Morgunblaðið - 26.11.1958, Blaðsíða 2
2
MORGl’ NBLAÐtÐ
Miðvikudagur 26. nðv. 1958
* JÞegrar Tyrone Power iéll *
Hér birtist síðasta myndin, sem tekin var af einvígi þeirra
George Sanders og Tyrone Powers í Madrid. Skömmu seinna
var Tyrone Power liðið lík. 1 kvikmyndinni um Salómon og
drottninguna af Saba átti Tyrone að leika Salómon, en George
Sanders bróður hans. Háðu þeir einvígi, þar eð þeir elskuðu
báðir drottninguna af Saba. Drottningnua leikur Gina Lollo-
brigida. Hún grét, er hún sá, Tyrone féil niður helsjúkur.
Senn þarf að útbúa ióla
póstinn
Mikils vœnzt af fundi de
Gaulle og Adenauers
LONDON, 25. nóv. — Miðlunar-
tillögur þær sem vitað er, að
fram hafa komið i sambandi við
ágreininginn um fríverzlunar-
svæðið miða að því að deila
Evrópu í fleiri efnahagssamvinnu
heildir en upphaflega hafði verið
ráð fyrir gert. Er þetta haft eftir
áreiðanlegum heimildum í Lond-
on. Hollenzkur séirfræðingur gerði
í dag að tillögu sinni, að reynt
yrði að koma málum svo fyrir
með samningum milli eínstakra
ríkja — svo að auðveldara yrði
Austurvegur - um
Svínahraun -
opnaður
MERKUM áfanga hefur nú þeg-
ar verið náð við lagningu Aust-
urvegar, því að fyrir nokkrum
dögum var sá hluti vegarins er
liggur gegnum Svínahraunið og
þvervegur af honum sem ligg-
ur upp á Hellisheiðarveg, opn-
aður fyrir umferð bíla. Þessi veg
ur er 4.5 km. langur.
Vegamálaskrifstofan tilkynnti
þetta formlega í gær. Sem kunn-
ugt er, hefur Svínahraunið allt-
af orðið mög fljótlega ófært bíl-
um, í snjóum og mjög erfitt að
halda hrauninu opnu, því að veg-
urinn um það er ekki upphækk-
aður og fennir því fljótlega í för
bílanna, ef vindur hreyfir snjó-
inn.
Þá segir í tilkynningu véga-
málastjórnarinnar, að þar sem
þvervegurinn af Austurvegi kem
ur á Hellisheiðarveginn, í Hvera-
dalabrekku, hafi þar í brekkunni
verið lagður 500 m langur vetrar
vegur, upp á hraunbrúnina neð-
an Skíðaskálans. Um hann eiga
bílarnir að aka þegar aðalvegur-
inn teppist í snjóalögum. Þessi
nýi vegur gerir það t.d. kleift fyr
ir Reykvíkinga að bregða sér
miklu oftar á skiði, — þegar
snjór er á hinum vinsælu skíða-
slóðum í Hveradölum, — en að-
altilgangurinn er auðvitað sá að
"tryggja betur samgöngurnar
milli höfuðborgarinnar og land-
búnaðarhéraðanna fyrir austan
Fjall.
Við það að þessi nýja leið hef-
ur verið opnuð, styttist Hellis-
heiðarvegur um 1,3 km.
Árshátíð Sjálf-
stæðisfélapanna
í Hafnarfirði
HAFNARFIRÐL — Arshátíð
Sjálfstæðisfélaganna hér verð
ur haldin í Góðtemplarahús-
inu n.k. laugard. og hefst hún
kl. 8,30 síðd. — Hún verður
með svipuðu sniði og í fyrra.
en nánar verður sagt frá til-
högun hennar hér í blaðinu
siðar í vikunni. — Mikil að-
sókn hefir ávallt verið að árs-
hátíð Sjálfstæðisfélaganna,
enda vel til hennar vandað.
G. E.
Dagskrá Alþingis
í DAG er boðað til fundar í Sam-
einuðu Aiþingi á venjulegum
tíma. Fjögur mál eru á dagskrá.
1. Skýrsla iðnaðarmálaráð-
herra um fríverzlunarmálið. 2.
Steinsteyptur vegur frá Hafnar-
firði til SfUidgerðis, þáltill. 3. Hag
rannsóknir, þáltill. 4. Almanna-
tryggingalög, þáltill.
að stíga næsta skrefið í áttina að
sameiningu.
Annars er of snemmt að leggja
árar í bát, því að mikils er vænzt
af fundi þeirra Adenauers og de
Gaulle.
