Morgunblaðið - 12.04.1959, Blaðsíða 2
.2
MORGVlSfíT, 4Ð1P
Sunnudagur 12. apríl 1959
Herborgr Gestedóttir
//'
rVogun vinnur -
30 þús. kr. i veði í
í KVÖLD verður útvarpað síð-
asta þættinum ,,Vogun vinnur —
vogun tapar“. f>á keppa 3 þátt-
takendur um sínar 10.000 kr. hver
og hefur því aldrei verið jafn-
mikið í húfi í einum þætti. Kepp-
endurnir eru þau Herborg Gests.
Stefán Pálsson
//
Sveinn Ásgeirsson
- vogun tapar'
siöasta þættinum
dóttir, Skúli Skúlason og Stefán
Pálsson, en viðfangsefni þeirra
Sturlunga, Alþingiskosningar og
franska stjórnbyltingin.
Upptaka þáttarins hefst kl. 3 í
Sjálfstæðishúsinu. Húsið verður
opnað kl. 2.30.
Fimm samsöngvar Karla-
kórs Reykjavíkur
Á MORGUN, mánudag, og næstu
fjóra daga þar á eftir, þ. e. a. s.
dagana 13, 14., 15., 16. og 17. þ.
m., heldur Karlakór Reykjavík-
ur samsöngva fyrir styrktarfé-
laga sína í Gamla Bíói. — Söng-
stjóri er Sigurður Þórðarson, en
einsöngvarar eru þau Sigurveig
Hjaltested, Guðmundur Jónsson
og Guðmundur Guðjónsson.
Fritz Weisshappel leikur undir á
píanó.
A söngskrá kórsins á þessum
tónleikum verða samtals 13 verk
eftir innlenda og erlenda höf-
unda. — Á fyrrihluta efnisskrár-
innar eru íslenzku lögin, eftir þá
Björgvin Guðmundsson, Emil
Thoroddsen, Pál ísólfsson, Jón
Leifs, Sigvalda Kaldalóns og
söngstjórann, Sigurð Þórðarson.
— Síðan eru erlend verk eftir
þessa höfunda: Verdi, Mascagni,
Hugo Alfvén, H. P. Danks, Dvo-
rák, Sullivan, Bjarne Gjerström
og Johann Strauss.
Sigurveig Hjaltested syngur
einsöng í „Romacze e Scena“ úr
Cavalleria Rusticana eftir Mas-
cagni, Guðmundur Jónsson í
laginu „1 harmanna helgilund-
um“ eftir Pál ísólfsson og „Hljóm
inn“ (The Lost Chord) eftir
Arthur Sullivan og Guðmundur
Guðjónsson í laginu „Ævi hall-
ar“ eftir H. P. Danks, sem Sig-
urður Þórðarson hefur raddsett.
Auk þess syngja þau öll einsöng
í lagaflokknum Formannsvísur
eftir Sigurð Þórðarson.
Góður aíli á línu
- sáralítill í net
SANDGERÐI, 9. apríl. — Nítján
bátar héðan voru á sjó í gær,
16 netjabátar og 3 með línu. —
Línubátarnir öfluðu vel, en sára-
lítið veiddist í netin. Heildar-
aflinn í gær var 96 lestir, en
þar af var afli línubátanna
þriggja, Guðbjargar, Helgu og
Munins II, nær helmingur, eða
rúmlega 46 léstir, og voru þeir
langaflahæstir í flotanum. —
Guðbjörg fékk 18 lestir, Helga
15,3 lestir og Muninn II 12,8 lest-
ir. — Tölurnar eru miðaðar við
óslægðan fisk.
Ef svo fer fram, sem verið hef-
ir, um aflaleysi í net, er búizt
við, að margir bátanna taki línu
á nýjan leik. — Axel.
Þessa dagana eru liðin 33 ár
síðan Karlakór Reykjavíkur hélt
fyrstu söngskemmtun sína, en
kórinn var stofnaður í janúar
árið 1926. — Allan þennan tíma
hefur Sigurður Þórðarson, tón-
skáld, haft stjórn kórsins a
hendi, að undanteknu einu starfs
ári, 1956—’57, er dr. Páll ísólfs-
son stjórnaði kórnum. — Söng-
menn í Karlakór Reykjavíkur
eru nú 37 að tölu.
Vegna hljómleikanna hefur
kórinn gefið út myndarlega söng-
skrá með myndum af öllum kór-
mönnum, söngstjóra, einsöngvur-
um og undirleikara, og einnig
eru í skránni birtir íslenzkir text
ar við öll lögin, sem flutt verða,
nema tvær aríur eftir Verdi og
Mascagni.
Sýsliifimdur
Skagafjarðarsýslu
SAUBÁRKRÓKI, 10. apríl. —
Sýslufundur Skagafjarðarsýslu
hófst í dag í Templarahúsinu á
Sauðárkróki. Er þetta 86. aðal-
fundur, en 120 fundur sýslunefnd
ar. — Allir fulltrúarnir voru
mættir til fundar, nema Jón Sig-
urðsson á Reynistað, sn varamað
ur hans er væntanlegur á fund-
inn.
