Morgunblaðið - 05.02.1959, Blaðsíða 2
MORcrnvnr.AÐiÐ
Fimmtudaerur 5. febr. 1959
Electra hrapaði í
Austurá i New York
65 munu hafa farizt
L.istkynning Morgunblaðsins sýnir um þessar mundir nokkrar af cftirprentunum Helgafells af
málverkum islenzkra listmálara. Myndin hér að ofan er af einu málverka Jóns Stefánssonar. —
Skattayfirvöldin ætlast til oð
steinhús fyrnist á 6-700 árum
Stjórn Húseigendafél. Rvíkur krefst
oð tekin verði til skattafrádráttar
edlileg fyrning" húseigna
þess
STJÓRN Húseigendafél. Reykja-1 frádráttar vegna fyrningar og
víkur sendi fjármálaráðuneytinuj viðhalds fasteigna vissa hlutfalls
svohljóðandi bréf hinn 4. þ.m.:
Fj ármálaráðuney tið,
Reykjavík.
Reykjavík, 4. febr. 1959.
Til áréttingar viðtali, er stjórn
Húseigendafélags Reykjavíkur
átti í morgun við hæstvirtan fjár
málaráðherra, er það krafa félags
vors, að nú þegar verði tekinn til
endurskoðunar og leiðréttingar
frádráttur við skattaálagningu,
vegna húseigna, sbr. eyðublöð
skattyfirvalda til skattframtals
fyrir árið 1959.
Vitað er, að fymingin hefur
verið allof lág undanfarin ár, en
þó kastar tólfunum nú, þegar
fyrning steinhúsa, er á skatteyðu
blöðum 1958 var 3% af fasteigna-
mati, er færð niður í 1%, og fyrn
ing timburhúsa, er var 6% af
fasteignamati, er færð niður í
2%, samkvæmt eyðublöðum til
skattframtals árið 1959.
Við hækkun fasteignamats á
fyrra ári hækkuðu húseignir til
eignarframtals og það er því auð
sæ rökvilla, ef frádráttur vegna
fyrningar á að haldast syo til ó-
breyltur I krónutölu, en það virð
ist vera hið eina ,sem fram er
borið til réttlætingar því, að
lækka stórlega í hlutföllum breyti
legar afskriftir.
Samkvæmt 10. gr. tekjuskatts-
laga, skal draga frá „venjulega
fyrningu", áður en skattur er á
lagður, og fjármálaráðherra er
heimilað að ákveða í reglugerð til
tölu (prósentu) af fasteigna- eða
brunabótamati þeirra.
Sú var tíðin, að ráðuneytið mið
aði fyrningu steinhúsa við 1% af
brunabótamati, og var þá lagt til
grundvallar, að brunabótamat
væri hið sama og byggingarkostn
aður, og að ending steinhússins
væri um 100 ár.
100 ára ending steinhúsa var
að vísu langt frá því að vera
eðlileg, og einkanlega er slík á-
ætlun varhugaverð með hliðsjón
af því, hve ört kröfur manna til
íbúðarhúsa breytast nú á tímum.
En núverandi hlutfallstala,
miðuð við fasteignamat, en ekki
brunabótamat og því síður raun-
verulegan byggingarkostnað,
bendir til þess að skattyfirvöldin
ætlist til að steinhús fyrnist á
6—700 árum.
Vér viljum í þessu sambandi
benda á hið algjöra ósamræmi
þessara fyrningarafskrifta og lög
leyfðra fyrningarafskrifta á skip-
um, síldarverksmiðjum, dráttar-
brautum o. fl., sbr. lög nr. 59/
1946 og síðari breytingar á þeim
lögum, þar sem gert er ráð fyrir
allt að 20% afskriftum.
Vér óskum þess að fyrningar-
afskriftir húseigna verði án taf-
ar færðar til samræmis við eðli-
lega fyrningu þeirra, að mati
sérfróðra manna, og að nauðsyn-
leg reglugerðarbreyting verði
síðan gerð í samræmi við þá nið-
urstöðu áður en skattur er á
lagður á yfirstandi ári.
New York, 4. febr. — NTB.
STÓRSLYS varð í New York
um miðnætti sl. nótt, þegar
flugvél fullskipuð farþegum
var að lenda á La Guardia-
flugvelli í dimmu og þoku. í
stað þess að hitta á flugbraut-
ina féll flugvélin í Austurá
(East River).
Þetta var ný flugvél í eign
American Airlines af tcgund-
inni Lockhead Electra. Hún
var að koma frá Chicago og
voru innanborðs 73 menn. Af
þeim hafa bjargazt 8 manns,
en óttazt er að allir, sem eftir
eru, 65 að tölu, hafi farizt. Sá
níundi, sem bjargað var með
lífsmarki, lézt áður en hann
yrði fluttur í sjúkrahús.
