Morgunblaðið - 12.04.1959, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.04.1959, Blaðsíða 8
8 MORGVlSTiT. 4 Ð1Ð Sunnudafrur 12. apríl 1959 Sigríðwr, Brynjólfur tengdapabbi. og tengdamamma (Nína Sveinsdóttir) / / á u m o r ð u m s a g t Ilormónaspraufur og olíu- leiðslur í gömlu Iðnó LEIKFÉLAG Reykjavíkur hefur undanfarnar vikur æft Túskild- ingsóperuna eftir Bert Brecht, í þýðingu Sigurðar A. Magnússon- ai blaðamanns, undir leikstjórn Gunnars Eyjólfssonar. Túskild- ingsóperan gerði Brecht heims- frægan á sínum tíma. Hún er mik ið verk, textinn erfiður, viður- eignar og Ijóðin einhvers staðar á milli skáldskapar og Æra- Tobba. Þau eru sungin við músík eftir Kurt Weill, og þessi undar- lega músík hefur þá náttúru að smjúga inn í hverja taug áheyr- andans eins og molryk með lokuðum gluggum. Þegar við lit- um inn á æfingu eitt kvöld í vik- unni, var Carl Billich önnum kaf- inn við að æfa sönginn með leik- urunum. Það gekk vel, nema hvað ein bassaröddin var einni áttund neðar en allar hinar. Þannig á það að vera. Það er allt- af skemmtilegt, þegar einhver syngur með sínu nefi án þess að vera að hugsa um nefin á hin- um. Svo fyllti rödd Jóns Sigur- björnssonar hvern krók og kima í salnum og buldi, þróttmikil og sterk, á forvitnishlustum blaða- mannanna. Jón leikur aðalpersón una, skúrkinn Makkí hníf, sem hefur myrt tvo spákaupmenn og svívirt tvær ófullveðja systur („en þær sögðust vera yfir tví- tugt“). Þannig er mórallinn í þessu ágæta verki. Það er engin reisn yfir honum, en hann er ná- kvæmlega eins og hann á að vera: Sem sé enginn. Þetta á sér vafalaust allt einhverjar hlið- stæður hér hjá okkur, en þó mætti gera eina ískyngefandi breytingu á þýðingunni, svo verk ið verði enn aktúella á íslenzku leiksviði, nefnilega þá að skipta um nafn og kalla það: „Horfnir bílar finnast hjá Olíufélaginu". j Það var ekki laust við, að okk- ur fyndist Jón Sigurbjörnsson með köflum of sléttur í andlit- inu fyrir þann skúrk, sem hann á að framkalla á sviðinu. Við tók um hann því afsíðis til að hvísla í eyra hans þessari vafasömu, en frumlegu spurningu: f — Hvernig finnst þeT nú að leika þetta hlutverk? I Jón hrökk auðvitað við, því hann átti von á miklu fínni spurn ingu um sálarlíf og dýpstu hvat- ir og allt þetta, sem er stjó^nað úr brjóstholinu og þar fyrir neð- an, en svona lágkúruspurningar í hofi Þalíu, þar sem hinn stóri andi reykvískra leikgagnrýnenda svífur yfir vötnunum og Thor Vilhjálmsson vill banna fúnum kerlingum að borða konfekt á milli setninga, nei takk — og Jón ætlaði að strunsa fram í sal og upp á svið og fara að syngja hástöfum: „Á hverju lifa menn? Á því að teyma, auðmýkja, pína, svíkja. drepa, éta aðra menn, já þannig lifa menn“. En við tókum í öxlina á honum og sögðum með yfirþyrmandi menningaráhuga: — Varstu ekki lengi að velta því fyrir þér, hvort þú ættir að taka við hlutverki Makkís hnífs? Hann svaraði: — Jú. Við sögðum: — Þér hefur kannski ekki fund izt þú vera nógu mikill skúrkur. Jón sagði: — Nei, það var ekki það. En Makkí hnífur er ekki bara skúrlc- ur. Hann er flott skúrkur. Og svoleiðis fuglar eru dálítið vand- meðfarnir. Svo fór Jón upp á sviðið aftur til að reyna að sannfæra okkur um, að hann hefði kveikt í barna- spítala. Áður en æfingin hófst, drukk- um við kaffi með nokkrum leik- urunum. Við vissum deili á þeim öllum, en nú fengum við að þekkja þá undir augu. Starfs- gleðin og samvinnulipurðin í gömlu Iðnó eru til fyrirmyndar, en það má auðvitað ekki segja nema í afmælisræðum. Og um- hyggjan fyrir verkinu, sem ver- ið er að vinna, sýnir þá réttu af- stöðu til lífsins. Hér er reynt að kafa til botns í hlutunum og dyggilega starfað eftir þeirri for- múiu, að sá sem ekki skilur, hef- ur ekki lifað. Enginn leikaranna hefur fengið eyriskaup í margar vikur þrátt fyrir mikið starf og samt segir Guðmundur Pálsson, gjaldkeri, að það kosti á annað hundrað þúsund krónur að svið- setja leikritið. Vafalaust segja einhverjir, að sagan um Makkí hníf sé ægilega andstyggileg. En það er ekki rétt. Það er hægt að gera ljótar sögur fallegar og leiðinlegt fólk skemmtilegt og það er hægt að vera dálítið klúr eins og gamall skútukarl án þess að umhverfast og persónugerast í 3. síðustíl Tímans upprisnum. Þrír af skúrk um Makkís hnífs sitja við borðið hjá okkur og sötra í sig biksvart kaffið. Það fer lítið fyrir þeim. Þeir eru dálítið ungpiulegir eins og frænka Charleys. Þarna er Árni Tyggvason og Baldur Hólm geirsson og svo er Karl Guð- mundsson