Morgunblaðið - 10.02.1959, Page 8
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 10. febrúar 1959
Á þessum slóðum fórst Hans Hedtofí.
Björgunarvél frá Keflavík leitar
skipbrotsmanna af ,Hans Hedtoft'
Frdsögn íslenzks flugmanns, sem tók
þdtt í leitinni
VIÐ svífum skýjum ofar i tíu
þúsund feta hæð nokkru fyrir
neðan okkur geisar óveður, rign-
ing og stormur, það er næsta ótrú
legt að sitja í hægindastól urn
borð í hlýjum farkostinum, og
þurfa ekki að hafa áhyggjur af
neinu í bili. Vélfluga sú, sem
við erum í er af gerðinni C-54, eða
öðru nafni Skymaster og er eign
björgunardeildar Bandaríkjaflug-
hers. Hún er að vísu talsvert frá-
brugðin því sem við eigum að
yenjast frá farþegavélum okkar
af sömu gerð, því að í flugunni
eru aðeins sæti fyrir átta manns,
enda ekki ætluð til mannflutn-
inga það er líka prýðilega rúmt
um viðkomandi aðila í þetta
skipti. Sætunum er komið fyrir
í miðri flugunni, og snúa tvö og
tvö hvort á móti öðru. Fyrir
framan þau vinstra megin gefur
að líta fullkomið eldhús með
stórum bakaraofni til upphitunar
á ýmsum matvælum, fimm kaffi-
könnur og sitt af hverju matar-
kyns, sem gleðja kann svangan
ferðalang. Allt gengur þetta vita-
skuld fyrir rafmagni. Aftur i flug
unni er geysimikið geymslupláss
þar eru ótal gúmmíbjörgunar-
bátar, tveir stórir kassar með
nyðarblysum, og alls kyns ann-
ar útbúnaður til björgunar á sjó
og landi, þar eru og þrettán fall-
hlífar það passar fyrir áhöfnina
og okkur aukamennina, en við
urðum að máta, ef ske kynni.
Jæja, þar fyrir aftan eru svo tveir
útsýnisturnar sinn hvorum megin
í flugunni. Þeir eru íhvolfir og
gefa ágæta yfirsýn bæði upp,
niður og út frá, einnig eru þeir
upplagðir til myndatöku. Við
hvorn þessara turna eru þægi-
legir stólar, og tæki til að senda
boð fram í stjórnklefann ef með
þarf. Fremst er svo stjórnklefinn.
Þar heldur áhöfnin tíu manns til,
hún samanstendur af flugstjóra
tveimur flugmönnum, tveimur
siglingafræðingum, tveimur véla-
mönnum, og einum loftskeyta-
manni. Fluga þessi er sérstaklega
vel útbúin af öllum tækjum, og
má þar nefna að radarskífa, er
bæði hjá flugstjóra og siglingar-
fræðing, og ótal margt annað sem
of langt -rði upp að telja. Við
erum þrettán um borð í þessari
ferð, þar af erum við tvö aðskota-
dýr, ég og Frank Poulsen sjón-
varpstökumaður frá Danske tele-
vision og Film journalen. Einnig
er með verndarengill okkar og
leiðsögumaður Sgt, Lindsey frá
upplýsingaþjónustu hersins. Poul
sen, vinur minn, er fyrir margra
hluta sakir athyglisverður maður
hann hefur víða farið, og var
meðal annars hér á ferð fyrir
skömmu með Nínu og Friðrik,
og tók þá myndir fyrir danska
sjónvarpið. Hann var sá eini sem
tók sjónvarpsmyndir af ógæfu-
skipinu Hedtoft i reynsluför þess
hafði hann því hug á að fá
sem gleggsta yfirsýn um leit, þá,
sem nú stóð yfir.
Við lögðum af stað frá Kefla-
vík klukkan fjögur þrjátíu og var
veðrið þar þá þannig að varla
var á bætandi, það var suð- suð-
austan þrjátíu hnútar og grenj-
andi regn. En það mátti þó segja
að hressandi væri að koma út
í þetta eftir að hafa gengið í gegn
um hreinsunareldinn á skrifstof-
unni. Þar undirskrifuðum við
fjöldan allan af pappírum allt frá
matargjalds viðurkenningum, til
þess hvert ætti að senda líkið.
