Morgunblaðið - 14.03.1959, Page 16

Morgunblaðið - 14.03.1959, Page 16
VEÐRID Allhvass V. eSa SV. skúrir. KJORDÆMAMALIÐ Sjá grein á bls. 9. 61. tbl. — Laugardagur 14. marz 1959 Nólgast þriðjti milljónina FJÁRSÖFNUNIN vegna sjóslys- anna miklu nálgast nú orðið þriðju milljónina eða nánar til tekið rúmlega 2,7 milljón krón- ur. í gærkvöldi höfðu safnazt í skrifstofu Morgunblaðsins kr. 968.085.50. Hélt að Miðbærinn væri að brenna SLÖKKVILIÐIÐ sendi bíla sína á vettvang í gærkvöldi, er eld- bjarma sló á himininn yfir Odd- fellowhúsinu við Tjörnina. Var að sjá sem kviknað væri í þaki hússins, en það var hækkað á síðasta ári. Er brunaverðir komu upp á þakið, kom í ljós að mikill eldur stóð upp úr reykháfi hússins, og kviknað hafði í sótinu. Meðan það var að brenna bárust slökkvi liðinu fjöldi fyrirspurna um það, hvort Miðbærinn væri að brenna, þvi eldbjarminn sást víða að. 134 ábyrgöarbréf sem enginn veit hvert eiga að fara — eða hvaðan koma Trillubát bjargað i vonzku veðri ÞESSI mynd var tekin frá borði á Reykjafossi, í byrjun febrú- armánaðar, er skipið bjargaði þessum opna trillubáti, um 10 mílur út af Ólafsfirði. Voru á hon- um tveir menn. Rak bátinn til hafs í hvassviðri, en nét hafði farið í skrúfuna. Telja kunnugir að ef Reykjafoss hefði ekki verið á þessum slóðum, er bátnum hlekktist á, sé með öllu óvíst hvort tekizt hefði að koma mönn- unum til hjálpar í tæka tíð. — Þennan dag gekk á með hvöss- um vindbyljum og komst veður- hæðin upp í 11 vindstig í þeim. Svo illt var í sjóinn að ógerlegt Svartaþoka veldur hörð- um áreskiri á Hellisheiði 1 GÆRMORGUN varð mjög 'harður árekstur austur á Hellis- heiði, og er það álit manna, að helzta orsökin hafi verið hve dimm þoka var og skyggni með fádæmum slæmt. Misjöfn veiði á Ströndum GJÖGRI, Ströndum, 12. marz. — Ekki hefur verið farið á sjó hér í hreppi síðan í janúar, þangað til fyrir nokkrum dögum, er Trausti Magnússon fór á hand- færaveiðar. í fyrradag fékk hann ekki bein úr sjó, og einnig lengi vel í gær, en síðan veiddi hann 1500 pund af vænum þorski á hálfum þriðja tíma og í dag 2200 pund. Virðist fiskurinn því vera í torfum, og hægt að moka hon- um upp, ef hitt er á slíka torfu. En langt er á miðin, 3% tíma stím. Veiðileysúbátar fóru í gær með lóðir og fengu aðeins steinbít. Sæmileg rauðmagaveiði er á Gjögri. — Regína. var að leggja að bátnum. Dró Reykjafoss trilluna í landvar og var hann um 3 klst. á leiðinni inn undir land. í þessari ferð skipsins var Þórarinn Ingi Sig- urðsson skipstjóri. Myndin er tekin skömmu áður en kaðli var kastað til trillu- bátsins frá Reykjafossi. (Ljósm. Pétur Eiríksson) Póststofan hefur beðið blaðið fyrir eftirfarandi tilkynningu til almennings: í VÖRZU póststofunnar er mikill ; fjöldi óskilasendinga, sem ekki er hægt að koma til skila vegna þess að viðtakandi finnst ekki og sendandi er ekki tilgreindur á þeim. Þannig eru hjá póststofunni 134 ábyrgðarbréf, sem hvorki er hægt að koma til viðtakanda eða send- anda. Einnig nokkur almenn bréf, sem innihalda peninga, smá pakkar, bókasendingar og margt fleira. Þá eru einnig í vörzlu póststofunnar hundruð almennra bréfa, sem ekki er hægt að koma til skila af