þarna líka og talar um j svarthærðar sonnettukonur við Guðrúnu Stephensen. Brynjólfur Jóhannesson, sem gegnir því virðulega hlutverki innan skamms að verða tengdafaðir Makkís hnífs, segir að Karl sé búinn að leggja um sitt hlut- verk: — Hann hefur nefnilega kom- izt að því, að þetta er kynvill- ingur, segir hann, og hlær ein- hvern veginn undir gleraugun eins og æfðir bókarar gera stund um í bíómyndum. Karl er spUrður af hverju hann dragi þessa ályktun. Hann svarar: —r Ja, hann segist vita mun á karli og konu. Það hlýtur að vera skrítið að leika hlutverk, 'sem segist þekkja mun á karli og konu, sérstaklega þegar maður heitir nú Karl með stórum staf. En það er rétt, það eru ekki allir svo lánsamir að leika hlutverk, sem kann skil á þessum tiltölulega litla muni. En það er ekki tími til að velta því lengur fyrir sér. Við ætluðum að spyrja Sigríði Hagalín um henn- ar hlutverk. Hún er unnusta Makkís og síðar eiginkona og leikur af þeirri list og innlifun, sem hormónasprautur Bert Bre- chts segja til um. Sigríður segir, að hlutverkið sé erfitt og verði erfiðara með hverri æfingu. Brecht er nefnilega ekki allur þar sem hann er séður frekar en Jón Leifs. Hann leynir á sér eins og lýsnar í skeggi Lús-Odda. — En þú, Baldur, færðu ekki góða útrás á sviðinu, köllum við yfir borðið. — Jú. Konan segir, að allir karlmenn ættu að leika skúrk niðri í Iðnó á kvöldin. Þá yrðu þeir betri eiginmenn á daginn. Sem sé: Baldur fær þægilega útrás á sviðinu og konan er á- nægð með árangurinn. En það er annars undarlegt, hvað þeir eiga auðvelt með að leika sæmi- legan skúrk, sem eru fæddir norð an jökla. Baldur Hólmgeirsson bætir við: — Það hefur ekki bvarflað að mér að diepa flugu síðan ég fór að leika í óperunni. Sigríður og Makkí hní fur. Þarna er lausnin loksins fund- in. Nú geta forvígismenn um uppeldismál, sálgæzlu og gúð- templerí tekið höndum saman við Helga Hjörvar og skrifað nokkrar blaðsíður í Morgunblað- ið um „lausn á vandamálum þjóðarinnar". Hún virðist ein- faldlega vera sú að láta „vanda- málin“ fá hlutverk við sitt hæfi á sviðinu í Iðnó. Þar gætu olíu- kóngar t.d. dundað við að leggja ólöglegar olíuleiðslur undir leik- sviðinu. En Baldur er ekki að hugsa um svoleiðis hégóma. Hann hleypur niður til að taka nokkrar glennur á sviðinu og segja stráKur upp á óraddað ká og norðlenzku. En leikstjórinn hrekkur við og fær eitthvað ljótt fyrir hjartað, sem ekki má tala um. En nú fer skrunan mikla af stað: Brynjólfur tengdapabbi ger ist fyrirferðarmikill á sviðinu. Verkefni hans er að vekja með- aumkun og láta kísilhjörtu slá og hunda gráta og við finnurn, að hjörtu okkar slá örar og eitt og eitt tár læðist niður kinnarn- ar, þegar enginn sér til. Og svo halda menn ,að þetta sé eitthvert grín! Nei, þetta er ekkert grín og þegar þræll eigin fýsna kemur í heimsókn til tengdapabba, þá mega frumsýningargestir fara að I vara sig og gæta þess að detta 1 ekki úr úr rullunni, því þeirra hlutverk er ekki ómerkara en hinna á sviðinu og stundum erfitt að taka ekki allt til sín, sem sagt er. Svona er þetta, allt eitt lífs- ins leikhús, kómedía með ýríngi af tregedíu og misjafnlega áleitn ar spurningar: Hveraig á að fara út af sviðinu eftir fyrsta þátt? Eða: Hvernig á að kveikja sér í sígarettu í hléinu og drekka kók- ið með sömu reisn og brezkur aðalsmaður vískíblöndu eða gam all fjallkóngur drukk eftir erfið- ar göngur? Tómt stref eftir fyr- irmyndum. Hvernig á að hlæja og hvernig á að gráta? Hvernig á að láta höfuðuð síga? Hvernig á að horfa á tærnar á sér? Hvernig á að hlaupa af sér lappirnar, svo þeim verði ekki stolið undan manni? Brakar í rúminu? Og svo heldur æfingunni áfram, og nú er komið að brúðkaupsveizl- unni. Hún fer fram í hesthúsi og er í fullkomnu samræmi við hinn nýja móral: tveir hnífar og fjórt án gafflar á borðum; presturinn fer með diskinn með sér úr veizl- unni. Alveg eins og hjá okkur — En hér er enginn tími til andagtar, það er komið hlé og leikstjórinn gefur leið- beiningar. En við fáum ekki að heyra meira í kvöld, því Árni Tryggvason er upptekinn sem stendur. Hann er niðri í kjallara að spila póker við Jón Eyjólfsson og Áróru Halldórsdóttur. Ef það verður mikið í pottinum á frum- sýningunni, er ekki að vita, hvernig fer. Það er undarlegt, hvað sumir menn geta tekið hlut- verk sitt alvarlega. M Gunnar Eyjólfsson leikstjórl rabbar um leikinn í hléi (þetta var áður en Árni fór niður í kjallara)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.