Morgunblaðið - 05.03.1959, Blaðsíða 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 5. marz !959
Fyrrihluta dags í gær var vetrarlegt um að litast hér í Reykjavík, enda kominn meiri snjór en
verið hefur fyrr á vetrinum. Síðar í gærdag bætti enn verulega þar ofan á, svo ekki sá á dökkan
díl á Austurvelli. í gærkvöldi um kl. 6,30 var hitastigið komið upp yfir frostmark og tók þá að
rigna. Er spáð áframhaldandi rigningu eða slyddu í dag. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Heildarkostnaður við
niðurgreiðslur 1959
áætlaður 259.555
þúsundir króna
o
Sjúkrasamlagsiðgjöld verða greidd
niður um ca. 29^o
Á FUNDI sameinaðs Alþingis
í gær var tekin til umræðu svo-
hljóðandi fyrirspurn til ríkis-
stjórnarinnar um lækkun fram-
færsluvísitölu og niðurgreiðslu
vöruverðs frá Eysteini Jónssyni:
1. Um hve mörg stig lækkar
framfærsluvísitalan vegna á-
hrifa laga um niðurfærslu kaup
gjalds og verðlags?
2. Hvaða vörutegundir eru nú
greiddar niður, og hve miklu
nemur niðurgreiðslan á hverri
vörutegund, miðað við kg eða
lítra?
greiðslan á hverri vörutegund
nemi samtals á yfirstandandi
ári?
Þá varpaði fyrirspyrjandi
einnig fram þeirri spurningu,
hvort vísitalan .væri nú komin
niður í 202 stig og ef svo væri
ekki hve mikið þyrfti að greiða
hana niður svo hún kæmist í 202
stig.
Gylfi Þ. Gíslason, viðskipta-
málaráðherra, svaraði fyrir-
spurnunum af hálfu ríkisstjórn
arinnar og fer svar hans hér á
eftir:
Neytendasamtökin vinna
mál fyrir Hœstarétti
Málið reis út af viðvörun gegn notkun
Hvile Vask
NEYTENDASAMTÖKIN hafa
unnið mál fyrir Hæstarétti, sem
höfðað var gegn þeim af um-
boðsmanni danska þvottaefnisins
Hvile Vask. Hið danska þvotta-
efni var samkvæmt leiðarvísi á
umbúðum þvottaefnisins, sjálf-
virkt þvottaefni, sem var nýjung
og hefði í för með sér byltingu
um framkvæmd þvotta. í leiðar-
vísinum er m. a. tekið fram, að
þvottaefnið spari tíma og fé og
valdi eigi sliti á efni því, sem
þvegið er. Það var umboðsmaður
þvottaefnisins, svo og Gústaf A.
Sveinsson, sem höfðuðu mál
þetta f. h. Hvile Vask, gegn
Neytendasamtökunum. í undir-
rétti hafði málið farið á þá leið,
að Neytendasamtökin töpuðu
því og voru dæmd til greiðslu
á 40,000 kr. í skaðabætur, svo og
málskostnað. Fyrir Hæstarétti
kröfðust talsmenn Hvile Vasks
að undirréttardómurinn ýrði
staðféstur, en Neytendasamtökin
aftur sýknu.
★
í skjölum Hæstaréttar eru
dómsforsendur raktar mjög
ítarlega á átta vélrituðum
folíósíðum. — Forsaga máls-
ins er sú að í nóvembermánuði
1953 birtu Neytendasamtökin í
dagblöðum bæjarins viðvörun til
almennings við einhliða notkun
þvottaefnisins Hvile Vask. Segir
þar m. a. að af þvottaefninu leiði
óeðlilega mikið slit á þvotti, sem
stafi af því að of mikil bleiking
valdi því að þræðir verði stökkir
og brotni því fremur.
Umboðsmaður þvottaefnisins
taldi að viðvörun þessi hefði
haft í för með sér að mjög hafi
Dagskrá Alþingis
í DAG eru boðaðir fundir í báð-
um deildum Alþingis kl. 1,30. Á
dagskrá efri deildar eru fjögur
mál: 1. Ríkisreikningurinn 1956,
írv. — 3. umr. 2. Tekjuskattur og
eignarskattur, frv. — 3. umr. 3.
