Morgunblaðið - 15.01.1959, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.01.1959, Qupperneq 2
2 MORCVNRLAÐIÐ Fimmtudaerur 15. jan. 1959. Tillaga um lœknishjálp sjómanna til stjórnar- innar Fjórar leiðir konta til greina 1 GÆR var tekin til síðari um- ræðu í sameinuðu Alþingi þings- ályktunartillaga Péturs Ottesen um læknishjálp sjómanna á fjar- lægum miðum. Hafði Benedikt Gröndal framsögu í málinu fyrir hönd allsherjarnefndar. Sagði hann, að þegar allur flotinn væri að veiðum, færi nærri, að um 3—400 menn væru á þeim skip- um, sem væru að veiðum, en 6—700 væru á skipum á siglingu að miðum og frá. — Færi því ekki milli mála nauðsyn á að veita þessum mönnum einhverja hjálp ef slys bæri að höndum. Fjórar leiðir kæmu einkum til greina í því sambandi. í fyrsta lagi væri sú leið, að hafa eftirlitsskip með lækni um borð á miðunum, en það mundi of kostnaðarsamt til að unnt væri að framkvæma það. í öðru lagi hefði verið bent á þá leið, að hafa lækni um borð í togara og flytja hann milli togara, þannig, að læknirinn væri alltaf á miðunum. — Þessi leið myndi hafa mikla erfiðleika í för með sér og væri óraunhæf. í þriðja lagi hefði verið lagt til, að skip- in leituðu næstu hafnar, ef slys bæri að höndum ,en til næstu hafnar væri 15 til 20 klst. sigling af Nýfundnalandsmiðum. — í fjórða lagi hefði loks verið bent á þá leið, að veita læknishjálp gegnum útvarp eða gegnum loft- skeytastöðvar. Hefði þessi aðferð verið reynd með góðum árangri í Róm, en einnig nokkuð tíðkuð hér við land. Sá agnúi væri þó á, að loftskeytasamband væri mjög misgott milli íslands og skipa á Nýfundnalandsmiðum. — Hins vegar væri hægt að bæta úr því og væri þá ekkert til fyrir- stöðu, að þessi aðfenð væri tek- in upp. Pétur Ottesen kvaddi sér hljóðs að ræðu framsögumanns lokinni. Kvaðst hann vilja þakka alls- herjarnefnd fyrir skjóta af- greiðslu þessarar tillögu. Tillag- an hefði vakið mikla athygli hjá þeim sjómönnum, sem stunda veiðar á fjarlægum miðum. — Hefðu Alþingi víst borizt áskor- anir frá áhöfnum flestra ef ekki allra íslenzkra togara, sem veið- ar stunda við Nýfundnaland um að bætt yrði úr þessu ástandi. Það væri ekki farið langt í tillögunni í því að benda á leiðir til úrbóta, en bezt væri þó að hafa eftirlitsskip á miðunum. — Hugsanlegt væri einnig að sýna viðleitni í að sinna þörf sjómann- anna með því að hafa lækni að staðaldri um borð í einhverjum togaranna. — Vandkvæði mundu þó á, að slík hjálp kæmi ávallt að notum. Þó teldu bæði skip- stjórar og sjómenn, að í þessu mundi felast mikil úrbót frá því, sem nú er. Og í þeim tilfellum, sem ekki væri hægt að ná í lækn- inn, væri hægt að leita ráða hans. Vandhæfi væri á því, að leita læknisráða frá íslandi, en frekar að hann gæti gefið góð ráð ef hann væri staddur á miðunum. Pétur Ottesen kvaðst vita eft- Dagskrá Alþingis í DAG er boðaður fundur í sam- einuðu Alþingi kl. 1,30, en að honum loknum eru boðaðir fund- ir í báðum deildum. Á dagskrá sameinaðs Alþingis er eitt mál. Fyrirspurnir: a) Raf- veita Vestmannaeyja. Hvort leyfð skuli. — b) Vegakerfi á Þing- völlum. Hvort leyfð skuli. Eitt mál er á dagskrá efri deild ar: Dýralæknar, frv. — 2. umr. Á dagskrá neðri deildar eru tvö mál: 1. Bann gegn botnvörpu veiðum, frv. 3. umr. — 2. Bún- aðarmálasjóður, frv. Frh. 2. umr. ir þeim undirtektum, sem þetta mál hefði fengið í allsherjar- nefnd, að það yrði afgreitt frá Alþingi. — En þá kæmi til kasta ríkisstjórnarinnar. Beindi nú Pétur máli sínu til dómsmála- ráðherra, sem einnig fer með heilbrigðismál, og kvaðst vona, að hann brygðist vel við og leit- aði tiltækilegra úrbóta í þess- um efnum. — Hefði þá hv. ráð- herrann samráð við útgerðar- menn, sjómenn og lækna um það hvernig hægt væri að ráða bót á þessum málum og hvernig bezta lausn þeirra yrði tryggð. Fleiri tóku ekki til máls og var tillagan samþykkt með 27 samhljóða atkvæðum og afgreidd til ríkisstjórnarinnar