkisstjórnarinnar? Ólafur Thors tók síðan til máls, og flutti aðalræðu kvöldsins. Rakti hann gang þjóðmálanna síðustu árin með sérstakri hlið- sjón af viðburðum síðustu mán- aða, og lagði megináherzlu á, að allar þær vonir, sem tengdar voru við störf hinnar svokölluðu vinstri stjórnar hefðu nú brostið svo herfilega, að leitun væri á þeim einfeldningi, sem gerði sér framar nokkrar vonir um, að starf hennar leiddi til farsæld- ar. Leiddi Ólafur mörg og skýr rök að niðurstöðum sínum. Þá vék hann að hinni einu vörn rikisstjórnarinnar, en hún hefur eins og menn vita verið sú, að Sjálfstæöisflokkurinn hefði sjálfur enga stefnu í efna- hagsmálum. Rakti Ólafur þann þátt allýtarlega, en minnti síðan á, að sjálf hefði ríkisstjórnin engin svör gefið, þegar hún hef- ur verið um það spurð, hver væri stefna hennar sjálfrar í efna- hagsmálunum. Fram að þessu hefðu allir stjórnarflokkarnir neitað því, að „verðbólgufrum- varpið“ sýndi þeirra stefnu, en enginn hefði skýrt sína stefnu nákvæmlega þótt spurt hefði ver- ið, hvort í henni fælist gengis- felling, verðhjöðnun eða mynt- breyting. Landhelgin Að gefnu tilefni ræddi Ólafur Thors síðan allýtarlega um land- helgismálið, allt frá því, að fyrr- verandi rikisstjórn hóf sókn í þvi undir forystu Sjálfstæðis- manna og fram á þennan dag. Hann taldi, að mikil óheilindi hefðu spillt nokkuð fyrir þvi, að Islendingar gætu náð þeim ár- angri, sem lagður var grund- völlur að undir forystu Sjálf- stæðismanna. Ungverjaland Ólafur minntist síðan nokkuð á Ungverjalandsmorðin. Þar hafa, sagði hann, enn einu sinni verið lögð á borðið óhugnanlega skýr gögn fyrir því, að engu er treystandi af loforðum og eiðum stjórnenda eins voidugasta ríkis vei'aldarxnnar. Hin nýja nýsköpun. Að lokum fór Ólafur Thors nokkrum orðum um þann kvída. sem nú væri að ná tökum á mörg- um Islendingum vegna hinna miklu mistaka núverandj ríkis- stjói-nar. Hér er nú, sagði hann, aftur hinn gamla Framsóknar- andi að ná tökum á þjóðinni. Hið sanna afturhald er nú að hefja sína nýju herferð — hollráðið er að gera ekki neitt. Það er mik- il falskenning. Það er rétt, að við höfum í ýmsum efnuin farið ógætilega og óskynsamlega að ráði okkar. Afleiðing þeirrar reynslu er hins vcgar ekki sú, að þjóðin eigi nú að halda að sér höndum. Hún er þvert á móti sú, að nú ber að hefja nýja sókn til nýrrar nýsköpunar. Þess verð- ur aðeins að gæta að miða fram- kvæmdir í sem allra ríkustum mæli við aukna framleiðslu þjóð- arinnar. Það og það eitt, sagði Ólafur, megnar að halda lífskjör- unum óbreyttum og bæta þau. Það og það eitt getur gert okkur kleift að halda uppi miklu menn- ingarríki, þótt við séum fámenn þjóð, sem byggir harðbýlt land. ★ Blaðið hefur ekki haft fréttir af Selfosslundinum að öðru ieyti, þar sem símasamband er ekki austur eftir kl. 10. Engar frettir j hafa heldur borizt af fundinurn á Bíldudal. Eggert Benónýsson og Stefón Stefónsson íslnndsmeistorar i tvímenningskeppni í bridge ÍSLANDSMEISTARAR í tvímenn ingskeppni í bridge urðu þeir Eggert Benónýsson og Stefán Stefánsson. Þeir hlutu 2624 stig og voru vel fyrir ofan næstu tví- menninga, þá Guðjón Tómasson og Róbert Sigmundsson, er nlutu 2485 stig. Baráttan um þriðja sætið var mjög hörð og að síðustu stóð hún á milii Guölaugs Guðmundsson- ar og Kristjáns Krisljánssonar, ér hlutu það með 2455 st. og Jó- hanns Jóhannssonar og Stefáns J. Guðjohnsen, er fengu 2449 st. Fyrri hluti keppninnar var mjög spennandi og til marks um það, skildu aðeins 20 stig á milli fyrsta og áttunda sætis, er 50 spil höfðu verið spiluð, eða minna en meðaltal stiga, sem hægt er að fá I einu spiii. Örugga forystu tóku sigur- vegararnir er um 70 spil höfðu verið spiiuð og héldu þeir henni til loka með um 200 stiga for- skoti, en baráttan um annað og þriðja sæti var tvísýn og hörð til loka og skar síðasta spiiið úr um þriðja sætið. íslandsmeistararnir frá því í fyrra, þeir Sigurður Kristjánsson og Vilhjálmur sonur hans frá Siglufirði, fengu slæma byrjun, en náðu sér a strik og höfnuðu í 6. sæti með 2391 stig. Annars var röðin þessi á næstu pörum: 5. Guðm. Ó. Guðmundsson — Marínó Erlendsson 2402 stig. — 7. Óli Örn Ólafsson — Oliver Kristófersson (Akranesi) 2368 st. 8. Ásmundur Pálsson — Jóhann Jónsson 2350 stig. 9. Guðríður Guðmundsd. — Júlíana Xsebarn 2325. 