Morgunblaðið - 14.03.1959, Side 9

Morgunblaðið - 14.03.1959, Side 9
Laugardagur 14. marz 1959 9 Jónas Pétursson, Skriðuklaustri: GrundvalIaratriði lýbræðis að Albingi sé skipað þing- mönnum í hlutfalli v/ð at- kvædamagn flokkanna hjá þjóðinni UM þessar mundir standa yfir miklar umræður um tilhögun kosninga til Alþingis og kjör- dæmaskipun. Sjálfstæðisflokkur- inn og' Alþýðuflokkurinn hafa lýst í megindráttum tillögum um framtíðarskipun, með því að sam- eina núverandi kjördæmi í nokkr ar stærri heildir og láta hlutfalls- tölu atkvæða ráða kjöri. Núverandi kjördæmaskipun og kosningatilhögun er gengin svo úr skorðum frá því að geta þjón- að megintilgangi stjórnarskipun- ar okkar og réttarvitund um lýð- ræði og þingræði að endurbætur þola enga bið. Má segja að mæl- irinn yrði yfirfullur í því efni með kosningabandalagi Fram- sóknar- og Alþýðuflokks 1956. Verður því ekki neitað að ýmsir unnendur lýðræðis urðu högg- dofa, er úrslit þeirra kosninga dæmaskiptingu. En vegna breyt- inga á búsetu landsmanna, mundi sá grunnur raskast mjög ört. Auk þess myndi kosningabarátta í svo smáum kjördæmum verða hættu- leg pólitísku siðgæði í landinu. Hún skapaði eða héldi við óeðli- lega sterkri aðstöðu ófyrirleitinna frambjóðenda eða þingmanna gagnvart hrekklausum eða lítils- megandi kjósendum og gæti á sama hátt sett frambjóðanda eða þingmann í hættulega aðstöðu gagnvart kjósendum. Fámenni kjördæma hefir m. ö. o. alvar- legar skuggahliðar. En stærst er þó e. t. v. sú hliðin að útiloka minnihlutann í kjördæmunum frá áhrifum og því að eignast um- boðsmann. Stjórnmálasaga sið- ustu ára ber þess órækt vitni. Flokkaskiptingin hefir verið svo föst, að með einmenningskjör- dæmunum væru stórir hópar landsmanna meira og minna dæmdir úr leik til áhrifa á lands- málin. Slíkt er óþolandi misrétti og gæti mjög trúlega verkað slævandi á lýðræðiskennd fólks- ins. Hjá fjölmennari þjóðum þar sem tugir þúsunda kjósenda eru í einu kjördæmi, er allt öðru máli að gegna. Þar njóta sín kostir þessa fyriirkomulags og þar sem þingmenn skipta hundruðum er mikil trygging fyrir lýðræðislegri skipan þingmanna með einmenn- ingskjördæmum. Samanburður á okkar fámennu þjóð um kjör- dæmaskipan við t. d. Bandaríkin og England er þess vegna að mínu viti gjörsamlega út í hött. Þá er sú skipan, sem Sjálf- stæðis- og Alþýðuflokksmenn hafa komið með tillögur um og ég gat um í upphafi. Það er sú kjör- dæmaskipun er ég tel fullnægja bezt lýðræðisreglum og réttarvit- und og þjóðhagslegri nauðsyn um staðbundna þekkingu og sér- veilur eða galla kjördæmaskip- | staka fulltrúa landssvæðanna. Jónas Pétursson urðu kunn og sýndu, að svo fast var flokksfylgið, að hagnýta mátti Það mun reynast styrkur sveit- unum er tímar líða. Framsók'narmenn segja að með samfærslu; kjördæmanna sé verið að slíta samband þingmanna og kjósenda. Slíkt samband er vit- anlega alveg háð hæfni þing- manna og vilja til að kynnast kjósendunum og setja sig inn í þeirra viðhorf. í mínum augum eru það. augljósir kostir stærri kjórdæmanna að þingmenn verða að kynna sér hag og sjónarmið fleiri kjósenda og stærri heilda. Það styrkir hvert réttlætis og þjóðþrifamál, en veikir ekki. Stærri kjördæmin leiða af sér nán ara samstarf fleiri þingmanna, náin kynni fleiri þ.ngmanna í hverju byggðarlagi, og síðast en ekki sízt, nánara samstarf þing- manna úr fleiri flokkum um vel- ferðarmál byggðarlaganna. Það myndi draga mjög úr pólitískri úlfúð og einstrengingshætti í kjördæmunum, vegna óhjákvæmi legs samstarfs þingmanna úr annars andstæðum flokkum. Jón í Yztafelli skrifar í „Tím- ann“ 3. marz sl. langa grein um þetta mál. Ég kynnti mér þessa grein vel, þar sem ég hygg Jón með ritfærari og rökvísari mönn- um Framsóknarflokksins. Sú grein er mjög rituð af tilfinn- ingahita og er vottur þess hversu sundurleit og rökvana barátta Framsóknarmanna er gegn sam- færslu þriggja til fjögurra nú- verandi kjördæma í eitt kjör- dæmi með hlutfallskosningu. Jón