Morgunblaðið - 05.03.1959, Blaðsíða 18
18
MORGl’NBLAÐHi
Fimmtudagur 5. marz 1959
— Alþingi
Framhald af bls. 3
nauðsynjainnflutningi, — þeir
játuðu báðir að þetta hefði verið
yfirlýst stefna V-stjórnarinnar —
og án hennar hefði ekki verið
hægt að halda við hallalausum
búskaþ. — Þá þarf ekki frekar
vitnanna við heldur en þessar
yfirlýsingar þeirra um það, i hví-
líkt öngþveiti málum þjóðarinnar
var komið.
Þörf nýrra stjórnarhátta
Það er vissulega tími til þess
kominn, að teknir verði uþþ nýir
stjórnarhættir. Nú hefur unnizt
svigrúm til að stöðva sig í þeirri
feigðarsk-iðu, sem Jysteinn Jóns
son hafði leitt þjóðina út í. Til
þess að þjóðinni gefist færi á
hollari stjórnarhætti heldur en
fylgt hefur verið er nauðsyn,
að kosningar fari fram til Alþing-
is sem allra fyrst. En vegna þess,
að Eysteinn Jónsson veit, að þjóð-
in skilur þetta og mun kveða Uþþ
yfir honv.m verðugan dóm fyrir
frammistöðuna í þessu sem öðru,
er það sem hann fjandskapast
svo við kosningar i sumar.
Lúðvík Jósefsson kvað hafa
verið vikið að því, að hann hefði
rekið á eftir með innflutning á
hátollavörum. Virtust menn ekki
gera sér fullkomna grein fyrir
því, hvað væru hátollavörur og
að ógerlegt væri að vera án
sumra þeirra. Hann kvað það
fjarstæðu, að halda því fram, að
innflutningsáætlunin ætti að
standa ,en kvað ekki auðvelt að
komast af með minni innflutning
á hátollavöru en fyrir 179 millj.,
en þessi innflutningur hefði
minnkað í tíð fyrrverandi stjórn-
ar.
Gylfi Þ. Gíslason kvaðst vilja
leiðrétta þann misskilning, að
hér væri eitthvað nýtt og óvenju-
legt að gerast. Nú hefði verið unn
ið að þessum málum eins og mörg
GARÐYRKJUMAÐUR
Danskur garðyrkjumaður —
sveitamaður 32 ára, ógiftur, ósk-
ar eftir vinnu á íslandi, helzt
sem forstöðumaður. Beztu með-
mæli frá Danmörku, Hollandi,
Englandi og Svíþjóð. Svar
merkt: 3112 sendist Nordisk
Annonce Bureau, Köbmager-
gade 38, Köbenhavn K.
undanfarin ár. Áætlunin væri þó
nákvæmar unnin og rækilegar en
nokkurn tíma áður. Það ætti ekki
að vera nýtt í málinu að áætlun-
inni yrði fylgt, því að það væri
vægast sagt furðulegt að gera á-
ætlun, og ætla svo ekki að fylgja
henni.
Ef forsendur áætlunarinnar
brygðust yrði að sjálfsögðu að
taka hana til endurskoðunar. Það
væri svo sjálfsagt mál, að ekki
ætti að þurfa að gefa sérstaka yf-
irlýsingu um það. í samningum
við Seðlabankann hefði verið gert
ráð fyrir því, að áætlunin yrði
tekin til endurskoðunar, en hins
vegar væri það ætlun núverandi
ríkisstjórnar, að fylgja áætlun-
inni að óbreyttum forsendum.
Hefffi átt aff flytja inn varahluti
Jóhann Hafstein tók aftur til
máls. Kvað hann viðskiptamála-
ráðherra hafa mótmælt því í sinni
síðustu ræðu, að hér væri um
nokkra nýja framkvæmd i inn-
flutningsmálum að ræða. Enda
þótt þessu hefði verið mótmælt
og það lægi Ijóst fyrir öllum þing
mönnum, þá hefði 1. þ.m. Sunn-
mýlinga, Eysteinn Jónsson, haldið
því gagnstæða fram og hans um-
mælum mundi ætlaður staður í
Tímanum á morgun. Mundu
menn geta lesið þar í stórum fyr-
irsögnum, að nú væri það stefna
ríkisstjórnarinnar, að flytja inn
lúxus í stað nauðsynja.
