Morgunblaðið - 03.02.1959, Page 19

Morgunblaðið - 03.02.1959, Page 19
Þriðjudagur 3. febr. 1959 MORC r SBLAÐIÐ 19 — Frumsýning LA Framhald af bls 2 fjörugan gamanleik, er fjallar um þann mikla mismun, sem gerður er á ríkum og fátækum. Einnig fjallar hann um ástir og misskiln- ing. Leikstjóri er Jóhann Ögmunds- son ,en með aðalhlutverk fara: Guðmundur Gunnarsson, Kristín Konráðsdóttir, Júlíus Oddsson, Haukur Haraldsson »g Anna >rúð ur Þorkelsdóttir. Leikendur eru alls 18 talsins. Hjartanlega þakka ég öllum fjær og nær kyldum og óskyldum, sem sýndu mér margskonar vr vinsemdar og virðingar á 75 ára afmæli mínu. P.t. Lundi, Hveragerði. Svava Jónsdóttir. Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim, sem glöddu mig með skeytum, gjöfum og heimsóknum á sjötugsafmælinu SIGURBARA ÁRNADÓTTIR, Hverfisgötu 46. Leikari frá Reykjavík kennir við leiklistarskólann Jóhann hafði frá fleiri tíðind- um að segja. Má þar t.d. nefna, að hingað til bæjarins er kominn ungur leikari frá Reykjavik og mun setja hér leik á svið, auk þess sem hann kennir við Leik- listarskóla félagsins. Er þetta FIosi Ólafsson. Um þessar mund ir er Leiklistarskólinn að taka til starfa, og hafa 30—40 nemendur innritazt í hann. Skólanefnd skipa þau Guðmundur Gunnarsson, Björg Baldvinsdóttir og Jón Ingi- marsson, en auk Flosa munu þau Björg og Guðmundur annast kennslu. Siðar í vetur munu svo nem- endur njóta tilsagnar Baldvins Halldórssonar, leikara frá Reykja vík, en hann mun væntanlegur hingað í aprílmánuði n.k. og mun þá setja á svið leik fyrir félagið, sem mun verða fjórða og síðasta sviðsverkefni þess á leikárinu. Skortur á þjálfuðum leikurum Miklar vonir eru bundnir við Leiklistarskóla félagsins, en það, sem Jóhann taldi mest há félags- lífi og starfi LA, eru skortur á þjálfuðum leikurum svo og ungu áhugafólki um leiklist. Er þess mjög að vænta, að þessi skóla- starfsemi félagsins verði til þess að leysa þennan vanda. Verður ekki annað sagt en að vel sé af stað farið í þessu efni. Leikfélag Akureyrar hefir nú hin síðari ár öðlazt ýmsa þá að- stöðu og margs konar tæki til starfsemi sinnar, er verða má til þess, að hún geti staðið með blóma, sagði Jóhann að lokum. — vig. — Þjóðleikhúsið Framh. af bls. 6 ur það hvarvetna verið falið hin- um mikilhæfustu leikurum, — í New York Tallulah Bankhead og Bodil Kjer í Kgl-leikhúsinu í Kaupmannahöfn. Er leikur Her- dísar í hlutverki þessu afburða- snjall, fullur af ferskum „hum- or“, kvenlegum þokka og marg- víslegum geðbrigðum, sem gera persónuna sanna og lifandi. Og gervi hennar er ágætt og fram- sögnin til fyrirmyndar nú sem endranær. Hefur Herdís unnið hér glæsilegan leiksigur, enda klöppuðu áhorfendur henni ó- spart lof í lófa. Af öðrum leikendum — en þeir eru margir — má nefna Ingu Þórðardóttur í hlutverki spákon- unnar. Var leikur hennar sterkur og persónan öll kynngimögnuð. — Róbert Arnfinnsson fer með hlut- verk þulsins og mundi sóma sér vel sem slíkur hvar sem væri. Gunnar Bjarnason hefur gert leiktjöldin. Falla þau vel við leikinn og eiga sinn þátt í því að skapa hina réttu stemningu á sviðinu, en minna mjög á tjöldin í hinni dönsku uppfærslu á leikn- um. Thor Vilhjálmsson hefur þýtt leikinn á þjált mál, er fer vel í munni og víða bregður fyrir snjöllum setningum, en hnökra- laus er þýðingin ekki. Áhorfendur tóku leiknum með miklum fögnuði og hylltu ákaft að leikslokum leikstjórann og leikendur, og þá sérstaklega Her- dísi