£ allan dag unnu björgunar-
sveitir að því að reyna að ná
líkum úr flugvélinni, sem liggur
á nokkru dýpi á botni árinnar.
Hafa 18 lík þegar náðst. Talið er
að farþegarnir hafi látizt við
drukknun. Flugvélin fór í sund-
ur í miðjunni og margir sluppu
út. Reyndi fólkið síðan að synda
í land, en vatnið var ískalt og
mikill straumur í því af sjávar-
föllum.
Meðal þeirra, sem björguðust
er átta ára drengur, Robert
Sullivan að nafni. Hann kveðst
ekki skilja hvað hafi komið fyr-
ir. Annar farþegi segir, að hann
sína og segja brandara, þegar
flugvélin kastaðist til og hélt
hann þá að sín hinzta stund væri
runnin upp. — Talið er að lík
margra hafi borizt langa leið
með straumnum.
La Guardia-flugvöllurinn stend
ur á norðvesturhorni Langeyju
(Long Island). Þar er þröngt um
hann og hefur það oft komið
fyrir að flugvélar hafa við lend-
ingu og flugtak fallið í Austurá.
Úti á miðri Austurá stendur
fangelsi fyrir óbótamenn. Fyrir
nokkrum árum gerðist það að
stór flugvél féll í ána við flug-
tak með tugi farþega. Gengu
fangarnir þá vel fram í að
bjarga fólkinu.
Tónleikar Sin-
fóníuhljómsveit-
arinnar í kvöld
Sinfóníuhljómsveit íslands
heldur tónleika í Þjóðleikhúsinu
i kvöld. Hefjast þeir kl. 8,30 s.d.
Stjórnandi sveitarinnar verður
Paul Pampichler, og einsöngvar-
ar verða þau frú Þuríður Páls-
dóttir og Guðmundur Jónsson.
Viðfangsefnin á tónleikunum
verða að þessu sinni öll af „létt-
ara taginu“. Hefir Sinfóníuhljóm
sveitin haldið áður nokkra slíka
„létta“ tónleika, og eru þeir lið-
ur í þeirri viðleitni að ná til sem
flestra hlustenda. Hafa þessir tón
leikar og orðið mjög vinsælir
hafi verið að tala við sessunauta meðal almennings.
Bandaríkin mótmœla
hindrunum Rússa
WASHINGTON, 4. febr. (Reut-
er) — Eisenhower forseti sagði
blaðamönnum í dag frá því, .að
Allt smjör og allir ostar
seldir undir einu merki
Osta- og smjörsalan tekin til starfa
Dagskrá Alþingis
£ DAG eru boðaðir fundir í báð-
um deildum Alþingis kl. 1,30. Á
dagskrá efri deildar eru tvö mál.
1. Sjúkrahúsalög, frv. — Frh.
3. umræðu.
2. Búnaðarmálasjóður, frv. —
1. umræða.
Fjögur mál eru á dagskrá neðri
deildar.
1. Samkomudagur reglulegs
Alþingis 1959, frv. 2. umr.
2. Veitingasala o. fl., frv. —
3. umræða.
S. Dýralæknar, frv. Ein umr.
4. Dragnótaveiðar í fiskveiði-
landhelgi, frv. — 1. umr.
Ef deildin leyfir.
Afsteypa af styttu
Ingólfs til Noregs
EINS og kunnugt er samþykkti
Alþingi á síðastliðnu vori svo-
hljóðandi ályktun:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að gera nauðsynlegar
ráðstafanir til að afsteypa af
styttu Einars Jónssonar af Ing-
ólfi Arnarsyni verði reist í Rive-
dal, Dalsfirði í Noregi og afhent
Norðmönnum að gjöf frá £slend-
ingum sem tákn óbrotgjarnar
vináttu þjóðanna“.
Hefur utanríkisráðherra ný-
lega skipað nefnd til þess að sjá
um framkvæmdir í málinu.
£ nefndinni eiga sæti þessir
menn, er alíir voru flutnings-
menn þingsályktunartillögunnar:
Bjarni Benediktsson, alþingis-
maður, dr. Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra, Hannibal
Valdimarsson, alþingismaður, og
Halldór E. Sigurðsson, alþingis-
maður.
Auk framangreindra manna á
Henrik Sv. Björnsson, ráðuneytis
stjóri utanríkisráðuneytisins,
sæti í nefndinni og er hann for-
maður hennar. (Frá utanríkis-
ráðuneytinu).
FYRSTU smjörpökkunum merkt
um Osta- og smjörsölunni, sam-
eignarfyrirtæki Mjólkursamsöl-
unnar hér í Reykjavík og Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga.
var ekið í matvörubúðir í gær-
dag, en smjörpakkar þessir eru
í nýjum umbúðum með áletrun-
inni: Gæða smjör. Er þetta fyrir-
tæki til húsa í gömlu mjólkur-
stöðinni við Snorrabraut. Til-
gangurinn með stofnun þessa
fyrirtækis er að hafa með hönd-
um umboðssölu á ostum og smjöri
hér í Rvík og nágrenni, svo og
„að koma á vöruvöndun og gæða
mati á mjólkurafurðum samlag-
anna og samræma framleiðsl-
una“.
