Morgunblaðið - 16.10.1958, Side 18

Morgunblaðið - 16.10.1958, Side 18
18 MORfíVNBT, ADtD Fimmtudagur 16. okt. 1958 Stefna þarf oð auknum skiptum við erlend körfuknattleikslið Þjóðverjarnir fóru héðan ósigraðir Helga Þórarinsdóttir f FYRRAKVÖLD fór fram fjórði og síðasti leikur heimsóknar austur-þýzka körfuknattleiksliðs ins, sem hér hefur dvalizt á veg- um ÍR. Léku Þjóðverjarnir þá gegn liði er íþróttafréttamenn dagblaðanna höfðu valið. Leikn- um lyktaði með sigri Þjóðverj- anna, 56 stig gegn 36. Fóru því Þjóðverjarnir ósigraðir héðan, en þeir héldu heim í gær. Jafn fyrri hálfleikur Leikurinn á þriðjudagskvöldið var jafn framan af og skemmti- legur. Höfðu þó Þjóðverjarnir forystuna allan tímann, en í fyrri hálfleik héldu „pressuliðs- menn“ vel í þá og skildu að- eins 3 stig í hálfleik. Var í fyrri hálfleik um að ræða bezta leik- inn er íslendingar hafa sýnt í kappleikunum við Þjóðverjana. í þessum hálfleik léku lengst af í „pressuliðinu“ Helgi Jó- hannsson, Ólafur Thorlacíus, Guðmundur Árnason, Ingi Gunn- arsson, Ingi Þorsteinsson og Geir Kristjánsson. Náðu þeir vel sam- an og sýndu á köflum mjög góð tilþrif. Attu þeir þó við beztu menn þýzka liðsins, landsliðs- mennina fjóra og fyrirliða þýzka liðsins, sem fyrir nokkrum ór- um var einnig í landsliði A- Þjóðverja. Var því hér um eins konar landsleik að ræða, spenn- andi og tvísýnan. Sundrað lið í leikhléi fóru hins vegar fram miklar mannaskiptingar í „pressuliðinu“ og eftir þær bar liðið ekki sitt barr, og hvernig sem skipt var eftir það, fékkst ekki sá árangur sem úðið sýndi í upphafi og síðari hálfleikurinn var nánast „einstefnuakstur" og sigruðu Þjóðverjar með 20 stiga mun í leiknum, eins og fyrr segir. bagalegt fyrir íþróttina, að slíkur seinagangur skuli vera rikjandi varðandi það að fylgjast með alþjóðareglum hverju sinni. All- ur þessi misskilningur bitnaði á íslenzku liðunum, því fararstjóri Þjóðverjanna dæmdi strangt eft- ir nýju reglunum. Landsleikur Með lítið eitt meiri æfingu að baki og kunnáttu á gild- andi lögum, hefðu íslenzku liðin átt í fullu tré við þetta þýzka lið. Er það þó sterkt lið, enda í því 4 landsliðsmenn og hinn 5. er áður hefur verið landsliðsmaður. Heimsóknin hefur sýnt og sannað, að íslenzkir körfu- knattleiksmenn eru fyllilega færir um að keppa við Evrópu lið. Skal nú vonað að erlení körfuknattleikslið komi hing- að árlega hér eftir og fyllilega er tímabært að athuga mögu- leika á landsleikum í þessari grein. Minningarorð HELGA, dóttir Þórarins Guð- mundssonar í Ólafsvík og konu hans, Fanneyjar Guðmundsdótt- ur, andaðist hinn 28. sept. s. 1. Var henni þá fárra lífdaga vant til að fylla 33 aldursár. Aldraðir foreldrar misstu þá dóttur og tvær litlar stúlkur móður sína. Er þeim að fráfalli Helgu áhyggjuléttir en um leið þungbær harmur. Helga ólst upp í foreldrahúsum með fimm systkinum. Var hún fríð sýnum og bráðger. Var hún ákaflega tilfinningarík og hafði óvenjulega viðkvæma lund. Má vera, að hún hafi því þolað verr en almennt gerist, ýmislegt það mótlæti, sem margir unglingar steyta skipi sínu á, er þeir þýð- ast ekki lengur að sigla þann hæga vind, sem foreldraforsjá virðist oft ungum manni, og þeim mun verr, sem hærra er siglt. Þá má ekkert bila, hvorki stag né strengur og þá þarf góða kjöl- festu. Helga eignaðist þrjú börn. Dó eitt snemma. Móðurkærleiks nutu þessi börn ómælt. Þó var það hennar lífs harmur, að geta ekki tjáð hina heitu móðurást af því örlæti og stundlegri gnægð sem hin veika en stríða lund hennar þráði. En þeim mun þarf- ari var sú huggandi blessun, að aldrei fauk í skjólið hjá afa og ömmu litlu barnanna og að þeirra faðmur var alltaf opinn og fús. Þegar sá kross er lagður á herðar ungri konu, að ólæknandi sjúkleiki varnar