minnist á átthagafélögin og segir að kjördæmabreytingin skeri þessi sögulegu erfðabönd er tengi burtflutta héraðsmenn sínu upprunahéraði. Furðuleg röksemd! Þá segir Jón að með einmenningskjördæmum sé kosið um menn en ekki flokka. Hefir íslenzk stjórnmálasaga síðusta 30 ára gjörsamlega farið fram hjá honi i? En niðurlag greinar Jóns má segja að ritað sé af furðulegum „kulda“, — þetta: „En frá hinum dreifðu byggðum ætti svarið að verða svo einróma nei, að aldrei framar reyni nokkur flokkur að ráðast á stjórnarskrá landsins og reyna að fá henni breytt, ein- vörðungu vegna sinna flokkshags muna“. Þetta kalla ég að nefna snöru í hengds manns húsi. Það þarf furðulega flokksblindu, eða ískalda fyrirlitningu á lesendum, þeg'ar Framsóknarmaður — mað- ur úr þeim flokki, sem býr við tvöfaldan til þrefaldan rétt til áhrifa á þjóðmál, móts við kjós- endur annarra flokka, sakar Sjálf stæðisflok'.inn um baráttu fyrir flokkshagsmunum, er hann setur fram tillögur til að tryggja jöfn áhrif kjócondanna á þjóðmálin, hvar í flokki sem þeir standa. Ég treysti því að kjósendur átti sig á þeim lýðræðislega rétti, sem þeim er tryggður með hlut- fallskosningum í 8—10 kjördæm- um á landinu og svar þeirra verði svo samhljóða já að aldrei framar þurfi að heyja baráttu til að ná þeim rétti. unar og kosningatilhögunar með útreikningum fyrirfram. Þau úr- slit ein voru ærin sönnun þess, að breytingar máttu ekki drag- ast. Þar við bættust svo hin „sögulegu rök“, þau að einn flokkur, Framsóknarflokkurinn, kom við hverjar kosningar út með miklu fleiri þingmenn, en at- kvæði svöruðu til, miðað við aðra flokka. En það er grundvallarat. riði lýðræðis að Alþingi sé skip- að þingmönnum í hlutfalli við atkvæðamr.gn flokkanna hjá þjóð inni. En jafrYamt því er það þjóð- hagsleg nauðsyn, að þingfulltrú- ar hafi sem mesta þekkingu á atvinnumálum og högum þjóðar- innar allrar. Því marki verður bezt fullnægt með skiptingu landsins í kjörsvæði — kjördæmi —. Ný kjördæmaskipting og kosningatilhögun verður því að fullnægja þessum 2 sjónarmiðum. Lýðræðislegri skipan Alþingis og nauðsyn byggðarlaganna að velja fulltrúa fyrir takmörkuð svæði. Einmenningskjördæmi. Ein leið in, sem komið hefur til álita, er skipting landsins í einmennings- kjördæmi, t. d. 50—60, eftir því hve margir þingmenn yrðu vald- ir. Til þess að sú kjördæmaskip- un fæli í sér yfirgnæfandi líkur fyrir því, að meirihluti kjósenda stæði að baki meirihluta þing. manna yrði kjósendafjöldi mjög að liggja til grundvallar kjör- Ég hygg þó, að ýmsir hnjóti um það, að enn er gert ráð fyrir uppbótarþingsætum. En ef jafna á metin g?~n hinni betri aðstöðu, sem þéttbýlið hefir, heldur en landshlutarnir, sem fjær eru að- setri stjórnar og þings, þá verður að ætla þeim kjördæmum fleiri þingmenn eftir íbúafjölda. Það leiðir af sér a. m. k. möguleika á eitthvað misjafnri þingmanna- tölu á hvert þúsund kjósenda hvers flokks. Þau met yrðu þá jöfnuð með uppbótarþingsætum, sem kæmu jöfnum höndum í hlut hinna fámennari, sem fjölmenn- ari kjördæma. Uppbótarsætin bæta sem sé hlut hinna fámenn- ari byggðarlaga um leið og þau tryggja jöfnuð milli flokka. Ég held þess vegna að ekki eigi að sleppa þeim að öllu. Þá er það mjög mikilsvert at- riði að með stækkun kjördæm- anna færast í heildir sveitir og ýmsir kaupstaðir. Sú kjördæma- skipun er tákn þess að stéttirnar verða að vinna saman — að sveitamenn og bæjarbúar verða að eignast sameiginleg sjónarmið, — þau sjónarmið að velgengni sveita og bæja er samofin og allra hagur. Það er eitt stærsta mál sveitanna, að fullur skiining. ur sé meðal bæjarbúa á gildi þeirra í þjóðfélaginu og sá skiln- ingur mun eflast við þau tengsl, sem samstaða í kjördæmi skapar. Geislavirkt ryk hefur fundizt á Boeing-707 SÉRFRÆÐINGAR hafa enn ekki lokið rannsókn á Boeing-707 þot- unni, sem missti hreyfilinn yfir N-Frakklandi á dögunum. Eins og áður kom fram í fréttum var þotan á reynslu- og æfingaflugi með fimm manna áhöfn. Hún