Morgunblaðið - 20.07.1958, Page 10
10
Monr.rw * o i ð
Surmii'dagur 20. júlí 1958
I
JlUwgtitiMðfrifo
Otg.: H.í Arvakur, Reykjavík.
Framkvænidastion: bigíus Jónsson
Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarm Benediktsson
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigt:
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Ola, simi 33045
Auglýsmgar: Arni Garðar Kristmsson.
Ritstjórn: Aðalstrseti 6.
Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480
Askriftargjald kr 35.00 á mánuði innanlands.
I lausasölu kr. 2.00 eintakið.
I
i
YFIRLÝSING JÓNASAR HARALZ
MEÐAN verkfall farmann-
anna stóð yfir deildu
stjórnarflokkarnir um
það innbyrðis, hvort um væri að
ræða, að farmenn hefðu orðið
fyrir sérstakri kjaraskerðingu
umfram aðra af völdum bjargráð-
anna svonefndu og hvort kröf-
ur þeirra þess vegna gætu talizt
réttmætar eða ekki. I sambandi
við þetta var svo málinu skot-
ið til aðalefnahagsmálaráðu-
nauts ríkisstjórnarinnar, sem er
Jónas H. Haralz hagfræðingur og
lét hann skriflega álit sitt í ljósi
að beiðni ríkisstjórnarinnar. Var
niðurstaða hans sú, að samkvæmt
þeirri athugun, sem hann hefði
gert á málinu, hefðu kjör há-
seta og kyndara á farskipum
rýrnað verulega umfram kjör
annarra launþega. Hins vegar
taldi hagfræðingurinn ekki
mögulegt að meta með neinni
vissu, hversu þessi kjararýrnua
væri mikil umfram aðra laun-
þega vegna margra óvissuatriða.
sem um væri að ræða. Þessi yfir-
lýsing Jónasar Haralz var birt
í Morgunblaðinu hinn 15. júlí sl.
en hvorki Þjóðviljinn né Tíminn
hafa vikið einu orði að þessari
rannsókn hagfræðingsins og áliti
hans. Þegar álit hagfræðingsins
var komið fram, munu stjórnar
völdin hafa séð, að ekki væri
unnt að standa á móti kröfum
farmanna um, að bætt yrði úr
þessari sérstöku kjaraskerðingu.
Þvert ofan í fyrri yfirlýsingar
greip ríkisstjórnin þá til þess ráðs
að veita útgerðunum tryggingar
fyrir því, að þær mundu jafn-
skjótt fá bætta upp með hækk-
uðum farmgjöldum þá kaup-
hækkun sem þær samþykktu að
veita farmönnunum til þess að
bæta úr kjaraskerðingunni sem
„bjargráðin“ hefðu haft í för með
sér fyrir farmennina umfram
aðra.
★
Þegar allt þetta liggur fyrir
er það augljóst, að unnt hefði
verið að koma í veg fyrir þetta
tæpra þriggjá vikna verkfall,
sem lamaði kaupskipaflota lands-
manna og lagði hann við festar
í höfnum. Ef ríkisstjórnin hefði
þegar í stað viðurkennt þá stað-
reynd, sem raunar virtist líka
augljós, að farmenn hefðu orðið
fyrir mikilli skerðingu kjara
sinna umfram aðra, þá hefði ver-
ið unnt að afstýra þessu dýra
verkfalli. Það er því engum blöð-
um um það að fletta, að það er
ríkisstjórnin sem ber ábyrgð á
því að verkfallið skyldi nokkurn
tímann hefjast.
Meðan á deilunni stóð hélt
Tíminn því fram, að farmenn
hefðu ekki orðið fyrir neinni sér-
stakri kjaraskerðingu af völdum
bjargráðanna. Þjóðviljinn deildi
einnig hart á Sjómannafélagið og
farmenn fyrir það að hefja verk-
fall og taldi að þeir hefðu sízt
ástæðu til slíks. Eftir að yfirlýs-
ing Jónasar H. Haralz, aðalráðu-
nauts ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum er komin fram, virð-
ast tekin af öll tvímæli um það
að blöðin tvö hafa haft rangt
fyrir sér í þessu efni. En þau
hafa ekki enn haft kjark i sér
til að viðurkenna það og hafa
þagað gersamlega yfir bréfi
Jónasar Haralz. Aðferðir ríkis
stjórnarinnar í sambandi við far-
mannaverkfallið eru að öðru leyti
enn eitt ljóst dæmi um það,
hversu lin tök hún hefur á öllum
þessum málum og hversu sundur-
lyndið á milli flokka hennar er
djúptækt.
LEIT AÐ HEITU VATNI
EGAR Hitaveitan var sett
á stofn var hrundið í
framkv. einu hinu mesta
framfaramáli, er íslendingar
hafa haft með höndum í verkleg-
um efnum.
Verk þetta var undirbúið
vel enda var hér um algert ný-
mæli að ræða og engar fyrir-
myndir við að styðjast, hvorki
innanlands né erlendis frá. í
fyrstu var lögð hin svokallaða
litla hitveita frá Þvottalaugun-
um í hverfi í austur-bænum, en
að fenginni þeirri reynslu og eft-
ir langan og erfiðan undirbúning
var síðan ráðist í byggingu hinn-
ar stóru hitaveitu, sem þá náði
yfir megnið af Reykjavík.