þar var allt á ferð og flugi,
flugmenn leiðsögumenn og veð-
urfræðingar að ganga frá ýmsu
sem við kom fluginu. Loksins er
við komumst af stað út kallaði
einhver gárunginn á eftir okkur,
gleðilegt ár piltar: Ef þið þurfið
að labba heim, Þar sveif hinn
óþvingaði andi flugmannsins yfir
vötnunum. Af stað var haldið og
hér erum við í tíu þúsund fetum
á leið til þessa hörmungarstaðar
við suðurodda Grænlands, til
leitar, ef ske kynni að einhver
væri enn lífs þarna á óravidd
hafsins af hinu gæfusnauða skipi.
Við höfum flogið í vestur í rúm-
an hálftíma og ferðafélagarnir
hafa lagt sig, ég sit við aðra út-
sýnis kúluna og horfi út í svart-
nættið. Það eina, sem sést er
vængurinn og það örlar fyrir ís-
ingu á honum. Ég geng því
frammí til áhafnarinnar til að
drepa tímann.
Gammi inn klýfur loftið með
tvö hundruð og tuttugu mílna
hraða á klst. Það hefur verið
skratti kalt í flugunni síðasta
klukkutímann, þar sem hita-
kerfið varð fyrir smávegis bilun,
en það er nú verið að lagfæra
það. En kuldinn hefur ýtt við
Poul, hann er nú að ranka við
sér, og hefur að tína hin furðu-
legustu tæki úr pússi sínu sem
brátt fylla tvö sæti.
Leitin hafin
Klukkan er 09,52. Við erum
staddir yfir bandaríska strand-
gæzluskipinu Campbell sem statt
er á 59 gráðum 20 mínútum norð-
ur og 45 gr. 30 mín. vestur um
það bil íimm mílur frá Prinee
Christian höfða. Það sendir út
hljóðmerki og eftir þeim er blind-
flugs aðflugið hafið. Flugan
lækkar sig um eitt þúsund fet á
mínútu, sem er um fimm hundr-
uð fetum meira en yfirleitt er
gert á samsvarandi flugum í far-
þegaflugi. Það er fjári ókyrrt á
leiðinni niður og þarf mannskap-
urinn iðulega að grípa í armana
á stólunum svona til frekara ör-
yggis.
í eitt þúsund fetum förum við
yfir Campbell. Við erum komnir
í sætin við útsýnis-kúlurnar ég og
Sgt. Lindsey.Við sjáum þessu litla
skipi bregða fyrir sem snöggv-
ast, þar sem það veltur og enda-
sendist i hafrótinu sem er gífur-
legt, en það hverfur okkur sjón-
um í óskaplegum hríðar hryðjum,
sem yfir ganga. Leitin er hafin.
Þessi ein umfangsmesta leit sem
sögur fara af, og sýnir bezt þá
fórnarlund og drengskap, sem
tengir menn saman á örlagastund.
Við fljúgum í þríhyrning sem
smáminnkar og reynt er að grand
skoða hvern blett innan hans.
Hríðarbyljirnir skella á flugvél-
inni með ofsaferð líkt og dynj-
andi skothrið og byrgja allt út-
sýni um stund þess á milli sér
í hvítfyssandi hafið, líkast suðu-
potti ólgandí og freyðandi. Og í
röstinni sjást einstaka öldur hefj-
ast í mikla hæð, er þær skella
saman.
Okkur er áreiðanlega hugsað til
sjómannanna, sem velkjast um
þarna í hafrótinu fyrir neðan, í
vonlítilli leit að sárþjáðum með-
bræðrum. En það skal ekki gefist
upp meðan nokkur vonarneisti er
eftir.
Flugan kastast óþyrmilega til
í byljunum og við verðum að ríg-
halda okkur í útsýniskúlurnar.
Þetta er hörku-blindflug og ég
öfunda alls ekki flugmennina af
starfi þeirra í þetta skipti, en
þrautseigju þeirra virðast engin
takmörk sett. Tvisvar eru þeir
búnir að biðja um heimild til að
lækka flugið, en stjórnendur leit
arinnar í Halifax neitað. Sömu
sögu er að segja um félaga þeirra
frá Goose Bay, sem eru á næstu
grösum við okkur. Öðru hvoru
sjáum við til landsins forna
fjanda, það hlýtur ósjálfrátt að
fara hrollur um hvern þann sem
hefst við í nágrenni hans. Ég sé
að vængbörð flugvélarinnar eru
niðri um einar þrjátíu gráður og
því hlýtur að vera flogið með eins
litlum hraða og mögulegt er.
