Morgunblaðið - 10.02.1959, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 10. febrúar 1959
WORGZJNBLAÐIÐ
19
Unnið að byggingu sœlu
húss í Herðubreiðar-
lindum
Frá aðalfundi Ferða■
félags Akureyrar
ÁKUREYRI, 9. febr. — Ferðafé-
lag Akureyrar hélt aðalfund s.l.
sunnudag, Kári Sigurjónsson,
form., stýrði fundi og minntist í
upphafi forseta Ferðafélags ís-
lands, Geirs G. Zoega, og enn-
fremur eins félaga, Jóhanns M.
Helgasonar, flugmanns, en þeir
létust báðir hinn 4. jan. s.l.
Formaður flutti síðan skýrslu
um starfsemi félagsins. sem var
mikil á síðastliðnu ári. Má þar
nefna byggingu sæluhúss í Herða
breiðalindum, ennfremur vega-
bætur og flugvallamerkingu þar
fremra. Byggingin var gerð fok-
held á árinu og mun verða
haldið áfram með framkvæmdirn
ar á þessu ári.
Félagið efndi til útbreiðslu- og
kynningarfunda, og kvikmynda-
sýninga, þar sem m.a. dr. Sigurð-
ur Þórarinsson jarðfræðingur
kom og flutti skýringar með kvik
myndum. I félagið gengu 44 nýir
meðlimir og var félagatala í árs-
lok 505, þar af eru tveir ævifélag
*r í Ferðafélagi íslands.
Farnar voru 8 ferðir í byggðir
og óbyggðir. Voru þátttakendur
161. Þrjár vinnuferðir voru farn-
ar í Herðubreiðalindir. ,
Skýrsla formanns var löng og
ýtarleg og er ekki kostur að rekja
hana nánar að sinni. f lok hennar
þakkaði formaður öllum þeim
innan félags og utan, sem lagt
höfðu félaginu mikinn og góðan
stuðning á liðnu starfsári.
Úr stjórn áttu að ganga þeir
Kári Sigurjónsson, Karl Hjalta-
son og Karl Magnússon, en voru
allir endurkjörnir. Auk þeirra
eru í Stjórn Jón Sigurgeirssoh og
Tryggvi Þorsteinsson. í ferða-
nefnd voru kjörin Björg Ólafs-
dóttir, Björn Baldursson, Due
Björnsson, Haraldur Magnússon,
og Vernharður Sigursteinsson.
Þeir Björn Þórðarson, Jón D. Ár-
mannsson og Ólafur Jónsson báð-
ust undan endurkosningu.
Að loknum aðalfundarstörfum
sýndi Sigtryggur Helgason lit-
skuggamyndir frá ferðum s.l.
sumar. Mikill áhugi var ríkjandi
meðal fundarmanna, og þá sér-
staklega fyrir að ljúka byggingu
hins myndarlega sæluhúss við
Iierðubreiðalindir. — vig.
Willy Brandt í Washing-
ton
si
Smáup:
í Dalvíkurhöfn
«kkj hefur fyrr verið „snurpað“
innan hafnargarðsijis. Upsinn var
fluttur í Krossanesverksmiðjuna.
Sæmileg tíð hefur verið hér, en
heldur óstillt til hafsins. Bátarnir
hafa róið, en fengið iítinn afla,
3—4 skippund í róðri. Þessi litli
afli fer ýmist í salt eða frystihús
KEA, en það hefur ekki veitt
mikla atvinnu enn sem komið er.
Talsverð vinna hefur verið hjá
iðnaðarmönnum, sem hafa verið
að ganga frá húsum, sem reist
voru hér í sumar. —SPJ.
Fyrsta sldðamótið
hér syðra
FYRSTA skíðamót vetrarins hér
sunnanlands var haldið sl. sunnu
dag. Var það innanfélagsmót ÍR
og fór það fram í Hamragili við
Kolviðarhól. Snjór var nægur og
færi ágætt. Keppendur voru 20,
þar af 5 utanfélagsmenn, sem
boðið var til leiks, 2 frá Ar-
manni og 3 frá KR. Beztum sam-
anlögðum brautartíma náði Ey-
steinn Þórðarson, 2. varð Úlfar
Skæringsson, 3. Þórir Lárusson,
Stefán Kristjánsson Á náði þriðja
bezta tíma og Bjarni Einarsson
sama fél. varð 4. Veðrið var
allgött. Nokkur snjókoma og
norðaustan kaldi. Mótstjóri var
Jóakim Snæbjörnsson.
Um næstu helgi verður haldið
Reykjavíkurmót í svigi
WASHINGTON, 9. febr. — NTB-
Reuter. — Willy Brandt borg-
arstjóri Vestur-Berlínar, sagði í
sjónvarpsviðtali í Washington í
dag, að Berlín yrði áreiðanlega
höfuðborg sameinaðs Þýzkalands,
áður en synir hans tveir næðu
fullorðinsaldri.