Búnaðarmálasjóður, frv. — Frh.
2. umr. 4. Póstlög, frv. — Frh. 2.
umr.
Þrjú mál eru á dagskrá neðri
deildar: 1. Kosningar til Alþing-
is, frv. — 1. umr. 2. Hafnargerðir
og lendingarbætur, frv. — 1. umr.
8. Lííeyrissjóður starfsmanna rík
isins, frv. — 2. umr.
dregið úr sölu á þvottaefninu
Hvile Vask hér á landi og hafi
sér verið bakað fjártjón. Telur
umboðsmaður að viðvörunin sé
óréttmæt og beri því Neytenda-
samtökunum að greiða sér bætur
vegna hennar.
★
í endurriti af dómi Hæstarétt-
ar eru síðan rakin í alllöngu máli
ýmis vottorð utanlands frá svo og
innlend, í sambandi við efnagrein
ingu á hinu umdeilda þvottaefni.
— Meðal þeirra eru vottorð
frá Teknologisk Institut í
Kaupmannahöfn. — Þar er
greinargerð frá þýzkri þvotta-
rannsóknarstöð, er snertir rann-
sóknir á þvottaefnum, er hreinsi
þvottinn án þess að hann sé
nuddaður, bréf frá Statens
Husholdningsraad og loks er
álitsgerð sem dómkvaddir menn
tóku saman, byggð á rannsókn-
um á slitþoli baðmullarefnis
sem þvegið hafði verið úr Hvile
Vask.
★
t dómsniðurstöðum Hæstarétt-
ar í máli þessu segir svo:
„Umsagnir á álitsgerðir kunn-
áttumanna, sem að framan grein-
ir, bera það með sér, að það
magn af natriumperborat, sem
reyndist vera í þvottaefninu
Hvile Vask við efnagreiningar
bæði hér á landi og í Danmörku,
er skaðlegt fyrir vefnað þann
sem þveginn er. Slitþolsraunir,
sem gerðar hafa verið, sýna, að
slit á baðmullarefni, þvegnu 50
sinnum úr þvottaefninu Hvile
Vask, er meira en Teknologisk
Institut telur eðlilegt, og að slit
á hörefni, þvegnu einnig 50 sinn-
um úr Hvile Vask, er 43,6%, en
það verður eftir þeim gögnum,
sem fyrir liggja, að teljast óhæfi-
lega mikið.
★
Samkvæmt því, er nú var rak-
ið, þykja eigi vera efni til að
dæma fébætur á hendur áfrýj-
endum fyrir viðvörun þá til al-
mennings, sem áður greinir. Ber
því að sýkna þá af kröfum
stefndu í málinu.
Eftir atvikum þykir mega
ákveða, að málskostnaður falli
niður, en málflutningslaun skip-
aðs talsmanns áfrý.>enda fyrir
Hæstarétti greiðist úr ríkis-
sjóði“.
3. Hvað er áætlað að niður-
Svöi við fyrirspurn Eysteins Jónssonar.
1. Lækkun framfærsluvísitölunnar vegna
áhrifa laga um niðurfærslu verðlags og launa,
sem fram var komin 6. febrúar 1959, var 6,4
stig. Gera má ráð fyrir, að þá eigi eftir að koma
fram lækkun, sem nemur 0,3 stigum, og verður
þá heildarlækkun vísitölunnar vegna ákvæða
nefndra laga 6,7 stig. Hér er þess að gæta, að
niðurfærsla sú, sem hér um ræðir, hefur ekki
aðeins bein áhrifrsem þessu nemur, til lækkun-
ar á vöruverði, heldur hefur hún líka komið í
veg fyrir hækkanir, sem hefðu orðið, ef niður-
færslan hefði ekki átt sér stað. Lækkun vísitöl-
unnar hefði með öðrum orðum orðið meiri, ef
búið hefði verið að færa allt verðlag í landinu
til samræmis við hækkun kaupgreiðsluvísitölu
og grunnkaups á síðasta ári.
