Morgunblaðið - 31.01.1959, Qupperneq 16
VEÐRIÐ
Hvass suðvestan með skúrum
og síðar éljum.
25. tbl. — Laugardagur 31. janúar 1959
Theodor Heuss
Sjá grein á bls. 6.
Einum
erninum
fœrra
HVALLÁÍRUM, A-Barð., 30.
jan. — Óvenjulegan reka bar hér
á fjöru í dag: Var það dauður
örn. Engir áverkar voru á fugl-
inum. Er því mjög sennilegt, að
hann hafi drepizt af eitri, en
svifið út yfir hafið, meðan hann
háði dauðastríð sitt. .Hitt er
staðreynd, að íslendingar eiga
einum erni færra. — Þórður.
Mjólk flutt í tóm-
um brúsum
VIÐ umræður um niðurfærsíu-
frumvarpið í efri deild Alþingis
í gær talaði Páll Zóphóníasson,
1. þm. Norðmýlinga. Ræddi hann
meðal annars um niðurgreiðslur
landbúnaðarvara og kvað niður-
greiðslu mjólkur nú svo mikla,
að það borgaði sig fyrir flesta
bændur á landinu, að leggja inn
mjólk sína og kaupa hana síðan
aftur niðurgreidda.
Gætu bændur í Mosfellssveit
grætt um 50 aura á mjólkurlítr-
anum með þessu móti og bænd-
ur annars staðar á Iandinu
nokkru minna. — Sagði Páll
Zóphóníasson að lokum að bænd-
ur gætu komið þessu í kring án
mikils tilkostnaðar. Þeir þyrftu
ekki annað en fá neyzlumjólk
sína til baka í tómu brúsunum!
Biblmdaguriim
Á MORGUN (2. sunnudag í Níu-
viknaföstu) er hinn árlegi Biblíu
dagur islenzku kirkjunnar. Við
guðsþjónustur dagsins verður
talað um Biblíuna og tekið á
móti gjöfum til Hins íslenzka
Biblíufélags.
En Biblíufélagið hefur nú í
undirbúningi nýja vandaða út-
gáfu af Biblíunni, sem ráðgert er
að verði tilbúin á 150 ára af-
mæli félagsins 1965, en Hið ís-
lenzka Biblíufélag var stofnað
10. júlí 1815 og er elzta starf-
andi félag landsins.
9. sinfónía
Beethovens flutt
á morgun
TÓNLISTARNEFND Háskólans
lýkur kynningunni á sinfóníum
Beethovens í hátíðasal Háskólans
sunnudaginn 1. febrúar kl. 5 e.h.
Fluttur verður af hljómplötum
síðasti þáttur níundu sinfóníunn-
ar (kórþátturinn), en fyrri þætt-
irnir þrír voru fluttir síðastlið-
inn sunnudag. Dr. Páll ísólfsson
kynnir verkið fyrir áheyrendum
og flytur skýringar. Þátturinn
verður tvítekinn og notaðar tvær
upptökur: hljómsveitin Philharm
onia, stjórnandi Herbert von
Karajan, og hljómsveitin Pro
Musica, stjórnandi Jascha Horen-
stein.
Aðgangur er óktypis og öllum
heimill.
„Á yztu nöf“ eftir bandaríska skáldið Thornton Wilder verð-
ur frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Leikstjóri er Gunnar
Eyjólfsson og Thor Vilhjálmsson hefur gert þýðinguna.
Að þessu sinni er óvenjumikil eftirspurn eftir aðgöngumið-
um á frumsýningu og má í því sambandi geta þess að hátt á
þriðja hundrað manns eru á biðlista, ef einhver frumsýningar-
gesta skyldi afþakka miða sína. — Myndin er af Gunnari
Eyjólfssyni. —
Ákœruvaldið í höndum
ópólitísks embœttis-
manns
— er skoðun Lög-
frœðingafélags
íslands
í FYRRAKVÖLD var haldinn
fundur í Lögfræðingafélagi
íslands. Var þar til umræðu
skipan opinbers ákæranda.
Frummælandi var Þórður
Björnsson, fulltrúi við saka-
dómaraembættið ,en aðrir ræðu-
menn voru Theodór B. Líndal,
prófessor í réttarfari, Hákon
Guðmundsson, hæstaréttarritari,
Baldur Möller, deildarstjóri í
dómsmálaráðuneytinu og Ár-
mann Snævarr, prófessor í refsi-
rétti.
Ræðumenn voru sammála um
að réttarörygginu væri betur
borgið, ef ákæruvaldið væri í
höndum ópólitísks embættis-
manns en pólitísks ráðherra eins
og nú er. Ræðumenn bentu á að
meðal allra siðmenntaðra lýð-
ræðisþjóða tíðkaðist það hvergi
að ákæruvaldið væri í höndum
pólitísks ráðherra.
