Morgunblaðið - 19.09.1958, Síða 20
VEÐRIÐ
Allhvass sunnan og suðaustan,
skúrir.
Viðtal tið Elsu Sigfiiss
Sjá bls. 11
213. tbl. — Föstudagur 19. september 1958
Hækkun verzlunarálagningar
innar á helztu nauðsynjum
Samanburður á verðlagsákvæðum frá
1957 og hinum ákvæðum
t FRAMHALDI af frásögn blaðsins í gær af þeirri hækkun verzlun-
arálagningar, sem Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið, telur Mbl.
rétt, að almenningur eigi kost á því að gera samanburð á verðlags-
ákvæðum frá árinu 1957 og þeim verðlagsákvæðum, sem nú hafa
gengið, í gildi. Verða hér á eftir taldar nokkrar algengustu nauð-
synjar og jafnframt tilgreind verzlunarálagníng á þær eins og hún
hefur verið síðan 1957 og eins og hún er nú.
Kaffi
Heildsala . ’57: 6% ’58: 6,5%
Smásala .. ’57: 15% ’58: 18 %
Kornvörur, strá- og molasykur
Heildsala 1957: 7% 1958: 8%
Smásala, þegar keypt er af inn-
lendum birgðum:
1957: 25% 1958: 27%
Þegar keypt er beint frá útlönd-
um .... 1957: 30% 1958: 33%
Nýir ávextir
Heildsala 1957: 10% 1958: 11%
Smásala, þegar keypt er af inn-
lendum birgðum:
1957: 30% 1958: 36%
Þegar flutt er inn beint frá út-
löndum . 1957: 38% 1958: 43%
Ýmsar aðrar matvörur
og nýlenduvörur
Heildsala 1957: 10% 1958: 11%
Smásala, þegar keypt er af inn-
lendum birgðum:
1957: 30% 1958: 35%
Semenfsskipið
laskast
KLUKKAN um lð í gærkvöldi
kom dráttarbáturinn Magni hing
að inn á Reykjavíkurhöfn og
var hann með skip í eftirdragi.
Hafði því hlekkzt á í Akraneshcfn
og gat ekki komizt þaðan hjálp-
arlaust til viðgerðár hér í Reykja
vík. Þetta er sementsflutninga-
skipið Dacia, sem er í daglegum
förum milli Akraness og Reykja-
víkur. Hafði skipið verið að leggj
ast að sementsverksmiðjubryggj
unni er það rak afturstefnið í
bátabryggjuna. Er ekki vitað
með' vissu hversu alvarlegar
skemmdirnar urðu, en ekki var
hægt að beita skrúfu skipsins.
Þegar keypt er beint frá útlönd-
um .... 1957: 38% 1958: 42%
Heilsöluálagning á hreinlætis-
vörur er óbreytt. En smásölu-
álagning hækkar t. d. á sápum og
þvottaefni, ræstidufti og bóni, úr
25% í 28%, þegar keypt er af
innlendum heildsölubirgðum, en
úr 33% í 36% þegar keypt er
beint frá útlöndum.
Þá er heildsöluálagning á
gúmmístígvél óbreytt, en hækk-
ar á öðrum skófatnaði úr 8,5%
í 9%.
í smásölu hækkar álagning á
gúmmístígvélum, þegar keypt er
af innlendum birgðum, úr 20%
í 22%, en úr 25% í 27%, þegar
keypt er beint frá útlöndum.
Heildsöluálagning á vefnaðar-
vöru er að mestu óbreytt frá 1957
nema að prjónagarn og margs
konar metravara hækkar úr 11%
í 12% og sokkar og leistar úr
nylon óg öðrum gerviþráðum,
þar á meðal kvensokkar, úr 8%
í 10%.