Þorvaldsdóttur. Hef ég sjaldan notið leiksýn- ingar hér í jafn ríkum mæli, enda er sýningin stórmerkur leiklistar- viðburður og öllum, sem að henni standa, til mikils sóma. Sigurður Grímsson. Lokað allan daginn í dag vegna jarðarfarar. Sig. Þ.Skjaldberg H.F. LOKAÐ frá kl. 1 til 4 vegna jarðarfarar Sigurðar Skjaldbergs stórkaupmanns. KJÖTBÚÐIN Grundarstíg 2, Verzl. ÞINGHOLT. Vegna jarðarfarar Sigurðar Þ. Skjaldberg stórkaupmanns, verða skrif- stofur vorar lokaðar í dag frá kl. 12. INNFLYTJENDASAMBANDIÐ Hafnarstræti 5. Lokað i dag milli 1 og 4 vegna jarðarfarar Sig. Þ. Skjaldberg. REYNISBtJÐ Bræðraborgarstíg 43. Lokað í dag milli 1 og 4 vegna jarðarfarar Sig. Þ. Skjaldberg. Verzl. VlÐIR Fjölnisveg 2. Lokað í dag milli 1 og 4 vegna jarðarfarar Sig. Þ. Skjaldberg. SVEINSBUÐ Borgargerði 12. Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma ELlNBORG L. ÓLAFSDÓTTIR andaðist fimmtudaginn 22. janúar 1959. Jarðarförin hefur þegar farið fram. Þökkum innilega auðsýnda samúð. Þeir sem vildu minnast hennar eru vinsamlegast beðnir að láta líknarstofnun njóta þess. Óskar Arnason, dætur, tengdasynir og barnabörn Við þökkum af alhug sýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður og tengda- föður JÓNS GUÐMUNDSSONAR verzlunarstjóra Kristín Pálmadóttir, Pálmi Jónsson, Guðmundur Jónsson, Hulda Kristinsdóttir Konan mín SVEINBJÖRG SVEINSDÓTTIR OTTESEN Bragagötu 38, lézt í Landsspítalanum 1. þ.m. Jarðarförin ákveðin síðar. Fyrir mína hönd og barna minna. Karl Ottesen. Elsku litla dóttir okkar andaðist að heimili sínu Holts- götu 4, Hafnarfirði 30. fyrra mánaðar. Gunnar Þór Isleifsson, Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Móðir okkar KRISTRUN pétursdóttir Hrísateig 4, andaðist 30. f.m. á Bæjarsjúkrahúsinu. Fyrir hönd aðstandenda. Helgi Arason, Kristinn Arason. Maðurinn minn VILHJALMUR g. snædal, frá Eiríksstöðum, andaðist á Landsspítaianum 2. febrúar. Jarðarförin aug- lýst síðar. Elín Pétursdóttir. Faðir okkar og tengdafaðir arni arnason andaðist 1. þ.m. Fyrir hönd vandamanna. Guðrún og Loftur Hjartar. Jarðarför MARlU GUÐMUNDSDÓTTUR fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. þ.m. Fyrir hönd aðstandenda. Málfríður Kristjánsdóttir, Helgi Bjarnason. Jarðarför mannsins míns FRIÐRIKS TÓMASSONAR Hringbraut 15, fer fram frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 5. febrúar kl. 1,30 síðdegis. Blóm vinsamlegast afbeðin. Vigdís Jónasdóttir. Kveðjuathöfn um JÓN JÓNSSON Valdasteinsstöðum, Hrútafirði fer fram í Dómkirkjunni miðvikudaginn 4. febrúar kl. 10,30 fyrir hádegi. Athöfninni verður útvarpað. Vandamenn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar og tengdamóður VILBORGAR HALLDÓRSDÓTTUR Sólvallagötu 19. Böm og tengdaböm. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför mannsins míns og föður okkar HERGEIRS ELlASSONAR skipstjóra. Ragnheiður Þórðardóttir og börn. Hjartanlega þökkum við alla þá miklu samúð og vinar- hug, er okkur var sýndur við andlát*og útför sonar míns og bróður okkar NIELSAR ÞÓRARINSSONAR Laugavegi 76, Rvík. Guðrún Daníelsdóttir og börn. Alúðarþakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og jarðarför HANS ÖGMUNDSSONAR STEPHENSEN múrarameistara. Laufey Vilhjálmsd. Stephensen, Jóhann Grétar H. Stephensen, Guðrún og Ögmundur H. Stephensen, Hadda og Gunnar H. Stephensen, Ögmundur Hansson Stephensen. og systkinin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.