Það kom fram að stjórn fé-
lagsins myndi koma skoðunum
félagsmanna í þessu veigamikla
máli á framfæri við rétt stjórn-
arvöld. Hafa lögfræðingar full-
an hug á því að láta ekki sitja
við orðin tóm í þessu máli.
Geta má þess að fyrst var máli
þessu hreyft á Alþingi árið 1934
Skjaldarglíma
SKJALDARGLÍMA Ármanns fer
fram í íþróttahúsinu við Háloga
land á morgun og hefst kl. 4,30
e. h. Keppt er um skjöld, sem
Eggert Kristjánsson, stórkaup-
maður gaf,
Meðal keppenda verða þeir Ár-
mann J. Lárusson. Umf. R., nú-
núverandi skjaldhafi og Trausti
Ólafsson, Á, sem vann skjöldinn
árið þar áður.
Hafnargerðir og lend-
ingarbœtur
í FYRRADAG var útbýtt á Al-
þingi frumvarpi til laga um
breytingu á lögum um hafnar-
gerðir og lendingarbætur. Flm.:
Jóhann Jósefsson.
í frv. er lagt til að síðasta
málsgrein 1. gr. laganna orðist
svo:
Til kostnaðar við hafnargerðir
og lendingarbætur telst: íafnar-
garðar, bryggjur, dýpkun, upp-
fyllingar, dráttarbrautir, þurr-
kvíar, kranar, innsiglingarmerki,
hafnsögubátar og enn fremur ver-
búðir í viðleguhöfnUm.
í greinargerð segir að frv. þetta
sé flutt samkvæmt ósk bæjar-
stjórnar Vestmannaeyjakaupstað-
ar.
af Gunnari Thoroddsen borgar-
stjóra. Síðan hefur málið skotið
upp kollinum nokkrum sinnum
á Alþingi í formi frumvarpa, en
aldrei átt nægu fylgi að fagna
meðal alþingismanna,, hverju
sem það sætir.
Banaslys í gærmorgun
Vélstjóri varð fyrir togaraskrúfu,
er rann af vcirubílspalli
í GÆRMORGUN varð hörmulegt
slys á Ægisgötunni. Skrúfa af
togara féll af bíl, ofan á Skarp-
héðinn Jósepsson, vélstjóra,
starfsmann hjá vélsmiðjunni
Héðni, og beið hann samstundis
bana.
Var verið að flytja skrúfuna
niður í Slipp. Vörubíllinn var
kominn niður undir hlið Slipps-
ins. Þar er dálítill halli á göt-
unni. Fullvíst er talið, að þá hafi
hin þunga skipsskrúfa runnið af
stað á pallinum, en hún var ekki
bundin og ekki skorðuð. Þá mun
Skarphéðinn, sem stóð á pallinum
hafa séð að hverju stefndi. Mun
hann þá hafa gripið til þess ráðs
að stökkva af pallinum.
Skarphéðni hefur skrikað
fótur á snæviþakinni götunni, er
hann stökk, því hann féll flatur,
en skrúfan kom á eftir honum
og varð Skarphéðinn undir einu
skrúfublaðinu.
Við athugun á aðdraganda
slyssins hjá rannsóknarlögregl-
unni í gær, kom það í ljós, að
pallur vörubílsins, er flutti skrúf
una, hafði verið snævi þakinn,
skrúfan legið úti og hafði hún
hreinlega fryst undir sér snjó-
inn. Var það vegna ísingarinnar,
Erfitt um rœktun í gróð-
urhúsum í Hveragerði
vegna skorts á hita
HVERAGERÐI, 30. jan. — Frá
því í byrjun desember og þar til
sl. laugardag hafa verið svo til
35 Færeyinga
vantar á Akranes-
báta
AKRANESI, 30. jan. — Hér hefur
veríð landlega síðan á þriðjudag
nema hjá Höfrungi, sem fór í einn
róður og fiskaði þá 2% lest. Þrjú
útgerðarfyrirtæki hér vantar 35
Færeyinga á bátana. Útgerðarfé-
lag Ólafs E. Sigurðssonar, kaup-
manns, og Þorkels Halldóissonar,
skipstjóra, vantar þó engan mann
á báta sína, Sigrúnu og Ólaf
Magnússon.
Þeir Ólafur E. Sigurðsson og
Emar Árnason, skipstjóri á Sig-
rúnu og aflakóngur Akraness á\sl.
ári, hafa fengið leyfi til þess að
láta smíða bát. Báturinn verður
85 lestir að stærð og verður smið-
aður í Danmörku. Áætlað er, að
báturinn verði tilbúinn í nóvem-
bermánuði á þesu ári.
—Oddur.
Nær algjör land-
lega í Eyjum
VESTMANNAEYJAR, 30. jan. —
Undanfarna 4 daga hefur verið
nær algjör landlega hér í Vest-
mannaeyjum, austan og suðaust-
an hvassviðri með miklu brimi.
Þó fóru héðan 3 bátar á sjó í gær,
en þeir gátu lítt athafnað sig úti
á miðunum og afli sáratregur.