í dag var kosið í nefndir og
lögð fram erindi. Næsti fundur
hefst kl. 1 síðdegis á morgun. —
Má segja, að vel fari á því, að
sýslufundur skuli nú haldinn sam
tímis sæluviku Skagfirðinga, svo
sem fyrrum tíðkaðist. — Jón.
STEF fellur frá kröfum
Reglugerð í undirbúningi um gsrðardóm,
er skeri úr ágreiningi um greiðslur fyrir
flutningsrétt
ST J ÓRN ARBLAÐIÐ, Alþýðu-
blaðið, skýrði svo frá í frétt í
gærmorgun, að stjórn STEFS
hefði „ákveðið að afturkalla til-
kynningar sínar um gjaldskyldu
segulbandstækja og stórhækkun
á greiðslum ríkisútvarpsins fyrir
höfundarrétt tónskálda". — Kvað
Friðrik gerði jafn-
tefli við Vasjnkov
f FJÓRÐU umferð skákmótsins-
í Moskvu gerði Friðrik Ólafsson
jafntefli við Rússarih Vasjukov.
Smyslov vann Lutikov, Bronstein
Dr. Filip og Milev Simagin. Skák
ir þeirra Aronins og Spassky og
Portisch og Larseri fóru í bið.
Eftir fjórar umferðir er Rúss-
inn Smyslov efstur með 2aA> v.,
og á eina biðskák að auki. Bron-
stein hefur 2% v., þeir dr. Filip,
Vasjukov og Millev hafa 2 v.
hver, Aronin IV2 og 2 biðskákir,
Spassky og Portisch 1% v. og bið-
skák hvor, Friðrik er níundi í
röðinni með IV2 v„ Larsen 1 v. og
2 biðskákir, Simagi 1 v. og bið-
skák, og Lutikov 1 v.
Holtavörðuheiði
rudd
Á FÖSTUDAGSMORGUNINN
hafði veður batnað svo á Holta-
vörðuheiði, að ýta frá Vegagerð
ríkisins lagði á heiðina og tók að
ryðja veginn. í slóð hennar fylgdu
allmargir bílar, sem beðið höfðu
af m'enntamálaráðunéytinurskera 1 færis ,að komast norður yfir' Er
til fullnaðar úr ágreiningi um1^,11 hafði komxð bilum þessum
Skúli Skúlason
arsamtökum og einum tilnefndum
slíkar greiðslur. Fulltrúar ráðu- heilu og höldnu yfir heiðina, hélt
hun til baka til þess að laga leið
ina frékar.
neytisins og höfundasamtakanna
skulu vera embættisgengnir lög-
fræðingar. Formaður dómsins set-
ur dómnum starfsreglur, sem
raðuneytið staðfestir. Áður en
lagður er á úrskurður, skal gerð-
blaðið þetta gert samkvæmt kröfu, ardómurinn gefa aðilum kost á
menntamálaráðuneytisins, en jafnj að skýra sjónarmið sín fyrir dóm_
framt mundi stett ný reglugerð j inum. Önnur ákvæði gjaldskrár-
um gerðardóm, er fjalla skuli um I innar haldast óbreytt.“
Misjöfn veiði
HÚSAVÍK, 11. apríl. — Nokkur
snjór er nú hér um slóðir, en
éljagangur hefir verið hér und-
anfarna viku. Aldrei hefir verið
hvasst á þessum tíma, svo snjór-
inn er nokkuð jafnfallinn, og er
færð sæmileg um vegi hér í ná-
grenninu. Ekki hefir snjórinn
heldur spillt flugvellinum neitt,
og er flogið hingað hindrunar-
laust. — Hins vegar komst áætl-
unarbíllinn ©kki yfir Vaðlaheiði
sl. miðvikudag, vegna ófærðar.
Litið hefir gefið til rauðmaga-
veiða að undanförnu, og afli ver-
ið misjafn þegar gefið hefir. Grá-
sleppa er nú að byrja að veiðast.
— Fréttaritari.
slík deilumál í framtíðinni,
í gærdag barst svo Morgun-
blaðinu svohljóðandi fréttatil-
kynning frá STEFI:
„Þar sem reglugerð mennta-
málaráðuneytisins um flutnings-
rétt á ritverkum og tónsmíðum
hefir í samræmi við tillögur
STEFs verið breytt í það horf,
að sérstakur gerðardómur skeri
úr ágreiningi um greiðslur fyrir
flutningsrétt hugverka hjá út-
varpsstöðvunum, hefir stjórn
STEFs fallizt á tilmæli mennta-
málaráðuneytisins um að nema
úr gildi ákvæði gjaldskrár félags-
ins um upphæðir varðandi höf-
undagreiðslur útvarpsstöðva.