henni að lifa öðru vísi en í þjáningu, getur mað ur næstum sætt sig við orðin endalok. Þá sér maður þé undur- samlegu ráðstöfun, að í sjálfri hinni miklu þjáningu, fólst hin eina lækning, hinzta hvíldin. Nærri fer því, að margir hafi lagt hönd á plóginn til hjálpar í slíkum bágindum, sem nú hef- Neitar upplýsing- um varðandi ur lítillega verið vikið að. Mörg- um vildi Helga þakka fórnfúsa hjálp. Að sjálfsögðu fyrst og mest öldruðum foreldrum, sem öllu vildu fórna til hjálpar, en gátu þó minna en vilji stóð til, því að gagnvart slíkum vanda, eru allir lítils megnugir nema guð. Svo var og um systkini, mága og mágkonur, hið ágætasta fólk. Héraðslæknirinn, Arngrím- ur Björnsson, var hér og boðinn og búinn, eins og jafnan, er til hans er leitað. Margir fleiri verð- skulda þakklæti fyrir kærleika og hlýhug til Helgu sálugu. Helga Þórarinsdóttir dvaldist alllengi í Farsóttarhúsinu í Reykjavík og andaðist þar. Er undirrituðum það vel kunnugt, að foreldrar og aðrir aðstand- endur telja frú Maríu Maack mesta velgjörðamann Helgu í veikindum hennar. Enda er það mála sannast, að hún reyndist Helgu sál. slíkur drengur með svo frábærri umhyggju og næst- um ótrúlegri hugulsemi, að slíkt verður ekki fullþakkað. Það er mikil gæfa hverjum sjúkling, að njóta verndar og handleiðslu slíkrar konu. Sé henni umbun í hljóðu þakklæti íslenzks alþýðu- fólks vestur undir Jökli, þá er henni nú ríkulega launað. Blessuð sé minning Helgu Þór- arinsdóttur frá Ólafsvík. Bragi Sigurðsson. Héraðsskólinn Hér sést Jón Guðlaugsson frá Biskupstungum, en hann vann hið mesta afrek er hann síðd. á sunnudag hljóp maraþonhlaup í myrkri og kulda. Myndin er tekin er Jón hafði hlaupið um það bil 5 km og var enn á Hellisheiði. Formósu-stjórn íhugar fœkkun í her á Quemoy Bn aðeins með því að búa varnarliðið fullkomnari vopnum Leikreglurnar Þjóðverjarnir hafa unnið alla sína leiki með allmiklum yfir- burðum, og suma með meiri stiga mun en sanngjarnt og eðlilegt hefði verið eftir gangi leikanna. Er ekki laust við að íslenzku liðin hafi oftast verið dálítið óheppin í körfuskotum og ofan á bætist að nokkur mismunur er á þeim reglum sem hér eru í gildi um körfuknattleik og al- þjóðareglunum, og stafar það af því að ekki er lokið við þýðingu hinna nýju leikreglna, sem alls staðar eru komnar í gildi. Er það 84,90 m i spjót- kasti RÚSSNESKI spjótkastarinn Vladimir Kuznetzov setti í dag nýtt rússneskt met í spjótkasti, kastaði 84,90 m. Gamla metið er hann átti var 83,73 m. íþróttablabið Sport 4. tbl. 4. árg. er nýkomið út og er hið myndarlegasta að efni og öllum frágangi. Ritstjóri blaðs- ins, Jóhann Bernhard, skrifar þar mjög ýtarlegar greinar um Evrópumeistaramótið í Stokk- hóimi og landskeppnina við Dani, en meðal annars efnis má nefna greinar um heimsókn írska landsliðsins, Knattspyrnu- mót Islands, frjálsíþróttaafrek utanbæjarmanna og loks skrá yf- ir alla stórmeistara í skák, en slík skrá mun ekki hafa birzt áður í íslenzku blaði. Blaðið er prýtt miklum fjölda mynda og allt hið eigulegasta. TAIPEI á Formósu 15. okt. (Reuter) — Bandaríkjamenm hafa nú flutt slík kynstur af vist- um og vopnum til Formósu, að lát verður á þeim flutningum að sinni, þar sem ekki er þörf fyrir meira. Enda munu þeir geta hafið flutninga að nýju ef þörf krefur. Nú er baftdaríska liðið á For- mósu búið hinum fullkomnustu vopnum, svo sem orrústuflugvél- um af geðnni F-104 og Nike- Herkúles loftvarnarflugskeytum. Þá hefur herdeild úr landgöngu- liði flotans komið sér fyrir í nýj- um bækistöðvum á suðurodda Formósu og er búizt við að land- gönguliðarnir dveljist þar að minnsta kosti í eitt misseri. Bandaríkjamenn hafa enn ekkí afhent þjóðernissinnum neinar orrustuflugvélar af tegundinni F-104. Þeir hafa