Hryðjurnar verða æ þéttari
og byrgja að lokum að mestu
leyti útsýnið. Það verður að reikn
ast mér til syndar, þegar mér
verður það ósjálfrátt á að vona,
að þetta hafi tekið nógu fljótt af
fyrir vesalings fólkið, og það
þurfi ekki að kveljast til bana af
vosbúð og kali þarna niðri.
Það hriktir í allri flugvélinni
og við höfum spennt okkur í stól-
ana. Það er haldið áfram klukku
tíma eftir klukkutima en samt
virðist tíminn standa í stað. —
Skyndilega breytist hljóðið í
hreyflunum og vélin breytir um
stefnu, hún tekur að hækka sig.
Við stöndum upp frá útsýnis-
turnunum stirðir og lerkaðir eftir
setuna. Menn eru venju fremur
hljóðir, þeir vita sem er, að þetta
er jafnvel síðasta leitarflugið.
Hafið hefur tekið sinn skatt að
þessu sinni, jafnvel fyrir skamm
sýni einhvers eða einhverra. Við
skulum vona, að þessi ógurlega
reynsla komi í veg fyrir fleiri
fórnir.
Það er flogið í 10 þúsund fet-
um heim á leið. Okkur er borin
ýmiss konar hressing, svo sem
heitur rr tur og kaffi. Poulsen
má þó varla vera að því að nær-
ast þvi hann myndar allt dautt
og lifandi í flugvélinni, og við
hinir förum ekki varhluta af þeim
„trakteringum“. Þegar við erum
nær miðsvegar heim, komum við
í glampar di sólskin og blíðu. Það
léttir strax yfir mannskapnum,
og nú geta meðlimir áhafnarinnar
leyft sér að koma afturí og spjalla
saman. Jafnvel flugstjórinn stend
ur loksins upp úr sæti sinu og
lætur öðrum stjórnina eftir um
stund.
Þegar við nálgumst Keflavík
versnar \ 'ðrið aftur, og að lok-
um er kominn rigningarsuddi.
Flugstjó.i.m fer í sætið sitt aft-
ur og skömmu seinna hefur hann
blinflugsaðflug að Keflavíkur-
fiugvelli. Ég sé, að Poulsen ætlar
að taka mynd í lenchngunni, en
það verðu. nú ekki alveg af því,
þareð súldin byrgir allt útsýni
niður aó braut. Flug-n sezt svo
þýtt, að á betra verður ekki kos-
ið. Flugstjórinn Lt. Parson hefur
staðfest það, sem mér hafði áður
verið sagt, að hann væri afburða
flugmaður.
Þegar numið er staðar við flug
skýlið, kemur strax fjöldi manna,
sem tekur farkostinn í sínar vörzl
ur næstu flugferð, hvert, sem
henni verður heitið. Við tínum
saman hafurtask okkar, og áhöfn
in kvödd með virktum. Þegar út
er komið, dynur þessi spurning
úr öllum áttum: „Any luck; did
you see anything to day?“ — Við
hristum höfuðið, og göngum í átt
að flugstcðvarbryggjunni. Fram-
undan er rúmlega klukkustundar
akstur um hraun og hæðardrög
Suðurnesja.
Einar Frederiksen.
Enska
knattspyrnan
WOLVERHAMPTON hefur tekið
forystuna í fyrstu deild, af Ar-
senal, sem hefur einnig 36 stig,
en verri markahlutföll. Manch.
United hefur unnið 9 af 10 síð-
ustu leikunum og gert eitt jafn
tefli.Bolton lék án Lofthouse, tap
aði í fyrsta sinn á þessu ári. Fyrir
leikinn gegn Arsenal skipti fram-
kvæmdastjóri Manch. City um
8 stöður í liðinu. Sigur Birming-
ham gegn Preston er athyglis-
verður. Luton tókst vel upp á
móti Burnley.
Aston Villa og Portsmouth
reka enn lestina í fyrstu deild.
Sheffield Wednesday heldur
áfram sigurgöngunni í 2. deild og
Liverpool skauzt upp fyrir Ful-
ham öðru sinni í ár. Grimsby, sem
hefur gengið illa undanfarið,
unnu Cardiff City. Leyton Ori-
ent hefur 7 töp í röð að baki.