sem álykt- un Alþingis. — Varðarfundurinn Framhald af bls. 1. hefðu bent á, í fyrsta lagi, að gera þyrfti bráðabirgaráðstafanir til þess að stöðva verðbólguna. Hefðu þeir bent á ákveðnar leiðir til þess. í öðru lagi hefðu þeir lýst því yfir að gera yrði margháttaðar aðra rráðstafanir til þess að koma efnahagsmálum þjóðarinnar á heilbrigðan grundvöll.En eðlilegt væri að kosningar skæru úr um það, hvaða leiðir yrðu farnar í þessum efnum. Hann kvað Sjálf- stæðismenn ekki fara dult með það, að nauðsynlegar ráðstafanir kynnu að hafa í för með sér nokkra kjaraskerðingu fyrst í stað. En um þetta yrði að segja þjóðinni sannleikann og koma hreint framan að henni, segja henni hver vandinn sé Ef nú væri farið rétt að væri hægt að leggja grundvöll að meiri vel- megun en nokkru sinni áður með hagnýtirrgu þeirra auðlinda, sem landið á. Ekki liægt að fá þingmeirihluta Bjarni Benediktsson kvað ekki hafa verið mögulegt að fá þing- -meirihluta á Alþingi til stuðn- ings við þær ráðstafanir sem Sjálfstæðismenn hefðu talið nauð synlegar. Flokkurinn hefði þá ákveðið að veita minnihluta- stjórn Alþýðuflokksins þann stuðning, að verja hana van- trausti. Ríkisstjórnin hefði lýst því yfir að hún mundi beita sér fyrir kosningum í vor, bráða- birgðaráðstöfunum til stöðvunar verðbólgunni og nýrri kjördæma skipun. Kall tímans Ræðumaðurin kvað Sjálfstæðis menn gera sér það ljóst, að ráð- stafanir stjórnarinnar í efnahags málum yrðu aðeins byrjunarað- gerðir til lausnar þeim vanda, sem við væri að etja. Við Sjálfstæðismenn munum styðja Alþýðuflokkinn til þessara ráðstafana og vonum að forysta hans um þær takist vel. Bjarni Benediktsson lauk máli sínu með þeim orðum, að Sjálfistæðismenn vildu hafa samstarf við alla þá sem skildu kall tímans og vildu ís- landi vei. Við þurfum á sam- starfi margra manna að halda, og við heitum á allt þetta fólk til stuðnings baráttunni fyrir því að vegur þjóðar okkar og farsæld verði meiri en nokkru sinni fyrr. Ræðu Bjarna Benediktssonar var ágætlega tekið. Hófust síðan frjálsar umræður, og tóku þessir menn til máls: Ólafur Björnsson .alþingismaður, Hannes Jónsson, verkamaður, Þorkell Sigurðsson, vélstjóri og Jóhann Hafstein, alþingismaður. Fór þessi fyrsti fundur Varðar félagsins á þessu nýbyrjaða ári hið bezta fram. Vafalaust Tyftist hrúnin á skíðagörpunum, þegar þeir sjá þessa snævi þöktu tinda á myndinni. Bláfjöllin eru eitthvert hezta skíðalandið í nágrenni Reykjavíkur. örin bendir á lítinn skíða- kofa, sem hlotið hefur nafnið Himnaríki, og sýnir það betur en nokkuð annað hverjum aug- um fjallamenn líta þennan stað. Inn í fjöllin skerst Jósepsdalur, þar sem Ármenningar eiga sér skála, en þar er sýnilega auð jörð enn. í baksýn sjáum við svo Hengilinn. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Andstaða Framsóknar gegn vegasamhandi við Vestfirði Vestfirðingar skiptast ekki i póli tiska flokka i afstöðunni til samgöngubóta Á FUNDI sameinaðs Alþingis í gær var haldið áfram umræðum um þingsályktunartillögu Kjart- ans J. Jóhannssonar og Sigurðar Bjarnasonar um akvegasamband við Vestfirði. Var Páll Zóphónías son á mælendaskrá frá miðviku- deginum áður. Sagði hann, að 1. og 2. liður tillögunnar væru auðsjánanlega fluttir í því einu augnamiði að sýnast, í þessum tillögum er lagt til að Vestfjarða vegi frá Barðaströnd í Arnarfjörð verði lokið á næsta ári og vega- gerð, er tengi ísafjörð og ná- grannakauptúnin við sveitirnar við ísafjarðardjúp, verði lokið á ekki lengri tíma en þremur árum. Hins vegar taldi Páll, að þriðji liður tillögunnar, sem leggur til að ákvæðisvinna verði tekin upp í vegagerð, væri athyglisverður. Þá taldi Páll það ekki ná nokk- urri átt, að ákveða fjárveitingu til vegaframkvæmda með þings- ályktunartillögu, enda væru eng in dæmi fyrir að slíkt hefði verið gert á Alþingi. Rakalaus fullyrðing Páls Zóphóníassonar Sigurður Bjarnason tók næst- ur til máls. Sagði