Morgunblaðið - 14.03.1959, Blaðsíða 15
Laugardagur 14. marz 1959
MORCWVrtLAÐIÐ
15
Verkstjórafélag
Reykjavíkur
VERKSTJÓRAFÉLAG Reykja-
víkur hélt aðalfund sinn þann 3.
marz sl. í skýrslu stjórnarinnar
segir að um tuttugu verkstjórar
hafi gengið í félagið á árinu, og
að ýmsum félagsmálum hafi verið
komið í betra horf. Skrifstofa
félagsins hefur verið höfð opin
fyrir félagsmenn á hverju mánu-
dagskvöldi og verður það fram-
vegis.
Aðalfundurinn var með sérstök
um hátíðarbrag í tilefni þess að
félagið var fjörutíu ára gamalt
þennan dag, en þess hafði verið
minnzt með hófi að Hótel Borg
laugardaginn. 28. febrúar.
í stjórn Verkstjórafélagsins
fyrir næsta ár voru kosnir Svein-
björn Hannesson formaður, Adolf
Petersen ritari, Guðlaugur Stef-
ánsson gjaldkeri, Guðjón V. Þor-
steinsson, varaformaður og Gunn
ar Sigurjónsson, varagjaldkeri.
Innanfélagsmót TBR
INNANFÉLAGSMÓT TBR var
haldið síðastliðinn laugardag. —
Keppt var í meistaraflokki og
fyrsta flokki um bikara er Þórir
Jónsson afhenti félaginu. í
karlaflokki var keppt um bikar
er nefnist Walbom-bikar, en í
kvennaflokki um bikar er nefn-
ist Unnar-bikar. Þessi keppni var
forgjafarkeppni.
Walbom-bikar unnu Einar
Jónsson og Óskar Guðmundsson,
er kepptu til úrslita á móti Ragn-
ari Georgssyni og Pétri O.
Nikulássyni.
Unnar-bikar unnu Sigríður
Guðmundsdóttir og Jónína Niel-
johníusardóttir, er kepptu til úr-
slita á mótl Júlíönu Isebarn og
Halldóru Thoroddsen.
Jafnframt fór fram keppni í 2.
flokki og var þar keppt úm bik-
ar gefinn af Páli Andréssyni.
Sigurvegarar urðu Magnús
Elíasson og Walter Hjaltested, en
til úrslita kepptu þeir á móti
Gísla Theodórssyni og Bergi Jóns
syni.
Aðstaða félagsins hefur aldrei
Dönsku og norsku fluglið-
arnir tijá 5A5 hrósa nú
loks sigri
ÖRLÍTIL seinkun varð. á því að
SAS tæki Caravelle þoturnar
frönsku í notkun, en vonir standa
til að hægt verði að hefja ferð-
ir með þeim á aðalflugleiðunum
innan Evrópu um eða upp úr
miðjum maí mánuði þrátt fyrir
verkfall sænsku flugmannanna
hjá SAS. Eins og kunnugt er
hefur lengi verið mikill ágrein-
ingur með flugmönnum og öðr-
um flugliðum hjá skandinaviska
flugfélaginu. Þeim dönsku og
norsku hefur þótt sem þeirra
hlutur vari fyrir borð borinn og
hinir sænsku flugliðar nytu betri
aðstöðu í hvívetna.
SAS hefur alla tíð borið sænsk
an svip framur en danskan eða
norskan — og það var því ekkert
undarlegt að danskir og norskir
flugliðar yrðu óánægðir, þegar
farið var að þjálfa hlutfallslega
fleiri Svía en Norðmenn og Dani
til þess að taka við Caravelle
þotunum, sem félagið tekur í
notkun í vor — og verður þar
með fyrsta flugfélagið ásamt Air
— Utan úr heimi
Frh. af bls. 8
Beecham-verksmiðjanna, hefir
látið svo um mælt, að hann von-
izt til þess að geta, áður en mjög
langt líður, kunngert að hafin
verði framleiðsla á hinum nýju
penisilínlyfjum, í samvinnu við
stórt, bandarískt fyrirtæki, en
Bandaríkjamenn hafa sýnt mik-
inn áhuga á uppfinningunni, og
hafa vísindamönnunum fjórum
borizt fjölmargar árnaðaróskir
með afrekið frá bandarískum
starfsbræðrum.
