Morgunblaðið - 10.02.1959, Blaðsíða 1
20 siður
Glœsilegur sigur
issinna í Iðju
Kommúnisfar missa enn fylgi meðal
verksmiðjufólks
ÚRSLIT stjáMiarkosninganna í Iðju, sem fram fóru um síðustu
taelgi urðu mikiil sigur fyrir lýðræðissinna í félaginu. Hlaut listi
þeirra, B-listinn, 777 atkvæði en A-listi kommúnista hlaut 438
atkvæði. Auðir seðlar voru 31 og 7 ógildir. Samtals greiddu 1353
atkvæði af 1461. sem á kjörskrá voru.
1 fyrra féllu alkvæði þannig við stjórnarkjör í Iðju, að listi
tvðræðissinna nlaut 804 atkvæði, listi kommúnista 466 atkvæði,
M seðlar voru auðir og 4 ógildir. Samtals greiddu þá 1315 atkvæði
»f 1479 á kjörskra
Dulles dregur sig í hlé
Ivðrœð-
Guðjón Sv. Sigurðsson
WASHINGTON, 9. febrúar. —
NTB-Reuter. — Dulles utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna hefur
dregið sig í hié frá öllum opin-
berum störfum um stundarsakir
af heilbrigðisástæðum. Tilkynn-
ing um þetta var send frá Hvíta
húsinu seint í kvöld.
Dulles ræddi við fréttamenn í
dag eftir för sína til London,
Parísar og Bonn, og lét vel af
henni. Kvaðst hann hafa átt gagn
legar viðræður í þessum þremur
höfuðborgum, einkum um ástand
ið sem skapazt hefði vegna hót-
ana Rússa í Berlínarmálinu. —
Hann hefði fengið staðfestingu á
því, að Vesturveldin og Vestur-
Þýzkaland væru einhuga í þessu
máli og staðráðin í að láta ekki
undan síga. Þessi ríki mundu
aldrei sætta sig við, að Vestur-
Berlín yrði einangruð, og yfir-
leitt hefði verið eining um það,
hvað gera skyldi ef Rússar létu
til skarar skríða í Berlín.
Dulles var spurður um mögu-
leika á fundi utanríkisráðherra
Vesturveldanna og Sovétríkj-
anna. Kvað hann Vesturveldin
fús til að reyna allar leiðir til
samkomulags við Sovétríkin. Á
slíkum fundi væri æskUegt, aS
fjallað yrði um allar hliðar
Þýzkalandsvandamálsins, um
Berlín, sameiningu landsins og
friðarsamninga, og um öryggis-
mál Evrópu í heild.
Ávarp til Iðjufélaga
frá Cuðjóni Sv. Sigurðssyni formanni Iðju
EG VIL fyrir hönd stjórnar og trúnaðarmannaráðs Iðju,
félags verksmiðjufólks í Reykjavík, þakka meðlimum fé-
lagsins fyrir hið mikla traust, sem þeir hafa sýnt okkur.
Við munura leitast við eins og áður að berjast af fremsta
megni fyrir hagsmunamálum þeirra.
GUÐJÓN SV. SIGURÐSSON
Lars Lynge rœðst á
danska stjórnmálamenn
Samningar um fiskveiði
lögsögu Fœreyja
Lýðræðissinnar hafa þvi aukið
fylgi sitt nokkuð hlutfallslega
ra kommúnistar tapað að sama
skapi. Auðsætt er að verksmiðju-
fólk í Reykjavík hefur ekki látið
Ksingaskrif kommúnista gegn
niðurfærslu verðbólgunnar hafa
áhrif á sig.
Hin nýja stjórn Iðju er skipuð
þessu fólki:
Formaður:
Guðjón Sv. Sigurðsson.
Varaformaður:
Ingimundur Erlendsson.
Ritari:
Þorvaldur Ólafsson.
Gjaldkeri:
Ingólfur Jónasson.
Meðst j órnendur:
Jóna Magnúsdóttir.
Ingibjörg Arnórsdóttir.
Steinn Ingi Jóhannsson.
Varastjórn:
Björn Jónatansson.
Búi Þorvaldsson.
Klara Georgsdóttir.
Trúnaðarmannar áð:
Auður Jónsdóttir.
Ragnheiður Sigurðardóttir.
Magnús Pétursson.
Þorvarður Áki Eiríksson.
Endurskoðendur:
Eyjólfur Davíðsson.
Oddgeir Jónsson.
BAGDAD, 9. febr. NTB-Reuter.
— Stjórnin í írak bannaði í dag
útkomu kommúnistablaðsins
„Ittihad el Shaab“ (Þjóðarein-
ing) í eina viku vegna ummæla
blaðsins í sambandi við breyt-
ingarnar, sem gerðar voru á
stjórninni um helgina.