Heita má að ördeyða sé á miðum
Eyjabáta, þar sem aflinn var
seinast, þegar róið var 2—3 tonn.
Vona menn nú, eftir svona
mikil frátök og hafrót að afli
glæðis á ný. — Bj. Guðm.
samfelldar frosthörkur. Mjög
mikið hefir reynt á hitaveitu
þorpsins í þessum löngu og miklu
frosthörkum, og vegna skorts á
gufu til hitaveitunnar var erfiit
að halda uppi ræktun í gróður-
húsum.
Borað hefir verið eftir hita hér
frá því í byrjun desember, en af
þeirri borun hefir enginn árang-
ur fengist ennþá. Menn vonast
þó eftir því, að aukinn hiti fáist
fljótlega, því að hitaþörfin er
mest í febrúar og marz, er
agúrku- og tómatræktunin stend
ur sem hæst. Þessar tvær teg-
undir þurfa einna mestan hita
af öllum þeim grænmetistegund-
um, sem hér eru ræktaðar.
Skortur hefir ekki verið á
neyzluvatni hér í frostunum, enda
var settur upp 500 tonna vatns-
geymir á sl. ári til miðlunar á
vatninu. — G.M.
sem myndast hafði, að skrúfan
rann af stað á pallinum, en fyrir-
staða var nær engin á pallbrún-
inni. Það mun vera vani að skrúf-
ur séu þannig fluttar á bílum, að
ekki eru sett á þær bönd, en
stundum eru þær skorðaðar.
Skarphéðinn Jósepsson var 51
árs að aldri. Lætur hann eftir sig
konu og tvær uppkomnar dætur.
Rúmlega 130 Fær-
eyingar til Eyja
VESTMANNAEYJUM, 30. jan. —
Með morgni laugardag eru vænt-
anlegir hingað með strandferða-
skipinu Heklu 134 sjómenn frá
Færeyjum. Með komu þeirra
vænkast mjög hagur margra út-
gerðarmanna, sem ekki hafa get-
að mannað báta sína með ís-
lendingum og má því búast við
að allur floti Vestmannaeyinga
verði kominn á vertíð í næstu
vikulok.
1 dag eru 53 bátar byrjaðir
róðra með línu og fimm með
handfæri, en svo sem fyrr greinir
fjölgar bátunum verulega í
næstu viku, þegar Færeyingarnir
koma.
Á þessu stigi málsins er ekki
hægt að segja endanlega hve
margar fleytur verða gerðar út
frá Eyjum í vetur, en ef að lík-
um lætur, verða bátarnir ekki
færri en í fyrra, en þá voru þeir
um 130.
— Bj. Guðm.
Kona íellur
á bálku og
lærbrotnar
JÓHANNA FRIÐRIKSDÓTTIR,
fyrrverandi yfirljósmóðir á
Landspítalanum, féll á hálku á
fimmtudagsmorgun með þeim af-
leiðingum, að hún lærleggsbrotn-
aði. Jóhanna býr að Barónsstíg
63. Var hún á leið heiman að
frá sér út í búð, er slysið vildi
til. Kona nokkur, sem var nær-
stödd, sá, er Jóhanna datt. Brá
konan þegar við og kom Jóhönnu
il hjálpar. Bar þá þar að lækni,
sem hjálpaði konunni að koma
Jóhönnu inn í húsið. Var Jóhanna
síðan flutt í Landspítalann, og
var líðan hennar sæmileg í gær.
Heildarafli togara Bœj-
arútgerðar Reykjavíkur
rúml. 40 þús. lesfir á sl. ári
í FRÉTT ATILK YNNIN GU frá
Bæjarútgerð Reykjavíkur segir,
að á árinu 1958 hafi samanlagður
afli togara Bæjarútgerðarinnar
verið 40,345 lestir. Er þá mið-
að við slægðan fisk með haus.
Landað var hér tæplega 27.230
lestum af ísfiski og tæplega 5,640
lestum af saltfiski, en erlendis
var landað rúmlega 1,840 lestum
af ísfiski.
Togarar Bæjarútgerðarinnar
hafa í janúarmánuði að mestu
stundað veiðar á Nýfundnalands
miðum, þar sem afli hefur verið
mjög rýr, miðað við fyrri ár,
sökum fiskleysis og einnig vegna
hins takmarkaða veiðisvæðis tog-
aranna.
Fyrri hluta janúarmánaðar
voru sjö af átta togurum Bæj-
arútgerðarinnar á Nýfundnalands
miðum, en einn þeirra, Ingólfur
Arnarson, var á heimamiðum, og
seldi hann afla sinn í Grimsby
13. jan. sl. 2.292 kits fyrir 11.593
sterlingspund.
Afli togaranna 1 janúarmánuði
var samtals tæplega 3.969 lestir.
Varðarkaffi í Valhöll
í dag kl. 3-5 s.d.