10. Ásbjörn Jónsson — Sig- urhjörtur Pétursson 2301 stig. Árshátið Bridgesambandsins var haldin á sunnudagskvöldið í Sjómannaskólanum. Krúsjeffs á sléttum Ungverja lands. Það getum við sagt, að með þessum hætti er ekki skipt við kommúnista hér á landi, þó að hér sé ekki alþýðulýðveldi, held- ur þjóðfélag, sem að kommún- ískri kenningu er í flestum efn- um illt og í heild sinni dauða- dæmt, og þótt stórum hluta þess- arar þjóðar þyki betra, að komm- únistar séu heldur færri en fleiri. Og okkur virðist með öllu óhugs- andi, að slíkum aðferðum verði nokkurn tíma beitt hér á landi við neina lærisveina Marx og Leníns, nema svo færi, að komm- únistar kæmust hér einhvern tíma til valda, eða einhvérjir keimlíkir hugsjónamenn. Ég legg til, að þeir forfallist .... Þá tók til máls fyrir fulitrúa- ráð Alþýðuflokksins, Helgi Sæm- undsson ritstjóri. Hann sagði m. a.: Allir þeir, sem kunna að meta karlmennsku og mannúð, minn- ast hinna föllnu Ungverja. Þeirra verður minnzt sem píslarvotta í sögunni, því að lát þeirra markar tímamót, jafnvel austan járn- tjalds. Þetta var ekki aftaka, heldur morð, stutt af úrskurði leynilegs alþýðudómstóls, sem ekki fór að lögum heldur éftir fyrirskipunum stjórnarvaldanna. Og hér voru þeir vegnir, sem fengið höfðu fyrirheit óm grið. Það er athyglisvert, að til- kynningin um morðin var gefin út samtímis í Búdapest og Moskvu. Það sýnir, hvaðan fyr- irskipunin kom. Þannig er þá komið fyrir rússnesku bylting- unni, sem átti að frelsa heiminn. Hún er orðin blóðþyrst ófreskja. íslendingar vilja lifa og starfa í friði. Fi-iðlýstur heimur þarf að verða veruleiki. Heimurinn er nú eins og borg í umsátri, um hann sitja kommúnistar, bæði kommúnistar hins austræna heims og hinna vestrænu landa. Heimurinn þarfnast krossferðar gegn kommúnismanum, og aðal- vopnið á að verða öflugt almenn- ingsálit. Þeir, sem trúa á rúss- nesku byltinguna, hljóta að mæta tortryggni eins og útilegumenn í byggð. Kommúnistar hafa nú hafið áróðursheríerð og tala um að friðlýsa Island. íslancl verður af sjálfu sér friðlýst land, þegar heimurinn er friðiýstur, og kommúnistar ættu að snúa sér að því að segja húsbændum sin- um í Moskvu þann sannleika og skora á þá að taka upp nýja hætti. Nú stendur fyrir dyrum ferð íslenzkra Alþingismanna til Rússlands. Ég legg til, að þeir lorfallist frá að sækja Rússa heim. (Þessari tillcgu ræðu- manns var tekið með langvinnu Iófataki á fundinum). Ég gæti hvorki vakað þar né sofið, meðan blóðið er að storkna í Ungverja- landi. íslendingar geta lagt fram lið sitt með því að halda fram málstað þess anda, sem ger:r menn að mönnum. Við atburð unum í Ungverjalandi getum við ekki og megum ekki þegja. Hin dýrmætasta landhelgi. Þá tók til máls Guðmundur Gislason Hagalín og talaði f. h. félagsins Frjálsrar menningar. Hann sagði m. a.: íslendingar hafa tekið þá ákvörðun að færa í haust út fisk- veiðilandhelgi sina. Við gerum það í þeirri björtu trú, að þær þjóðir, sem öndverðar okkur standa, séu svo gagnteknar af réttlætis-, frelsis- og mannhelg- ishugsjónum, að þær geti ekki fengið sig til þess, þegar á hólm- inn kemur, að traðka á rétti okk- ar til lífsins og frelsisins. En gleymum því ekki, að án þess að vér verndum