í smásölunni er algengasta
hækkun álagningarinnar á vefn-
aðárvöru 2%, bæði þegar um inn-
lend vörukaup er að ræða og
þegar keypt er beint frá útlönd-
um, t. d. hækkar álagning á karl-
mannafataefni úr 25% í 27%,
þegar keypt er af innlendum
birgðum, og úr 33% í 35%, þegar
um beinan innflutning er að
ræða.
Þó hækkar smásöluálagning á
prjónagarni, alls konar metra-
vöru, leðurvörum og fleiru, úr
30% í 33%, þegar keypt er af
innlendum heildsölubirgðum, og
úr 40% í 43%, þegar flutt er
beint frá útlöndum.
Mest hækkun á kvensokkum
Mest hækkun á smásöluálagn-
ingu er á kvensokkum og öðrum
sokkum úr gerviþráðum. Þar
hækkar álagningin úr 20% í 30%,
þegar keypt er af innlendum
heildsölubirgðum, og úr 27% í
35%, þegar keypt er beint frá
útlöndum.
Hliðstæð hækkun verzlunar-
álagningar og frá hefur verið
greint hér að framan verður á
öðrum vöruflokkum.
í forystugrein blaðsins í dag er
rætt nánar um þessi mál.
Sáttafundur stóð
yfir í gærkvöldi
SÁTTANEFNDARMENN í kjara
deilu atvinnurekenda og Dags-
brúnar, þeir Torfi Hjartarson,
Gunnlaugur Briem ráðunevtis-
stjóri og Jónatan Hallvarðsson
hæstaréttardómari, voru á fundi
með fulltrúum deiluaðila seint í
gærkvöldi, er blaðið var fullbúið
til prentunar. Ekkj var þá vitað
hvort fundurinn myndi standa
langt fram á nótt eða ekki en
fundurinn hófst klukkan 4 síð-
degis í gærdag.
Flokksráðsfundur
í Keflavík
FLOKKSRÁÐ Sjálfstæðisflokks.
ins í Gullbringusýslu heldur
fund i Sjálfstæðishúsinu í Kefla-
vik í kvöld kl. 9 stundvíslega.
Frummælandi verður formaður
Sjálfstæðisflokksins, Ólafur
Thors, alþingismaður.
Mál árásarmannsins
þingfest í dag
SKÝRT var frá því hér í blað-
inu á miðvikudaginn að fullorð-
inn maður hefði ráðist á dreng
og kjálkabrotið hann.
Var þess getið í fréttinni að
málið væri til fyrirsagnar í dóms
málaráðuneytinu. Þetta var ekki
alls kostar rétt, því málið var þá
komið frá ráðuneytinu til saka-
dómaraembættisins, með fyrir-
mæli um það að höfða mál á
hendur árásarmanninum, fyrir
brot gegn 218. gr. hegningarlág-
anna, er fjallar um meiriháttar
líkamsárás. Hafði verið ákveðið
fyrir nokkrum dögum að málið
skyldi tekið fyrir í dag, þ. e. a. s.
þingfest.
Fréttir i stuttu máli
ÞRIGGJA þrepa Atlasflugskeyti
var reynt í Flórida í kvöld. —
Sprakk skeytið, þegar það hafði
verið mínútu á lofti. Slík skeyti
hafa 8,800 km. flugþol.
VULCAN sprengjuflugvél brezka
flughersins flaug í dag frá Labra-
dor til Bretlands á 3 klst. 27 mín.
Meðalhraðinn var 1,037 km á
klukkustund.
150 SERKIR voru handteknir í
París í dag.
Kindakjöt hækkar mjög í verði
UM KLUKKAN 7 í gærkvöldi
lauk Framleiðsluráð .landbúnaðar
ins fundi sínum, en þar hafði
ráðið ákveðið hvert vera skyldi
verð á kindakjöti, og var tilkynnt
um það í útvarpinu í gærkvöldi.