★
Þess má geta hér til viðbótar,
að í tilefni þessara merku tíð-
inda, átti danska blaðið Politiken
viðtal við dr. med. K. A. Jensen,
en hann hefir mjög komið við
sögu penisilínsins allt frá upp-
hafi. — Dr. Jensen sagði m.a.,
að hann væri ekki sérlega trú-
aður á, að ætlunin væri að nota
nýju lyfin við inflúensu — taldi,
að þar sem talað er um inflúensu
í þessu sambandi í „The Lancet“,
hlyti að vera átt við fylgikvilla
þess sjúkdóms, sem eru oft ill-
vígir. — Inflúensa er veirusjúk-
dómur, sem kunnugt er, og hing-
að til hefir penisilín og önnur slík
lyf verið óvirk gagnvart öllum
veirum.
Ef einhverjir möguleikar hafa
raunverulega opnazt að þessu
leyti, sagði dr. Jensen, þá er það
eitt nóg til þess að telja má með
réttu, að uppgötvun þessi valdi
aldahvörfum.
France til þess að hefja flugferð-
ir innan Evrópu með þotum.
En verkfall flugmannanna hjá
SAS breytti gangi þessara mála.
Sænsku flugliðarnir, sem voru í
þjálfun á Caravelle suður í Frakk
landi héldu heimleiðis þegar er
verkfallið skall á — og þeir sitja
um kyrrt heima þar til samkomu
lag næst. Sem kunnugt er sömdu
dönsku og norsku flugliðarnir —
og nú hafa Norðmenn og Dánir
verið teknir til þjálfunar á nýju
þoturnar í stað Svíanna. Þykir
Svíum þetta súrt í broti eins og
nærri má geta, en þeir norsku og
dönsku eru kampakátL.
Kommúnistar
töpuðu
HAAG, 12. marz. — Lokatölur
úr kosningum til neðri deildar
hollenzka þingsins voru kunnar
skömmu fyrir miðnætti. Kaþólsk
ir hlutu flest atkvæði, en jafn-
aðarmenn mynda næststærsta
flokkinn — kaþólskir með
31,59% atkv. og jafnaðarmenn
með 30,37%. Hinir fyrrnefndu fá
líklega 48 þingmenn í deildinni
og jafnaðarmenn 46, en þeir síð-
arnefndu höfðu áður flesta þing-
menn í neðri deildinni. Frjáls-
lyndir unnu á, en kommúnistar
töpuðu, hlutu aðeins 2,41% at-
kvæða.
ATHUGIÐ
að borið samar við útbreiðslu,
er la ígtum ódýrr ru að auglýsa
í IVVLigunblaðinu, en j öðrum
biöóum. —
verið betri en núna, til badmín-
toniðkana, því að með tilkomu
íþróttahúss Vals hafa skapazt
möguleikar fyrir alla félagsmenn
að fá leigða æfingartíma í heppi-
legum sölum, og til stórbóta er
það að spilað er á fjórum völlum
í hvoru húsi. Nú er svo komið að
æfingartímar félagsins eru alla
daga vikunnar, þ. e. a. s. þriðju-
daga, miðvikudaga og föstudaga
í KR-húsinu, en mánudaga,
fimmtudaga og laugardaga í
Vals-húsinu.
Síðastliðinn vetur hóf TBR
kennslu í badminton fyrir ungl-
inga, þeim að kostnaðarlausu.
Félagið hefur í því tilefni eign-
azt spaða til að lána unglingun-
um. í þeim tímum mættu kenn,
arar félagsins og var geysiáhugi
á þessum tímum.
Þessir unglingatimar eru nú á
laugardögum kl. 3:00—4:20 undir
stjórn Ragnars Georgssonar.
Samæfingartímar félagsins eru
alla laugardaga í Valshúsinu kl.
4:20—6:50 og eru þeir ókeypis
fyrir alla félagsmenn.
Sérstök ástæða er að benda
mönnum á, að nokkrum æfingar-
tímum er enn óráðstafað, en
Verzlunin Hellas, Skólavörðu-
stíg 16, útdeilir timunum f.yrir
félagið.
— Geislavirkt ryk
Framh. af bls. 9
Settist á fitu
Geislavirka rykið, sem myndazt
hefur við kjarnorkusprengingar,
virðist mun meira i efri loftlög-
um en niðri við jörðu, sagði tals-
maðurinn. Rykið sezt einungis
utan á þotubúkana, sérstaklega
á olíuslettur eða önnur fituefni
á búknum. Aluminiumbúkurinn
heldur áhrifum geislanna í skefj-
um — og þótt magnið væri meira
mundi rykið ekki valda neinum
skaðlegum áhrifum á þotum inn-
anverðum. Og fulltrúi félagsins
fullyrti, að íarþegum og áhöfn
mundi engin haetta stafa af geisl
un þessari, niagnið væri svo
hverfandi lítið.