sömu ástæðum. Hundruð Siglfirðinga liggja nú í inflúenzu Varðarkaffið fellur niður í dag vegna landsfundarins á Selfossi, Kári Forberg, sem var á leið til Reykja- víkur í Volkswagenbíl sínum, sem ók framan á vörubíl er var á leið austur. Sá bíll er X—135. Var höggið mikið og rak símstöðvarstjórinn höfuðið í fram rúðuna og braut hana, en einnig hafði hann fengið þungt högg fyrir bringspalir. Skemmdir urðu nokkrar á bílnum. Vörubíllinn hafði einnig orðið íyrir þó nokkr um skemmdum, því við árekstur inn slitnaði fjarðafestingin öðru megin. Dimm þoka var og munu ökumenn bilanna ekki hafa séð til ferða hvors annars fyrr en um seinan og áreksturinn óumflýj- anlegur, m.a. vegna hálkunnar á snæviþöktum veginum. Nýr bátur til Neskaupstaðar NESKAUPSTAÐ, 13. marz. — Hingað til bæjarins kom í gær nýr bátur, Dalaröst NK 25. Er þetta eikarbyggður bátur, smíð- aður í Danmörku 69,4 brúttó- lestir. Báturinn er búinn full- komnum siglinga- og öryggis- tækjum, t. d. með nýjustu gerð Decca-radartækja og rafmagns- stýri. íbúðir skipverja eru allar klæddar með kjörviði og eru þar kojur fyrir 12 menn. Báturinn gekk í reynsluför 11 mílur með 500 snúningum á aðal- vél, sem er 600 snúninga Lister- díesel. — Á heimleiðinni var siglt með 10 mílna hraða að með- alaltali og var báturinn aðeins 3 sólarhringa og 20 klst. hingað frá bænum Tyborön, en báturinn er smíðaður í Nyköbing. Eigend- ur eru Glettingur h.f., en skip- stjóri á þessum nýja báti er Þor- leifur Þorleifsson, vélstjóri Rögn- valdur Sigurðsson. — FréttaritarL SIGLUFIRÐI, 13. marz: — Fyrir um það bil fimm dögum tók að bera á því hér í bænum, að in. flúenza var að stinga sér niður. í dag var veikin svo útbreidd orðin, að skólum bæjarins hefur öllum verið lokað. Það er ekki örugglega vitað með hverjum hætti inflúensan barst hingað, en mjög er þó að því hallazt að veikiK hafi komið með þýzku skipi, sem kom hingað beint frá útlöndum. Að vísu hafði enginn verið veikur í skipinu, er það kom til Siglufjarðar. Margir höfðu farið út í skipið. Veikin hefur aðallega tekið ung linga og yngra fólk, en einnig full orðna. Fólk er veikt í 3—5 daga og fylgir hár hiti, en lungabólga Fiskur til vinnslu á Siglufirði SIGLUFIRÐI, 13. marz. — Vél- skipið Margrét landaði hér á miðvikudaginn 70 tonnum af fiski og fór aflinn allur í frysti- hús Síldarverksmiðjanna. Aður var skipið búið að koma hér inn einu sinni vegna smávægi- legrar bilunar og landaði þá 10 tonnum. í dag er togarinn Hafliði að losa hér um 300 tonn af fiski, sem fara mun til frystingar og herzlu. Bátarnir sem héðan róa með línu hafa verið með sáralítinn afla, og það sem veiðist er þá steinbítur og annar trosfiskur. — Guðjón. hefur ekki orðið vart, að þvi er Halldór Kristinsson héraðslæknir hefur skýrt frá. í dag liggja hundruð bæjar- búa og við borð liggur að at- vinnulífið sé lamað —Guðjón. Félag vefnaðar- vörukaupmanna AÐALFUDUR Félags vefnaðar- vörukaupmanna var haldinn 10. marz s.l. Björn Ófeigsson var kosinn formaður og meðstjórn- endur Leifur MúUer og Svein- björn Árnason. Fyrir eru í stjórn Halldór R. Gunnarsson og Þor- steinn Þorsteinsson. í varastjórn voru kosin Ed- vard Frímannsson og Sóley