f tíð fyrrverandi ríkisstjórnar
hefði ekki verið farið eftir þeim
áætlunum, sem gerðar hefðu ver-
ið, og kvað Jóhann Hafstein það
ekki stækka myndina af Eysteini
Jónssyni í sínum augum, að hann
hefði alltaf gert áætlanir um inn
flutninginn með fyrirvara. Á síð-
asta ári hefði viðskiptamálaráð-
herra verið með áhyggjur yfir að
innflutningsáætluninni hefði ekki
verið fylgt. Það, sem bjargað
hefði tekjum ríkissjóðs hefði ver-
ið að tekjur af áfengi og tóbaki
hefðu farið fram úr áætlun. Þetta
hefði fjármálaráðh'erra verið
kunnugt og því hefði hann verið
áhyggjulaus þó áætlunin breytt-
ist. En hann hefði þá átt að sjá
um að sú breyting hefði það í för
með sér, að flutt væri inn meira
af varahlutum í landbúnaðarvél-
ar, þar sem tilfinnanlegur skortur
hefði verið á þeim á sl. ári.
V-stjórnin hélt illa á
Bjarni Bencdiktsson: Lúðvík
Allison-tríó
sýnir fjöJbreytta nýtízku dansa í kvöld.
Jósefsson hélt því fram, að
í tíð V-stjómarinnar hefði verið
flutt inn minna af hátollavörum
heldur en áður. Það er með há-
tollavörur, eins og annan inn-
flutning, að allt verður að miðast
við þann gjaldeyri, sem hverju
sinni er fyrir hendi. Eftir að
V-stjórnin tók við völdum brá svo
við, að upp var tekinn hallarekst-
ur á ríkissjóði sjálfum og gjald-
eyrisstaða landsins varð svo
miklu lélegri heldur en nokkru
sinni áður ,að opinberar skuldir
hafa á jafnstuttum tíma aldrei
vaxið neitt í líkingu við það, sem
á þessum tíma varð. Augljóst er,
að þeir, sem þannig héldu á,
höfðu ekki efni á að eyða jafn
miklu fé í ýmiss konar innflutn-
ing eins og hinir, sem öllu gátu
haldið á réttum kili.
Lúðvík Jósefsson kvað það rétt
sem hann hefði áður sagt, að
gjaldeyriseyðsla fyrir hátollavör-
ur hefði verið meiri á árunum
1955—56 en í tíð fyrrverandi ríkis
stjórnar. Þá sagði hann að það
sannaði ekkert um gjaldeyris-
eyðslu þó erlendar skuldir hefðu
aukizt, og kvað það t. d. ekki
muna litlu ef keyptir væru til
landsins 15 togarar. (Var þá grip-
ið fram í og spurt hvar togararnir
væru) — Lúðvík hélt áfram og
sagði að um enga stefnubreytingu
hefði verið að ræða í tíð fyrrv.
ríkisstj. í þessum efnum frá því
sem áður var.
Ingólfur Jónsson talaði síðastur.
Kvað hann 2. þm. Sunnmýlinga
hafa verið í nokkrum vafa um
hvað væru hátollavörur, en ein-
mitt í þesum efnum hefði orðið
stefnubreyting í tíð fyrrverandi
ríkisstjórnar frá því sem áður var.
í-tið þeirrar stjórnar er fór með
völd á undan V-stjórninni hefðu
tollar af nauðsynjum verið lágir,
en hins vegar hærri tollar af þeim
vörum, sem hægt var að vera án,
en efnaðri menn vildu veita sér.
V-stjórnin hefði hins vegar lagt
háa tolla á neyzluvörur alls al-
mennings, einkum með 55% yfir-
færslugjaldinu á síðasta ári. Þá
kvaðst Ingólfur vilja upplýsa það,
að alltof stór hluti hinna erlendu
lána sem hefðu verið tekin í tíð
V-stjórnarinnar hefðu farið til að
greiða með tolla svo Eysteinn
Jónsson gæti sýnt hallalausa ríkis
reikninga. Slíkar lántökur gætum
við hins vegar ekki tekið ef við
vildum halda okkar efnahagslega
sjálfstæði óskertu sagði Ingólfur
Jónsson að lokum.
Örn Johnson.