Svo sem vænta mátti, hækkaði
kjötið veruiga, enda hafði verð-
lagsnefnd landbúnaðarins, sem
skipuð er þrem fulltrúum neyt-
enda og jafnmörgum frá fram-
leiðendum, orðið sammáia um að
hækka verðlagsgrundvödinn um
13%.
LONDON, 18. sept. — Leiðtogar
brezka verkamannaflokksins hafa
krafizt þess, að stjórn kínverskra
kommúnista verði veitt sæti
Kína hjá S. Þ.
Til fjandans með alla línubáta
segja brezkir togaramenn
íslendingar verða að fá
12 mílna landhelgina
segir norskur skipstjóri
| NESKAUPSTAÐ, 18. sept. — Síð-
an 1. september hafa 4 norsk
fiskiskip komið til Neskaupstað-
ar. Eitt þeirra, v.s. Ruma frá
Molde, kom í morgun. Fréttamað-
ur Mbl. hitti skipstjórann, Oskar
Seth sem snöggvast að máli í dag,
og notaði tækifærið tij. að spyrja
hann frétta af fiskimiðunum og
framferði brezkra togara þar.
— Ensku togararnir hafa aldrei
j telíið tillit til neins, og ekki hafa
þeir batnað núna, sagði skipstjór-
inn. Skip hans var úti af Digra-
i nesi 20—35 sjómílur undan landi.
j Voru þeir þar í dágóðum fiski á
100 faðma dýpi. Allt í einu birt-
i ist enskur togari og síðan drifu
j þeir að úr öllum áttum. Voru þeir
' á örskömmum tíma orðnir 30 tals-
ins. Var þá ekki um annað að
gera en flýja af miðunum og láta
togurunum eftir að skrapa þau.
Ef að vanda lætur, yrðu þeir
búnir að þurrausa allan fisk á
2—3 dögum.
Ruma missti engin veiðarfæri,
en það var bara heppni, sagði
Oskar Seth, því ef til vill má það
jafnvel kallast heppni að bjarga
bátnum undan brezku togurun-
um. Hann sagði sögu af því, að
fyrir viku var norskur bátur að
fiska um 40 sjómílur út af Rauf-
arhöfn á 140—150 faðma dýpi,
þegar enskan togara bar þar að.
I Sá enski setti strax út bauju við
j hliðina á bauju Norðmannsins, og
togaði svo hringinn í kringum
baujurnar!
! Þegar norski skipstjórinn kvart
, aði undan þessu við þann enska,
svaraði hann bara: „Til helvítis
með alla línu-fiskibáta“.
Þegar Oskar Seth var spurður
að því, hvort hann teldi að Norð-
menn yrðu að hætta fiskveiðum
við ísland vegna útfærslu land-
helginnar, svaraði hann því, að
hann teldi það ekki. Það yrði að
vísu dálítið erfiðara og stundum
stæði fiskurinn grunnt, eins og t.
d. í sumar, en venjulega stæði
hann miklu dýpra og Norðmenn
fiskuðu lítið á þeim slóðum, sem
nú eru innan við línuna. í þess-
ari veiðiferð hefur Ruma fengið
50 lestir af saltfiski og 44 tonn
af lifur. Skipið er 98 tonn brúttó
og 12 manna áhöfn. Veiðiferðin,
sem nú er að ljúka, mun taka 8
vikur.
Skipstjóri spurði um, hvernig
gengi í landhelgismálinu og var
honum sýnilega mjög umhugað
um að kynnast gangi þess máls
sem allra bezt.
— Þótt það baki okkur ein-
hverja erfiðleika, sagði Oskar
Seth að síðustu, þá verða íslend-
ingar að fá 12 mílna landhelgina
viðurkennda. —Fréttaritari.
Heildsöluverðið á niðurgreiddu
kindakjöti er í ár kr. 24,59 kílóið,
en var í fyrra kr. 20,89. Er hér
um að ræða 17,71% hækkun.