Stjórn þessa sameignarfyrir-
tækis, sem skipuð er sex mönn-
um, fjórum fulltrúum frá SÍS og
tveim frá Mjólkursamsölunni,
bauð í gærdag blaðamönnum og
allmörgum gestum öðrum, að
kynnast starfsemi fyrirtækisins
og skoða húsakynni þess.
Erlendur Einarsson, framkv.-
stj. SÍS, formaður stjórnar fyrir-
tækisins, bauð gesti velkomna og
hélt við það tækifæri ræðu, þar
sem hann gerði grein fyrir að-
dragandanum að stofnun þess.
Hann gat þess m.a. að sl. tvö ár
hefði mál þetta verið til umræðu
hjá SÍS og Samsölunni.
Hafa dvalizt hér á landi tveir
norskir sérfræðingar, og er annar
þeirra yfirmaður alls mats á
mjólkurafurðum í Noregi, Gunn-
ar Aas að nafni, en hinn er Jakob
Viske mjólkurfræðingur, sem
mun verða Osta- og smjörsölunni
til ráðuneytis fyrstu mánuðina,
eða þar til Árni Waag mjólkur-
fræðingur tekur við yfirstjórn
matsins, en haútn nam mjólkur-
fræði í Noregi.
í ræðu sinni minntist forstjór-
inn sérstaklega á þann veiga-
mikla þátt í starfi fyrirtækisins,
sem gæðamatið er. Síðan lýsti
hann starfseminni eins og hún
gengur fyrir sig í Smjör- og osta-
stöðinni, og var gestum boðið að
skoða þar vinnusali, sem allir eru
hvítmálaðir, bjartir og hreinleg-
ir, og að lokum lá leiðin niður í
ostakjallarann, þar sem hægt
verður að geyma um 20 tonn af
osti í einu.
f stjórn fyrirtækisins eiga sæti
þessir menn:
Erlendur Einarsson, forstjóri,
sem er formaður; Egill Thoraren
sen, kaupfélagstj., Selfossi; Einar
Ólafsson, bóndi Lækjarhvammi;
Helgi Pétursson, framkv.stj.,
Reykjavík; Hjalti Pálsson, fram-
kv. stj., Reykjavík; Stefán Björns
son, forstjóri, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Osta- og
smjörsölunnar er Sigurður Bene-
diktsson, sem um mörg ár hefir
haft með höndum störf hjá Sam-
bandi ísL samvinnufélaga.
Bandaríkjastjórn hefði mót-
mælt harðlega við Rússa, að þeir
hefðu hindrað för fjögurra banda
rískra vörubíla frá Berlín til V-
Þýzkalands og hefðu fimm
bandaríska hermenn í haldi.
Mótmæli Bandaríkjastjórnar
fylgja á eftir þremur árangurs-
lausum mótmælum herstjórnar
Bandaríkjanna í Berlín.
Vörubílarnir fjórir eru á veg-
um hernámsstjórnar Bandaríkj-
anna í Vestur-Berlín. Eru þeir
að flytja gamla jeppa vestur á
bóginn. Bílarnir höfðu ekið í lest
160 km vegalengd frá Vestur-
Berlín til Helmstedt á takmörk-
um Vestur- og Austur-Þýzka-
lands.
Rússneskur liðsforingi stöðvaSi
vörubílana þar og krafðist þess
að fá áð leita í þeim, en banda-
rísku hermennirnir neituðu því.
Standa bílarnir nú aðeins nokkra
tugi metra frá markalínunni, en
fá ekki að ljúka ferðinni.
Eisenhower sagði á blaða-
mannafundinum, að í samning-
um Bandamanna um hernám
Berlínar hefði ekkert verið tekið
ákveðið fram um heimild her-
námsveldanna til frjálsrar um-
ferðar yfir rússneska hernáms-
svæðið til og frá Berlín. En það
leiddi af sjálfu sér að slík um-
ferð væri heimil, þar sem Vest-
urveldin hefðu samkvæmt samn-
ingum hernámssvæði í borginni.
Það hefði líka alltaf verið viður-
kennt í reynd og Rússar hefðu
aldrei fengið að framkvæma
skoðanir í bandarískum herbíl-
Síðustu fréttir:
HELMSTEDT 4. febr. (NTB).
Bandarísku vörubíiarnir fjórir,
sem Rússar stöðvuðu í fyrradag
við Helmstedt, skammt fyrir aust
an markalínunna, fengu í kvöld
kl. 8 að halda för sinni áfram til
Vestur Þýzkalands.