Enibætti vitamála-
stjóra veitt
FORSETI fslands hefur nú veitt
embætti hafna- og vitamálastjóra,
en um það sóttu fimm verkfræð-
ingar. Embættið var veitt Aðal-
steini Júlíussyni, sem gegnt
hefur þessu embætti nú um nokk-
urt skeið. Aðalsteinn tók form-
lega við embættinu hinn 1. marz
síðastliðinn
Auk Aðalsteins sóttu um em-
bættið þeir: Gísli Halldórsson
verkfræðingur, Gunnar B. Guð-
mundsson verkfræðingur, Magn-
ús Konráðsson verkfræðingur og
Þorlákur Helgason verkfræðing-
ur.
Flugmálafélag íslands
heiðrar Örn Johnson
UM síðustu helgi var haldin hin
árlega flugmálahátíð í veitinga-
húsinu Lido og tóku þátt í henni
starfsfólk flugmálastjórnarinn-
ar, flugfélaganna og félagsmenn
í Flugmálafélagi íslands. Hafði
félagið veg og vanda að hátíð-
inni að þessu sinni.
Heiðursgestir samkvæmisins
voru Örn Johnson framkvæmda-
stjóri Flugfélags íslands og kona
hans. Forseti Flugmálafélags-
ins Hákon Guðmundsson lýsti
því að stjórn þess hefði ákveðið
að sæma örn merki félagsins í
gulli til viðurkenningar fyrir 20
ára heilladrjúgt starf í þágu ís-
lenzkra flugmála. Svo skemmti-
lega hittist á, að einmitt þenn-
an sama dag voru liðin rétt 20 ár
frá því að Örn Johnson gerði sitt
fyrsta flugtak af íslenzkri grund
en það var hinn 28. febrúar 1939
í flugvél, sem Flugmálafélag ís-
lands átti þá (nú á það enga).
Að loknu ávarpi Hákonar Guð
mundssonar var örn hylltur
mjög af veizlugestum, en þeir
voru um 400 talsins. Hann tók
síðan til máls og flutti stutta
og skemmtilega ræðu, þar sem
hann þakkaði þann heiður, er
honum hefði verið sýndur af
Flugmálafélaginu.
Á hátíðinni var einnig lýst úr-
slitum svifflugmótsins á Hellu
á Rangárvöllum á sl. sumri og
afhentir tveir verðlaunabikarar,
Eignir Sjómannadagsins
eru nú 19.5 milljónir
Frá aðalfundi fulltrúaráðsins
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs Sjó
mannadagsins í Reykjavík og
Hafnarfirði var haldinn í Hrafn-
istu sl. sunnudag. Voru þar mætt-
ir auk fulltrúa, flestir formenn
eða stjórnarmeðlimir aðildarfé-
laga Sjómannadagsins.
í fundarbyrjun var minnzt
hinra hörmulegu sjóslysa sem
orðið hafa að undanförnu, og síð-
an gengið til aðalfundarstarfa.
Endurskoðaðir reikningar Sjó-
mannadagsins, Hrafnistu, Happ-
drættis DAS og Laugarásbíós
voru lagðir fram og samþykktir.
Eignir Sjómannadagsins eru nú
19,5 millj. kr., þar af er bygging-
arkostnaður Dvalarheimilisins
eins og það er nú 16,5 millj. Er
nú lokið að mestu þeirn hiuta
heimilisins, sem risinn er af
grunni en vönduð sjúkradeild var
opnuð í húsinu fyrir skömmu.
Áformað er að byggja til viðbótar
minnst 2 vistálmur eins fljótt og
við verður komið, og standa von-
ir til að það geti orðið á næsta
ri.
Fjárfestingaráform stjórnarinn
ar fyrir yfirstandandi ár voru
einróma samþykkt. Er m. a. gert
ráð fyrir að lokið verði við sam-
komuhúsið, sem þegar er fullgert.
að utan.
Á fundinum var samþykkt að
mótmæla framkomnu fr umvarpi ]
á Alþingi um skerðingu happ-1
drættisfjár DAS, að skora á Al-
þingi að stórauka dánar- og slysa
tryggingar sjómanna, að vinna að
athugun á stofnun „Ekknasjóðs
Hrafnistu", að láta ágóða af
merkjasölu næsta Sjómannadags
renna til aðstandenda þeirra er
farizt hafa í síðustu sjóslysum og
loks var samþykkt að skipuð verði
sérstök nefnd til að fylgjast með
ýmsum öryggistækjum á skipum,
viðhaldi þeirra og endurnýjun.