Síðan hefur Reykjavík stækk-
að ört og miklu örar en nokk-
urn óraði fyrir. Hingað til hefur
ekki verið unnt að fá meira vatns
magn úr aðallindunum upp við
Reyki og hefur það gert það að
verkum að nauðsynleg útvíkkun
hitaveitunnar í samræmi við
stækkun bæjarins hefur tafizt.
Út af þessu máli setti Reykjavík-
urbær á laggirnar nefnd sér-
fróðra manna, svonefnda hita-
veitunefnd, sem hafa skyldi með
höndum vísindalegar rannsóknir
á jarðhita í landi bæjarins og um
hverfi. Þessi nefnd hefur starfað
mjög ósleitilega og kannað þá
möguleika, sem fyrir hendi væru
að stækka hitaveituna. Eftir
mikið þóf var mögulegt að fá stór
virkan jarðbor til landsins, en
hann er nýkominn, svo sem kunn
ugt er, og er í sameign ríkis og
bæjar. Með tilkomu þessa nýja
tækis hafa skapast vonir til þess
að allmikil aukning af heitu
vatni gæti fengist í bæjarland-
inu sjálfu. Nýlega er lokið jarð-
borunum, sem unnið hefur verið
að nú um nokkurn tíma á
Klambratúni í Austurbænum og
er talið að árangurinn hafi þar
orðið mjög góður. Magn þess
heita vatns, sem upp úr holunni
kemur er 5,1 sekúndulíter og er
það miklu meira en menn höfðu
gert sér vonir um. Nú er í und-
irbúningi að flytja jarðborinn
aftur að gatnamótum Hátúns og
Nóatúns, en þar á að bora aðra
holu og freista þess að fá þar
meira heitt vatn.
Þannig verður borunum í bæj-
arlandinu haldið áfram, svo sem
kostur er á, en ekkert er hægt
að segja um árangur af þeim,
þegar á heildina er litið, fyrri
en borunum er lokið.
Af hálfu Reykjavíkurbæjar
hafa verið uppi fyrirætlanir um
að komast að samkomulagi um
virkjun orkunnar í Krýsuvík
fyrir Reykjavík og Hafnarfjörð.
Þar er um stórfelda framkvæmd
að ræða, sem vafalaust kostar
mikinn tíma og stórfé, ef hún
kemst til framkvæmda. En með
an það mál er ekki komið lengra
á leið en nú er, verður haldið
áfram stöðugri leit að heitu vatni
í bæjarlandinu sjálfu og það
jafnóðum notað til útvíkkunar
hitaveitunnar.
/
Þannig Iítur skopteiknarinn Cummings á aðgerðir Bandaríkja-
manna í Líbanon. Myndinni fylgir þessi texti: Verið rólegir.
Eins og vitur maður hefir áður sagt: „Ég er bara lögregiumað-
ur!“ En Eden lætur fara vel um sig í garðstól undir sóihlíf,
geiur aðgerðum Bandarikjamanna hornauga og skrifar minn-
ingar sínar um Súez og allt það.
Margrét, krónprinsessa Dana,
er um þessar mundir á flugher-
skóla í Værlöse. Erfiðastar þykja
kennslustundirnar í jiu-jitsu,
japanskri glímu, og þá er óspart
skipzt á snörpum höggum. Mar-
grét er sögð vera mjög leikin í
þessari íþrótt. Myndin sýnir,
hvernig hún í einu vetfangi fellir
kennarann.
Franski stjórnmálamaðurinn
Robert Schuman hitti lækninn
sinn, sem virti hann ánægður
fyrir sér:
— Bravó, kæri Schuman. Allt
af jafn unglegur! Þetta leiddi til
almennra umræðna um heilsu-
far. Að lokum sagði læknirinn
hugsandi: — Sjáið þér til, Monsi
eur Schuman, það er ennþá allt
á huldu um framlengingu manns-
æfinnar. . .
— Hvers vegna lifa konur þá
lengur en karlmenn? spurði
Schuman og studdi hönd undir
kinn. Eftir skamma þögn bætti
hann við með uppgerðar sakleys-
issvip: — Vitið þér það ekki,
læknir? Það er þó ákaflega ein-
falt mál.
Þegar hann fékk ekkert svar,
hélt hann áfram, alvarlegur í
bragði. — Þær fá áreiðanlega
ekki inngöngu á himnum, eða
haldið þér það?
Enn nokkur þögn. — Og þær
vilja ekki fara til vítis ... Nú
þær eiga þá ekki um annað að
velja en halda áfram að lifa...
Skáldið Ezra Pound, sem verið
hefir undanfarin 12 ár á geð-
veikrahæli í Bandaríkjunum,
hélt til Ítalíu, undir eins og hon-
um var heimilað að yfirgefa hæl-
ið. Er farþegaskipið, sem hann
kom með, lagðist við landfestar
í Neapelhöfn, heilsaði Pound
með facistakveðju.