Morgunblaðið - 10.02.1959, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 10. febrúar 1959
MOHnVlSBLAÐlÐ
9
Fróðlegur fyrirlestur um síld-
veiðar og síldarrannsóknir
Frásögn Jakobs Jakobssonar á fundi
i Hinu íslenzka náttúrufræbifélagi
í INNGANGI að erindi sínu, drap
Jakob Jakobsson stuttlega á
sveiflurnar í síldargöngunum, og
hve geysi stórtækar þessar veið-
ar eru, ef vel tekst til. Kvað
fyrirlesarinn frumorsakir sveifln-
anna svo flókið mál, að hann
myndi ekki ræða þær að neinu
ráði. Sem kunnugt er lifir síld-
in á krabbadýrum, sem nefnast
rauðáta, en hún lifir á þörungum,
en þeir nýta sólarorkuna, til þess
að byggja upp lífræn efnasam-
bönd úr ólífrænum uppleystum
söltum, eins og plöntur á landi.
Þar sem síldargöngurnar fyrir
Norðurlandi, eru svonefndar ætis-
göngur þarf ekki annað en einn
hlekkur í þessar fæðukeðju
bresti til þess að göngurnar
breytist. Hér gat Jakob þess, að
sumarið 1957 hafi þörungarnir á
miðum Norðurlandssíldarinnar
ekki blómstrað fyrr en í júlímán-
uði, í stað þess að blómstrunar-
tími þeirra er Oft í mai og júní.
Stóðu þörungarnir óétnir og föln
uðu um haustið eins og hver ann-
ar gróður sem ekki nýtist. En
Jakob kvað hafrannsóknir okk
ar ekki komnar á það stig, að
hægt væri að gera nákvæma
grein fyrir áhrifum þeim, er t.d.
sveiflur í magni næringarsalta
gróðurs og átu á hinum ýmsu
hafsvseðum við ísland, hefðu á
síldargöngur.
Þessu næst athugaði fyrirlesar-
inn, hvort síldveiðarnar við Norð-
urland standi í réttu hlutfalli við
síldargöngurnar, þ. e. a. s. síld-
armagnið.
Sem kunnugt er byggjast herpi-
nótaveiðar á því, að hægt sé að
staðsetja síldartorfurnar. Til
skamms tíma hefur það einung-
is verið hægt, ef torfurnar hafa
komið upp að yfirborði og sézt.
Þannig var hugsanlegt að mikið
síldarmagn væri á miðunum án
þess að nokkuð veiddist, ef torf-
urnar óðu ekki.
Á síðustu árum hafa hljóð-
bylgjutæki, þ. e. a. s. asdic tæki
verið notuð til að staðsetja síld-
artorfur, þannig að veiðarnar eru
nú ekki eins háðar því og áður að
torfurnar sjáist. Eigi að síður
verðá þær að halda sig tiltölu-
lega nærri yfirborði til þess að
hægt sé að ná til þeirra með herpi
nót. Þá eru viðbrögð torfanna
mjög misjöfn, þegar kastað er á
þær. Stundum eru þær mjög
styggar, svo að ekkert veiðist
enda þótt næg síld sé í sjónum.
Veiðarnar eru því enn mjög háð-
ar hegðun síldartorfanna.
Norðurlandssíldin heldur sig
aðallega í tvenns konar torfum.
í fyrsta lagi eru það hinar svo-
nefndu sumartorfur. Þær eru
þéttar í sér, halda sig á mjög
aímörkuðu svæði og á þessum
torfum má segja að herpinóta-
veiðin byggist. Torfurnar koma
skýrt fram á mælitækjum síld-
veiðibátanna. Úr slíkum torfum
sem eru oft um 15 m langar, en
þykktin um 30 m geta fengizt
100—2000 tunnur í kasti.
f öðru lagi getur síldin haldið
sig nærri eða í yfirborði sjávar-
ins, en er þar mjög dreifð og
kemur fram á mælitækjum sem
ótal punktar.
Greinilegt er að sumartorfur
leysast oft upp og myndast þá
þessar smátorfur eða öfugt. Þar
eð herpinótaveiðar byggjast á
því að stórar sumartorfur mynd-
ist og séu stöðugar er hér um enn
eitt atriði að ræða, sem hefur
úrslitaáhrif á gang veiðanna.
Jakob gat þess að yfirleitt
finnist sumartorfurnar sjaldan í
myrkri og fremur sjaldgæft er,
að þær séu stórar utan við lands-
grunnsbrúnina. Þessar torfur eru
ekki stöðugar sé sjórinn átulítill.