Þor- steinsdóttir. Björn Ófeigsson var kosinn aðalfulltrúi í stjórn Sambands smásöluverlana og Ólafur Jó- hannesson til vara. Félagsmönnum hefur fjölgað á árinu og eru nú rúmlega hundr- að verzlanir innan félagsins. Þeim, sem telja sig hafa sent þessar sendingar eða hafa átt von á þeim, er gefinn kostur á að gefa sig fram á annarri hæð póst- hússins (gengið inn frá Austur- stræti) kl. 16—17 virka daga fram að mánaðarmótum. Mozarts-ópera kynnt í háskól- amim HÁSKÓLATÓNLEIKAR verða í hátíðasal háskólans á morgun, sunnudaginn 15. marz kl. 5 stund- víslega. Verður þá fluttur af hljómplötutækjum skólans síðari hluti (2. og 3. þáttur) óperunn- ar Brottnámsins úr kvennabúr- inu („Die Entfúhrung aus dem Serail“) eftir Mozart, en 1. þátt- ur var fluttur þar síðastliðinn sunnudag. Þýzkir listamenn flytja verkið, stjórnandi er Fer- enc Fricsay. Róbert A. Ottósson hljómsveitarstjóri skýrir söng- leikinn og rifjar upp það, sem áður var komið. Aðgangur er ókeypis og öllum heimilL Happdrættið DREGIÐ verður í happdrættl Sjálfstæðisflokksins eftir að- eins 3 daga — og því orðinn hver síðastur að tryggja sér miða í happdrættinu. Vinn- ingurmn er sem kunnugt er ný glæsileg Ford-bifreið, ár- gerð 1959. — Skrifstofa happ- drætUsins í Sjálfstæðishúsinu er opin frá kl. 9 á morgnana fram á Lvöld, og að sjálfsögðu einnig um helgina því á mánu- dagskvöld verður dregið. Stefni skipsins gekk 3 metra inn í bryggjuna AKUREYRI, 13. marz. — Ein af bryggjunum hér á Akureyri varð fyrir miklum skemmdum fyrir nokkru, er togari sigldi á hana og braut. Mun trúlega kosta tugi þúsunda að lagfæra skemmdirnarr og fer nú fram mat á þeim. Landsiundurinn heldur ófram í Sjólfstæðishúsinu kl. 10 FUNDIR hefjast kl. 1» f. h. í dag í Sjálfstæðishúsinu og halda síðan áfram síðdegis í dag. A fundinum, sem hefst kl. 1,30 síðdegis í dag verður flutt framsöguræða um kjördæmamálið. Þýzku bókasýningunni i bogasal Þjóðminjasafnsins lýkur annað kvöld. Hún er opin kl. 10—12 og 14—22 í dag og á morg- un. Myndin er tekin á opnun sýningarinnar og sýnir Halldór Kiljan Laxness (t. v.) á tali við John Muccio sendiherra Bandaríkjanna. Það var togarinn Norðlending- ur, sem hér um ræðir. Kom tog- arinn hingað inn til að taka oliu, en Esso hefur olíusölu til skipa við svonefnd a frystihúsbryggju á Oddeyrinni. Togarinn mun hafa farið á allmikilli ferð skáhalt á bryggjuna og með þeim afleiðing- um, að stefni skipsins gekk 3 m inn í bryggjuna, sem þarna er rambyggileg og stórviðir hennar allir nýlegir. — Stefnið sleit t. d. í sundur 8 tommu olíuleiðslu, sem varð fyrir stefni skipsins. Skipsmenn höfðu skýrt svo frá að áreksturinn hafi orsakast vegna vegna þess hve seint hafði verið svarað í vélarúminu, er tog- arinn ætlaði að leggja að bryggj- unni. —Magnús. Aðalfundur skó- kaupm.félagsins AÐALFUDUR Skókaupmannafé- lagsins var haldinn 17. febr. s.L Formaður var kjörinn Lárus G. Jónsson og meðstjórnendur Pétur Andrésson og Björn Ófeigsson. í varastjórn voru kosnir Sveinn Björnsson og Sigmar Guðmunds- son. Jón Guðmundsson var kos- inn aðalfultrúi í stjórn Sam- bands smásöluverzlana og Pétur Andrésson til vara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.