Hinn nýi upplýsingamálaráð-
herra, Hussein Jamilhad, tjáði
aðalritstjóra blaðsins að leiðar-
inn í morgun bryti í báða við
hagsmuni ríkisins.
í þessum umdeilda leiðara
hafði ritstjórinn sakað nokkra
af þeim sex ráðherrum, sem báð-
ust lausnar á laugardaginn, um
ZÚKICH, 9. febrúar. — NTB-
Reuter. — Utanríkisráðherrar
Grikklands og Tyrklands ræddu
í kvöld grundvallaratriðin og
einstök smáatriði í væntanlegum
sáttmála um Kýpur. Fyrr í dag
höfðu forsætisráðherrarnir rætt
saman í röskan ZVz tíma.
Averoff utanríkisráðherra
Grikkja sagði í dag, að horfurn-
KAUPMANNAHÖFN, 9. febr. —
Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
— Frá Godthaab hefur borizt
skeyti um að Lars Lynge, sonur
Augo Lynges, grænlenzka þing-
mannsins sem fórst með „Hans
Hedtoft“, hafi sent út yfirlýs-
ingu, þar sem hann gagnrýnir
harðlega hina svonefndu „flug-
málanefnd“, sem var sett á
laggirnar fyrir tveimur árum til
að fjalla um flugið til Græn-
lands, en hefur ekki lagt fram
að hafa reynt að koma í veg fyr-
ir byltinguna og um að hafa svik-
ið hugsjónir byltingarinnar.
Hann hafði látið í veðri vaka,
að breytingarnar á stjórninni
væru skref í rétta átt, og sagt
að hin ákveðnu viðbrögð stjórn-
arinnar hefðu orðið þess vald-
andi, að fjarlægður hefði verið
hópur manna, sem afturhalds-
seggir og baktjaldamakkarar
hefðu bundið miklar vonir við.
Hingað til hefur ekkert annað
blað rætt breytingarnar á stjórn-
inni. Þá hafa fréttamenn vakið
athygli á því, að árásirnar á
Arabiska sambandslýðveldið eru
svo að segja úr sögunni í írak.
ar á samkomulagi væru jafn-
miklar og líkurnar til að það
næðist ekki. Hann kvað bæði
Grikki og Tyrki hafa haft það í
huga, meðan á viðræðunum stóð,
að Bretar ættu hernaðarlegra
hagsmuna að gæta á Kýpur.
Náist samkomulag ó þessum
fundi í Zurich, fara griski og tyrk
-neski sendiherrann flugleiðis til
London til viðræðna við Selwyn
Lloyd utanríkisráðherra Breta.
neinar raunhæfar tillögum enn-
þá. —
Lars Lynge kveðst vona, að
hin væntanlega nefnd um vetr-
arsiglingar til Grænlands verði
fljótvirkari. Að öðrum kosti
verði að fá Grænlandssiglingar
í hendur einkafyrirtækjum, sem
kynnu að fá ríkistryggingu.
I yfirlýsingunni segir enn-
fremur: „Ég vísa til tillögunn-
ar, sem faðir minn lagði fram
fyrir löngu. Nú verða stjórn-
málamennirnir að bregða venju
sinni og hlusta á okkur Græn-
lendinga, en ekki halda upptekn-
um hætti og gera málið að póli-
tísku bitbeini. Hinir fáu íbúar
Grænlands hafa þegar misst of
marga úr sínum hópi, og hafa
ekki efni á að missa fleiri. Við
krefjumst skjótra aðgerða til að
koma í veg fyrir, að fleiri verði
fórnarlömb þröngsýnna stjórn-
málamanna.“
DJAKARTA, 9. febr. NTB-Reut-
er. — Bandaríkjastjórn hefur lof-
að að láta af hendi við her, flota
og flugher Indónesíu ýmiss kon-
ar vopn. Meðal þeirra verða létt
vopn handa 20 herfylkjum og
nýtt skip handa flotanum.
Haft er fyrir satt að þessi vopn
muni alls kosta um 40 milljónir
dollara, en sú tala hefur ekki
verið staðfest opinberlega.
Hið nýja skip sem flotinn fær
verður eftirlitsskip. Ekki hafa
verið gefnar neinar upplýsingar
um það, hvers konar vopn flug-
herinn fær. Stjórnmálafréttaritar
ar eru yfirleitt undrandi yfir
vopnasölunni til flughersins, þar
sem Indónesíustjórn ákvað í fyrra
að festa kaup á MIG-orrustuþot-
um og Iljusjin-sprengjuflugvél-
um frá kommúnistaríkjunum.
KAUPMANNAHAFNARBLAÐ-
IÐ „Dagens Nyheder" birti þá
frétt á laugardaginn, að allir
stjómmálaflokkar í Færeyjum
nema Þjóðveldisflokkurinn hefðu
nú fallizt á málamiðlunartillögu
danskra og brezkra sérfræðinga
í landhelgismáli Færeyja og nú
sé hægt að undirrita samning
um nýja fiskveiðilandhelgi Fær-
eyja.