Zarubin
látinn
LONDON, 25. nóv. — TASS-
fréttastofan rússneska skýrði svo
frá í dag, að Georgi Zarubin, að-
stoðarutanríkisráðherra Rússa,
hefði látizt í gær úr „illkynja
sjúkdómi.“ Zarubin var 58 ára
að aldri. Hann hafði um árabil
verið sendiherra Rússa í Was-
hington, London og Ottawa og
var talinn einn fremsti „diplo-
mat“ Rússa. Hann var jafnframt
fulltrúi Rússa á fjölmörgum al-
þjóðaráðstefnum, á utanríkisráð-
herrafundinum í París 1947, utan
ríkisráðherrafundi fjórveldanna
í Berlín 1954 og jafnframt í rúss-
nesku sendinefndinni á ríkisleið-
togafundinum í Genf 1955. Hann
átti sæti í miðstjórn kommúnista
flokksins.
134 mislingatilfelli
í GÆRKVÖLDI sendi skrifstofa
borgarlæknis i.il blaðsins yfirlit
um farsóttir þær er nú herja
hér í bænum. Eins og kunnugt
er, þá eru það mislingarnir sem
helzt er um að ræða. Það kem-
ur í ljós við athugun á útbreiðslu
misbnganna, að þeir virðast hafa
farið nokkru hraðar yfir síðustu
tvær vikurnar en til dæmis í byrj
un mánaðarins. Samkvæmt yfir-
litinv voru skráð 134 mislinga-
tilfelli vikunna 9.—15. nóv. —
Vígsla félagsheim-
ilisins á Flúðum
í GREININNI af vígslu Félags-
heimilisins að Flúðum í gær, brá
prentvillupúkinn á Ieik. Er þar
fyrst að geta, þar sem standa
átti virðulegar húsfreyjur, stóð
bústýrur. Eru húsfreyjurnar í
Hrunamannahreppi vissulega
beðnar afsökunar. Þá var allt í
einu búið að flytja Hraungerðis-
hrepp upp í Hreppana, en þar
átti auðvitað að standa Hruna-
mannahreppur. Varðandi fram-
lögin til félagsheimilisins, þá hef
ur Félagsheimilasjóður þegar
greitt 315,000 kr. og hlutur Ung-
mennafélagsins er 250 þús. kr.
Fjárhæðir þessar voru báðar
taldar lægri i frásögninni og leið-
réttist það hér með. Eins víxluð-
ust nöfn tveggja manna undir
myndinni af byggingarnefnd
Flúðaheimilisins, þeirra Magnús
ar Ögmundssonar Galtafelli og
Helga Kjartanssonar í Hvammi.
Þá skal þess getið að til kaupa á
borðum og stólum söfnuðust inn-
an sveitarinnar 106.000 kr. En
kvenfélagskonur gáfu aftur á
móti borðbúnað og ýmsan annan
húsbúnað til heimilisins.
WASHINGTON, 25. nóv. — Tals-
maður Bandarikjastjórnar upp-
lýsti í dag, að Túnisstjórn hefði
nú fallizt á skilyrði þau sem
Bandaríkin setja fyrir vopna-
sölu til útlanda. Munu fulltrúar
stjórna beggja ríkjanna setjast á
rökstóla innan tíðar til þess að
ræða væntanleg vopnakaup Tún-
is í Bandaríkjunum, en ekki er j
ákveðið hvar og hvenær fundur- J
inn verður hldinn.
PÓSTSTOFAN í Reykjavík vill
vekja athygli póstnotenda á því,
að nú fer að líða að því að út-
búa þarf jólapóstinn.
Skipaferðir til útlanda fyrir
jól verða allar fyrri hluta des-
embermánaðar, og þarf því að
skila öllum sendingum (bréfum
og bögglum), sem fara eiga sjó-
leiðis, í síðasta lagi:
Fyrir 5. des. til Ameríku (U.
S.A. og Canada). Fyrir 8. des. til
Englands og áfram. Fyrir 11. des.
til Norðurlanda og meginlands-
ins.
Þeim póstsendingum, sem
senda á flugleiðis til útlanda, ber
að skila til flutnings í síðasta
lagi fyrir neðangreinda daga:
Bögglapósti fyrir 18. des. At-
hygli skal vakin á því, að út-
flutningsleyfi þarf fyrir öllum
varningi til útlanda nema bókum
og blöðum. Leyfi á Skólavörðu-
stíg 12.
Bréapósti fyrir 18 des. til
Ameríku (U.S.A. og Canada).
Fyrir 19. des. til Bretlands. Fyr-
ir 20. des. til Norðurlanda og
meginlandsins.
Til staða innanlands þarf í síð-
Ekkert svar
LONDON, 25. nóv. — Macmillan
upplýsti það á þingi í dag, að
Krúsjeff hefði enn ekki svarað
bréfi um hugsanlegan ríkisleið-
togafund
Ekki hefur heldur verið látið
opinberlega uppi um hvaða vopn
hér verður að ræða, en samkv.
