Morgunblaðið - 14.03.1959, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.03.1959, Blaðsíða 14
14 MORCVNBLAÐIÐ Laugardagur 14. marz 1959 íslandsmót í körfuknattleik hefst annað kvöld með stór- leik ÍR og KFR ÍSLANDSMÓTIÐ í körfuknatt- leik hefst annað kvöld, sunnu- dagskvöld kl. 8,15. Taka þátt í mótinu um 170 keppendur, sem keppa í 18 leiksveitum í 5 flokk- um karla og kvenna. Strax fyrsta kvöldið, en mótið stendur í 8 leikkvöld, verður einn af aðal- leikjum mótsins í m.fl. karla, leik urinn milli ÍR og Körfuknatt- leiksfélags Reykjavíkur. Hinn leikurinn í kvöld er 2. fl. karla milli Ármanns A og KR Flokkarnir 5 á mótinu eru m.fl. karla, m.fl. kvenna, 2., 3. og 4. aldursflokkur karla. í m.fl. karla keppa KFR, ÍR, IKF og ÍS (stúdentar). Lið ÍKF er núverandi íslandsmeistari. I m.fl. kvenna taka þrjú lið þátt, IR, KR og A. — ÍR-stúlk- urnar unnu titilinn í fyrra. I 2. fl. karla keppa ÍR, ÍKF, KR, KFR og Ármann sendir 2 lið A og B. Ármann vann keppni þessa flokks í fyrra. í 3. fl. karla ATHUGIÐ að borið samar við útbreiðslu, er la ígtum ódýrera að augiýsa í Mcrgunblaðinu, en 1 öðrum biöóum. — keppa ÍR, KR og Á og í 4. fl. karla þar sem nú er keppt 1 fyrsta sinn, keppa Ármann og ÍR. Nú er keppt eftir nýjum regl- um, sem nýlega hafa verið þýdd- ar af Boga Þorsteinssyni og Ben. Jakobssyni. Þaer hafa þær breyt- ingar í för með sér m. a. að tafir í leiknum verða minni og leik- urinn því skemmtilegri og tví- sýnni fyrir áhorfendur. Staðið hefur yfir dómaranámskeið vegna þessara nýju reglna og hafa þátttakendur verið um 50 talsins. Nú kemur ennfremur sú breyt- ing í framkvæmd að séu lið jöfn að stigatölu að móti loknu ræður ekki markahlutfall eins og verið hefur heldur verður að keppa aukaleik. Frjálsíþróttamót ÍR í innanhússgreinum í dag KLUKKAN 4,30 í kvöld er síðasta tækifærið að sjá frjálsíþrótta- menn okkar keppa innanhúss á þessum vetri. ÍR heldur sitt árlega innanhúss mót í án-atrennu stökkum, en auk þess verður keppt í stangar- stökki og hástökki með atrennu. Á íslandsmeistaramótinu að Laugarvatni um síðustu helgi var hörkuspennandi keppni í öll- um greinum, eins og sjá má á því, að aðeins 3 sm skildu 1. og 3. mann í þrístökkinu og aðeins 5 sm 1. og 3. mann í langstökkinu og hástökkinu án atrennu. í há- stökki með atrennu voru þrír fyrstu menn með sömu hæð. Má búast við, að sama sagan endur- taki sig í kvöld, og að keppnin verði skemmtileg. Hér er svo skrá yfir beztu af- rek íslendinga í án-atrennu stökkum í vetur: Langstökk: Björgvin Hólm, ÍR, 3.25 m Emil Hjartarson, ÍS, 3.23 m Guðjón Guðmundss., KR, 3.20 m Jón Pétursson, KR, 3.19 m Vilhjálmur Einarsson, ÍR, 3.18 m Þrístökk: Vilhjálmur Einarsson, iR, 9.80 m Björgvin Hólm, IR, 9.72 m Jón Pétursson, KR, 9.70 m Emil Hjartarson, ÍS, 9.59 m Hástökk: Vilhjálmur Einarsson, ÍR, 1.68 m Valbjörn Þorláksson, ÍR, 1.61 m Karl Hólm, ÍR, 1.60 m Jón Ólafsson, ÍR, 1.58 m Björgvin Hólm, ÍR, 1.55 m Ársþing I. B. R. ÁRSÞING íþróttabandalags Reykjavíkur hófst miðvikudag- inn 11. marz í Tjarnarcafé. Þetta er 15. ársþing bandalagsins og minntist framkvæmdastjórnin þess með því að bjóða fulltrúum og öðrum gestum til kvöldverð- ar áður en