Brandt, sem kom til Washing-
ton á laugardaginn til að eiga
viðræður við bandaríska leið-
toga, kvað það vera ómaksins
vert að athuga gaumgæfilega
hverja þá tillögu sem fram kæmi
og kynni að leiða til þess, að
rússneskar hersveitir yrðu kvadd
ar heim frá Austur-Þýzkalandi.
En ef Vesturveldin gengju að
þeirri tillögu Rússa að gera Vest-
ur-Berlín að frjálsu borgríki
undir umsjá Sameinuðu þjóð-
anna, mundu Rússar þjarma að
Berlín.
Brandt kvaðst þess fullviss, að
evrópskir sósíalistar yrðu í efna-
hagsmálum að finna einhvers
konar sambland af kapítalisma
og opinberu eftirliti með efna-
hagslífinu, eitthvað í líkingu við
DALVÍK, 10. febrúar. — í gær
var dregið fyrir smáupsa hér í
höfninni og fengust 80—90 mál.
Það er ekki óalgengt að hér faist # , - ,
amáupsi 26-28 sm langur, en f SVIgI á SkíðaHlÓtl
Sveit K.A. sigraði
Akureyrar
AKUREYRI, 9. febr. — Fyrsti
hluti Skíðamóts Akuereyrar fór
fram við Reithóla í Hlíðarfjalli
í gær. Háð var sveitarkeppni í
svigi. Alls tóku 5 sveitir þátt í
keppninni, en fjórir menn eru í
hverri. Ein sveit var frá K.A.,
tvær frá Þór og ein frá M.A. Auk
þess var sveit skipuð gestum að
hálfu. í henni voru tveir Sigl-
firðingar og tveir Akureyringar.
Brautin var 280 m. löng með 40
hliðum. Færi var nýr snjór ofan
á skara. Skíðaráð Akureyrar sá
um mótið, en Sigtryggur Sig-
tryggsson lagði brautina.
Úrslit urðu sem hér segir: Fyrst
var sveit K.A., 389,8 sek.,önnur
A-sveit Þórs, 421,2 sek.,þriðja
sveit M.A., 578,6 sek. ,
Beztan samanlagðan brautar-
tíma hafði Magnús Guðmundsson
K.A. 79,8 sek. Aðrir í sveit K.A.
voru Hjálmar Stefánsson, en
hann hlaut næstbeztan brautar-
tíma, 86,5 sek., Ottó Túliníus og
Hallgrímur Jónsson.
Skíðamót Akureyrar mun
halda áfram um næstu helgi og
verður þá keppt í svigi, öllum
flokkum, karla og drengja.
, — Vig.
Bræðrafélag Laugarnessóknar
heldur aðalfund sinn í kvöld. —
Venjuleg aðalfundarstörf.
það sem þegar tíðkaðist á Norð-
urlöndum, þar sem sósíalistar
væru við völd.
Dulles sama sinnis
Brandt sagði í viðtali við blaða
menn í kvöld eftir hálftíma við-
ræður við Dulles, að utanríkis-
ráðherrann hefði ítrekað fyrri
yfirlýsingar Bandaríkjastjórnar
um, að hún sé staðráðin í að gefa
ekki eftir rétt sinn í Berlín né
hlaupa frá þeim skuldbindingum
varðandi Berlín, sem hún hafi
gefið. Brandt kvaðst hafa rætt
ýmsar hliðar Berlínarmálsins við
Dulles.
Sraávægilegir
brunar
HAFNARFIRÐI. — Klukkan rúm
lega 7 í gærdag var Slökkviliðið
kallað að húsinu Hverfisgötu 17,
en þar hafði kviknað lítils háttar
í út frá kolakynntum þvotta-
potti í kjallara. Hafði þil, sem
hann stóð upp við, hitnað mikið
og eldur komizt þar á milli þilja.
Var þilið rifið á bak við pottinn,
og eldurinn slökktur, en hann
var smávægilegur og lítið sem
ekkert tjón hlaust af. — Nokkuð
hefir borið á því upp á síðkastið
| að börn hafi farið óvarlega með
eldspýtur og kveikt í mannlaus-
um kjöllurum. Fyrir nokkru var
t.d. kveikt í eldiviðarstarfla í
skrifstofuhúsi Bæjaútgerðarinn-
ar, en sem betur fór urðu menn
varir við eldinn í tíma og gerðu
Slökkviliðinu aðvart. Og í annað
skiptið var kveikt í kössum, sem
voru fyrir ofan sama hús. — Fyr-
ir nokkru var tekið í notkun nýtt
skrifstofuhúsnæði fyrir Bæjarút-
gerðina í Fiskiðjuverinu, og
stendur því hið gamla timbur-
hús nú autt. — G.E.
