Morgunblaðið - 24.06.1958, Síða 14

Morgunblaðið - 24.06.1958, Síða 14
14 UURGV1SB1. AÐIÐ Þriðjudagur 24. júní 1958 Keflavík — Suðurnes Oss vantar nú þegar trésmið vanan verkstæðisvinnu. Langur vinnutími. Framtíðaratvinna. Upplýsingar í síma 31 eítir kl. 7 á kvöldin. STÚLKA getur fengið atvinnu strax í smávöru- og vefnaðarvöru- verzlun í miðbænum við að leysa af í sumarleyfum. —■ Einnig gæti verið um framtíðarstarf að ræða. — Um- sóknir sendist afgreiðslu Morgunblaðsins merktar: HS H H —6260“. íslandsmótið í II. deild. I.K.F. — Vestmannaeyjar Keppa á grasvellinum í Njarðvík í kvöld kl. 8,30. Dómari: Hreiðar Ársælsson. Mótanefndin. Laus sfaða Heimsmeistarakeppnin í knatlspyrnu: í kvöld á oð skera úr um hvaða tvö lönd keppa um titilinn NÚ eru hin „fjögur stóru“ ríki eftir í úrslitum heimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu. Það eru Brasilía, Frakkland, Svíþjóð og Þýzkaland. í kvöld er næsta orrusta. Svíar og Þjóðverjar mæt ast á Ulleví í Gautaborg, Brasilíu menn og Frakkar mætast á Rá- sunda við Stokkhólm. Engum sem fylgzt hefur með úrslitakeppninni blandast hugur um að aldrei hefur hún verið harðari og tvisýnni baráttan um heimsmeistaratitilinn. Keppnin í þremur riðlum af fjórum varð að útkljást með augaleikum. Liðin þrjú sem komust áfram eftir aukaleikina, Rússland (sem sigraði Breta í aukaleik) Wales (sem sigraði Ungverjaland í auka leik) og írland (sem sigraði Tékkóslóvakíu í aukaleik) þóttu þreytuleg og komust ekki lengra. En hjá þeim sem eftir standa þótti mikill „glans“ yfir leikn- um. Það er t. d. sagt um leik Svía við Rússa að þar hafi sænsk knattspyrna náð hæst. Leik Frakka er og mikið hrósað eink- um „miðjutriosins" þeirra Fonta- ines ,Kopa og Piantonis og er samleikur þeirra talinn einhver bezti leikur miðjutríos í úrslita- keppninni. Piantoni þekkjum við vel frá leik Frakka hér í fyrra en þá bar hann nokkuð af í framlínu Frakka, þó hann ekki hefði þá tvo með sér sem nú vekja mesta athygli. Við má bæta að til þessa er Fontaine marka- hæsti maður í úrslitakeppninni, hefur skorað átta mörk. Næstir koma MacParland, N-írlandi og Rahn, Þýzkalandi með 5 mörk hvor. Þjóðverjar og Svíar hrósa báðir happi yfir að fá að lenda hvor á móti öðrum. Er ekki laust við að flest lið vilji í lengstu lög komast hjá að lenda gegn Brasi- líumönnum. Það sem mesta at- hygli hefur vakið við leik þeirra er vörn liðsins, sem til þessa hefur sýnt sig að vera allt að því „vatnsþétt", að minnsta kosti hefur hún engum knetti hleypt fram hjá sér í net. Eru þeir eina liðið sem ekki hefur fengið mark á sig 4 leiki í röð í keppninni, Auk þess hafði liðið leikið tvo leiki í Evrópu fyrir heimsmeist- arakeppnina, án þess að mark væri skorað hjá því. Talar þetta skýru máli um mátt liðsins og eru fleiri sem hallast að sigri þess í keppninni en nokkurs ann ars liðs. ★ Liðin 4, sem eftir standa, leika í kvöld, eins og áður er sagt. — Leikirnir hefjast kl. 6 eftir ísl. tíma og verður lýst í útvarpi og má vel heyra lýsinguna í hvaða tæki sem er á 49 m bandinu. j Símstjórastaðan í Þorlákshöfn er laus til umsóknar. < Umsóknarfrestur til 1. júlí 1958. Upplýsingar um launakjör og annað viðvíkjandi starxinu veitir ritsímastjórinn í Reykjavík. Póst- og símamálastjórinn, 23. júní 1958. Vandaðar íbúðir til sölu Höfum til sölu íbúðir, sem eru 117 ferm., 4 herbergi, eld- hús, bað og hall. 1 kjallara fylgir auk þess 1 íbúðarher- bergi, sérstök geymsla, eignarhluti í þvottahúsi, þurrk- herbergi, barnavagnageymslu og frystigeymslu. íbúðirn- ar eru nú tilbúnar undir tréverk og málningu og húsið fullgert að utan. Ibúðinar eru seldar í því ástandi og með allri eign inni í húsinu fullgerðri. Hægt er að fá íbúð- irnar lengra komnar. Eru til sýnis á venjulegum vinnu- tíma. Lán á 2. veðrétti kr. 50 þús. fylgir. Fyrsti veðréttur er laus fyrir kaupanda. Nú eru aðeins 2 íbúðir eftir. Fasteigna & Verðbréfasalan, (Lárus Jóhannesson, hrl.) Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314. Valbjörn í Varsjá Góðar vörur — Gott verð Smábarnafatnaður, gott úrval. Bleyjugas, tvíofið 80 cm. Kr.: 8,95 m. Léreft, 3 teg. verulega gott. Verð frá kr: 16,15 m. Dama.sk í sængurver, röndótt, rósótt. Verð frá kr. 100.— í verið. Silkidamask í gluggatjöld, dökkrautt og gult. Verð frá kr: 42,00. Kakhi, rautt, gult, grænt, blátt. Verð frá kr. 13.35 m. EINS og áður hefur verið skýrt frá sigraði Valbjörn Þorláksson í stangarstökki á stórmóti í Varsjá, sem haldið var til minn- ingar um einn bezta hlaupara Pólverja Kusocinski. ★ Keppni Valbjörns byrjaði ekki vél. Hann felldi 4 m tvívegis, af því að atrennan ekki passaði. En eftir það gekk allt vel og hann stökk 12 sm hærra en Pólverjinn Riflað flauel, 3 bláir litir, 2 grænir litir, brúnt, rautt og grátt. Verð kr. 29.95 m. Skyrtuefni, köflótt, 5 litir. Verð frá kr: 14,45. Fiðurhelt léreft, blátt. Verð kr: 36,20. Flúnel með myndum, 4 litir. Verð kr: 19,05. Náttfataefni: með myndum, 4 litir. Verð kr.: 15,90 m. Þýzki nærfatnaðurinn á drengi og telpur, gamla verðið. SENDUM I PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT. Geymið augiýsingúna. / Sólrún Laugavegi 35. sem næstur kom. Keppnin í stangarstökkinu milli 12 þátt- takenda var geysihörð. Árangur á mótinu var mjög góður. Rússinn Rakowski vann þrístökkið með 16,26 m og í öðru sæti var Kreu 16.07 og þriðji Pól- verjinn Schmidt er setti pólskt met 16.06 m. ★ Delicour, Frakkl., vann 100 m hlaup á 10,3 og 200 m á 21,0 sek. Chromik Póllandi vann 3000 m á 7:58,0 mín. Ter Ovanesjan Rúss- landi vann langstökkið með 7,75. Ýmsir er þarna sigruðu kom- ust í efsta sæti hfeimsafrekaskrár innar á árinu eftir þetta mót og t.d. skipa 6 fyrstu menn í 3000 m hlaupinu á mótinu nú 6 efstu sæti heimsafrekaskrár ársins. — Áhorfendur að mótinu voru 40 þúsund fyrri daginn og 50 þús. síðari daginn. •k Myndirnar er hér fylgja eru teknar af Valbirni á mótinu. — Stærri myndin sýnir Valbjörn einmitt í metstökki'nu að sögn farartjórans Arnar Eiðssonar. Á hinni myndinni býr hann sig und ir stökk. — Hræringar Framh. aí bls. O gegn Tító, en þá var Krúsjeff ó_ sammála Molotov, en hefur nú snúizt til sömu stefnu og for- dæmir Tító. Það hafa áður verið uppi fregnir um, að Maierikoff væri í hættu staddur og hefur nafn þeirra Molotovs og Mal- enkoffs oft verið nefnt upp á síðkastið og nú hefur nafn Sepil- ovs bætzt við. ★ I London er það einnig haft við orð, að meira hafi verið á dag- skrá miðstjórnarinnar heldur en landbúnaðaráætlun Krúsjeffs. Einn af helztu blaðamönnum Englendinga, sem hefur þekkingu á málum Sovétríkjanna, Victor Zorza, skrifaði þegar nokkr- um dögum áður en fúndur- urinn hófst, að fregnir lægju fyr- ir um, að ekki væri allt í sem beztu lagi með það, sem haun kallaði „landbúnaðarævintýri Krúsjeffs" í hinum lítt ræktuðu lendum í austri. Margt bendir til að Zorza hafi hér haft nokkuð fyrir sér, því samkvæmt þeim fregnum, sem komið hafa frá höfuðborgum leppríkjanna hafa mjög háar öldur risið á þessum fundi og Krúsjeff þar þurft að standa fyrir máli sínu. í sambandi við allt þetta verð . ur að minna á, að fáar af þess- um fréttum eru staðfestar, en margt er nú skrafað um það, hvað sé að gerast þarna fyrir austan og ýmsir kunnugir halda því fram, að ekki skuli menn vera hissa á því, þó „bak við reykinn sé iíka eldur“t eins og sum blöð- in orða það. ★ Nú um helgina hafa borizt ýms ar fregnir um að stalimstar hafi sig meira í frammi í Póllandj en áður og hafi þeir gert sér vonir um að geta steypt Gomulka af stóli. Þessi stalinistahópur er al- mennt kenndur við bústað sendi- herra Sovétríkjanna í Varsjá og kallaður Natolin-klíkan. Hafa sumir spáð því, að Gomulka muni láta af embætti, en við taka nú- verandj sendiherra Pólverja í Prag, Mazur að nafni. En þegar síðast fréttist lá ekki fyrir nein staðfesting á þessum orð- rómi og hallast menn frekar að því á Vesturlöndum, a ðsvo langt muni ekki vera komið enn, að Gomulka verði að hrökklast í burt. Þetta er aðeins dæmi um það, hvaða áhrif menn telja að hinar nýju stalinisku aðferðir valdhafanna í Moskvu kunni að hafa í leppríkjunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.