Þannig getur verið um mikið
síldarmagn að ræða á stórum
svæðum, án þess að herpinóta-
bátarnir fái nokkuð sagði Jakob,
í þessu sambandi minntist hann
á vetrarsíldar-torfurnar hér við
Suðvesturlandið og við Noreg, en
þar heldur síldin sig í flekkj-
Jakob Jakobsson fiskifræðing-
ur, sem lauk embættisprófi í
Glasgow vorið 1956 og haft
hefur með höndum stjórn sild-
arlcitar- og rannsókna um borð
í Ægi sl. tvö sumur, hélt fyrra
mánudag erindi um síldveiðar
og síldarrannsóknir í Hinu ísl.
náttúrufræðifélagi. Var þessi
fyrirlestur hans hinn fróðleg-
asti og fer hér á eftir frásögn
af fyrirlestri Jakobs. Sérgrein
hans innan fiskifræðinnar eru
síldarrannsóknir.
um sem ná yfir margra fermilna
svæði.
Til frekari skýringar á því^hve
veiðarnar eru háðar hegðun síld-
arinnar og torfumyndun, sýndi
Jakob línurit og „kortlagningu"
síldargangnanna 1957 og 1958,
sem hann gerði nánari skil. Fyrra
árið höfðu komið þrjár megin
síldargöngur inn á veiðisvæðið.
Hafði sú fyrsta komið inn á vest-
ursvæðið og var þá allgóð veiði.
í júlímánuði hafði komið mjög
sterk ganga inn á djúpmiðin úti-
fyrir Norðurlandi. Var síldin þar
öll í smátorfum, en alls engin
veiði var, þrátt fyrir svo mikla
síldargöngu. Þriðja gangan kom
í ágústbýrjun og gekk hún á
miðin út af Austfjörðum og var
þá töluverð veiði á því svæði.
Jakob gerði í þessu sambandi
sérstaklega grein fyrir þeirri
staðreynd, að göngurnar á vest-
ursvæðinu og út af Austfjörð-
um komust í mikið rauðátumagn.
Aftur á móti var sjórinn átulaus
á landgrunninu, þegar aðalgang-
an kom upp að Norðui'landi.
Síldarsumarið 1958 var að
ýmsu mjög frábrugðið. Gangan
inn á vestursvæðið í júní var þó
svipuð og 1957. Norðurlandsgang
an, sem sterk hafði verið 1957,
var veikari árið 1958. Aftur á
móti kom sterk og mjög óvenju-
leg hafsíldarganga upp við Aust-
firðina um miðjan júlí.
Um mánaðamótin júlí og ágúst
gekk talsvert síldarmagn á grunn
mið norðanlands og þéttist þar
í góðum torfum en undanfarin
aflaleysis ár hefur slíkt ekki kom-
ið fyrir svo síðla sumars. Þá kom
einnig sterk ungsíldarganga inn
á Austfjarðarmiðin.
Enn er öllum í fersku minni hin
kalda og stormasama veðrátta á
Norðurlandi sumarið 1958. En
vegna hinnar stöðugu norðaustan
áttar, eftir 25. júlí, tók að héita
má alveg fyrir veiðarnar. Nokkuð
veiddist þó af ungsíldargöngunni
inn á Austfjörðum. Einn dag, 10.
ágúst, lægði svo á miðunum, að
hægt var að hefja herpinótaveið-
ina aftur. Þá voru allmörg skip
við Grímsey og þann dag var mik
il veiði þar við eyna. Mikið rauð-
átumagn var á öllum grunnmið-
um frá Grímsey að Langanesi, og
hélzt það fram yfir 20. ágúst.
Víst er, að búast hefði mátt við
góðu síldarsumri, ef veður hefði
verið skaplegt til veiða, því
reynslan sýnir að sé rauðátan á
grunnmiðunum, þá má fastlega
reikna með að það síldarmagn,
sem fyrir hendi er, nýtist, sagði
Jakob.
Greinilega kom þannig fram,
að síldveiðarnar norðanlands og
austan fara ekki einungis eftir
því síldarmagni, sem á miðin
kemur, heldur fyrst og fremst
eftir torfugerð og hegðun síldar-
innar.
Fyrirlesarinn kvað það skoðun
sína, að meira síldarmagn hefði
verið fyrir Norðurlandi 1957 en
1958. Aðstæðurnar fyrra árið
voru hins vegar þannig að herpi-
nótaveiðar voru nær óhugsandi.
Hins vegar bentu allar líkur til
þess að það magn sem fyrir
hendi var 1958 myndi nýtast vel
síðari hluta vertíðarinnar, ef veð-
ur hefðu ekki hamlað veiðum.
Er fyrirlesarinn hafði lokið
máli sínu tók fundarstjóri hr.
Unnsteinn Stefánsson til máls,
þakkaði Jakobi ágætan fyrirlest-
ur og bar fram nokkrar spurn-
ingar. Er þeim hafði verið svar-
að kvaddi dr. Hermann Einars-
son sér hljóðs. Hermann minntist
á það í upphafi máls síns, að við
rannsóknir síðustu ára hefði kom-
ið í ljós, að miklu meiri hreyfing
væri á síldarstofnunum en menn
hefðu áður gert sér grein fyrir.