þingstörf hófust. Hóf- ið sátu 75 fulltrúar frá 22 íþrótta- félögum og 6 sérráðum innan bandalagsins, auk fulltrúa frá ÍSÍ og sérsamböndunum, íþrótta- fulltrúa ríkisins, blaðamanna og annarra gesta. Áður en þingfundur hófst minntist formaður bandalagsins, Gísli Halldórsson, þriggja for- ystumanna, sem létust á síðasta ári, þeirra Erlendar Ó. Péturs- sonar, formanns KR, Sigurjóns Danivalssonar, formanns BÆR og Katrínar Jónsdóttur, fulltrúa ÍK í Fulltrúaráði ÍBR. Skákþing íslands í undirbúningi SKÁKÞING íslands verður hald- ið í Reykjavík dagana 21.—30. marz, og verður keppt í tveimur flokkum, landsliði oj meistara- flokki. Sigurvegari í landsliði hlýtur titilinn skákmeistari ís- lands, en Ingi R. Jóhannsson er skákmeistari 1958. í ráði er að breyta lögum sam- bandsins um þátttökurétt í lands- liði og má því búast við að þetta verði í síðasta sinn sem keppt verður eftir gömlu lögunum. Umsóknir um þátttöku verða að hafa borizt til Skáksambands- stjórnarinnar í síðasta lagi á sunnudag. Þess má geta, að Ingi- mar Jónsson og Halldór Jónsson, skákmeistarar Norðurlands munu I taka þátt í mótinu. I setningarræðu sinni drap formaður á helztu mál, sem efst eru á baugi með íþróttafélögun- um og bandalaginu, nauðsyn aukinna námsskeiða fyrir ungl- inga og aukningu unglingastarfs- ins, t. d. með sumarbúðum utan borgarinnar fyrir drengi, bygg- ingu hins nýja íþrótta- og sýn- ingahúss í Laugardalnum, og byggingu miðstöðvar fyrir íþróttahreyfinguna, bæði heild- arsamtakanna og bandalagið og undiraðila þess, skýrslugerðir og reikningsskil félaganna og bygg- ingarframkvæmdir íþróttafélag- anna síðastliðin 10 ár og fyrir- hugað vígslumót Laugardals- vallarins n. k. sumar. Þingforseti var kosinn Jens Guðbjörnsson og 2. þingforseti Stefán G. Björnsson, þingritari Sveinn Björnsson og 2. þingritari Sigurgeir Guðmannsson. Framkvæmdastjórn banda- lagsins lagði fram ársskýrslu sína fyrir síðasta starfsár og kemur þar fram að stjórnin kemur víða við í starfi sínu fyrir sameigin- legum hagsmunamálum íþrótta- hreyfingarinnar. Er skýrslan á- samt reikningum gefin út í mynd arlegu riti, sem er prentað og um 100 bls. að stærð. Gjaldkeri bandalagsins, Bjöm Björgvinsson gaf yfirlit yfir fjár- hag og afkomu bandalagsins, íþróttahús þess við Hálogaland, framkvæmdasjóðs og slysatrygg- ingarsjóðs bandalagsins á síðasta ári. Stendur fjárhagurinn traust- um fótum og nemur skuldlaus eign sjóðanna og íþróttahússins um 840 þús. kr. Fyrir þinginu lágu nokkur mál, varðandi breytingar á reglugerð- um um úthlutun aðgöngumiða, og Slysatryggingarsjóðinn, samn- inga við STEF og vígslumótið á Laugardalsvellinum. Var þeim öllum vísað til nefnda. Síðari fundurinn verður hald- inn mánudaginn 23. marz n. k. Hver era þín? Fylgist jþá með bilum, flugvélum eða radiotækni, smíðar l>ú flugmÓdel eða báta. Ertu hinn góði heimílisfaðir eða soaur sem dyttar að heímiliim með sroálagíæringum og sroíði, .... en ]>að er sama hvaða áhugamál l>ú hefur, í FI.I GMÁÍ, OG TÆKNl er aht um áhugamái allra. mmm p(l 'Atr Stti ER_ VÍÍÍA-RA mÍICPlCr' AX> KAUPA rvö EÍNfÖIC/ EF PÚ YÍLf LE5A PAÐ ðJÁLFURV.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.