Var og nánar kveðið á um störf
slíkrar nefndar.
Stjórn Fulltrúaráðs Sjómatma-
dagsins skipa nú: Henry Hálfdán-
arson, formaður, Þorvarður
Björnsson, gjaldkeri, Tómas Guð-
jónsson, ritari, Garðar Jónsson og
Gunnar Friðriksson. Endurskoð-
endur eru þeir Guðojartur Ólafs-
son og Sigfús Bjarnason.
Tókýó, 3. marz. Reuter. —
Japanska hvalrannsóknastofnun-
in hefur ákveðið að láta skjóta
sérstökum auðkenningarskeytum
í um 400 hvali. Er þetta upphafið
á fimm ára rannsóknum á lífi og
viðkomu hvala. Hvalfangarar eru
síðan beðnir að tilkynna það, ef
þeir veiða hvali með umræddum
auðkenningarskeytum.
sem gefnir höfðu verið vegna
þessa móts, en þá hafði gefið Þór
oddur Jónsson stórkaupmaður.
Á móti þessu var keppt um ís-
landsmeistaratitilinn í svifflugi
og hlaut hann og þar með bik-
arirm Þórhallur Filippusson,
sem er einn af ágætustu svif-
flugsmönnum landsins, og sá
eini, er mun hafa tekið þátt í
svifflugamóti erlendis. Annar
varð Sverrir Þóroddsson, og
hlaut hann einnig bikar, en hann
er aðeins 14 ára að aldri og mjög
efnilegur svifflugsmaður.
Aðalræðu kvöldsins flutti Agn
ar Kofoed-Hansen flugmála-
stjóri. Karl Guðmundsson leik-
ari skemmti og danstríó skemmti
staðarins skemmti einnig. Að lok-
um var dans stiginn af fjöri fram
til óttu.
Fór flugmálahátíð þessi hið
bezta fram og var Flugmálafé-
laginu til hins mesta sóma.
Slökfcviliðsbíll
sfcemmir annan bíl
FYRIR nokkrum dögum varð
Mercedes fólksbíll, sem stóð á
hinu afmarkaða bílastæði við
Vonarstræti fyrir miklum
skemmdum, er slökkviliðsbíll ók
á hann. Var slökkviliðsbíllinn á
leið niður á slökkvistöðina við
Tjarnargötu er þetta gerðist. —
Hinn stóri og þungi bíll kræktist
í fólksbílinn með þeim afleiðing-
um m. a. að fólksbíllinn dróst
með slökkviliðsbílnum nokkurn
spöl og skemmdist mikið, sem
fyrr greinir.
Fólksbílnum mun hafa verið
lagt rétt og lögum samkvæmt.
Það kom fram við rannsókn máls
ins, sem menn munu almennt
ekki hafa vitað, að bílar slökkvi-
liðsins eru ekki skyldutryggðir
sem aðrir bílar, vegna tjóns er
þeir kunna að valda í um-
ferðinni, en þeir eru sérstak-
lega brunatryggðir. Ef eigandi
fólksbílsins, sem fyrir skemmd-
unum varð, telur sig geta krafizt
bóta verður hann að gera bóta-
kröfur á hendur bæjarsjóði, úr
því slökkviliðsbíllinn var ekki
skyldutryggður.
22 bílar
skemmdust í gær
FLUGHÁLKA var enn á götum
bæjarins í gærdag. Mest allan
daginn var hríðarveður og snjó-
aði þá állmikið ofan á eldra snjó-
lag.
Bílaeigendur urðu margir fyr-
ir óhöppum í gær vegna hálk-
unnar, en slys urðu ekki á fólki.
í gærkvöldi var götulögreglunni
kunnugt um að frá því um há-
degisbil og fram á kvöld, urðu
11 bílaárekstrar á götunum. Við
þá urðu meiri og minni skemmd-
ir á 22 bílum. Þá varð umferðar-
ljós neðst í Bankastræti fyrir
skemmdum, er strætisvagn rann
til á hálkunni og skall utan
í ljósið, beygði staurinn og braut
ljósaumbúnaðinn.