Kvað hann Árna Friðriksson
fyrstan hafa bent á hinar lör.gu
göngur síldarinnar landa á milli,
nákvæmar rannsóknir á göngum
síldarinnar inn á og á síldarsvæð
inu hefðu hins vegar hafizt eft-
ir að asdic tæki voru sett í Ægi.
Kvað hann Jakob hafa stjórnað
síldarleit og rannsóknum yfir
sumartímann með frábærum ár-
angri og dugnaði.
Margrét Ólafsson — elzti
núlifandi íslendingur í
N-Ameríku.
Lækkun fasteignagjalda
Á STJÓRNARFUNDl Húseig-
endafélags Reykjavíkur, höldnum
þriðjudaginn 3. febr. 1959, var
samþykkt samhljóða að beina
eindregnum tilmælum til bæjar-
ráðs Reykjavíkur urr . 1 gera nú
þegar ráðstafanir til þess að
lækka fasteignagjöldin, sem nú
er verið að innheimta, a. m. k.
í hlutfalli við þá lækkun, sem
orðið hefur á vísitölu, frá þeim
tíma, er upphæð gjaldanna var
ákveðin.
Einnig óskaði stjórn Húseig-
endafélagsins eftir stuðningí bæj-
arráðs við kröfu félagsins til fjár-
málaráðuneytisins um hækkun á
fyrningarafskriftum fasteigna
Fregnir af ísiendingum
í Vesturheimi
BLAÐINU hefur nýlega borizt
nýjasta héftið af tímaritinu „The
IcelandicCanadian" og flytur það
að venju margar fréttir af Islend-
ingum o. íslenzkum málefnum
í Vesturheimi. Frá sumu hefur
áður verið sagt hér í blaðinu,
eins og stofnun The Canadian-
Iceland Foundation. hljómleika-
ferð Guðrúnar Símonar um Kan-
ada, heimsókn dr. Vilhjálms Stef
ánssonar til Kanada, 75 ára af-
mælí Jakobínu Johnson í október
mánuði og áttræðisafmælis Gutt-
orms J. Guttormssonar í nóvem-
ber sl.
í heftinu er m. a. getið 105 ára
gamallar konu, frú Margrétar Ól-
afsdóttur í Selkirk í Manitoba,
sem talin er vera elzti núlifandi
fslendingurinn í Norður-Ame-
riku. Margrét er fædd á íslandi
árið 1853 og fluttist með' manni
sinum til Kanada árið 1884. Hún
býr nú hjá syni sínum, Jóhanni
Ólafssyni og tengdadóttur sinni.
Löng grein er um Barða G.
Skúlason, sem mun vera einn
þekktasti lögfræðingur af islenzk
um ættum. Hann hefur rekið lög
fræðiskrifstofu í Portland í Ore-
gon og aflað sér orðstírs sem einn
færasti lögfræðingur Kanada.
Barði G. Skúlason er fæddur 19.
Norskt síldarskip tekið
við Noreg en sleppt aftur
ÁLASUNDI, 7. febr. (NTB)
Norskt strandgæzluskip tók
rússneska síldveiðiskipið Yukon
í dag að veiðum innan norskrar
landhelgi, að því er E. G. Host-
ved flotaforingi, yfirmaður
strandgæzlunnar fyrir vestur-
ströndinni tilkynnti. Eftir að lög-
regluyfirvöldin í Álasundi höfðu
rannsakað mál skipsins var því
sleppt án þess að til ákæru kæmi.
Strandgæzlan hafði fengið
kærur frá norskum fiskimönnum
um það, að rússneski síldveiði-
flotinn hefði verið að veiða inn-
an landhelgislínu við ströndina
um 100 km fyrir norðan Álasund.
Varðskipið Otra frá Kristjans-
sund, var sent á staðinn, en það
tilkynnti að aðeins eitt hinna
rússnesku skipa hefði reynzt vera
innan fjögra milna landhelginn-
ar. Það var síldveiðiskipið Yuk-
on og var tilkynnt, að það hefði
reynzt vera tvær mílur innan
línu rétt fyrir norðan Rundö.
Öll hin rússneska áhöfn var
flutt um borð í norska varðskip-
ið, en starfsmenn norsku strand-
gæzlunnar sigldu skipinu inn til
Álasunds. Þar tóku lögreglumenn
við skipinu. Venjulega fær áhöfn
á teknum skipum sjálf að sigla
þeim inn undir eftirliti norskra
sj óliðsf oringj a.
Hostved sjóliðsforingi, skýrði
frá því, að um 300 skip væru í
síldveiðiflota Rússa við Noregs-
strendur.