2. og 3. Niðurgreiddar vörur, niðurgreiðsla á magnseiningu og áætlaður niðurgreiðslukostnaður.
Sauðfjáraf urðir: tt m « to 2 S Ö H ■s "3 d ** K ® 3 gs S ,• fi h g a « «H Niðurgreiðila frá 1.3. 1959, itif sé * s fl i 3 S 3 •£ M > eo . "2 S • ® 4» a> S H 4> g • C s* rH B Is ■ílt
Dilka- og geldfjárkjöt 10,51 10,50 *) 73.570 72.300
Ærkjöt 4,20 — 1.470 1.400
Geymslukostnaður kjöts — — 5.200 5.200
Ull og gærur — — 3.400 3.400
Mjólkurafurðir: Nýmjólk frá mjólkurbúum 2,44 11,61 77.600 77.500
Nýmjólk seld beint til neytenda — — 9.750 9.750
Smjör miðalaust 8,66 0,73 )
) 30.500 30.500
Viðb.niðurgr. á smjör gegn miðum 27,60 2,32 )
0,65 4,45 1,90 0,11 0,13 0,04 1.235 1.235
Mjólkurostur 2.800 2.800
Mysuostur 80 80
2 • 270 270
Undanrennuduft — — 150 150
Kartöflur 70000 tonn 2,40 5,86 *) 17.000 17.000
Kartöflur geymslukostnaður — — 900 900
Smjörlíki 6,36 1,93 10.500 10.500
Saltfiskur 6,30 2,38 5.670 5.670
Ýsa ný, sl/m/haus 1,50**) 1,29**) )
) 6000 tonn ) 8.900 7.900
Þorskur nýr, sl/m/haus ...) 1,37**) 0.56**) )
Alla 37,46 248.995 246.555
*) Niðurgreiðsla geymslukostnaðar ekki meðtalin.
**) Ekki endanlegar tölur.
Samkvæmt áætlun Hagstofunnar þarf að
greiða framfærsluvísitöluna niður um 3,8 stig
til þess að hún verði 202 stig 1/3 1959. Hinar
auknu niðurgreiðslur frá og með 1. marz 1959,
sem þegar hafa komið til framkvæmda, lækka
vísitöluna um 2,4 stig og þarf því enn viðbótar-
niðurgreiðslur sem svara 1,4 stigum til þess, að
vísitalan 1. marz 1959 komist niður í 202 stig.
Er gert ráð fyrir að sjúkrasamlagsgjöld verði
frá 1/3 1959 greidd niður eins og með þarf til að
brúa þetta bil, og mundi niðurgreiðsla mánaðar-
lega sjúkrasamlagsiðgjaldsins í Reykjavík þurfa
að verða ca. 13 kr., ef áætlim Hagstofunnar um
vísitöluna 1/3 1959 reynist rétt. Þessi niður-
greiðsla samsvarar þvi, að ca. 29% af iðgjaldi
sjúkrasamlagsmeðlima í Reykjavík sé greitt
niður, og er gert ráð fyrir að hlutfallslega sama
niðurgreiðsla verði ákveðin á meðlimaiðgjaldi
allra sjúkrasamlaga á landinu. Árskostnaður við
þessa niðurgreiðslu er áætlaður 15,6 millj. kr.,
og þá kostnaður á 10 mánaða tímabilinu, sem
niðurgreiðslan er í gildi á þessu ári, 13,0 millj.
króna.
Samkvæmt þessu er áætlaður heildarkostnað-
ur við niðurgreiðslur 1959, sem hér segir:
Hejldarkostnaður samkv. skýrslumii hér fyrir ofan 246.555 þús. kr.
Aætlaður kostnaður vegna niðurgreiðslu sjúkra-
samlagsgjalda frá 1/3 1959 ................ 13.000 þús. kr.
Alls 259.555 þús. kr.