Debré óvinsœll í Alsír
ALGEIRSBORG, 9. febrúar. _
Debré er staddur i Alsír. — f dag
lagði hann blómsveig að minnis-
varða fallinna hermanna. Fjöl-
mennt lið hers og lögreglu var
á verði, en um 2000 manns höfðu
safnazt þar að og gerðu hróp að
Debré og létu í ljós óánægju yfir
því, að franska stjórnin hefði
mildað dóma yfir þessum leiðtog-
um þjóðernissinna í Alsír.
Debré flutti seinna í dag ræðu
í útvarp og sjónvarp. Hann sagði
að stefna de Gaulles í Alsír væri
hin eina rétta. Tími ósamlyndis
innanlands væri liðinn. Alsír
væri fullvalda franskt ríki. Bæði
Múhameðstrúarmeim og Ervópu-
menn ættu að berjast hlið við
hlið fyrir því Alsír, sem yrði í
framtíðinni. Mest riði nú á því að
fá frið.
Ataður auri
eftir vélskóflu
í GÆRKVÖLDI kom maður nokk
ur með stálpaðan son sinn á rit-
stjórnarskrifstofur Mbl. Líkast
var, sem drengurinn hefði fallið
endilangur ofan í drullopoll. Fað-
ir drengsins kvað hann vera
svona útleikinn eftir aurbað
undan vélskóflu. Hafði drengur-
inn staðið á biðstöð strætisvagn
anna á Laugarnesveginum,
skammt þar frá, sem borholan
gaus á dögunum. Var vélskóflan
að vinna þar við gröft í skurði.
Hafði vélskóflukjafturinn verið
látinn falla ofan í drullusvað, og
gusaðist frá henni á drenginn,
svo að hann varð eitt forar stykki.
Faðir drengsins hafði ieitað til
lögreglunnar út af þessu með það
fyrir augum, að drengnum yrði
bætt tjónið og föt hans hreinsuð.
Var honum vísað til rannsóknar-
lögreglunnar.Þar hafði hann feng
ið þær upplýsingar að þetta væri
rannsóknarlögreglunni óviðkom-
andi, að því er faðir drengsins
sagði, og því borið við, að aur-
sletturnar hefðu ekki komið und-
an ökutæki á ferð. Maðurinn
sagði, að vélskófla þessi hefði
verið skrásett með venjulegu bíla
númeri, R-7605, en það virtist
engu breyta. Lögreglan vildi ekki
taka að sér málið af fyrrgreind-
um ástæðum. Kvaðst faðir drengs
ins hafa furðað sig á þessu.
Camli tíminn og nýi
Kvöldvaka
í Sjálfstæðishúsinu miðvikudaginn 11. febr.
kl. 8,30.
1. Baðstofulíf
Samtalsþáttur með rímnakveðskap.
Þórbergur Þórðarson segir frá
, ,eilíf ðarverunni4 c.
2. Söngstjamana: GITTE.
Dans.
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—6 í dag.
Stúdenfafélag Reykjavíkur
Eiginmaður minn
KJARTAN EINARSSON Hofsvallagötu 17,
andaðist aðfaranótt 8. þ.m. í Bæjarsjúkrahúsinu.
Fyrir mína hönd, barna og annarra ættingja.
Lilja Pétursdóttir
Maðurinn minn
SIGURÐUR PÉTURSSON
fyrrv. bygging£ifulltrúi
andaðist aðfaranótt 8. þ.m.
Alberta Arnadóttir.
Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu.
VIGDlSAR BJARNADÖTTUR
frá Stykkishólmi, fer fram frá Akureyrarkirkju, þriðju-
daginn 10. þ.m. kl. 2 e.h..
Gigý Jónsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Baldur Þorsteinsson,
Björg og Paul Steiner og barnabörn.
Jarðarför
KARL L. GUÐMUNDSSONAR Vitastíg 11,
er lézt á Bæjarsjúkrahúsinu í Reykjavík 3. febrúar, fer
fram frá Fossvogskirkju, fimmtud. 12. þ.m, kl. 2 e.h.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Vandamenn
Þökkum innilega auðsýnda samúúð við andlát og jarð-
arför
ELlNBORGAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Arnarnúpi
Börn og tengdaböm
Öllum skyldum og vandalausum sendum við okkar
hjartans þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför litla drengsins okkar og bróður.
ÁRNA VIÐAR Waage
Oddný, Kjartan Waage
og dætur
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við
andlát og jarðarför
GESTS JÓNSSONAR
frá Skeiði.
Sérstaklega þökkum við þeim Bíldælingum og Dala-
mönnum sem veittu ómetanlega. aðstoð við útför hans.
Fósturböm.
Öllum þeim sem auðsýndu samúð og hlýhug við andlát
og jarðarför föður míns
HALLGRlMS JÓNSSONAR
Akranesi,
votta ég mitt innilegasta þakklæti.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Elísabet Hallgrímsdóttir.