Lögreglustjórinn í Álasundi yf-
irheyrði rússneska skipstjórann
og yfirmenn á varðskipinu Otra,
en að því búnu var Rússanum
sleppt og Yukon fékk að fara
frjálst ferða sinna frá Álasundi.
Það var upplýst við réttarhöld-
in, að á þilfari skipsins hefðu
ekki verið togaveiðarfæri, held-
ur aðeins reknet, en slíkt er ekki
ástæða til handtöku.
janúar 1871 á íslandi og flúttist
fimm ára garnall með foreldrum
sínum vestur um haf. Árið 1942
var hann skipaður ræðismaður
íslands í Portland.
Þá er getið andláts Ólafs T.
Anderson, deildarforseta við
Westley College, sem lézt á 68.
aldursári. Hann hafði gegnt fjöl-
mörgum trúnarstöðum við skóla
sinn, síðan hann hif kennslu-
starf þar 1917, og var ákaflega
vel látinn af þeim mörg þúsund
nemendum, sem nutu nandleiðslu
hans. Ólafur T. Anderson var
fæddur vestanhafs, en foreldrar
hans, Sigurður Anderson og Ólína
Björg Nordal voru meðal fyrstu
Islendinganna, sem settust að í
Manitoba. Sigurður lézt árið 1902.
Getið er margra fleiri íslend-
inga, sem hafa unnið til náms-
styrkja og orðið margvíslegs heið
urs aðnjótandi. Meðal þeirra, sem
hafa sýnt afburða námshæfileika
eru þrjú börn séra Eiríks Brynj-
ólfssonar og konu' hans, sem nú
eru búsett í Vancouver. Þau heita
Guðný, 8 ára, Guðmundur, 10
ára og Brynjólfur, 11 ára, og
hlutu þau öll verðlaun fyrir
hæstu einkunnir í sínum aldurs-
flokkum í Cecil Rhodes skólanum
í Vancouver.
í ritinu eru m. a. birt þrjú ljóð
eftir Guttorm J. Guttormsson
bæði á ensku og íslenzku: Jarð-
göngin, Góða nótt og síðasta er-
indið af Sandy Bar Þá eru birt
Ijóð eftir Ásu frá Ásum, eða Ásu
Jónsdóttur, konu Ingva Ólafsson-
ar í Reykjavik, við lag eftir frú
Thordísi Louise Otteson, konu
Steinþórs Guðmunds í Berkley
í Kaliforníu. Nefnist ljóðið Jólin.
Fylgir lausl. þýðing á ensku eftir
Jakobínu Johnson.
Margt fleira er í ritinu, sem
of langt yrði upp að telja.
H a Dodræftfti SIBS
SKRÁ um vinninga í Vöruhapp- 18052 18326 18846 18902 18995
drætti SIBS í 2. flokki 1959. 19090 19728 19856 20066 21074
21109 21388 21758 22221 22963
200 þús. kr. 23065 23633 23661 24574 24786
37598 24940 25085 25376 25437 25844
50 þús. kr. 26885 27063 27175 27458 28742
55540 29163 29361 29892 30216 30429
10 þús. kr. 31320 31490 31698 32315 32867
20652 25083 25487 40325 58275 32919 33438 33512 34228 34517
58750 60729 34607 35170 35320 35321 35341
5 þús. kr. 35600 35792 36601 37433 37505
10863 16765 20073 29599 32391 37649 37795 37825 38292 38980
37102 41404 42170 51787 58010 39011 39067 39125 39616 39781
59199 40243 40565 40803 40915 41425
1 þús. kr. 41572 41583 41686 41919 41965
1182 1697 4538 4788 6155 42166 42174 42610 42991 43203
13410 15562 15780 21297 23718 43429 43509 43570 43707 43729
25216 28046 33570 34652 36417 43858 45076 45124 45321 45676
36441 39717 42742 59376 61286 46327 46479 46566 46972 47495
47665 47773 48609 49427 49692
500 kr. 50084 50105 50153 51227 51553
223 453 956 966 1431 51713 52306 52315 52826 52996
1478 2553 2863 3006 4394 53215 53431 53747 53891 54066
4596 4598 4644 4966 4992 54350 54372 54986 55014 55092
5211 5843 6013 6247 6332 55469 55630 55636 55751 56650
6600 7182 7439 7612 7897 56669 56715 56925 57491 57900
8272 8376 8561 8676 8963 57932 58261 58454 58458 58735
8984 9665 9690 10831 10998 57785 59116 59941 60175 60302
11472 11702 11806 11838 11872 60691 60836 61556 61664 61723
12938 13076 13083 13306 13967 62126 62204 62688 62740 62933
15538 15702 15966 16750 17145 63265 63418 63787 64049 64809
17386 17633 17688 17762 17843 (Birt án ábyrgðar).