Viggo Kampmann hafi boðið
VARSJÁ, 9. febr. — NTB-AFP
— Kaþólski presturinn Marian
Pirozynski var i dag dæmdur í
tveggja ára fangelsi af dómstóli
í Varsjá. Jafnframt var honum
gert að greiða 400 zloty í sekt.
Faðir Pirozynski, sem gefur út
kaþólska tímaritið „Homo Dei“,
var tekinn fastur í júní í fyrra.
Hann er sakaður um að hafa
keypt pappír á svörtum markaði,
mútað opinberum starfsmönnum,
skipt gjaldeyri á ólöglegan hátt
og gefið út trúmálarit.
Tíu aðrir menn, sem einnig
voru ákærðir í þessu máli, voru
dæmdir í fangelsisvist frá 3 mán-
uðum upp í lVz ár. Þá voru fjórir
menn dæmdir til að missa borg-
araleg réttindi í tvö ár, þeirra
Engar skuldbindingar
Bandaríski sendiherrann, How-
ard Jones, heimsótti í dag dr.
Djuanda forsætisráðherra og til-
kynnti honum, að Bandaríkja-
stjórn hefði skuldbundið sig til að
afhenda vopnin. í Haag sagði for-
mælandi hollenzka utanríkisráðu-
neytisins, að hollenzku stjórninni
hefði verið tilkynmt um þessi við-
skipti fyrirfram. Ifann staðfesti
að hollenzka stjórnin liti svo á,
að það væri ábyrgðarmál ríkisins,
sem seldi vopnim, hvernig þau
yrðu notuð.
Djuanda forsætisráðherra lét
svo ummælt, að ekki hefðu verið
sett nein skilyrði fyrir vopnasöl-
unni. Þau verða greidd á löngum
tíma og koma ekki undir hern-
aðarhjálp Bandaríkjanna við önn
ur ríki. Þegar hann var spurður,
hvort Bandaríkim hefðu ekki sett
það að skilyrði, að vopnin yrðu
ekki notuð til árása á hollenzku
Guineu, kvað hann þetta ekki
hafa verið rætt.
John Hare sjávarútvegsmála-
ráðherra Breta til Kaupmanna-
hafnar til að undirbúa samning-
ana. Samkvæmt þeim á fiskveiði-
landhelgl Færeyja að vera sex
sjómílur ,cn er nú fjórar. Þar
fyrir utan verður svo sex sjó-
mílna svæði, þar sem bannaðar
verða togveiðar á tUteknum
stöðum, og þar verða einnig..
önnur svæði þar sem aðeins fær-
eyskir linubátar mega veiða. <
á meðal forstjóri prentsmiðju,
sem rekin er af ríkinu.
Allir hinir sakfelldu höfðu
neitað sakargiftum. Þetta eru
fysrtu stóru réttarhöldin í Pól-
landi gegn kaþólskum presti, síð-
an stalinistunum var steypt í okt.
1956.
Nýr íinnskur
stjórnmálaflokkur
HELSINKI, 9. febr. NTB-FNB.
— Nýr stjórnmálaflokkur var í
dag stofnaður á fundi í Pieksal-
maeki í Suðaustur-Finnlandi.
Nefnist hann Smábændaflokkur
Finnlands. Formaður flokksins
var kosinn Veikko Vennamo for-
stjóri, sem var rekinn úr Bænda-
flokknum í fyrra vegna skoðana-
munar innan flokksins. Á fund-
inum í dag var ákveðið að Smá-
bændaflokkurinn komi sér upp
prentsmiðju og bókaforlagi. í
ræðu sinni sagði Vennamo í dag,
að flokkurinn mundi fá allt að
25 sæti á þingi.
★------------------------★
Þriðjudagur 10. febrúar
Efni blaðsins er m.a.:
Bls. 3: Tíminn og niðurgreiðslur land-
búnaðarafurða.
— 6: íslendingar hefðu fengið sM
landa fiski í Bretlandi þútt
brezku togararnir hefðu stöðT-
ast. (Observer).
— 8: Björgunarvél frá Keflavík leM-
ar skipbrotsmanna af mHui
Hedtoft". Frásögn ísl. flug-
manns.
— 9: Fróðlegur fyrirlestur um sílé-
veiðar og síldarrannsóknir.
— 10: Forystugreinin: Björn að bahi
Kára.
—- 11: Tvö samtöl við Hemmingwajr
og „gamla manninn".
— 13: Hlustað á útvarp.
★-----------------------★
Kassem bannar útkomu
kommúnistablaðs
Grikkir og Tyrkir rœðast
enn við
Bandaríkin selja Indó
nesíu vopn
Réttarhöld gegn kirkj-
unnar þjónum í Póllandi