Staðan í 1. deild Sunderland ... 4 13 45:54 26
Wolverhampton 27 17 2 8 64:33 36 Brighton .... 28 8 9 11 48:67 25
Arsenal 29 16 4 9 68:45 36 Middlesbro ... .... 27 9 5 13 56:47 23
Manchester Utd. 28 14 6 8 67:50 34 Huddersfield .... 28 9 5 14 40:53 23
27 13 7 7 50:41 33 .... 27 9 5 13 41:55 23
West Bromwich 26 12 8 6 61:40 32 Scunthorpe ... .... 28 8 7 13 36:54 23
Blackpool 27 11 10 6 41:31 32 Grimsby .... 25 7 7 11 46:55 21
Preston N.E 29 14 4 11 52:51 32 Leyton Orient.... 28 7 5 16 39:56 19
Nottingham F. 27 14 3 10 53:37 31 Lincoln City .... 28 7 4 17 42:67 18
West Ham 27 13 3 11 59:51 29 Rotherham ... .... 27 6 5 16 29:58 17
Blackburn 27 11 7 9 54:49 29
Birmingham .... 27 12 4 11 48:48 28 3. deild
Leeds Utd 28 10 7 11 37:46 27 Accrington — Hull City 0:1
Burnley 27 10 6 11 49:50 26 Bury — Notts County .... 0:1
Chelsea 28 12 2 14 54:66 26 Chesterfield - - Mansfield 3:1
Newcastle 28 11 3 14 56:57 25 Doncaster — Bournemouth .... 5:1
28 11 3 14 47:62 25 0:0
Luton Town .... 26 8 8 10 45:40 24 Newport County — Swindon Town 3:0
Tottenham 28 8 5 15 51:68 21 Plymouth — Colchester 1:1
Leicester City .... 27 7 7 13 45:64 21 Q.P.R. — Southend 1:3
Manchester City 27 7 7 13 42:62 21 Rochdale Norwich City .... 1:2
Portsmouth 28 6 6 16 44:69 18 Southampton — Bradford City 1:2
28 7 4 17 41:68 18 2:2
Tranmere — Reading 2:1
2. deild
Brighton — Huddersfield.......... 2:0
Bristol Rovers — Lincoln City ... 3:0
Derby County — Fulham ........... 2:0
Grimsby Town — Cardiff City ..... 5:1
Ipswich Town — Sunderland ....... 0:2
Leyton Orient — Sheffield Wedn. 0:2
Liverpool — Bristol City ........ 3:2
Middlesbrough — Charlton ........ 1:3
Rotherham — Scunthorpe ......... 1:0
Sheffield Utd. — Barnsley ...... 5:0
Swansea — Stoke City ........... 1:0
1. deild Sheffield Wedn. 27 19 4 4 76:30 42 í 2. deild, en 4 neðstu falla niður í 4.
5:1 27 18 2 7 60:38 38 deild. I 4. deild flytjæt fjogur efstu
Blackburn — Portsmouth 2:1 Fulham 28 17 4 7 62:45 38 liðin upp í 3. deild.
2:1 28 15 4 9 53:41 34
Chelsea — West Ham Utd 3:2 Sheffield Utd 27 14 5 8 53:30 33 4. deild
Leeds United — Everton 1:0 Derby Co 29 12 7 10 50:55 31 Port Vale 28 17 6 5 72:39 40
Luton Town — Burnley 6:2 Cardiff City .... 26 14 2 10 46:41 30 Coventry City .. 29 16 7 6 60:29 39
27 11 7 9 52:42 29 31 17 4 10 55:39 38
Newcastle — Wolverhampton 3:4 Bristol City 27 13 3 11 56:46 29 Exeter City 26 16 5 5 57:33 37
Nottingham For. — Bolton Wandrs. 3:0 Swansea Town 27 10 7 10 53:51 27 York City 29 13 10 6 48:32 36
Tottenham — Manchester Utd. 1:3 Charlton Athl.,.. 27 11 5 11 59:60 27 Shrewsbury 31 14 7 10 60:44 35
West Bromwich — Leicester City 2:2 Ipswich Town ... 28 11 4 13 42:48 26 Crystal Palace ... 30 12 9 9 57:51 33
Staðan í 3. deild (Efstu og neðstu liðin)
Southampton
Notts County
Doncaster
Rochdaie ...... 31
29 16 10 3 62:36 42
32 18 6 8 64:39 42
31 14 7 10 55:49 35
31 12 9 10 73:52 33
29 12 9 8 51:40 33
29 10 6 13 44:59 26
29 9 6 14 44:52 24
29 6 11 12 41:60 23
31 8 2 21 32:65 18
31 5 7 19 28:64 17