hins vegar lagt þeim í hendur allmargar risa- vaxnar flutningaflugvélar, s<=m geta varpað niður í fallhlífum jafnvel hinum stærri fallbyssum og munu þjóðernissinnar nú miklu færari en áður um að sjá Quemoy-eyjum fyrir vopnum og vistum. Hermálaráðuneyti þjóðernis sinna gaf í dag út tilkynningu um að stjórnin hefði til athug- unar áætlun um að fækka her- liði á Quemoy. Þar með er á I engan hátt gefið í skyn, þjóðernissinnar ætli að láta úr höndum sér þessar þýðingar- miklu eyjar. Fækkun herliðs- ins verður einungis fram- kvæmd með því að búa varnar lið eyjanna fullkomnari vopn- um, svo að varnirnar verði frekar styrktar en veiktar. Þá tilkynnti stjórnin, að skipt hefði nú verið um varnarlið a smáeyjunum Tatan og Ertan í Quemoy-eyjaklasanum, en þær eru næst ströndinni og urðu harð ast úti í fallbyssuskothríð komm- únista. AÐALFUNDUR Prestafélags Suðurlands var haldinn í húsi K-F-U-M s.l. þriðjudag. Aðalmál fundarins var: skipan biskups- stóla. Framsögu hafði sr. Sigurð- ur Einarsson í Holti. Samkvæmt tillögu hans gerði fundurinn, að umræðum loknum, þessar álykt- anir. 1. Aðalfundur Prestafélags Suðurlands þakkar Alþingi það starf, sem þegar hefur verið unn ið til endurreisnar Skálholts og lætur í ljósi þá von, að eigi verði að; þar staðar numið, fyrr en upp er „smyglið4' FULLTRÚI sakadómara, sem hef ir með rannsókn smyglmála að gera, kallaði í gærdag fyrir sig blaðamann þann við Alþýðu- biaðið, er skrifað haíði aðalfrétt blaðsins s.l. þriðjudag um að sézt hefði til Ameríkufars hvar smyglvarningi var „kastað í sjóinn og vélbátur á staðnum til þess að hirða hann og koma honum til lands“. Blaðamaðurinn neitaði að upp lýsa hvaðan hann hefði frásögn sína, en embættinu hefir ekki borizt nein kæra út af téðum at- atburði. c- Afmœli ■> JÓHANNES Þorgrímsson, bóndi Eiðhúsum, Snæfellsnesi er sex- tugur í dag. byggður staður og kirkja og biskupsstóll endurreistur í Skál- holti. 2. Fundurim* lítur svo á, að endurreisa beri báða biskupsstól ana fornu og telur eðlilegt að biskupskjöri verði frestað, unz komin er skipan á þau mál, og verði þá kjörnir biskupar til stólanna beggja. Stjórn félagsins var endurkjör in, en hana skipa þessir menn: sr. Sigurður Pálsson, sr. Sveinn Ögmundsson og sr. Garðar Svav- arsson. á Laugum tekinn til starfa ÁRNESI, S-ÞING., 15. okt. — Héraðsskólinn að Laugum var settur kl. 2 í gær. Athöfnin hófst með guðsþjónustu. Séra Stefán Lárusson predikaði. Skólastjór- inn, Sigurður Kristjánsson, setti siðan skólann með ræðu. Allar deildir Laugaskóla eru nú fullskipaðar, en samtals verða í skólanum í vetur 118 nemend- ur, 46 piltar og 72 stúlkur. 30 verða í gagnfræðadeild, 48 í eldri deild, 28 í yngri deild og 12 í smíðadeild. Varð skólinn nú að vísa frá fjölda nemenda, sem sóttu um skólavist, eins og und- anfarin ár. Kennaralið skólans verður óbreytt í vetur, að öðru leyti en því, að séra Stefán Lárusson, sem verið hefur stundakennari við skólann, lætur nú af því starfi. Ráðskona verður í vetur Hrafn- hildur Þórólfsdóttir frá Stóru- Tungu í Bárðardal. Sigrún Kol- beinsdóttir, sem gegnt hefur hús- móðurstörfum við skólann í il ár, hættir nú starfi, en Guðrún Þorleifsdóttir frá Hrísey tekur við, a. m. k. til bráðabirgða. Á síðastliðnu sumri eignaðist skólinn málverk af fyrstu skóla- stjórahjónunum við Laugaskóla, Arnóri Sigurjónssyni og konu hans. Nemendur Arnórs færðu skólanum málverkið að gjöf. Ennfremur bættust í mynda- safn skólans í sumar myndir af Kristjáni Jónssyni, bónda í Fremsta-Felli, sem frá stofnun skólans hefur verið mikill stuðn- ingsmaður hans, og af Þórhalli Sigtryggssyni, fyrrverandi kaup- félagsstjóra á Húsavík. Fornu biskupsstólarnir verði endurreistir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.