var nýkomin til Parisar frá New York með fullfermi — og átti innan nokkurra stunda að halda aftur vestur um haf með 110 far- þega. Flugstjórinn ætlaði í stutt æfingaflug með nýja áhafnar- meðlimi — og, er fyrrgreindur atburður átti sér stað, var hann að sýna nýliðunum hve hægt mætti fljúga Boeing-707 án þess að hún tapaði hæð. Hafði hann drepið á báðum hreyflum á vinstri væng — og notaði ein- ungis þá á hægri væng. Tveggja tonna hreyfill rifnaði af Enginn þeirra, sem innanborðs voru gerðu sér ljósa grein fyrir því hvað gerðist. Þotan steyptist skyndilega — og eftir nokkur andartök hafði flugstjórinn kom- ið henni aftur á réttan kjöl. „Ég veitti því fyrst enga at- hygli, að ytri hreyfillinn á hægra væng hafði rifnað af“, sagði flug stjórinn. En flugmennirnir átt- uðu sig fljótlega — og þotunni var flogið til Lundúna án þess að nokkuð annað óhapp ætti sér stað. Menn, sem fylgdust með þot- unni af jörðu niðri sögðu, að hún hefði hvolfzt í loftinu, en rétzt skjótlega við aftur. Hinn tveggja tonna þungi hreyfill féll til jarð- ar — og kom niður á akurlendi — og grófst djúpt í jörðu. Atburðurinn vakti töluverðan ótta meðal farþeganna, sem áttu að fara með þotunni til Banda- ríkjanna þá um kvöldið. Talsmað ur félagsins sagði þeim hins veg- ar, að í farþegaflugi væru þot- urnar aldrei reyndar á þennan hátt — og slíkt sem þetta gæti þá ekki komið fyrir. 29.000 feta steypiflug En þetta var engan veginn nóg, því að nokkru áður höfðu blöðin skýrt frá því, að Boeing-707 þota, sem var á leið vestur yfir haf, hefði skyndilega steypzt úr 35.000 feta hæð — og flugmennirnir hefðu naumlega forðað stórslysi. í 6.000 feta hæð tókst þeim loks- ins að rétta þotuna við — og flogið var inn til Gander í þeirri hæð. Orðrómur var á kreiki um að loftþrýstiútbúnað- ur hefði bilað — og flugstjór- inn gripið til þessa óyndisúrræð- is, því að farþegum og áhöfn var bráður bani búinn, ef loft- þrýstingurinn inni í þotunni hefði skyndilega fallið til jafns við það, sem hann var uppi í 35.000 feta hæð. Nú staðhæfir flugstjórinn hins vegar, að sjálfsstjórnartæki (auto pilot) þotunnar hafi bilað. Far- þegar hafa borið það, að flug- stjórinn hafi verið staddpr í far- þegaklefanum, þegar þotan steyptist. Gegn m hljóðmúrinn Allt fór á annan endann í far- þegarúminu — og flugstjórinn komst við illan leik fram í stjórn- klefann þar sem aðstoðarflug- maðurinn sat og remdist við stýrið árangurslaust. Þá var þot- an í beinni stéfnu til jarðar — og komin gegnurm hljóðmúrinn. Flugstjórinn greip þegar til sinna ráða, dró af hreyflunum og setti lofthemlana örlítið niður til þess að reyna að draga eitthvað úr hraðanum. Síðan lögðust bæði flugstjórinn og aðstoðarflugmað- urinn á stýrið af öllum kröftum — og loks tókst þeim að sveigja þotuna í lárétta stefnu. Þá hafði hún flogið í fjórar mínútur í beinni stefnu til jarðar, steypzt 29.000 fet. Boeing-flugvélaverksmiðjurn- ar tóku þoturnar þegar til. at- hugunar. en ekki hafa niðurstöð- ur verið birtsr. Geislavirkt ryk En þessi þeta hafði ekki verið lengi í húsakynnum verksmiðj- unnar, þegar það barst út, að fundizt hefði á búk hennar geisla virkt ryk. Skömmu síðar var upplýst, að orðrómurinn hefði við rök að styðjast. Talsnsaður Pan Ameri- can tjáði fréttamönnum, að geislavirknin hsfði fundizt af til- viljun. Sagði hann, að bandaríkja flugher fylgdist að jafnaði með því, hvort geislsvirkt ryk settist á háloftsþotur hersins. Ósjaldan hefði slíkt ryk fundizt á orrustu- þoturn, en þetts væri í fyrsta sinn, sem rykið fyndist á far- þegaþotu. Kvað hann allar þot- ur félagsins mundu rannsak’aðar jafnóðum og þasr kæmu tjl Ne» York. Sagði hann og, að rykmagnið hefði ekki verið mikið, eða minna en 1 á röntgen mælikvarðanum — og til samanburðar gat hann þess, að starfsmenn kjarnorku- stöðva Bandarikjamanna væru búnir undir að þola geislamagn, sem svaraði til 15 á röntgen mælikvarðanum. Framh. á bls. 15.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.