F.iga allt undir þotunum
Sagt er, að einn af fulltrúum
Pan American hafi verið spurð-
ur að því kve miklu félagið
mundi tapa, ef stórslys yrði á
einni af Boeing-707 þotum fé-
lagsins og allar þotur þeirrar
gerðar yrðu kyrrsettar meðan
rannsókn málsins færi fram*
Fulltrúinn svaraði: — Það er eina
dæmið, sem Pan American þor-
ir ekki að reikna.
Þetta svar gefur e. t. v. betur
til kynna en allir útreikningar,
hve stóru flugfélögin eiga mikið
undir því, að upphaf þotualdar
verði farsælt. Félögin hafa lagt
hart að sér, varið öllu tiltæku
fé til kaupanna — og sum hver
tekið geysimikil lán. StöðVun
einnar þotuteguudar mundi valda
félagi á borð við Pan American
milljónatapi á dag. Sennilega
gæti félagið staðið undir slíku
í nokkurn tíma. Hins vegar yrði
það þyngra á metaskálunum, að
almenningur, væntanlegir flug-
farþegar, mundu margir hverjir
missa trúna á farartækið — og
slíkt yrði óbætanlegt.
Ílpllá
- f '
f
N ■ l ■. -:v. &
rr&fiíÉÍÍflj
iálverka-
sýning
Kára Kiríkssonar
í Listamannaskálanum
Opið frá kl. 10—22.
Ölluni þeim sem á margvislegan hátt heiðruðu mig á
sextugsafmælinu færi ég mínar innilegustu þakkir.
fsak Eiríksson.
Þakka innilega vinsemd mér sýnda á 65 ára afmælis-
degi mínum.
Sesselja Sveinsdóttir, Eskihlíð D.
Byggingafclag Alþýðu Keykjavík
íbúð til sölu
2ja herb. íbúð í 2. byggingaflokki til sölu. Umsóknir
sendist skrifstofu félagsins Bræðraborgarstíg 47
fyrir kl. 12 á hádegi þriðjud. 24. marz.
Stjórn Byggingafélags Alþýðu.
Stúlka óskast
Þvottahúsið Ægir
Símar 15122 og 19861.
VELSTJORI
með prófi úr rafmagnsdeild vanur eim og diesel-
vélum óskar eftir vinnu í landi. Tilboð merkt: „5449“
sendist afgr. blaðsins fyrir 20. þ.m.
Eiginkona mín elskuleg
MÁLFKÍÐUK JÖNSDÖTTIR
Frakkastíg 14,
andaðist i Bæjarspítalanum i gær 13. marz. Jarðarförin
ákveðin síðar.
Theódór Magnússon.
ANNA G. ÞORKELSDÓTTIR
frá þíosfelli, andaðist 13. þ.m.
Svanlaug Einarsdóttir, Anna M. Þorsteinsdóttir.
Innilega þökkum við öllum er veittu okkur ómetan-
lega hjálp, samúð og hluttekningu við andlát og jarðar-
för mannsins míns föður okkar og afa
GUNNARS JÓNSSONAR
Gröf Víðidal.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Gunnarsdóttir, börn og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug, við
fráfall mannsins míns og föður okkar
JÓHANNS SIGURÐSSONAR
sem fóst með b.v. Júlí.
Hrefna Jensen og börn.
Hjartkær eiginkona mín, móðir, amma og tengdamóðir
SIGURBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR
er andaðist 8. þ.m. verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
mánudaginn 16. þ.m. kl. 10,30 f.h. Athöfnin hefst frá
heimili hinnar látnu Vesturgötu 68 kl 9,30 f.h. Athöfninni
í kirkjunni verður útvarpað.
Sigiirður Sigurðsson,
börn, barnabörn og tengdabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför
AAGE L. PETERSEN
verkfræðings.
Guðný Petersen, börn og tengdabörn.
Innilegar hjartans bakkir til allra góðra vina, er
sýndu okkur hluttekningu við fráfall okkar elskulega
fóstursonar
SKÍTLA LÁRUSAR P-ENEDTKTSSONAR
er fórst með togaranum Júlí frá Hafnarfirði 8. febr. s.l.
Guð blessi ykkur í nútíð og framtið.
Katrín K. Húnf jörð, Jósep S. Húnf jörð.
KfcfOI