áreiðanlegum heimildum mun
Túnisstjórn fyrst og fremst
leggja áherzlu á að búa fótgöngu
lið sitt fullkomnari vopnum.
Bandariski talsmaðurinn lét
þess getið, að Frökkum hefði
verið kunngert um gang málanna
— og skilyrði Bandaríkjastjórnar
fyrir vopnasöhinni væru, að
vopnin yrðu einungis notuð í
varnarskyni og ekki afhent herj-
um annarra þjóða nema með sam
þykki Bandaríkjanna.
asta lagi að skila til flutnings öll
um sendingum, sem eiga að kom
ast í hendur viðtakenda fyrir jól,
eins og hér segir:
Til Austurlands fyrir 15. des.
Til Norður- og Vesturlands fyr
ir 17. des.
Síðustu ferðir með sérleyfis-
bifreiðum frá Reykjávík út um
land verða dagana 18.—20. des.
Jólakort (skrautkort) með á-
prentuðum heillaóskum og að-
LONDON, 25. nóv. — Brezka ut-
anríkisráðuneytið upplýsti í dag,
að Abbúd forsætisráðherra Súd-
ans og stjórn hans hefði verið
kunngert, að brezka stjórnin
mundi viðurkenna hana form-
lega innan skamms.
Þá er kominn til London sér-
legur sendimaður stjórnarinnar í
Afríkuríkinu Guinea, sem sagði
skilið við Frakkland fyrir
skemmstu og hlaut sjálfstæði.
' Daillo, en svo heitir sendimaður-
! inn, mun ræða við brezka ráð-
herra og gera frekar grein fyrir
yfirlýsingu þeirri, sem birt var
í Guinea um helgina þess efnis,
að til greina kæmi stofnun sam-
Togarafarmur af
karfa unninn
austanlands
NESKAUPSTAB, 25. nóv. —
Karfafarmurinn, sem bv. Gerpir
landaði hér í síðustu viku, reynd-
ist 365 lestir og fór hann svo til
allur til frystingar. Mikil vinna
er við frystinguna, sem gengur
vel og mun ljúka á miðvikudag.
Karfinn virðist þola þá geymslu
ágætlega.
Gerpir var 16 daga í þessari
veiðiferð. Fór skipið héðan á
laugardagskvöld áleiðis á nýju
Fylkismið aftur. Þetta er fyrsti
togarafarmurinn af karfa, sem
unninn er hér austanlands á
þessu ári. — Fréttaritari-
eins nafnkveðju, má senda i opnu
umslagi. Póststofan vill biðja alla
að skrifa greinilega utan á send-
ingarnar, kaupah frímerkin tím-
anlega, líma þau í efra hægra
horn utanáskríftarmegin. Pen-
inga má ekki senda í almennum
bréfum.
Jólabréf í Reykjavík verða
borin út ásamt öðrum sending-
um eftir því sem þau berast, en
jólabréf og kveðjur, sem koma í
póst eftir 18. des., má búast við
að verði ekki borinn út fyrr en
eftir jól.
bandsríkis Guineu og Ghana.
Ghana var áður brezk nýlenda
og hlaut sjálfstæði innan brezka
samveldisins 1957.
Brezka stjórnin ræddi málið í
dag. Ef úr stofnun þessa sam-
bandsríkis verður mun ráðstefna
brezku samveldislandanna skera
úr um það hvort Ghana skuli
víkja úr samveldinu, eða hvort
sambandsríkið fái í heild inn-
göngu í samveldið.
Frá Alþingi
FUNDIR voru haldnir í báðum
deildum Alþingis á venjulegum
tima í gær. Á dagskrá efri deild-
ar var eitt mál. Frumvarp til
laga Um breytingu á lögum um
útflutningssjóð. — Var það til
fyrstu umræðu og vísað til 2.
umr. og fjárhagsnefndar með
samhljóða atkv.
Tvö mál voru á dagskrá neðri
deildar. Frumvarp til laga um
skemmtanaskattsviðauka 1959
var til 2. umr. og vísað til 3. umr.
samhljóða. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um skip-
an prestakalla var til 1. umr. og
vísað samhljóða til 2. umr. og
menntamálanefndar.
11. fundurinn
VARSJÁ, 25. nóv. — Fulltrúar
Bandaríkjastjórnar og kínversku
kommúnistastjórnarinnar hittust
í 11. sinn í dag til þess að reyna
að finna lausn Formósumálsins.
Fimdurinn stóð í tvær stundir.
Enginn árangur varð. Næsti
fundur verður haldinn 12. desem
ber og munu fulltrúarnir halda
heimleiðis í millitíðinni
Túnis fœr vopn í Banda-
ríkjunum
Ghana úr brezka satn
veldinu ?