og verjum landhelgi heimila vorra og einkalífs, hugs- ana vorra, orða og athatna, vilj- ans til þess að lifa eins og frjálsir og sjálfstæðir synir íslands og íslenzkra menningarerfða, er oss öll fiskveiðalandhelgi einskis virði. En er hér nokkuð að óttast? Er hér nokkur með hugarfari l Kadars og sveina hans? Mundi ekki óralangt síðan ísl. menn gerðust morðingjar að erlendu valdboði eða aðeins vöiðu blóð- veldi í ræðu og riti og reistu af grunni hús fyrir mútufé erlendra valdhafa? Eða er það ekki? Hvað um það. En athugið, hvort þér sjáið hvergi gleðiglampa í aug- um, þegar fréttist um kúgun er- lendra valdhata, hvorgi hvergi bregði fyrir í íslenzkum blóðiun kuldalegu og varfærnislegu hlut- leysi, þegar frá slíku er sagt, og hvort hvergi glæðist fijótlega, þegar frá líður, vegsómun friðar- og frelsisástar hinna verstu böðla. Minnumst allra fallinna frels- -ishetja fyrst og fremst með því að standa vörð um alla vora land helgi. Geta slíkar aðfarir vakið traust á sarnninga þjoOa ... ...? Jón Skaftason lögfræðingur talaði fyrir fulltrúaráð Fram- sóknarfélaganna i Reykjavík. Hann sagði m. a.: Ungverska ríkisstjórnin hefur látið taka leiðtoga byltingarinnar 1956 af lífi. Sá atburður vekur sínar minningar. í byltingunni myndaði Imre Nagy, sem var sjálfur kommúnisti, þjóðlega stjórn, sem naut stuðnings meiri- hluta Ungverja. Hann þurfti að velja á milli hollustu við fólkið og þjónkunar við rússnesku kúg- araha og kaus fyrri kostinn. Þess vegna var hershöfðingi hans, Pal Maleter, handtekinn, er hann kóm til að semja við rússneska herforingja um hlutleysi Ung- verjalands, og síðar var Nagy sjálfur tekinn höndum, þótt hann hefði komizt undan til júgó- slavneska sendiráðsins og verið heitið fullum griðum og ferða- frelsi. Nú hafa leiðtogar Ungverja verið teknir af lífi til að sýna, að engin frávik frá línunni verði þoluð. Geta slíkar aðfarir vakið traust á samninga þjóða á milli? —. Við skulum þó minnast þess, að allar ríkisstjórnir hljóta að taka tillit til almenningsálitsins og við skuium skora á íslenzk stjórnarvöld að mótmæla líf- láti Nagys og félaga hans. Við höfum að vísu mikil verzlunar- og menningarskipti við Rússland, en hljótum þó jafnan að mót- mæla ofbeldinu. Við skulum einnig vinna að því, að sterkt og öflugt almenningsálit skapist til varnar því lýðræðisþjóðfélagi,. sem við búum við. Kommúnistar mega ekki leggja undir sig frelsi og sjálfstæði þessa lands Fimmti ræðumaðurinn á fund- inum var Birgir ísl. Gunnarsson, fulltrúi Stúdentaráðs Háskóla ís- lands. Hann sagði m. a.: Það er vert að hugleiða í sambandi við fregn- irnar frá Ungverjalandi þær hlutleysiskenningar, sem íslenzk- ir kommúnistar hafa borið fram á ýmsum tímum. Þessa dagana ferðast þeir og taglhnýtingar þeirra um landið þvert og endi- langt og heimta friðlýst, hlut- laust ísland. Hvernig hafa ung- verskir og rússneskir kommún- istar ti'yggt hlutleysi Ungverja- lands? Imre Nagy krafðist hlut- leysis. Það varð hans bani. Pal Maleter sat á samningafundum með Rússum, þar sem semja átti um hlutleysi. Hann hefur einnig verið drepinn. — Biynjólfur Bjarnason sagði í Rétti, að sovét- herinn hefði aðeins gert skyldu sína í Ungverjalandi. Þjóðvilj- inn hefur birt fregnina um af- tökurnar nú, en ekkert um þær sagt frá eigin brjósti. íslenzkir kommúnistar hafa því með þögn sinni lagt blessun sína yfir þessi síðustu manndráp. íslendingar halda þjóðhátíð 17. júní og minnast þess, er ísland varð frjálst. Það er undarleg til- viljun, að tvisvar þennan dag höfum við verið minnt á, að margar þjóðir búa enn við ánauð. 17. júní 1953 bárust fréttir um uppreisnina í Austur-Þýzkalandi — nú fréttirnar um líflát Nagys og félaga hans. Við skulum minn-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.