Verðið á súpukjöti í smásölu
verður nú kr. 29,50, en það var í
fyrra kr. 24,65 kílóið. Er hækkun
in 19,68%. Verð á súpukjöti með
bráðabirgðaverði því sem verið
hefur í gildi undanfarnar vikur
fellur nú úr gildi, en það var kr.
34,80 kílóið.
Verðið á slátri, án mörs, hækk
ar nú upp í kr. 38,00, en var í
fyrra kr. 32. Er þar um að ræða
18,75% hækkun. Mör er á ó-
breyttu verði frá því sem hann
var í fyrra.
Kindakjöt í öðrum verðflokki
á heildsöluverði var kr. 18,04 kg.
í fyrra, en verður kr. 21,64 kg.
og er það 19,96% hækkun. Kílóið
af II. flokks súpukjöti í smásölu
er nú kr. 25,95 en var í fyrra kr.
21,32 og er þar um 21,72% hækk-
un.
Við ákvörðun á kindakjöts-
verðinu gætir að sjálfsögðu fyrst
og fremst 13% grundvallarhækk
unarinnar, einnig hækkun, sem
orðið hefur á smásöluálagningu
kjötsins er nam í fyrra 18%, en
er nú 20%. Þá hqfur sláturkostn-
aður almennt hækkað svo og
ýmiss annar kostnaður, sem á
vöruna fellur.
Listafólki neitað um
vegabréfsáritun
PRAG, 18. sept. — ítölsku stjórn-
arvöldin hafa neitað 300 tékk-
neskum hljómlistarmönnum —
söngvurum og ballettmeisturum
auk fjölda fararstjóra — um
vegabréfsáritun til Italíu. Átti
listamannahópurinn að fara til
Feneyja og láta heyra þar til sín
á mikilli listahátíð, sem nú er í
uppsiglingu.
Engin ástæða var gefin fyrir
neitun ítölsku stjórnarvaldanna,
en haft er fyrir satt, að þetta sé
gert í mótmælaskyni við útvarps
áróður tékknesku stjórnarinnar
til ítalíu. Fyrir skemmstu hóf
tékkneska útvarpið daglegar út-
varpssendingar á ítölsku, sem
beint var til ítalíu. Aðallega er
þar fluttur áróður gegn ítölsku
stjórninni og Vesturveldunum.
Leikhús Heimdallar:
Miðnœtursýning í Austur-
bœjarbíói
EINS og kunnugt er var í ráði,
að Leikús Heimdallar hefði
tvær sýningar á gamanleiknum
„Haltu mér — slepptu mér“ nú
fyrir helgina, en þar sem leik-
ararnir eru nú önnum kafnir við
æfingar hjá Þjóðleikhúsinu getur
því miður ekki orðið af því.
En þar sem margir höfðu
pantað aðgöngumiða á þessar sýn
ingar og vegna fjölda áskorana
hefur verið ákveðið að efna til
miðnætursýningar í Austurbæj-
arbíói annað kvöld kl. 11,30.
Gamanleikurinn „Haltu mér
— slepptu mér“ hefur nú verið
sýndur látlaust frá því í byrjun
júlímánaðar við sívaxandi aðsókn
og frábærar viðtökur leikhús-
gesta. Er óhætt að fullyrða að
sjaldan hafi gamanl. hlotið svo
samhljóða lof íslenzkra leikdóm-
ara sem þessi, enda einróma álit
allra, sem séð hafa leikinn, að
hér sé á ferðinni einhver snjall-
asti gamanleikur, sem sýndur
hefur verið hérlendis í seinni tíð.
Og það eru ekki einungis íslenzk-
ir leikdómarar, sem hafa metið
leikinn að verðleikum, því áður
en sýningar hófust hér, hafði
hann verið sýndur mánuðum
saman í London og París við engu
síðri undirtektir.
Aðgöngumiðasala verður í
Austurbæjarbíói eftir kl. 2 i dag
og á morgun.
J