Stjórn STEFs hefir samþykkt
að um höfundagreiðslur fyrir
flutningsrétt hugverka hjá út-
varpsstöðvum skulu gilda þau
ákvæði, að takist ekki samningar
milli heildarsamtaka höfunda og
útvarpsstöðvanria, skal geiðar-
dómur, skipaður einum hæsta-
réttardómara tilnefndum af
Hæstarétti, sem jafnframt skal
vera formaður dómsins, einum til-
nefndum af hlutáðeigandi heild-
Mbl. spurðist fyrir um þetta
mál hjá menntamálaráðuneytinu
í gær. Upplýsti ráðuneytið, að
frétt Alþýðublaðsins væri efnis-
lega rétt, hins vegar væri mál
þetta enn á umræðustigi ,og um-
rædd reglugerð hefði ekki verið
sett.
Lei5rélting
f GREIN Veturliða Gunnarsson-
ar, sem birtist í blaðinu í gær.
varð meinleg prentvilla. — Rétt
er umrædd setning: „Það sem
Ásgrímur sagði og skrifaði um
listina og lífið hefur því miður
ekki heyrzt sem skyldi“. — í
blaðinu stóð breytzt í staðinn fyr
ir heyrzt.
Samkvæmt upplýsingum vega-
gerðarinnar í gær, var þá gott
veður á heiðinni og leiðin fær
stærri bílum, og mun svo haldast,
ef veður ekki spillist á nýjan leik.
Ýta vegagerðarinnar er til taks
þar nyrðra til aðstoðar, ef á þarf
að halda, og mun hún lagfæra
veginn frekar eftir því sem unnt
er. Nokkur umferð stærri bifreiða
mun hafa verið um Holtavörðu-
heiði í gær.
Molotov ekki
til Hollands
HAG, 11. apríl. — Rússneski
sendiherrann í Hollandi, S. P.
Kirsanov, kom hingað fluglexðis
frá Moskvu í dag eftir sex mán-
aða fjarveru sakir veikinda að
því er tilkynnt var. Koma rúss-
neska sendiherrans er almennt
talin bera þess vott, að Ráðstjórn-
in hefur í bili fallið frá þeirri
hugmynd að gera Molotov, fyrr-.
um utanríkisráðherra og núver-
andi sendiherra í Ytri-Mongólíu
að sendiherra Rússa í Hollandi.
Háskólafyrirlestr-
1
ar lóns Hclgasonar
PRÓFESSOR dr. phil. Jón Helga
son er staddur hér í Reykjavík í
boði Háskóla íslands. Hann mun
halda hér tvo fyrirlestra við
Háskólann í þessari viku.
Fyrri fyrirlesturinn fjallar um
Hauksbók, skinnbók, sem Haukur
lögmaður Erlendsson gerði og lét
gera í upphafi 14. aldar og enn er
til í Árnasafni, þó mjög skert. Af
efni Hauksbókar mætti nefna, að
þar er geymd ein gerð Landnáma
bókar.
Síðari fyrirlesturinn mun fjalla
um brúðkaupssiðabækur, en það
eru bækur frá 16. öld til 18.
aldar, sem hafa að geyma ræður,
sem haldnar skyídu í brúðkaup-
um og forsagnir um. hvernig
brúðkaup skyldi fram fara.
Báðir fyrirlestrarnir verða flutt
ir í hátíðasal Háskólans.
Fyrri fyrirlesturinn verður hald
inn miðvikudaginn 15. april kl.
8:30 e. h.
Síðari fyrirlesturinn verður
laupardaerinn 18. anril kl. 5 e. h.
★ IÞR O TTIB ★
Aímæíismót Aftureldingar annað kvöld
M arkskotakeppni og
tvísýnir kappleikir
ANNAÐ kvöld fer fram að Há-
logalandi afmælismót Aftureld-
ingar í handknattleik. Fer mótið
fram að Hálogalandi og fara
fram tveir handknattleikskapp-
leikir og nýstárleg markskota-
keppni.
Handknattleiksleikirnir verða
annars vegar milli liðs Hafnfirð-
inga og úrvalsliðs. Um skipan
úrvalsliðsins var ekki kunnugt er
þetta er skrifað.
Hinn leikurinn er á milli Aft-
ureldingar og Fram. Það getur
orðið tvísýnn leikur, því þar mæt
ast þau lið, sem eftir öllum sól-
armerkjum að dæma skipta um
sæti í deildum. Allt bendir til
þess að Afturelding leiki næsta
ár í 1. deild og sömuleiðis bendir
allt til þess að Fram falli niður
í aðra deild. Þarna gefst því kær-
komið tækifæri til að siá hver
mismunur er á deildunum hvað
styrkleika snertir.
íslandsmótið
í handknattlcik
ÍSLANDSMÓTIÐ í handknatt-
leik verður haldið áfram í kvöld
kl. 8.15. Þá fara fram þessir
leikir:
3. fl. karla A B, KR — Fram.
2. fl. karla A B, Valur _
Þróttur.
1. fl. karla A A, Víkingur —.
Ármann.
1. fl. karla A A, ÍR — KR.
1. fl. karla A B, Fram — FH.
Nú líður að mótslokum og bar-
áttan er í algleymingi. í yngri
flokkunum er tvísýn keppni, en
hvað harðast er þó „barizt" í 1.
flokki.