hann, að Páll Zóphóníasson hefði lýst því yfir, að flutningsmenn meintu ekkert með 1. og 2. lið tillögunnar. Þetta gæfi glögga hugmynd um hvernig Páll Zóphóniasson ynni að málum. Hann flytti þau ein- göngu til að sýnast. Þá væri það einnig rakalaus fullyrðing, að fé hafi ekki verið veitt með þáltill. frá Alþingi. Kvað Sigurður slík- ar fjárveitingar oft hafa átt sér stað þau 16 ár, sem hann hefði setið á þingi. Fjandskapur Framsóknar við Vestfirði Það er annars undarlegt, hélt Sigurður áfram, að í hvert skipti sem vegamál Vestfjarða ber á góma hér á Alþingi, standa upp tveir þm. Framsóknarfl., . þeir Bernharð Stefánsson og Páll Zóphóníasson, og hafa allt á horn um sér. En þetta gefur einnig Tvœr virðulegar út- farir í Akureyrarkirkju AKUREYRI, 14. jan. — f gær var gerð héðan frá Akureyri út- för Jóhanns Helgasonar flug- manns, sem fórst af slysförum1 á Vaðlaheiði fyrir skemmstu. Mikill fjöldi fólks var við jarð-' arförina, m.a. margir starfsbræð- ' ur hins látna, er hingað voru komnir frá Reykjavík. Jóhann var vinsæll maður, hógvær í framgöngu og drengur hinn bezti. Hann var viðurkenndur fær í sínu starfi, og hafði hina beztu tiltrú. Hlýhugur fylgir honum til fyrirheitna landsins. f dag fór fram útför Kristjáns Kristjánssonar, frá Birningsstöð- um í Fnjóskadal, fyrrum síma- verkstjóra. Kristján var kunnur atorkumaður við viðgerðir á sím- anum á bemskuskeiði hans hér á landi. í þá daga var útbúnað- ur allur mun óvandaðri og erfið- ari í meðförum en nú er. Mikið þurfti þá á sig að leggja til þess að lagfæra símabilanir, er urðu á heiðum og fjallavegum, oft við hin verstu skilyrði um hávetur. Margir Akureyringar munu minn ast Kristjáns heitins, er hann á efri árum gekk hér um götur, léttur í spori, þótt starfsdagur væri langur orðinn. Kristján var maður hress í anda, og kjarnmik- ill bæði til orð og æðis. — Vig. LONDON, 14. jan. — Það er haft eftir áreiðanlegum heimildum, að Englandsbanki muni á morgun lækka forvexti úr 4% í 3%%. góða vísbendingu um hver ást þeirra er raunverulega til strjál- býlisins. Kvaðst Sigurður harma það að þessir þingmenn skyldu fjandskapast svo við landshluta, sem hefði orðið útundan í vega- málum, en ræður þeirra beggja hefðu mótazt af þröngsýni og litlum velvilja. Þá vék Sigurður að því, sem Bernharð Stefánsson hafði sagt í ræðu sinni fyrra miðvikudag, að það væri ekki tíðkanlegt, að flytja þáltill. um fjárveitingar til vega. Minnti hann í því sam- bandi á það að til Austurvegar í nágrenni Reykjavíkur er ríkis- stjórninni heimilað að taka allt að 20 milljón króna lán. Einnig hefði fyrr á þessi þingi verið flutt þáltill. um steinsteyptan veg frá Hafnarfirði til Sandgerðis. En þegar sú tillaga hefði verið til umræðu í þinginu hefði enginn orðið var við að þeir Bernharð Stefánsson og Páll Zóphóníasson stæðu upp til andmæla. En nú settu þeir upp landsföðurssvip, þegar talað væri um nauðsynlega vegagerð á Vestfjörðum. Kvaðst Sigurður harma það, að tveir af þingmönnum Framsóknarflokks- ins skyldu hafa sýnt þessu máli andúð og þröngsýni. Eftir þessari afstöðu yrði munað. Fólk greind- ist ekki í flokka um þetta mál á V esturfj örðum. Sex þús. manns án akvegasambands Sigurður Bj arnason þakkaði þm. Vestur-ísfirðinga Eiríki Þor. steinssyni stuðning við málið. En hann talaði um það fyrra mið- vikudag. Hann hefði sagt þessa tillögu vera sitt mál. En hann hefði þó ekki viljað gerast með- flutningsmaður tillögunnar. Að lokum kvaðst Sigurður vilja endurtaka, að hér væri um mikið sanngirnismál að ræða, því Vest- firðingar byggju við algerða sér- stöðu í þessum efnum. Sex þús- und manns á Vestfjörðum væru án sambands við akvegakerfi landsins. Nokkrar meiri umræður urðu um málið, en að þeim loknum var þingsályktunartillagan sam- þykkt til 2. umræðu með 27 sam- hljóða atkvæðum og til fjárveit- inganefndar með 28 samhljóða at kvæðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.